Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hammer á klúbbakvöldi Umsjónarmaður næsta norræna klúbbakvölds JAJAJA, sem fer fram í London 15. apríl, verður Alexander Milas sem er ritstjóri hins virta þungarokkstímarits Metal Hammer. Milas mun velja þrjár hljómsveitir frá þremur mismunandi löndum úr hópi umsækjenda. Verði íslensk hljómsveit fyrir valinu veitir Útflutningsráð íslenskrar tónlistar, Útón, henni ferðastyrk sem nemur allt að 150 þúsund krónum. Þeim íslensku sveitum sem vilja sækja um er bent á síðuna www.sonicbids.com/jajaja. Fjórar íslenskar hljómsveitir hafa þegar komið fram á kvöldum JAJAJA: Kira Kira, Bloodgroup, Sudden Weather Change og Leaves. 22.1.2010 04:30
Uppfyllti markmið Íslandsferðar Bretinn Ian Usher ákvað að selja líf sitt á uppboðssíðunni eBay sumarið 2008. Mánuði síðar lagði hann af stað í ferðalag um heiminn þar sem hann var ákveðinn í að uppfylla hundrað markmið á jafnmörgum vikum. Ian heimsótti Ísland stuttu fyrir jól og meðan á dvöl hans stóð hugðist hann sjá Jökulsárlón og hin margrómuðu norðurljós. 22.1.2010 04:00
Sex keppa í úrslitunum Sex hljómsveitir taka þátt í úrslitum keppninnar Global Battle Of The Bands á Sódóma Reykjavík í kvöld. Þær eru Nögl, Endless Dark, Bárujárn, Mikado, Útidúr og Wistaria. Voru þær valdar úr hópi sautján hljómsveita. Sigursveitin verður fulltrúi Íslands í lokakeppninni sem verður haldin í London 27. apríl. Þar keppa hljómsveitir frá yfir þrjátíu löndum um titilinn besta nýja hljómsveit heimsins. Sigurlaunin eru tíu þúsund dollarar, tíu daga tónleikaferð um Bretland og vikudvöl í hljóðveri í London. Keppnin á Sódómu hefst klukkan 22 í kvöld og miðaverð er 500 krónur. 22.1.2010 03:30
Úr ritdeilu yfir í froðuna Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og leikskáld, verður á meðal þátttakanda í forkeppni Eurovision söngkeppninnar sem sýnd verður í Sjónvarpinu annað kvöld. Óhætt er hægt að fullyrða að Þórdís sé margt til lista lagt því hún hefur að undanförnu staðið staðið í ritdeilu við hæstaréttadómarann Jón Steinar Gunnlaugsson. 22.1.2010 03:00
Skilti Helga sýnd Sýning á mótmælaskiltum Helga Hóseassonar hefst í sýningarsal Norræna hússins á morgun kl. 15. Helgi Hóseasson, sem oft var kallaður mótmælandi Íslands, lést 6. september í fyrra eftir að hafa eytt stórum hluta ævi sinnar í að mótmæla á horni Langholtsvegar og Holtavegar. 22.1.2010 02:30
Veislan endurtekin Gítarveisla sem Björn Thoroddsen stóð fyrir í Salnum í Kópavogi í nóvember sló svo hressilega í gegn að veislan verður endurtekin í kvöld og annað kvöld vegna fjölda áskorana. Á tónleikunum bauð Björn til sín mörgum af helstu gítaristum þjóðarinnar sem spiluðu sín uppáhaldslög. Þarna mátti heyra og sjá listamenn á öllum aldri (sá yngsti var 22 ára, sá elsti 79 ára), spilandi alla stíla og var það mál manna að þarna hafi verið tekinn þverskurður af íslenskum gítarleik síðastliðin fimmtíu ár. 22.1.2010 02:00
Spilar lög af nýrri plötu Söngkonan Ólöf Arnalds heldur tónleika í Þjóðmenningarhúsinu á laugardagskvöld. Þar flytur hún efni af væntanlegri plötu sinni, Innundir skinni. Á plötunni, sem kemur út í vor, eru fjölbreyttari útsetningar og hljóðfæranotkun en á fyrstu plötu hennar, Við og við. Helstu hljóðfæraleikarar plötunnar utan Ólafar eru þeir Davíð Þór Jónsson og Skúli Sverrisson. Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós stjórnaði upptökum. Davíð Þór mun einmitt spila með Ólöfu á tónleikunum á laugardaginn, sem hefjast klukkan 20. Miðaverð er 2.000 krónur. 22.1.2010 01:30
