Hlátur læknar sársaukann 23. september 2006 12:30 Hitler er viljugur að leysa gyðingavandamálið fyrir vin sinn Meinfyndið leikrit um fortíð Hitlers verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu í kvöld. mynd/borgarleikhúsið
Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir í kvöld meinfyndinn gamanleik eftir þýska leikskáldið George Tabori. Aðalpersóna verksins er víst óuppalin frekjudós að nafni Adolf en verkið heitir Mein Kampf. Bergur Þór Ingólfsson leikur hinn unga Hitler, sem er að sögn enginn stórlax í þessu verki. „Hann leikur stórt hlutverk í mannkynssögunni og í þessu leikriti en þetta er ekkert stórmenni, þetta er hortittur og höfundurinn nálgast hann meira eins og óuppalda frekjudós,“ segir Bergur. Leikritið heitir eftir þekktasta ritverki aðalsöguhetjunnar en sögusviðið er gistiheimili fyrir heimilislausa í borginni Vín á fyrsta áratug síðustu aldar. Þangað er Adolf kominn með möppuna sína til þess að sækja um í listaakademíunni en hann dreymir um frama á þeirri braut. Á gistiheimlinu hittir Hitler tvo gyðinga og á í miklum samskiptum við annan þeirra, hinn góðhjartaða bóksala Slómó sem leikinn er af Þór Tulinius. „Slómó verður þjónn hans og hjúkrunarkona og reynir að eiga kærleiksrík samskipti við hann. Hitler segir á einum stað í verkinu að hann sé honum þakklátur fyrir greiðasemina og ætli máski að kaupa handa honum ofn svo að honum verði hlýtt,“ útskýrir Bergur sposkur. „Hann segist líka viljugur til að leysa þetta gyðingavandamál fyrir hann og þannig launar hann honum eflaust greiðann samkvæmt mannkynssögunni, ef hún er rétt. Slómó bendir honum á að hann ætti kannski hann að hætta þessu myndlistarstússi og fara frekar í pólitík. Hitler finnst það ágætishugmynd.“Sársauki og hláturBergur Þór Ingólfsson leikari Leikur ungan Austurríkismann með listamannsdrauma í leikritinu Mein Kampf.fréttablaðið/anton brinkGeorge Tabori, sem nýlega hlaut virt leiklistarverðlaunin í Þýskalandi fyrir ævistarf sitt, fer skapandi höndum um staðreyndir mannkynssögunnar. Hún þvælist ekki fyrir en það er vísað til hennar og augljóst er að aðalpersóna verksins kallar fram ýmsar forhugmyndir. „Tabori hraktist sjálfur undan nasistum og missti fólk í gasklefana,“ útskýrir Bergur og bendir á honum takist samt að grínast með viðfangsefni. „Hann tekur háalvarlega hluti eins og helförina og einræðisherrann sem kom Evrópu til vítis um miðja síðustu öld og gerir grín úr þeim í lækningaskyni. Við getum ekki horft fram hjá sögunni en við getum ekki heldur legið endalaust og sleikt sárin eða viðhaldið eymdinni. Við verðum að samþykkja að þetta hafi gerst og reyna að finna hamingjuna og kærleikann – til að komast yfir sársaukann er ekkert betra en hláturinn,“ segir Bergur. Lýðræðisleg vinnubrögðMein Kampf er verk um kærleika og vináttu og Bergur segir hvort tveggja ríkjandi í leikhópnum og þar reyni fólk einnig að viðhafa lýðræðisleg vinnubrögð. Aðrir leikarar í sýningunni eru Guðmundur Ólafsson, Hanna María Karlsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson og Marta Nordal en leikstjóri er Hafliði Arngrímsson sem nú stýrir sínu fyrsta verki í Borgarleikhúsinu. Aðrir aðstandendur eru Snorri Freyr Hilmarsson leikmynda- og búningahönnður, Lárus Björnsson sér um lýsingu og hljóðmynd hannar Sigurvald Ívar Helgason. Þýðandi er Gísli Rúnar Jónsson. Mein Kampf verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins kl. 20 í kvöld.
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira