Fleiri fréttir

Náttúru-tónleikasviðið tekið að rísa

Undirbúningurinn fyrir Náttúru-stórtónleikana í Laugardal, næstkomandi laugardag, er nú í hámarki en í morgun var hafist handa við að koma upp sviðinu sjálfu.

Madonna og Guy loksins að skilja?

Hjónaband poppdrottningarinnar Madonnu og leikstjórans Guy Ritchie mun endanlega vera að renna út í sandinn. Breska blaðið Daily Mirror hefur það eftir vinum parsins að þau lifi nú alveg aðskilin á heimili sínu í London. Þau hyggist tilkynna um skilnað sinn þegar Madonna hefur lokið tónleikaferð sinni í lok nóvember.

Mariah með eiginmanninn undir hælnum

Það eru ekki tveir mánuðir frá því Mariah Carey giftist ástinni sinni, Nick Cannon, en svo virðist sem stefni í vandræði hjá hjónakornunum. Samkvæmt heimildum Life & Style tímaritsins gætu dívustælar söngkonunnar orðið til þess að þau skilji.

Kanar vilja ekki Boy George

Eitíspopparanum breska Boy George hefur verið synjað um landvistarleyfi í Bandaríkjunum vegna vafasamrar fortíðar sinnar og yfirvofandi réttarhalda í London í haust. Heimsóknin átti að vera hluti af sumartónleikaferð George, og ætlaði popparinn meðal annars að halda sérstaka tónleika fyrir fyrrverandi starfsfélaga sína í hreinsunardeild New York borgar, þar sem hann sinnti samfélagsþjónustu í fyrra vegna fíkniefnabrota sinna.

Amy ekki með lungnaþembu

Vandræðabarnið Amy Winehouse ku ekki vera með lungnaþembu, þrátt fyrir að pabbi hennar hafi haldið því fram í viðtali við Sunday Mirror um helgina. Talsmaður Winehouse sagði í gær að hún þjáðist af forstigseinkennum sem gætu þróast yfir í lungnaþembu ef ekkert yrði að gert. Söngkonan, sem hefur dvalið á sjúkrahúsi frá því hún hné niður á heimili sínu á síðastliðinn mánudag, þyrfti því að taka til í sínum málum vildi henni batna.

Súpermódel hneykslar með ófullkomnum líkamsvexti

Það er ekki víst að tékkneska ofurfyrirsætan Karolina Kurkova hlaupi til næst þegar henni verður boðið til Brasilíu. Kurkova kom fram á tískuvikunni í Sao Paulo á dögunum og olli áhorfendum gríðarlegum vonbrigðum ef marka má brasilísku blöðin.

Hollywood-leikarar hóta verkfalli

Félag leikara í Hollywood hefur hótað verkfalli frá og með næstu viku ef samningar hafa ekki tekist fyrir þann tíma.

Stelpustrákurinn Raquela slær í gegn í Serbíu

"Þetta góða gengi kemur mér mjög á óvart," segir Ólafur Jóhannesson, leikstjóri myndarinnar The Amzing Truth About Queen Raquela, sem hlaut um helgina verðlaun fyrir afreksverk í þágu samtíma kvikmyndagerðar á kvikmyndahátíð í Serbía.

DMX handtekinn fyrir umferðarlagabrot

Rapparinn DMX hefur enn einu sinni í kast við lögin. Lögreglan handtók hann fyrir að keyra með útrunnið ökuskírteini. DMX sætir rannsókn vegna illrar meðferðar á tólf Pit Bull hundum.

Æstir aðdáendur sátu um Garðar Cortes

Stórsöngvarinn Garðar Thor Cortes hóf upp raust sína á Trafalgar torgi í Lundúnum í dag á góðgerðartónleikum á vegum Cherie Blair og Loomba sjóðsins. Æstir aðdáendur heimtuðu eiginhandaráritun eftir tónleikana.

Gillz bloggar á ensku fyrir útlenda aðdáendur

„Það er gríðarleg umferð að koma erlendis frá á síðuna," segir Egill „Gillz" Einarsson, sem hefur ákveðið að skrifa vikulega færslu á ensku á bloggsíðu sinni Gillz.is. Egill segir ástæðuna fyrir áhuga útlendinga á síðunni ekki síst tilkominn vegna gríðarlegra vinsælda vöðvasveitarinnar Merzedes Club. „Þegar Merzedes verður vinsælli erlendis þá neyðist ég væntanlega til að fara alfarið að blogga á ensku.“ bætir hann við.

Garðar Thor syngur fyrir Cherie Blair á Trafalgar-torgi

Garðar Thor Cortes stígur í dag á svið á tónleikum á Trafalgar-torgi í Lundúnum, þegar hann kemur fram á góðgerðartónleikum á vegum Cherie Blair og Loomba sjóðsins. Tilgangur sjóðsins er að aðstoða börn sem eiga feður sem ekki geta verið hjá þeim vegna náms, aðallega á Indlandi.

Ferðast um Evrópu og kennir söng

Ég er bókuð í kennslu um alla Evrópu. Það er bara spennandi og verður gaman að fara til allra þessara landa og kynnast söngvurunum þar. Þess á milli verð ég að syngja hér og þar og allsstaðar," segir Hera Björk.

Amy þakin nikótínplástrum og étur eins og hross

„Það eina sem má fara ofan í lungun á henni eru hreint loft," sagði Mitch pabbi Amy Winehouse í útvarpsviðtali í dag. Hann sagði hana þakta í nikótínplástrum, enda þyrfti hún að halda sér á beinu brautinni ætli hún að halda röddinni.