Yrsa á hollensku Réttindastofa Bjarts & Veraldar hefur gengið frá samningum við hollenska forlagið The House of Books um útgáfu á bókinni Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur. Þar með er ljóst að bókin, sem er önnur glæpasaga Yrsu, kemur út á að minnsta kosti sautján tungumálum. 22.1.2010 01:00
Móðir sprautufíkils sem er HIV smitaður - myndband „Hún hafði verið lögð inn uppá smitsjúkdómadeild þar sem hún var með lifrabólgu C og var með hita,“ sagði móðir 24 ára stúlku sem er HIV smituð þegar hún segir sjónvarpsþættinum Ísland í dag sögu sína. Sjá og heyra viðtalið í meðfylgjandi myndskeiði. 21.1.2010 15:00
Haítí styrktartónleikar á Nasa - myndir Arnar Már Friðriksson og Birgir Sævarsson stóðu fyrir tónleikum til styrktar hjálparstarfi á Haítí í stamstarfi við Miller Genuine Draft og NASA í gærkvöldi. Landsþekktir tónlistarmenn gáfu vinnu sína. Páll Óskar, Stefán Hilmarsson, Jóhanna Guðrún, Buff, Helga Möller og Jóhann Helgason, Dikta, Dalton, Ragnheiður Gröndal, Haffi Haff, Erpur Eyvindarsson, Friðrik Ómar, Jógvan, Birgitta Haukdal , Hreimur, Mammút, Silfur, Trúton, Böddi, Arnar Már og Biggi. Kynnir var Unnur Birna. Meðfylgjandi má sjá myndir frá styrktartónleikunum. 21.1.2010 11:00
West Ham-glamið búið Á mánudag lauk enn einum kaflanum í útrásarævintýri Íslendinga þegar viðskiptafélagarnir David Gold og David Sullivan keyptu helmingshlut í enska knattspyrnuliðinu West Ham. Eftir stendur kannski bara minning um tvo roskna menn og lag um West Ham. 21.1.2010 06:00
Hitti indverska framleiðendur „Við fórum þangað til að hitta framleiðendur og leikstjóra og kanna aðeins jarðveginn fyrir frekara samstarf. Hvað kemur út úr þessari ferð verður síðan bara að koma í ljós,“ segir Grétar Örvarsson tónlistarmaður, en hann var á Indlandi með forseta Íslands til að kynna landið sem hentugan vettvang fyrir indverska kvikmyndagerð. 21.1.2010 05:30
Valin til að sýna hönnun á tískuvikunni í London „Þetta er mjög spennandi, ég fæ eiginlega í magann þegar ég hugsa um þetta," segir hönnunarneminn Vera Þórðardóttir. 21.1.2010 05:00
Sometime með smáskífu Hljómsveitin Sometime hefur gefið út á Netinu sína þriðju smáskífu af fyrstu og einu plötu sinni Supercalifragilisticexpialidocious sem var endurútgefin á síðasta ári. Á skífunni eru fimm endurhljóðblandanir af laginu Optimal Ending eftir Tommi White, Redd Lights, FM Belfast og Leopold Kristjánsson & Steinunni. 21.1.2010 04:00
Selur listaverk fyrir íbúa Haítí Listamaðurinn Guðmundur Rúnar Lúðvíksson er að skipuleggja myndlistarsýningu þar sem allur ágóðinn rennur til fórnarlamba jarðskjálftans á Haítí. 21.1.2010 03:00
Klúrasta bók allra tíma frá Evu norn „Ég veit alveg að það verða margir sem hneykslast á því sem ég leyfi mér að segja í bókinni. Það er allt í lagi. Fólk má alveg hneykslast,“ segir Eva Hauksdóttir, betur þekkt sem Eva norn. 21.1.2010 02:00
Hugsa út fyrir Ísland Lagið Hlið við hlið með Friðriki Dór var þriðja mest spilaða íslenska lagið á FM 95,7 í fyrra og er enn á lista. Friðrik er ungur og upprennandi poppsöngvari frá Hafnarfirði en mennirnir á bak við lagið heita Ingi Már Úlfarsson og Jóhann Bjarkason. 21.1.2010 01:00
