Tónlist

Partý og ljósmyndasýning

Skál! Curver, Alex MacNeil, Gylfi Blöndal, Halldór Ragnarsson og Arnar Bjarnason skáluðu fyrir nýjustu plötu Kimono og Curvers.
Skál! Curver, Alex MacNeil, Gylfi Blöndal, Halldór Ragnarsson og Arnar Bjarnason skáluðu fyrir nýjustu plötu Kimono og Curvers. MYND/Rósa

Hljómsveitin Kimono og listamaðurinn Curver héldu útgáfupartí á dögunum í tilefni af útkomu plötunnar Kimono + Curver.

 

viddi og hildur Viddi og Hildur kíktu í útgáfupartíið sem var haldið í galleríinu Auga fyrir auga.

Ljósmyndir sem prýða umslag plötunnar voru einnig sýndar en þær voru teknar í London.

 

örlygur og sunna Örlygur Þór Örlygsson og Sunna Ebenesersdóttir voru á meðal gesta.

Eftir veisluna, sem var haldin í galleríinu Auga fyrir auga á Hverfisgötu, þeytti Curver skífum á Sirkus.

 

hjón Hjónin Lukka Sigurðardóttir og Orri Páll Dýrason úr Sigur Rós kíktu í teitið og heilsuðu upp á Alex MacNeil og félaga.

Daginn eftir héldu Curver og Kimono síðan þriggja klukkustunda spunatónleika í Gallerí Kling og Bang til að kynna plötuna enn frekar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×