Fleiri fréttir Bond í vandræðum með að leggja Kvikmyndaleikarinn Daniel Craig veldur nú kætingi í Hollywood - með tilraunum sínum til að leggja nýjum bíl almennilega. Breska dagblaðið The Sun segir að James Bond stjarnan hafi keypt einn stærsta jeppa á götum Los Angeles og nágrannar leikarans segja hann vera í vandræðum með að leggja 2,5 tonna Cadillac Escalade bifreiðinni við gangstéttarbrúnina. 6.2.2007 15:14 Líkamsræktarstöð fyrir strípalinga Líkamsræktarstöð í Hollandi ráðgerir nú að bjóða æfingatíma fyrir striplinga á sunnudögum. Hollenska nektarfélagið segir að stöðin í Heteren verði fyrsta stöðin í landinu sem kemur til móts við strípalinga. Eigandi líkamsræktarstöðvarinnar Patrick De Man segir að fólk beri sig þegar það fari í sauna; “Af hverju ekki í tækjunum?” 6.2.2007 14:56 Svínheppnir gæludýraeigendur Smásvín seljast nú eins og heitar lummur í Kína. Ástæðan er sú að árið 2007 hefst ár svínsins samkvæmt kínversku ártali og trúa eigendur dýranna að þeim fylgi heppni af þeim sökum. Á fréttavef Ananova kemur fram að eigandi gæludýrabúðar á Guangzhou markaði í Nanchang í austurhluta Kína selji að meðaltali 20-30 smásvín á dag. 6.2.2007 14:28 Erfiðasti tíminn fyrir Philippe Leikarinn Ryan Philippe hefur tjáð sig um skilnaðinn við fyrrum eiginkonu sína, leikkonuna Reese Witherspoon. Hann segir að skilnaðurinn hafi reynst erfiðasta verkefni lífs síns. Slúðurblöð og sjónvarpsþættir um stjörnurnar vestanhafs veltu sér upp úr endalokum gullnu leikarahjónanna í Hollywood. 6.2.2007 13:36 Illur fengur Hugmyndaríkur ræningi í New Jersey, í Bandaríkjunum, kom inn í matvörubúð, lagði tuttugu dollara seðil á afgreiðsluborðið og bað um skiptimynt. Afgreiðslumaðurinn varð við þeirri beiðni, en þegar hann hafði opnað peningakassann, dró ræninginn upp byssu og heimtaði alla peningana. 6.2.2007 10:13 Anita í 1500 kvikmyndahús Kvikmyndin Journey 3-D sem Aníta Briem leikur í verður dreift í 1.500 kvikmyndahús í Bandaríkjunum á næsta ári. 6.2.2007 10:00 Unaður skrifræðisins Samkvæmt nýjum reglum um félagslegar íbúðir í Þýskalandi, er gert ráð fyrir ákveðnu plássi fyrir hvern íbúa sem er á framfæri hins opinbera. Gallinn er sá að það eru ekki til nógu margar litlar íbúðir til þess að mæta þessari minnkuðu plássþörf. 6.2.2007 09:43 Endurskapa sögulegt vistkerfi Velgengni samvinnuverkefnisins Wikipedia hefur alið af sér annað netfyrirbrigði sem kennt er við Wiki-skáldskap. Forlagið Penguin hefur í samvinnu við De Montfort-háskólann í Leicester stofnað til verkefnis sem þau kenna við „Milljón mörgæsir“ og er einhvers konar opin ritæfing fyrir áhugasama netverja sem vilja taka þátt í því að skrifa skáldsögu. 6.2.2007 09:30 Óvissa við Efstaleiti „Nú er í gangi ferli þar sem menn segja til um hvort þeir kjósi að vinna hjá hinu nýja félagi eða ekki. Í samræmi við það sem gert er ráð fyrir í lögum er öllum boðið sama starf og þeir höfðu,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri. 6.2.2007 09:30 Hannes um heimildarmyndir 6.2.2007 09:15
Sjá næstu 50 fréttir
Bond í vandræðum með að leggja Kvikmyndaleikarinn Daniel Craig veldur nú kætingi í Hollywood - með tilraunum sínum til að leggja nýjum bíl almennilega. Breska dagblaðið The Sun segir að James Bond stjarnan hafi keypt einn stærsta jeppa á götum Los Angeles og nágrannar leikarans segja hann vera í vandræðum með að leggja 2,5 tonna Cadillac Escalade bifreiðinni við gangstéttarbrúnina. 6.2.2007 15:14