Ornella viðurkennir lýtaaðgerð „Ég er bùin að breyta vörunum mínum. Ég kem því bara beint frá mér núna," svarar Ornella Thelmudóttir fyrirsæta þegar Vísir spyr hana gagngert út í breytingarnar sem orðið hafa á vörum hennar. „Ég er mjög ánægð með allt sem ég geri fyrir mig. Ég viðurkenni það að ég hef mikinn áhuga á lýtaaðgerðum og sé ekkert að því að fara í aðgerð ef manni langar til." Hvaða efni léstu setja í varirnar? „Þetta er ekki sílikon. Þetta er nýtt efni sem var að koma á markaðinn. Lítið annað get ég sagt um þetta," segir Ornella. Fer efnið úr vörunum með tímanum? „Já það gerir það smátt og smátt. Þá fer maður bara aftur," svarar hún brosandi. „Ég er alltaf að taka að mér modelverkefni inn á milli hvort sem það er hér á landi eða erlendis," segir Ornella þegar talið berst að fyrisætustarfinu. „Ég stefni á að fara aftur út þar sem ég stunda leiklistarnám og starfa sem módel samhliða því." 21.1.2010 16:45
Ætlar ekki að æla í beinni Vísir hafði samband við söngkonuna Önnu Hlín sem lenti í öðru sæti í síðustu Idol-keppni, en hún á von á sínu fyrsta barni 5. júlí næstkomandi. Anna Hlín flytur lagið Komdu á morgun til mín, eftir Grétar Sigurbergsson, í Söngvakeppni Sjónvarpsins næsta laugardag. Hvernig hefur þér liðið á meðgöngunni hingað til? „Mér er búið að líða ágætlega fyrir utan stanslausa ógleði fyrstu mánuðina upp á dag. Mér er stundum óglatt en ekki á hverjum degi. Það kemur öðru hverju uppkast." „Ég finn að það er minna pláss fyrir lungun en það er enginn þrýstingur og alls ekkert erfitt að anda," svarar Anna Hlín spurð hvernig er að syngja ólétt. 20.1.2010 14:45
Stjörnukokkur tók ekki æðiskast - myndband „Nei hann tók ekki æðiskast. Hann var bara mjög relaxed. Það var mjög gott að fá hann í gær," svaraði Agnar Sverrisson einn af eigendum veitingastaðarins Texture í London, sem fékk sína fyrstu Michelin stjörnu á dögunum, spurður út í breska stjörnukokkinn Gordon Ramsey sem snæddi þar deginum fyrir viðtalið sem sjá má á meðfylgjandi link. „Ég er með söl, humar, þorsk og lamb og fullt af skyri," segir Agnar meðal annars spurður út í hráefnin sem hann notar. 20.1.2010 13:00
Þorgrímur Þráins og Jói Fel auglýsa The Silver Íslensku landsliðshetjurnar Björgvin Páll Gústafsson og Logi Geirsson hefja Evrópumótið í Austurríki með stæl. Því í dag koma á markað tvær nýjar tegundir í hárgels-línunni þeirra, The Silver. Þær heita Look 3 og The New Look. 20.1.2010 06:00
Semur fyrir dansverk Ólafur Arnalds semur tónlistina í dansverkinu Endalaust sem Íslenski dansflokkurinn æfir nú. Verkið er eftir Alan Lucien Öyen, ungan norskan danshöfund sem hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín. 20.1.2010 05:00
Ekki kominn með nýtt starf Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins og ritstjóri Kastljóssins, hefur sagt upp störfum hjá RÚV. Hann tilkynnti Páli Magnússyni útvarpsstjóra um ákvörðun sína á mánudagskvöld og greindi síðan samstarfsfólki frá þessari ákvörðun sinni í gær. 20.1.2010 04:00
Bráðum hata ég þig á fjalirnar Annað kvöld frumsýnir Nemendaleikhúsið nýtt leikverk, Bráðum hata ég þig, eftir Sigtrygg Magnason. Hann skrifaði verkið sérstaklega fyrir leikhópinn. 20.1.2010 03:00