Lykillinn að ófullnægðu kynlífi

Lykillinn að ófullnægðu kynlífi er að virkja væntingarnar. Bara rífa þær upp og gera alveg æðislegar væntingar til kynlífsins. Það á líka við um lífið sjálft ef þú gerir geðveikar væntingar þá veistu hvernig það fer, segir Helga Braga Jónsdóttir.

Brjálaðir brimbrettakappar vernda McConaughey

Það fór illa fyrir paparössum sem reyndu að ná myndum af leikaranum Matthew McConaughey á strönd í Malibu í gær. Tólf ljósmyndarar eltu leikarann á röndum í þeirri von að ná myndum af honum á brimbretti. Það voru aðrir brimbrettakappar síður en svo ánægðir með, og réðust á ljósmyndarahjörðina.

Dagvaktin verður fyndnari, segir Ragnar Bragason

Dagvaktin verður bæði dramatískari og fyndnari. Þetta verður mun stærri atburður og meiri hasar. Ég held að við séum alveg að uppfylla allar þær væntingar sem fólk gerir til okkar, segir Ragnar Bragason.

Jamie Lynn klárari en Britney

Jamie Lynn Spears er greinilega öllu skarpari en Britney stóra systir sín. Að minnsta kosti þegar kemur að því að eiga við paparassana sem elta þær systur út um allt.

Innlit hjá Amy Winehouse - myndir

Hér má sjá Amy Winehouse á heimili sínu þar sem hún sýnir á sér barminn og tekur inn eiturlyf með kærastanum, Blake Fielder-Civils, meðal annars en þær voru teknar rétt áður en hún veiktist alvarlega.

Framtíð Glanna Glæps óráðin

„Framlagi mínu til Latabæjar er lokið í bili og framhaldið er algjörlega óráðið. Sem stendur er ekki til neinn samningur milli mín og Latabæjar og því er þetta ekki í mínum höndum heldur fyrirtækisins,“ segir Stefán Karl Stefánsson, sem er nýbúinn að leika Glanna Glæp í nýjustu Latabæjarseríunni.

Stallone í Bollywood

Sylvester Stallone verður fyrsti þekkti Hollywoodleikarinn sem fer með aðalhlutverk í Bollywood mynd.

Mannæta á leið til Þýskalands

Bók Þórarins Leifssonar, Leyndarmálið hans pabba, fyndin og frumleg spennusaga um fjölskyldu með óvenjulegt leyndarmál, vakti töluverða athygli erlendra útgefanda á bókasýningunni í Bologna síðastliðinn aprílmánuð.

Eftirlýstur!

Saksóknari í Bandaríkjunum hefur fyrirskipað leikaranum Wesley Snipes að gefa sig fram til lögreglu hið snarasta. Einhver ágreiningur er um það hvort leikarinn megi ganga laus gegn tryggingu en hann á yfir höfði sér fangelsisdóm vegna skattalagabrota.

Pungrakstur í beinni á Bylgjunni

Simmi og Jói eru ávallt hressir á laugardagsmorgnum á Bylgjunni. Í gærmorgun ræddu þeir meðal annars um rakstur og hvort það væri almennt þannig að karlmenn myndu raka á sér “djásnið” eins og þeir orðuðu það. Margt athyglisvert kom í ljós.

Mikki refur kominn í húsdýragarðinn

Vísir sagði frá örlögum yrðlings nokkurs sem fannst einn á reiki í kríuvarpinu út af Reykjanesi fyrir helgi. Þá hafði fjölskylda í Grindavík tekið yrðlinginn að sér og vakti hann mikla athygli í sandkassaloki í garðinum. Nú hefur fjölskyldan losað sig við yrðlinginn og er hann kominn í húsdýragarðinn.

Pabbi bjargar Britney - myndir

Britney Spears hélt þéttingsfast í hönd pabba þegar leið þeirra lá til systur hennar, Jamie Lynn Spears, sem eignaðist dóttir í síðustu viku en hún býr í Kentwood Louisiana.

Gróðursettu þyrnirósir fyrir Sigur Rós

Í gær var margt um manninn skammt frá bökkum Þjórsár í landi Skaftholts í Gnúpverjahreppi en Sól á Suðurlandi og Náttúruverndarsamtök Suðurlands höfðu boðað til gróðursetningar þúsund bjarka í landi Skaftholts.

Campell sér ekki eftir að hafa úthúðað flugáhöfn

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell sakar flugfélagið British Airways um kynþáttafordóma og sér ekki eftir að hafa úthúðað flugáhöfn félagsins. Hún sér hins vegar eftir að hafa ráðist á lögreglumenn. Campbell var dæmd fyrir athæfið í gær.

Fyrri Booty Luv tónleikum frestað til morguns

Stelpurnar í Booty Luv misstu af flugvél á leið til Íslands og fyrri tónleikum þeirra sem áttu að fara fram á veitingastaðnum NASA í kvöld hefur því verið frestað til morgundagsins.

Arnaldur Indriðason vinnur að nýrri bók um Erlend og félaga

„Þessi verðlaun hafa auðvitað mikla þýðingu fyrir okkur sem erum að fást við glæpasagnagerð. Ekki síst vegna þess að þau gefa tækifæri til þess að taka þátt í keppnum um bestu glæpasögur Norðurlanda og vera þar með í hópi með kollegum okkar á Norðurlöndunum,"

Leoncie líkir sér við Madonnu

Leoncie líkir sér við sjálfa Madonnu vegna eigin kynþokka, margbreytilegs hárstíls og hressilegra tónlistamyndbanda sinna. Þetta kemur fram á vefútgáfu New York Entertainment.

Sumargleðin endurvakin

„Mér finnst þetta stórskemmtilegt, því eins og í tónlist þá gengur skemmtanaiðnaðurinn líka í hringi."

Sjá næstu 50 fréttir