Líkamsræktarstöð fyrir strípalinga Líkamsræktarstöð í Hollandi ráðgerir nú að bjóða æfingatíma fyrir striplinga á sunnudögum. Hollenska nektarfélagið segir að stöðin í Heteren verði fyrsta stöðin í landinu sem kemur til móts við strípalinga. Eigandi líkamsræktarstöðvarinnar Patrick De Man segir að fólk beri sig þegar það fari í sauna; “Af hverju ekki í tækjunum?” 6.2.2007 14:56
Svínheppnir gæludýraeigendur Smásvín seljast nú eins og heitar lummur í Kína. Ástæðan er sú að árið 2007 hefst ár svínsins samkvæmt kínversku ártali og trúa eigendur dýranna að þeim fylgi heppni af þeim sökum. Á fréttavef Ananova kemur fram að eigandi gæludýrabúðar á Guangzhou markaði í Nanchang í austurhluta Kína selji að meðaltali 20-30 smásvín á dag. 6.2.2007 14:28
Erfiðasti tíminn fyrir Philippe Leikarinn Ryan Philippe hefur tjáð sig um skilnaðinn við fyrrum eiginkonu sína, leikkonuna Reese Witherspoon. Hann segir að skilnaðurinn hafi reynst erfiðasta verkefni lífs síns. Slúðurblöð og sjónvarpsþættir um stjörnurnar vestanhafs veltu sér upp úr endalokum gullnu leikarahjónanna í Hollywood. 6.2.2007 13:36
Illur fengur Hugmyndaríkur ræningi í New Jersey, í Bandaríkjunum, kom inn í matvörubúð, lagði tuttugu dollara seðil á afgreiðsluborðið og bað um skiptimynt. Afgreiðslumaðurinn varð við þeirri beiðni, en þegar hann hafði opnað peningakassann, dró ræninginn upp byssu og heimtaði alla peningana. 6.2.2007 10:13
Anita í 1500 kvikmyndahús Kvikmyndin Journey 3-D sem Aníta Briem leikur í verður dreift í 1.500 kvikmyndahús í Bandaríkjunum á næsta ári. 6.2.2007 10:00
Unaður skrifræðisins Samkvæmt nýjum reglum um félagslegar íbúðir í Þýskalandi, er gert ráð fyrir ákveðnu plássi fyrir hvern íbúa sem er á framfæri hins opinbera. Gallinn er sá að það eru ekki til nógu margar litlar íbúðir til þess að mæta þessari minnkuðu plássþörf. 6.2.2007 09:43
Endurskapa sögulegt vistkerfi Velgengni samvinnuverkefnisins Wikipedia hefur alið af sér annað netfyrirbrigði sem kennt er við Wiki-skáldskap. Forlagið Penguin hefur í samvinnu við De Montfort-háskólann í Leicester stofnað til verkefnis sem þau kenna við „Milljón mörgæsir“ og er einhvers konar opin ritæfing fyrir áhugasama netverja sem vilja taka þátt í því að skrifa skáldsögu. 6.2.2007 09:30
Óvissa við Efstaleiti „Nú er í gangi ferli þar sem menn segja til um hvort þeir kjósi að vinna hjá hinu nýja félagi eða ekki. Í samræmi við það sem gert er ráð fyrir í lögum er öllum boðið sama starf og þeir höfðu,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri. 6.2.2007 09:30
Picknick í kvöld Dúettinn Picknick heldur tónleika á Domo í kvöld. Hljómsveitina skipa þau Sigríður Eyþórsdóttir, sem áður var í Santiago, og Þorsteinn Einarsson, fyrrverandi söngvari Hjálma. 6.2.2007 09:00
Júníformklæði rokseljast „Þetta er smá ástand, svona jákvætt vandamál,“ sagði Birta Björnsdóttir, fatahönnuðurinn að baki Júníform, innt eftir gangi mála í búðinni á Hverfisgötunni. Eftir að Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir kynnti Söngvakeppni sjónvarpsins í fatnaði frá Júníform varð sprengja í eftirspurn eftir fötum frá merkinu. 6.2.2007 09:00
Hitar upp í Höllinni Rokkararnir í Mínus hita upp fyrir bandarísku hljómsveitina Incubus sem spilar í Laugardalshöll 3. mars. 6.2.2007 09:00
Knoxville skilinn Johnny Knoxville, einn af gröllurunum úr þáttunum Jackass, er skilinn við eiginkonu sína Melanie eftir ellefu ára hjónaband. Þau eiga saman dótturina Madison sem er tíu ára. Orðrómur hafði verið uppi um að Knoxville hefði haldið framhjá henni nokkrum sinnum, þar á meðal með Jessicu Simpson. Neituðu þau hjón ávallt þeim sögusögnum. 6.2.2007 08:45
Lofaði deyjandi móður sinni að giftast Brad Pitt Angelina Jolie hefur ákveðið að giftast kærasta sínum Brad Pitt. Þessu lofaði hún móður sinni skömmu áður en hún lést. 6.2.2007 08:45
Má ekki heita Diddy Dómstólar í Bretlandi hafa beðið rapparann Sean Combs um að fjarlægja listamannsnafnið P Diddy af netinu. Rapparinn náði samkomulagi á síðasta ári við Richard „Diddy“ Dearlove um að hætta að nota nafnið P Diddy í Bretlandi. 6.2.2007 08:30
Nýju fötin keisarans Kvikmyndasafn Íslands sýnir mynd Roberts Altman, Prét-á-Porter kl. 20 kvöld. Myndin er paródía á tískuvikuna í París og var kvikmynduð á einni slíkri. 6.2.2007 08:15
Músiktilraunir í nánd Nú er farið að kynda undir Músík-tilraunirnar sem verða þetta árið haldnar í Loftkastalanum og lokaúrslitin í Verinu á Seljavegi vestast í vesturbænum gamla í Reykjavík. 6.2.2007 08:15
Oliver lét Kylie róa símleiðis Leikarinn og hjartaknúsarinn Olivier Martinez lét poppstjörnuna Kylie Minogue róa á föstudaginn. Kylie og Olivier höfðu verið saman í fjögur ár en hann mun hafa sagt söngkonunni upp símleiðis en hún er stödd í Mexíkó. 6.2.2007 08:00
Par á bar á Nasa Æfingar eru hafnar á gamanleikritinu Bar/Par eftir Jim Cartwright. Eins og nafnið á verkinu gefur til kynna gerist leikritið á bar þar sem áhorfendur fá tækifæri til að kíkja inn í líf bareigenda sem eru hjón og gesta þeirra eina kvöldstund. 6.2.2007 08:00
Spila á By:Larm Söngkonan Lay Low og hljómsveitirnar Reykjavík! og Ultra Mega Technobandið Stefán koma fram á skandinavísku tónlistarráðstefnunni By:Larm sem verður haldin í Noregi 8. til 10. febrúar. Spila þau undir merkjum Iceland Airwaves-hátíðarinnar. 6.2.2007 07:00
Vill ekki sjá Drottninguna Elísabet II Englandsdrottning ætlar aldrei að sjá myndina The Queen, með Helen Mirren í aðalhlutverki, því hún vill ekki sjá annan í sínu hlutverki á hvíta tjaldinu. 6.2.2007 06:45
Á tónleikaferð um Evrópu Söngvarinn og Eurovision-hetjan Eiríkur Hauksson fer í tónleikaferðalag um Evrópu í vor með hljómsveitinni Live Fire and the All Viking Band. Forsprakki sveitarinnar er Ken Hensley, einn af upprunalegum meðlimum rokksveitarinnar fornfrægu Uriah Heep, sem heldur tónleika í Laugardalshöll 27. maí ásamt Deep Purple. Hætti hann í sveitinni árið 1980. 6.2.2007 06:45
Svarti listi femínistans „Nei, ég tala ekki við DV,“ segir Katrín Anna Guðmundsdóttir talskona femínista. Og er það vegna þess að blaðið hefur birt auglýsingar frá súlukónginum Geira á Goldfinger. Það dugar til að blaðið er á svörtum lista Katrínar Önnu. 6.2.2007 06:45
Partý og ljósmyndasýning Hljómsveitin Kimono og listamaðurinn Curver héldu útgáfupartí á dögunum í tilefni af útkomu plötunnar Kimono + Curver. 6.2.2007 06:00
Scorsese sigraði Leikstjórinn Martin Scorsese fékk Directors Guild of America-verðlaunin fyrir mynd sína The Departed. 6.2.2007 06:00