Jóhanna Vilhjálms: Ég á ekki sjéns í hann - myndband „Ég náttúrulega valdi hann því ég vissi að hann myndi ekki fara í pólitík," segir Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona meðal annars í nærmynd sem Ísland í dag gerði um handboltamanninn Geir Sveinsson sem sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. 20.1.2010 11:00
Sigraði ljósmyndakeppni Jól.is - mynd „Þetta er sex ára sonur minn,“ svarar Daníel Stefán Halldórsson sem bar sigur úr bítum í ljósmyndakeppni Visir.is og Sony Center á jólavefnum Jól.is. 950 notendur Vísis sendu okkur skemmtileg augnablik úr jólaundirbúningnum og jólahaldinu. „Þetta kom mér mjög á óvart því mér fannst margar myndir í keppninni persónulega mjög flottar,“ sagði Daníel ánægður og bætir við: „Ég hef ekkert notað nýju vélina. Konan vill nota hana því ég er með manual vél sem henni finnst leiðinlegt að nota. Þessi vél er alveg fullkomin fyrir hana.“ Í myndasafni má sjá sigurmyndina. 19.1.2010 13:00
Líf og fjör í Hafnarhúsinu - myndir Hafnarhúsið iðaði af lífi og fjöri síðastliðið föstudagskvöld þegar þrjár sýningar, Ljóslitlífun, Dodda Maggý og Erró, voru formlega opnar. Sjá nánar um sýningarnar hér. Á meðfylgjandi myndum má sjá gestina. 19.1.2010 11:00
Geir vinsælastur á Facebook Vinatenglasíðan Facebook nýtur sífellt meiri vinsælda á meðal frambjóðenda í kosningum og prófkjörum. Margir halda því fram að Obama hafi unnið forkosningarnar á sínum tíma með því að nota fésbókina og tvitter. 19.1.2010 08:00
Tekjutengd leiksýning Leikhópurinn Munaðarleysingjarnir sýna nú þrillerinn Munaðarlaus eftir enska leikskáldið Dennis Kelly í Norræna húsinu. Sýningin hefur gengið vel og spurst út. 19.1.2010 06:00
Þriðja barnið á leiðinni Þýska ofurfyrirsætan Claudia Schiffer á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum Matthew Vaughn. Hin 39 ára blondína er komin fimm og hálfan mánuð á leið og á von á sér í maí. „Við erum himinlifandi og getum ekki beðið eftir því að bæta nýjum meðlimi í fjölskylduna," sagði hún. Schiffer og Vaughn, sem gengu í hjónaband árið 2002, eiga fyrir hinn sex ára Caspar og hina fimm ára Clementine. 19.1.2010 06:00
Michael Madsen er rödd Egils Skallagrímssonar Hollywood-leikarinn Michael Madsen talar fyrir Egil Skallagrímsson í nýrri teiknimynd sem íslenska fyrirtækið Caoz framleiðir í samstarfi við ungverska kvikmyndagerðarmenn. 19.1.2010 06:00
Brothers gengur vel í miðasölu „Við settum okkur það markmið að ná þrjátíu millljón dollara markinu og mér sýnist við vera að ná því," segir Sigurjón Sighvatsson, einn af framleiðendum kvikmyndarinnar Brothers en hún hefur fengið prýðilega dóma í bandarískum fjölmiðlum þótt myndin hafi ekki náð neinum Golden Globe-styttum á sunnudagskvöldið. 19.1.2010 05:00
Avatar fékk Gullhnöttinn Stórmyndin Avatar var valin besta dramatíska myndin á Golden Globe-verðlaunahátíðinni sem var haldin í Los Angeles. Leikstjórinn James Cameron var einnig verðlaunaður. 19.1.2010 04:00
Agent Fresco rænd á hollenskri hátíð „Kvöldið var búið að vera æðislegt. Við vorum búnir að vera á frábærum tónleikum með FM Belfast og þá gerist þetta,“ segir Arnór Dan Arnarson, söngvari hljómsveitarinnar Agent Fresco. 19.1.2010 03:00
