Fleiri fréttir

Latibær á hvíta tjaldið

Tveir þættir úr nýrri þáttaröð um Latabæ verða sýndir í Sambíóunum Kringlunni sem hluti af Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík sem fram fer dagana 28. september til 8. október.

Óútgefin bók verður aðgengileg 2,5 milljörðum manna

Ný glæpasaga Yrsu Sigurðardóttur verður á næstu misserum aðgengileg tveimur og hálfum milljarði manna því bókaforlagið Veröld hefur gengið frá samningum um útgáfu á sögunni í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu, Grikklandi og Póllandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forlaginu.

Heilræðavísur í anda lífsleikninnar

Ungum er það allra best -- Að eiga val sem allra mest -- Að leika sér útum allar trissur -- Og óttast hreint ekki að gera skyssur. -- Að lesa og skrifa list er góð -- En líka að dansa og yrkja ljóð -- Að kunna að ærslast og eignast vini -- Ýmist af sam- eða gagnstæðu kyni.

Lífsleikni eykur sjálfsvitund og samhygð

Lífsleikni hefur fyrst og fremst að gera með félags- og tilfinningaþroska og er m.a. ætlað að auka sjálfsvitund og samhygð, góð tjáskipti og skapandi hugsun.

Ég var í tossabekk

Já, fjölgreindarkenningin breytti öllu. Nú höfum við vísindalegar sannanir fyrir því að félags- og tilfinningaþroskinn segir best til um velgengni í lífinu. Og svo kom það líka í ljós eftir allt saman að heilinn virkar ekki vel þegar við erum óörugg og hrædd. Og fullur haus af niðursoðinni þekkingu hjálpar manni ósköp lítið á upplýsingaöld. Það eina sem raunverulega skiptir máli er hvernig okkur líður.

Íslensku safnaverðlaunin

Minjasafn Reykjavíkur hlaut í gærkvöldi Íslensku safnaverðlaunin 2006, en verðlaunin eru veitt af Félagi íslenskra safna og safnmanna (FÍSOS) og Íslandsdeild ICOM (Alþjóðaráði safna). Það var einróma niðurstaða dómnefndar að veita Minjasafni Reykjavíkur, Árbæjarsafni, Íslensku safnaverðlaunin, enda hefur safnið með fjölbreyttum sýningum lagt fram mikilvægan skerf til eflingar faglegs starfs í sýningargerð, að mati dómnefndar.

Glæsilegasti menntamálaráðherra í heiminum?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra verður næsti gestur Jón Ársæls í Sjálfstæðu fólki sem nú hefur hafið göngu sína sjötta árið í röð. Þátturinn hefur eins og kunnugt er hlotið Edduverðlaunin þrjú síðastliðin ár sem besti sjónvarpsþátturinn í íslensku sjónvarpi auk þess að hafa verið tilnefndur til verðlaunanna í alls fimm skipti.

VICE KVÖLD Á AIRWAVES 2006

Tímaritið Vice verður með sérstakt kvöld á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves 2006. Kvöldið fer fram á Gauknum, föstudagskvöldið 20. október og þar munu koma fram hljómsveitirnar Wolf Parade (CAN), Jeff Who?, Mammút, Jan Mayen, Hölt hóra, Vax, Lisa Lindley-Jones (UK) og 120 Days.

Gvantanamó fangabúðirnar

Íslandsdeild Amnesty International og Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík efna til málþings um Gvantanamó fangabúðirnar og kvikmynd Michael Winterbottoms Leiðin til Gvantanamó (The Road to Guantánamo). Myndin lýsir atburðum í lífi þremenninganna Shafiq Rasul, Asif Iqbal og Rhuhel Ahmed, sem leiddu til þess að þeir voru handteknir og sendir til Gvantanamó.

Eiríkur Hauksson gestasöngvari

Hljómsveitin Miracle, frá Hollandi, verður með 2 dansleiki á Players um helgina. Miracle er eina samþykkta Queen cover bandið af eftirlifandi meðlimum Queen og þykja mjög vinsælir. Ferðast um heiminn og spila eingöngu Queen lög.

Fræðsluganga um Einar Ben

Skógræktarfélag Reykjavíkur býður upp á fræðslugöngu um Einar Ben laugardaginn 30. september kl 11:00. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur leiðir gönguna en hann skrifaði á sínum tíma þriggja binda ritverk um þjóskáldið Einar Benediktsson.

