Frægir borða lax í megrunarskyni 23. september 2006 11:00 Sverrir Þór Sverrisson Tekur líkamsræktina föstum tökum og étur lax í hvert mál.
Við erum þrír sem erum að prófa þetta en enn sem komið er hefur þetta gengið mjög vel, segir útvarpsmaðurinn og líkamsræktarþjálfarinn Ívar Guðmundsson, en nýtt æði virðist vera í uppsiglingu hjá þeim Íslendingum sem vilja koma sér í form. Íslenski laxinn ætlar nefnilega að verða nýjasta megrunarlyfið á markaðinum. Aðferðin er mjög einföld, segir Ívar. Þú borðar haframjöl í morgunmat með soðnu vatni og einni teskeið af próteini, útskýrir útvarpsmaðurinn. Tveimur og hálfum tíma seinna borðar þú 80 grömm af laxi sem síðan verður í matinn fimm sinnum á dag næstu sex daga, segir líkamsræktarþjálfarinn. Meðal þeirra sem hafa ákveðið að taka líkamsræktina föstum tökum með þessum nýstárlega hætti, að sögn Ívars, er enginn annar en Sverrir Þór Sverrisson, sjónvarpsmaðurinn góðkunni en hann ætlar augljóslega að koma sér í gott form fyrir komandi átök. Átið á laxinum kemur eflaust mörgum spánskt fyrir sjónir en þessi aðferð er upprunnin hjá góðum vini Ívars, vaxtarræktartröllinu Arnari Grant, og segir Ívar að laxinn innihaldi mikið af góðri fitu sem segir vondu fitunni stríð á hendur og losar líkamann við hana. Fólk vill oft að hlutirnir gerist mjög hratt og menn hafa verið að missa kíló á dag með þessari aðferð, segir Ívar og telur að þeir sem prófi fái nú ekki ógeð af þessari vinsælu afurð. Ég er sjálfur á fimmta degi og er enn ekki búinn að fá nóg af laxinum, segir Ívar sem nýverið fékk gefins góðan afla frá Bubba Morthens, beint úr einhverri af betri laxveiðiám landsins þannig að ekki væsir um kappann.
Menning Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Lífið samstarf Fleiri fréttir Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Sjá meira