Matur

Listakonan Gulla í eldhúsinu: Lambafille með bláberja og pistasíufylltum ananas

Nachos naslið hennar Gullu

Skerið lárperuna í tvennt og skafið innan úr henni. Setjið í matvinnsluvél ásamt sýrða rjómanum.

Setjið í eldfast mót nachos flögur í botninn, salsasósu yfir og svo loks heimagerða guacamoleið.

Stráið síðan osti yfir og endurtakið (þeas nachos salsa, guacamole og ostur). Bakið í ofni við 180-200°c í 10 mín.

1 poki nachos flögur
1 krukka salsasósa
1 stk lárpera
1 poki gratínostur
2 msk sýrður rjómi
Lambafille með bláberja og pistasíufylltum ananas

Lambafille með bláberja og pistasíufylltum ananas, bökuðum sætum kartöflum og kókos-hvítlaukssýrðum rjóma. (fyrir 4)

Blandið þurrkryddunum saman við olivuolíuna. Marinerið lambið upp úr marineringunni í 4 klst. Grillið lambið fyrst í sa. 4 mín á hvorri hlið. Snúið því svo reglulega þannig að hitinn komist jafnt inn að miðjunni.

Gott er að taka kjötið af grillinu í smá stund til að leyfa því að jafna sig aðeins inn á milli. Í lokin er gott að leyfa kjötinu að standa í 8 mín áður en það er skorið. Þá lekur ekki allur safinn úr því þegar það er skorið.

Skerið ananasinn í tvennt og takið innan úr honum. Skerið ananaskjarnann í bita. Blandið ananasinum, bláberjunum, pistasíukjörnunum og hvítlauknum saman og kryddið með salti og pipar. Fyllið ananasinn aftur og vefjið í álpappír. Grillið (eða ofnbakið) í 10 mín (eða 10 mín á 180°c)

Vefjið sætu kartöflunum inn í álpappír og setjið þær á grillið. Tekur um það bil 30 mín (fer eftir stærð kartöflunnar).

Lambið 

800 g lambafille með beininu
2 msk cayenna pipar
8 msk olivuolía
1 tsk svartur pipar
salt eftir smekk

Ananasinn 

2 stk lítill ananans
1 poki þurrkuð bláber
1 poki pistasíukjarnar
1 rif hvítlaukur (fínt saxaður)
salt og pipar

Bakaðar sætar kartöflur


4 stk sætar kartöflur
 

Nýjar íslenskar kartöflur

Nýjar kartöflur soðnar (útí vatnið má setja smá matarkraft t.d. kjötkraft, kjúklingakraft eða grænmetiskraft til að fá smá auka bragð, þó ekki nauðsynlegt) og síðan eru þær settar á pönnu. Smjörklípa sett í pönnuna og kartöflur látnar aðeins malla. Síðan er sett sjávarsalt yfir þær og þær bornar fram óskrældar.

Grillaðar strengjabaunir

Setjið strengjabaunirnar í skál og veltið þeim upp úr olivuolíunni. Kryddið með salti og pipar. Grillið í 1 mín á hvorri hlið.

Grillaðar strengjabaunir

1 pk strengjabaunir
Olivuolía
Salt
Pipar

Kókos-hvítlaukssýrðurrjómi

Setjið sýrða rjómann í skál og bætið kókosmjólkinni út í eftir smekk. Kryddið með salti og pipar

Bakaður hvítlaukur

Setjið hvítlaukinn í álpappír ásamt garðablóðberginu, saltinu og piparnum. Grillið við vægan hita í 25 mín.

1 dós sýrður rjómi með hvítlauksbragði
1 ferna kókosmjólk
salt og pipar

Bakaður hvítlaukur 

12 stk eingeira hvítlaukur
timjan
olivuolía
salt og pipar

Ávextir og nammi í eftirrétt

Skrælið ávextina og skerið þá í fallega bita. Setjið í eldfast mót ásamt namminu og bakið við 180°c í 10 mín. Gott er að bera fram ís með þessu.

*Hægt er að nota hvaða ávexti og ber sem þér dettur í hug og sama á við um nammið.

1 stk mangó
1 stk banani
1 stk drekaávöxtur
1 pk rolo nammi
1 pk smarties





Fleiri fréttir

Sjá meira


×