Lífið

Sjaldséð samtímalist til sýnis

Verk Dieters Roth. Í safneign Nýlistasafnins eru verk eftir marga af fremstu samtímalistamönnum landins.
Verk Dieters Roth. Í safneign Nýlistasafnins eru verk eftir marga af fremstu samtímalistamönnum landins.

Sýning á safneign Nýlistasafns Íslands verður opnuð í húsakynnum safnisins á Laugavegi 26 kl. 14 í dag en á þessari óvenjulegu sýningu gefst einstakt tækifæri til að sjá dýrgripi úr listasögu landsins. "Við erum að sýna öll verk í eigu safnsins," útskýrir Lárus Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Nýlistasafnsins.

"Við tökum þau úr geymslunni og komum þeim fyrir í safninu. Þetta eru hátt í sjö hundruð verk svo verið verðum að þekja veggina og síðan verða kassar um öll gólf."

Lárus líkir sýningunni við rannsókn enda mun hún gefa góða mynd af áherslum listalífsins. "Við viljum gefa bæði félögum okkar sem eiga verkin og almenningi kost á að sjá þessi verk. Fólk kemur inn og fær hanska, síðan getur það tekið sér tíma í að skoða og kíkja á það sem er til. Elstu verkin eru frá því um 1960 en þegar safnið var stofnað árið 1978 fengum við verk SÚM hópsins og listamanna sem kenndir voru við Suðurgötu 7. Hér eru verk eftir Dieter Roth og alla okkar helstu samtíma listamenn sem komið hafa nálægt nýlistasafninu," segir Lárus og bætir því við að fæst verkanna hafa verið til sýnis frá því að þau voru gefin.

Lárus útskýrir að Nýlistasafnið hafi ekki bætt í safnkost sinn síðustu árin sökum fjár- og fermetraskorts en mögulega verður leyst úr því á næstunni. "Við erum í viðræðum við Listasafn Reykjanesbæjar um að safnið verði mögulega flutt þangað í geymslu og hluti safneignarinnar verði til sýnis þar," útskýrir hann.

Sýningin stendur til 1. október og er opin milli 14-17 en valinkunnir aðstandendur safnsins munu mæta á svæðið í dag til þess að veita gestum leiðsögn og innsýn í safneignina, meðal þeirra eru Ingólfur Arnarson prófessor í Listaháskólanum, Goddur, Ásta Ólafsdóttir og Hannes Lárusson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.