Evanescence - The Open Door

Næstkomandi mánudag, 3. október kemur út platan "The Open Door" með bandarísku rokksveitinni Evanescence. Síðasta stúdioplata sveitarinnar "Fallen" kom út árið 2003 og sló í gegn og hefur nú selst í yfir 14 milljónum eintaka, en sú plata inniheldur meðal annars lögin "My Immortal" og "Bring Me To Life".

POLSKA 1969-1989

Laugardaginn 30. september kl. 15.00 opnar ljósmyndasýning hins þekkta ljósmyndara Chris Niedenthal í Ljósmyndasafni Reykjavíkur aðTryggagötu 15. Chris Niedenthal hefur unnið sem fréttaljósmyndari fyrir Newsweek, TIME og Der Spiegel og var m.a. svæðisljósmyndari fyrir alla Austur-Evrópu og Sovétríkin þegar hann vann fyrir tímaritið TIME.

Fabúla með Dusk

Tónlistarkonan Margrét Kristín Sigurðardóttir, sem ber listamannsnafnið Fabúla, sendir frá sér geislaplötuna Dusk sem kemur í verslanir þann 29. september næstkomandi. Dusk er þriðja plata Fabúlu en hún er þekkt fyrir einstaklega ljúfar og fallegar lagasmíðar sem færa áheyrandann inn í heillandi tónaveröld.

Andlega sinnuð þjóð

Íslendingar hafa löngum verið andlega sinnaðir, segja má að flestir hafi áhuga á þýðingu drauma, við þekkjum öll einhverja sem séð hafa svipi, flestir þurfa sálarró, slökun og frið og nánast allir eru forvitnir um þessi málefni.

Strákabandið Five saman á ný

Eftir klukkustund hefur strákabandið FIVE boðið til blaðamannafundar í London þar sem sem þeir munu tilkynna blaðamönnum og aðdáendum sínum að þeir hyggjist byrja að spila saman aftur. Í dag erum nákvæmlega fimm ár síðan bandið hætti en nú snúa þeir saman aftur, reyndar bara fjórir þar sem einn þeirra hefur hafið sólóferil.

Hjólið góð tilbreyting

Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr og fyrrverandi borgarstjóri, sást á dögunum geysast um götur Reykjavíkur á reiðhjóli á leið til vinnu. Þórólfur segir það þó ekki vera regluna. Það kemur fyrir að ég hjóli til vinnu en veðráttan ræður oft úrslitum, segir hann. Það getur verið erfitt að búa sig að heiman þannig að maður sé rétt klæddur fyrir bæði veðrið og þær hefðir sem gilda um klæðnað á fundarsetum, bætir Þórólfur við og segist hafa vanmetið veðrið síðastliðinn miðvikudag.

Sjaldséð samtímalist til sýnis

Sýning á safneign Nýlistasafns Íslands verður opnuð í húsakynnum safnisins á Laugavegi 26 kl. 14 í dag en á þessari óvenjulegu sýningu gefst einstakt tækifæri til að sjá dýrgripi úr listasögu landsins. "Við erum að sýna öll verk í eigu safnsins," útskýrir Lárus Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Nýlistasafnsins.

Nýr klúbbur

Kvikmyndaklúbburinn Lax hefur verið stofnaður af útvarpsstöðinni X-ið 977 og Laugarásbíói. Klúbburinn er ætlaður þeim hlustendum X-ins sem hafa mikinn áhuga á kvikmyndum. Leitast verður við að bjóða hlustendum upp á það allra besta sem völ er á í úrvalsafþreyingu.

Hollywood ekki fyrir homma

Leikarinn Rupert Everett er orðinn leiður á hræsninni í Hollywood og þeim fordómum sem eru í garð samkynhneigðra í kvikmyndaiðnaðinum. Þetta kemur fram í nýrri sjálfsævisögu hans, Red Carpets and Other Banana Skins, þar sem hann lætur allt flakka.

Heita nú Rock Star: Supernova

Nafni hljómsveitarinnar Supernova, sem Magni Ásgeirsson var nálægt því að komast í, hefur verið breytt í Rock Star: Supernova. Heitir hljómsveitin því eftir raunveruleikaþættinum sem kom henni á kortið. Pönksveitin Supernova frá Kaliforníu höfðaði mál gegn Tommy Lee og félögum fyrir að stela nafninu og á endanum þurfti raunveruleikasveitin að gefa eftir.

Féll fyrir Íslandi og ætlar ekki aftur til Skotlands

Skoski leikarinn Rory McCann kom til Íslands í byrjun september ásamt landa sínum, stallbróður og góðvini Gerard Butler til þess að vera viðstaddur frumsýninguna á Bjólfskviðu. Gerard leikur sjálfan Bjólf en Rory leikur Breka vopnabróður hans. Butler er löngu farinn af landi brott en Rory hefur ákveðið að setjast hér að.

Herinn, beinin og skáldskapurinn

Bókmenntafræðingurinn Jón Karl Helgason ræðir við gesti Gljúfrasteins um Atómstöðina í dag kl. 16. Atómstöðin er verk mánaðarins í húsi skáldsins og gefst lesendum þess nú kostur á að kíkja við í stofunnni og spjalla um verkið. Yfirskrift dagsins er "Atómstöðin: her og bein" en Jón Karl mun ræða um örlög beina Jónasar Hallgrímssonar í skáldskap og veruleika í tengslum við verkið.

Íslenskir hápunktar

KaSa hópurinn heldur tónleika í Norræna húsinu í dag undir yfirskriftinni "Íslensk kammertónlist á 20. öld". Efnisskráin samanstendur af nokkrum verkum sem teljast hápunktar íslensks tónlistarlífs á 20. öld, meðal þeirra eru sónata fyrir fiðlu og píanó eftir Jón Nordal, smátríó fyrir flautu, selló og píanó eftir Leif Þórarinsson og strengjakvartett eftir Jón Leifs.

Phillips ákærður

Leikarinn Lou Diamond Phillips hefur verið ákærður fyrir líkamsárás. Er hann sakaður um að hafa ráðist á kærustu sína í síðasta mánuði. Phillips er sagður hafa lent í rifrildi við kærustuna og endaði það með barsmíðum. Á hann yfir höfði sér allt að eins árs fangelsisvist og um 140 þúsund króna sekt verði hann fundinn sekur.

Ummæli sem vekja hneykslun

Söngkonan og dívan Beyonce er ekki í góðum málum þessa dagana eða síðan hún lét ummæli falla í viðtali við tímaritið Blender sem vakið hefur mikla hneykslun manna. Þar sagðist söngkonan fræga aðeins gera plötur og tónlist fyrir svertingja. Þetta hefur vakið mikil viðbrögð í Bandaríkjunum og hefur salan á nýjustu plötu hennar dregist saman um 70% síðan blaðið kom út.

Ekki fyrir nútímapopp

Tónlistarmaðurinn Sting segist ekki vera hrifinn af nútímapoppurum á borð við Justin Timberlake og Beyonce Knowles. „Tónlistin í dag er ekki sniðin að mínum þörfum. Ég skil hvorki Beyonce né Justin Timberlake. Fyrir mér er söngur andlegt ferðalag,“ segir Sting. Er honum illa við að tónlist sé sköpuð með tilliti til plötusölu og stöðu á vinsældarlistum.

Rómverjasögur

Að sumu leyti stöndum við á öxlunum á Rómverjum. En um leið er menning þeirra framandi – að maður segi ekki villimannleg. Maður nefnir skemmtanamenninguna, skylmingaleikana, stéttaskiptinguna, þrælahaldið sem allt sýstemið byggði á...

Ævintýri sem stenst tímans tönn

Íslensk börn þekkja mæta vel örlög félaganna Karíusar og Baktusar en boðskapur ævintýris þeirra á samt alltaf við. Í dag frumsýnir Leikfélag Akureyrar nýja uppfærslu á barnaleikritinu kunna, sem er sérsniðið að allra yngstu leikhúsgestunum. Þó eru það ekki eingöngu börnin sem fagna sögunni sígildu, heldur hampar ein fagstétt henni hærra en aðrir og höfundinum ekki síður.

Yngsta afgreiðsludama landsins

„Hún er í strangri þjálfun hjá okkur,“ sagði Kristína Berman þegar Fréttablaðið grennslaðist fyrir um ungabarn á afgreiðsluborði Verksmiðjunnar sem vakti athygli vegfarenda á Skólavörðustíg í vikunni. Kristína er móðir stúlkunnar og einn af eigendum Verksmiðjunnar, sem rekin er af sjö hönnuðum. Þessi yngsta afgreiðsludama landsins ber nafnið Úlfrún Kristínudóttir og er sjö mánaða gömul, en Kristína segir hana þegar hafa vakið nokkra athygli fyrir störf sín.

Trier hræddur, Friðrik sáttur

Kvikmyndaleikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson var viðstaddur forsýningu kvikmyndarinnar Direktøren for det hele sem er nýjasta afurð furðufuglsins og sérvitringsins Lars Von Trier en Friðrik leikur stórt hlutverk í myndinni. Fullt var út úr húsi í einu stærsta kvikmyndahúsi heims sem tekur í kringum fjórtán hundruð gesti í sæti en þetta er í fyrsta skipti sem Trier frumsýnir mynd í Danmörku.

Timberlake á toppinn

Nýjasta plata popparans Justins Timberlake, Futuresex/Lovesounds, fór beint á topp bandaríska Billboard-listans í vikunni sem hún kom út.

Jarren C til landsins

Plötusnúðurinn Dj Jarren C, sem er einn vinsælasti plötusnúðurinn í London um þessar mundir, þeytir skífum á Vegamótum á laugardagskvöld.

Hlátur læknar sársaukann

Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir í kvöld meinfyndinn gamanleik eftir þýska leikskáldið George Tabori. Aðalpersóna verksins er víst óuppalin frekju­dós að nafni Adolf en verkið heitir Mein Kampf.

Glamúrinn víkur fyrir hverdagsleikanum

Tíska og förðun haldast ávallt vel í hendur og þar sem glamúrinn tónast niður þetta árið og hversdagsleikinn verður allsráðandi í fatatískunni gildir það sama um förðunina. Glansandi húð og sólar­púður í miklum mæli víkur fyrir púðri og vínrauðum kinnum.

Frægir borða lax í megrunarskyni

Við erum þrír sem erum að prófa þetta en enn sem komið er hefur þetta gengið mjög vel, segir útvarpsmaðurinn og líkamsræktarþjálfarinn Ívar Guðmundsson, en nýtt æði virðist vera í uppsiglingu hjá þeim Íslendingum sem vilja koma sér í form. Íslenski laxinn ætlar nefnilega að verða nýjasta megrunarlyfið á markaðinum.

Baulað á Beyoncé

Verðlaunahátíðin Mobo fór fram í London á miðvikudagskvöldið en það er uppskeruhátíð svartra tónlistarmanna hvaðanæva í heiminum. Sigurvegarar kvöldsins voru þær Corinne Bailey Rae og Beyoncé Knowles en þær deildu fimm helstu verðlaununum með sér. Knowles var útnefnd besta alþjóðlega söngkonan og þá var Deja Vu valið besta lagið og besta myndbandið en Knwoles flytur það ásamt unnusta sínum, Jay-Z.

15 þúsund á IIFF

Alls sóttu fimmtán þúsund manns kvikmyndahátíðina IIFF sem er nýlokið. Stóð hátíðin yfir í þrjár vikur í Regnboganum og Háskólabíói. Kvikmyndin Volver, í leikstjórn Spánverjans Pedro Almodovar, var vinsælasta mynd hátíðarinnar. Í öðru sæti var heimildarmyndin An Inconvenient Truth með fyrrum forsetaframbjóðandann Al Gore fremstan í flokki og í því þriðja var Factotum, þar sem Matt Dillon fer með aðalhlutverkið.

Efni, orka og andi

Höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð er heildrænt meðferðarform sem á sér rætur í hefðbundnum vestrænum vísindum.

Saga og þróun

Höfuðbeina- og spjaldhryggsmefðerð hefur verið að þróast alla síðustu öld út frá vinnu og uppgötvunum þriggja lækna; A. T. Still, William Sutherland og Dr. John E. Upledger.

Hjón á miðjum aldri óska eftir svefni

Þegar fjórða stelpan mín mætti í þennan heim var hún ekki viss um að þetta væri öruggur staður. Strax í móðurkviði hafði hún upplifað kvíðakast hjá móður sinni. Hún hafði tekið til sín ótta og spennu ... og kannski svolítið óæskilega mynd af jarðlífinu. Sú litla taldi því öruggast að vera við brjóstið á mömmu sinni.

Sjá næstu 50 fréttir