Nýjustu fræði Stefán Pálsson sagnfræðingur flytur fyrirlestur annað kvöld þar sem hann gerir upp síðasta jólabókaflóð með sérstakri áherslu á fræðirit, kennslubækur eða bækur almenns efnis. 6.2.2007 05:15
Hátíðir í Gautaborg, Rotterdam og Berlín Þessa dagana er mikið um dýrðir víða í Evrópu: það er tími stóru kvikmyndahátíðanna í Gautaborg, Rotterdam og framundan er Berlínarhátíðin. 6.2.2007 05:00
Framtíð Kosovo Margrét Heinreksdóttir flytur erindi á Lögfræðitorgi Háskólans á Akureyri í dag og fjallar þar um framtíð héraðsins Kosovo. 6.2.2007 04:00
Launamunur og viðskiptabönn Femínistafélag Íslands kemur að tveimur viðburðum í dag, annars vegar opinni málstofu í Öskju kl. 16.30 en um kvöldið heldur félagið reglubundinn fund sinn á Thorvaldsen bar. 6.2.2007 03:45
Paris Hilton og Ron Jeremy flögguðu líkamspörtum Íslandsvinurinn Ron Jeremy, sem er þekktur klámmyndaleikari, og hótelerfinginn Paris Hilton flögguðu líkamspörtum sínum fyrir framan hvort annað fyrir nokkrum árum. Þetta kemur fram í nýrri sjálfsævisögu Rons, sem ber heitið Ron Jeremy: The Hardest (Working) Man in Showbiz, sem kemur út í næstu viku. 5.2.2007 19:15
Eiginmaður Anne Heche sækir um skilnað Eiginmaður leikkonunnar Anne Heche, Coley Laffoon, hefur sótt um skilnað við leikkonuna. Anne er hvað þekktust fyrir samband sitt við gamanleikkonuna Ellen DeGeneres en þær voru áður saman í þrjú ár. Anne og Coley, sem er kvikmyndatökumaður, hittust fyrst við gerð heimildarmyndar um Ellen. 5.2.2007 19:00
Kvikmyndaleikstjóraverðlaunin afhent Vestanhafs Kvikmyndaleikstjóraverðlanin (Director's Guild Awards) voru veitt í 59. skipti í gær en það eru samtök kvikmyndaleikstjóra í Ameríku sem veita verðlaunin. Eru þau talin benda til þess hvaða leikstjóri er líklegastur til að hreppa Óskarinn, en Óskarsverðlaunin verða veitt síðar í þessum mánuði. Aðeins sex sinnum frá árinu 1949 hefur sá leikstjóri sem hlýtur kvikmyndaleikstjóraverðlaunin ekki fengið Óskarinn fyrir bestu leikstjórn. 5.2.2007 18:00
Britney elskar að vera einhleyp Eftir að Britney Spears skiildi við eiginmann sinn Kevin Frederline hafa hlutirnir ekki alltaf gengið eins og tveggja barna móður sæmir. En í samtali við People Magazine svaraði hún því til að henni þætti “æðislegt” vera einhleyp. Söngkonan hefur verið dugleg við að fara út á lífið eftir skilnaðinn. Á tískusýningu í New York á dögunum stal hún athyglinni af fyrirsætunum með röndóttum kjól og kynþokkafullum háum hælum. 5.2.2007 16:46
Skemmta dökkhærðar sér betur? Það virðist sem ljóst hár sé á undanhaldi í Hollywood. Stjörnurnar lita nú hár sitt dökkt hver á fætur annarri. Sú sem síðast skipti um hárlit var leikkonan Charlize Theron en hún spókaði sig um nýverið með dökka lokka. 5.2.2007 16:30
Lindsey hættir við kvikmynd Leikkonan Lindsay Lohan hefur hætt við hlutverk í kvikmyndinni "A Woman Of No Importance." Ástæðan er að Linds vill ná sér betur eftir áfengismeðferð. Annette Bening leikur stórt hlutverk í myndinni, en þetta er í annað sinn sem ætlunanir um að þær stöllur leiki saman í mynd fara út um þúfur. Árið 2003 hætti Annette við myndina Freaky Friday, en þar lék Lindsay aðalhlutverkið. 5.2.2007 15:45
Skaut viðvörunarskotum í loftið Óskarsverðlaunaleikarinn Ryan O'Neal var handtekinn á heimili sínu í Malibu um helgina vegna gruns um að hafa ráðist á son sinn, Griffin. Samkvæmt fréttavef CBS2 mun O'Neal hafa skotið viðvörunarskotum í loftið til stöðva átök og hræða 42 ára gamlan son sinn. Griffin er þekktur fyrir ofbeldishneigð undir áhrifum áfengis og hefur hlotið dóma vegna þess. 5.2.2007 15:15
Harry Potter ekki sem e-bók Nýja Harry Potter bókin verður ekki gefin út í tölvutæku formi samkvæmt lögmanni útgáfufyrirtækis höfundarins JK Rowling. "Harry potter and the Deathly Hallows" verður gefin út samtímis um allan heim, á miðnætti 21. júlí næstkomandi. Rowling hefur tjáð sig um sjóræningjastarfsemi á netinu og hvatt aðdáendur til að kaupa ekki áritaðar bækur hennar af internet uppboðum. 5.2.2007 15:11
Hjónaband barnanna planað Söngkonan Gwen Stefani væri til í að að sonur sinn, Kingston, giftist Shiloh, dóttur Angelinu Jolie og Brad Pitts, þegar þau verða fullorðin. Þetta sagði hún í viðtali við glanstímaritið Elle. 5.2.2007 15:00
Miðvikudagserindi Orkugarðs Stefanía G. Halldórsdóttir, sérfræðingur á Vatnamælingum Orkustofnunar, mun flytja miðvikudagserindi Orkustofnunar næstkomandi miðvikudag. Ber erindi hennar heitið Vatnafarsleg flokkum vatnssvæða á Íslandi - Hvernig bragðast landsvæði við úrkomu og miðla henni? Verður fræðsluerindið haldið í Víðigemli, sal Orkugarðs að Grensásvegi 9 í Reykjavík, á milli klukkan 13:00 og 14:00 miðvikudaginn 7. febrúar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomir. 5.2.2007 14:47
Mínus hitar upp fyrir Incubus Hljómsveitin Mínus mun hita upp fyrir tónleika Incubus í Laugardalshöll sem fram fara þann 3. mars. Hljómsveitin mun flytja efni af nýrri breiðskífu. Þetta eru fyrstu tónleikar Mínus hér á landi síðan á Iceland Airwaves-hátíðinni í fyrra. Væntanleg breiðskífa var tekin upp í Los Angeles. Incubus þykri með betri tónleikasveitum Bandaríkjanna og nýjasta plata sveitarinnar, Light Granades fór beint í fyrsta sæti Billboard listans þegar hún kom út. 5.2.2007 11:26
Vann flugmiða og gjaldeyri Heppnin var með Margréti Sesselju Otterstedt þegar hún valdi sinn uppáhalds tónlistarflytjenda fyrir árið 2006 á Vísi. Kosningin fór fram vegna Íslensku tónlistarverðlaunanna sem fram fóru í Borgarleikhúsinu sl. miðvikudagskvöld. Margrét fékk flugmiða fyrir tvo með Icelandair til eins af áfangastöðum Icelandair og gjaldeyri frá Landsbankanum. 5.2.2007 10:30
Vill Federline aftur Samkvæmt National Enquirer grátbiður Britney Spears nú Kevin Federline um að snúa aftur. Samvkæmt upplýsingum þeirra hefur Britney boðið honum gull og græna skóga, og það þrátt fyrir að hún eigi kærasta. Á meðal þess er að hún borgi reikninga hans, hætti partístandinu og leiti sér hjálpar við áfengismisnotkun sinni. 5.2.2007 10:15
Federline biðst afsökunar Rapparinn Kevid Federline, sem er kannski frægastur fyrir að hafa verið kvæntur Britney Spears, hefur beðið kokka á skyndibitastöðum Bandaríkjanna afsökunar á auglýsingu sem hefur farið fyrir brjóstið á þeim. Í auglýsingunni er Kevin að steikja franskar kartöflur en dreymir dagdrauma á meðan. Formaður félags starfsfólks á veitingahúsum, segir að auglýsingin sé gróf móðgun við þær 12,8 milljónir manna sem vinni á veitingahúsum landsins. 5.2.2007 10:05
Hálfur Íslendingur semur fyrir stórstjörnur Samdi lag fyrir Beyonce Lagið Irreplacable með söngdrottningunni Beyonce hefur trónað í efsta sæti Billboard Hot 100-listans síðastliðnar sjö vikur. Einn lagahöfundanna er hinn hálf-íslenski Amund Bjørklund. 5.2.2007 10:00