Áslaug Friðriks: Fékk fullt af ráðum frá pabba - myndir „Ég fékk fullt af góðum ráðum frá pabba og enn fleiri góð ráð frá vinum og kunningjum sem tekið hafa virkan þátt í prófkjörum og kosningum í gegnum tíðina," svarar Áslaug María Friðriksdóttir sem býður sig fram í 4. sæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, spurð hvort faðir hennar, Friðrik Sophusson, hafi gefið henni góð ráð fyrir kosningabaráttuna. „Út frá þeim smíðuðum við prófkjörsplanið og nú er ég sannkallaður starfsmaður í plani," bætir hún við. Á meðfylgjandi myndum má sjá vini og vandamenn Áslaugar sem mættu í teitið sem hún hélt á veitingahúsinu Sólon um helgina. 18.1.2010 18:00
Drottningar á djamminu í Reykjavík - myndir Meðfylgjandi má sjá myndir sem Sveinbi ljósmyndari tók helgina sem leið í miðborg Reykjavíkur. Þá koma hann við á skemmtistöðunum Nasa, þar sem Óli Ofur þeytti skífum, Jacobsen, Hressó og Club 101. Superman.is 18.1.2010 07:30
Sendiherra styður silfurdrengi Sendiherra Íslands í Austurríki, Stefán Skjaldarsson, ætlar að hvetja silfurdrengina í handboltalandsliðinu til dáða gegn Serbíu á Evrópumótinu í Austurríki á morgun. 18.1.2010 06:00
Faust: fjórar stjörnur Vesturportshópurinn skemmtir áhorfendum með loftfimleikum en hefði mátt vinna meira úr þessu klassíska verki til umhugsunar og lærdóms. 18.1.2010 05:00
Hræðir liðsfélagana með borunum Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, knattspyrnumaður í úrvalsdeildarliðinu FH, útskrifaðist sem tannlæknir síðasta vor. Hann segir gaman að fá liðsfélaga til sín í stólinn. 18.1.2010 04:00
Minnsta verkstæði bæjarins „Ég tel það ekki ólíklegt að við séum minnsta verkstæðið í bænum. Þetta er voða lítið og kósí rými og við höfum reynt að gera þetta svolítið heimilislegt. Hér er kaffi á könnunni og andrúmsloftir höfðar til flestra, líka þeirra sem eru tölvuhræddir,“ segir Kjartan Biering, annar eigandi Tæknihliðarinnar sem rekur tölvuverkstæðið Tæknihornið. 18.1.2010 03:30
Hópur Litháa á Íslandi stofnar nýtt íþróttafélag „Við viljum sýna að við erum ekki öll slæmar manneskjur,“ segir Litháinn Algirdas Slapikas. 18.1.2010 03:00
Frægir á frumsýningu Fást Leikgerð Vesturports á Fást sem byggir á frægu verki eftir Gothe var frumsýnd í Borgarleikhúsinu á föstudaginn. Leikhópurinn er þekktur fyrir djarfar útfærslur og leikararnir sviku ekki aðdáendur sína frekar en fyrri daginn þegar þeir sveifluðu sér yfir höfðum áhorfenda og léku allskyns kúnstir í háloftunum. Eins og sjá má hér til hliðar gefur leikhúsgagnrýnandinn Elísabet Brekkan sýningunni fjórar stjörnur en það voru miklu fleiri stjörnur sem sátu útí sal og horfðu hugfangnar á sjónarspilið.-fgg 18.1.2010 02:00
Styttist í Golden Globe Golden Globe-verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í kvöld. Verðlaunin eru bæði veitt fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Kynnir verður breski grínistinn og leikarinn Ricky Gervais. Hann stýrði athöfninni einnig í fyrra en Gervais fékk sjálfur verðlaunin fyrir nokkrum árum. 17.1.2010 16:30
Mamma Lady Gaga: Henni heilsast vel Móðir söngkonunnar Lady Gaga segir að dóttir sín sé miður sín eftir að hún þurfti að aflýsa tónleikum síðastliðið fimmtudagskvöld. 16.1.2010 17:35
Stjörnukokkur út, Íslendingur inn - myndir Athyglisvert er að stjörnukokkurinn Gordon Ramsay á Claridger Hotelinu í Mayfair í London missti sína Michelin stjörnu. 16.1.2010 12:30
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög