Fleiri fréttir

Elton John giftir sig

Brúðkaup ársins í Bretlandi verður án nokkurs vafa þegar Elton John og David Furnish ganga að eiga hvorn annan þann 21. desember næstkomandi í Berkshire. Berkshire hefur áður komist í heimsfréttirnar fyrir hjónavígslu því þar gengu Karl Bretaprins og Camilla Parker Bowles í hjónaband.

Áttu meistaraverk?

Listasafn Íslands leitar að verkum eftir Snorra Arinbjarnar og Gunnlaug Blöndal. Listasafn Íslands ætlar að halda sýningar snemma á næsta ári á verkum málaranna Snorra Arinbjarnar og Gunnlaugs Blöndal. Þetta verða tvær aðskildar sýningar en nú hefur staðið yfir heimildaöflun hjá safninu á verkum þessara málara.

Það besta við jólin

"Það besta við jólin er að éta," segir Þórunn Guðmundsdóttir í samnefndu lagi, sem komið er út á geisladiski með fimmtán nýjum jólalögum sem hún hefur samið á síðustu árum. Þórunn er söngkennari og hefur auk þess starfað mikið með áhugaleikfélaginu Hugleik, meðal annars samdi hún söngleikinn Kolrössu sem sýndur var við miklar vinsældir fyrir nokkrum árum.

"Gef mér!" syngur Andrea

Andrea Gylfadóttir hefur verið ráðin í hlutverk plöntunnar í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Litlu Hryllingsbúðinni sem frumsýndur verður í febrúar. "Þetta leggst vel í mig og ég geri þetta á minn hátt," segir Andrea.

Allt í rugli hjá Britney

Þeir eru sennilega fáir almannatengslafulltrúarnir núna sem ráðleggja ungu frægu pari að taka upp raunveruleikaþátt um hveitibrauðsdagana sína. Nick Lachey og Jessica Simpson eru skilin og bendir allt til þess að Britney Spears verði brátt einstæð móðir.

Biblía Gilzenegger frestast fram í janúar

Fyrsta bók Gilzenegger, Biblía fallega fólksins, mun að öllum líkindum frestast fram í janúar en hún átti upphaflega að koma út fyrir jólin hjá bókaútgáfunni Eddu. "Ég er búinn að skrifa bókina. En það var vitað allan tímann þegar við fórum í þetta að tíminn væri tæpur. Ég náði samt að kýla á þetta og klára bókina á þremur vikum," segir Gilzenegger, sem er nokkuð sama þótt bókin komi ekki út fyrir jólin.

Frosnu tærnar tilnefndar

Skáldsagan Frosnu tærnar eftir Sigrúnu Eldjárn hefur verið tilnefnd af hálfu Íslands til Barna- og unglingabókaverðlauna Vestnorræna ráðsins árið 2006.

Hljóðsprengja á Grand Rokk

Geimkúrekinn og goðsögnin bandaríska Bob Log III mætti á Grand Rokk á laugardagskvöld og spilaði fyrir stútfullu húsi. Pönk­sveitin Rass hitaði upp áhorfendur með góðum skammti af stjórnarandstöðu og svo mætti Bob á svið í svörtum þröngum galla með flugmannahjálm sem huldi andlit hans.

Jólasprell stórsveitar

Stórsveit Reykjavíkur heldur sína árlegu jólatónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld undir yfirskriftinni Majones jól. Stjórnandi verður Jagúarkappinn Samúel S. Samúelsson og einsöngvari hinn dularfulli, kynþokkafulli og ástsæli raulari Bogomil Font.

Selma og Chanel

Leikkonan Selma Blair hefur krækt sér í samning við Chanel og verður nú andlit Chanel Vision þar sem hún kynnir hátísku hins gríðarstóra tískuhúss. Selma er einmitt sjálf mikill aðdáandi Chanel og klæðist oftar en ekki fötum þaðan, auk þess sem hún þekkir aðalhönnuðinn Karl Lagerfeld persónulega.

Pitt vill ættleiða börn Jolie

Hjartaknúsarinn Brad Pitt ætlar að ættleiða tvö börn kærustu sinnar Angelina Jolie, þau Maddox sem er fjögurra ára og Zahara Marley sem er níu mánaða. Gangi ættleiðingin eftir fá börnin eftirnafnið Jolie-Pitt. Pitt og Jolie kynntust við tökur á myndinni Mr. and Mrs. Smith og hófu ástarsamband. Pitt skildi fyrr á árinu við Jennifer Aniston eftir fjögurra ára hjónaband.

Vetrarborgin seldist best í nóvember

Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason seldist best af öllum bókum í nóvember samkvæmt lista Pennans-Eymundssonar yfir metsölubækur. Í tilkynningu frá Eddu-útgáfu segir að allt frá því að bókin kom út 1. nóvember hafi hún verið í stöðugri sölu og í þeim efnum ekkert gefið eftir Kleifarvatni frá því í fyrra, en hún sló þegar upp var staðið öll met og seldist í yfir 20.000 eintökum.

Uppselt á útgáfutónleika

Uppselt er á útgáfutónleika syst­kinanna KK og Ellenar í Fríkirkjunni í Reykjavík næstkomandi fimmtudag. Þau gáfu nýlega út plötuna Jólin eru að koma sem hefur að geyma falleg jólalög í berstrípuðum kassagítarbúningi.

Svanasöngur í kvöld

Þeir Kristinn Sigmundsson söngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari halda tónleika í Salnum í kvöld og flytja þar síðasta lagaflokk Schuberts "Schwanengesang" en hann hefur að geyma mörg af hans bestu sönglögum og er þá mikið sagt því af nægu er að taka.

Barrmikil, fögur jólatré í skógum lands

Ómissandi hluti af jólaskapi æ fleiri Íslendinga er að fara í rómantískan desemberbíltúr með bitgóða sög og dýrindis nesti í þeim tilgangi að velja og höggva sín eigin jólatré. Að sögn Brynjólfs Jónssonar, skógfræðings og framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Íslands, hafa mörg aðildarfélög Skógræktarfélagsins boðið upp á þennan möguleika um árabil, en um land allt eru sérstakir jólaskógar ræktaðir með forkunnar fögrum grenitrjám og stafafuru sem prýða mega stofur landsmanna.

Íslenskur stríðsáratangó

Hjálmar hafa sýnt og sannað að Íslendingar geta spilað reggae, en nú reynir hljómsveitin L'amour fou að bæta um betur og spila tangótónlist. Fyrirliði hljómsveitarinnar, Hrafnkell Orri Egilsson, segist þó ekki dansa tangó, en sé mikill áhugamaður um tónlistina.

Aukatónleikar með Tinganelli

Vegna gífurlegrar eftirspurnar hefur verið ákveðið að efna til aukatónleika með Leone Tinganelli. Tónleikarnir verða á NASA þriðjudaginn 13. desember. Gestasöngvarar með Tinganelli verða Friðrik Ómar, Regína Ósk og Jóhann Friðgeir.

Frostrósir slá í gegn

Söngdívurnar sjö sem skipa Frostrósir falla landanum greinilega vel í geð því það eru einungis fimm hundruð miðar eftir á aukatónleika þeirra í Laugardagshöll sem fram fara 10. desember. Upphaflega var gert ráð fyrir að einungis yrði um eina tónleika að ræða en ásóknin var slík að brugðið var á það ráð að bæta við einum tónleikum sem verða fyrr um daginn.

Finnst Ísland frábært land

Raunveruleikaþátturinn ­Ástar­fleyið,­ sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni Sirkus, hefur varla farið fram hjá neinum. Einn þátttakendanna er hinn tvítugi Denis Grbic. Denis kom til Íslands sem flóttamaður árið 1996, þá ellefu ára gamall.

Aftur á svið

Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson verður sýnt bæði á Akureyri og í Reykjavík núna fyrir jólin Það er leikhópurinn Á senunni sem sýnir þessa margrómuðu jólaleiksýningu í Samkomuhúsinu á Akureyri og í Tjarnarbíói í Reykjavík nú fyrir jólin.

Svava opnar svala herrafataverslun

Fyrirtæki Svövu Johansen, NTC, sem rekur meðal annars verslanirnar Gallerí Sautján, Smash og Deres, opnaði um síðustu helgi glænýja herrafataverslun sem ber nafnið Kultur menn. Nýja verslunin er staðsett á Laugavegi 89 við hliðina á Galleri Sautján.

Malt og appelsínstúlkan

Þorgbjörg Erna Mímisdóttir er nafn sem fæstir kannast við. Þrátt fyrir það kannast flestir ef ekki allir landsmenn við hana í sjón, þar sem hún er litla stelpan sé lék svo eftirminnilega í auglýsingunum margfrægu um Egils malt og appelsín fyrir nokkrum árum síðan.

Yosoy

"Þetta getur alveg talist saga fyrir viðkvæma, þótt hún sé kannski ekki endilega fyrir ofurviðkvæma, nokkurs konar fágaður hryllingur," segir Guðrún Eva Minervudóttir um nýútkomna skáldsögu sína Yosoy.

Sjávarskart Herdísar

Herdís Egilsdóttir er sennilega þekktust fyrir skrif sín um ýmsar persónur eins og litla Pappírs Pésa og Skessuna í fjallinu. Hún á þó nóg annað í pokahorninu og hefur til dæmis verið að dunda sér við að hanna dásamlega flotta skartgripi sem hressa upp á hvaða flík sem er.

Syngur Brahms í hádeginu

Hólmfríður Jóhannesdóttir mezzósóran syngur ljóð eftir Johannes Brahms á hádegistónleikum í Listasafni Íslands í dag. Með henni leikur Gerrit Schuil á píanó. "Brahms er svolítið krefjandi og maður þarf að koma með djúpa túlkun til að syngja hann," segir Hólmfríður, sem ætlar að syngja bæði Sígaunaljóðin og fleiri ljóð eftir Brahms.

Roger Moore í miðbænum

Leikarinn sir Roger Moore leit inn á jólakortasölu UNICEF á Laugavegi 42 í gær. Kortasalan var ein fyrsta fjáröflun almennings sem UNICEF fór út í og er enn stór tekjulind samtakanna. Á Íslandi hafa kortin verið seld í nærri 50 ár en Félag íslenskra háskólakvenna hefur séð um söluna í sjálfboðavinnu.

Ilmurinn úr eldhúsinu...

Desember er tími ofgnóttar í mat, drykk, samveru og kærleika. Hvarvetna má skjóta sér inn úr kuldanum og setjast að veisluborði í veitingahúsum landsins. Hér gefur að líta sýnishorn af aðeins fáeinum valkostum þegar kemur að jólahlaðborðum þetta árið.

Faðirvor, móðirvor og jafnréttisbarátta karldýra

Í Dagbók Þráins Bertelssonar er að þessu sinni meðal annars fjallað um hengirúm, hátækni- og lágtæknisjúkrahús og fæðingu hugverka með keisaraskurði. Sagt er frá jafnréttisráðstefnu karlmanna og bænastund........

Endur í vegi framfara

Almenningsgarðar skipa jafnan stóran sess í öllum betri borgum og nægir að nefna Central Park í New York, Hyde Park í London og Frognerpark í Osló því til stuðnings. Með talsverðri víðsýni má kannski kalla Hljómskálagarðinn og Miklatún vísi að slíkum garði en lengra nær það ekki.

Svarti galdur

Svart er í tísku. Ekki bara svart heldur svart í svart. Lög af svörtu; svört föt, svartir skór, svartir skartgripir og aukahlutir. Í vetur er svart líka rómantískt. Efnin eru fljúgandi sjiffon, kósý kasmír, þvegið flauel, pelsar, glitrandi steinar og fallegar blúndur.

Búið að ganga eins og í sögu

Miðasala er hafin á útgáfutónleika Írafárs sem verða haldnir í Austurbæ á laugardag í tilefni útgáfu nýjustu plötu sveitarinnar. Írafár hefur verið í tónleikaferð um Ísland sem hefur gengið afar vel og hefur verið uppselt á nær alla tónleikana tíu. Allur ágóði af tónleikunum rennur til Einstakra barna, sem er stuðningsfélag fjölskyldna barna með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma.

Sign spilar á SXSW -tónlistarhátíðinni í Texas

Hljómsveitinni Sign hefur verið boðið á SXSW-tónlistarhátíðina í Texas í Bandaríkjunum sem fer fram 15. - 19. mars á næsta ári. Hljómsveitirnar Ske, Ampop og Vinyl spiluðu á sömu hátíð á þessu ári. Sign ætlar að nota tækifærið og fara fyrst í tveggja vikna tónleikaferð um Bandaríkin.

Syngur í Narníu

Kanadíska söngkonan Alanis Morissette er á meðal þeirra listamanna sem eiga lög í stórmyndinni The Chronicles of Narnia: The Lion, the Witch and the Wardrope sem er væntanleg í bíó.

Þrír tenórar í veiðihug

Tenórarnir Gunnar Guð­björnsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Snorri Wium bjóða upp á létta tónlistarveislu á morgun að hætti stjörnutenóranna þriggja. Þeir vonast til þess að geta með söng sínum laðað fleiri áheyrendur að gnægtabrunni klassískrar tónlistar.

Maístjarnan sungin afturábak

Í tilefni af því að 50 ár verða liðin frá því að Laxness hlaut Nóbelsverðlaun verður haldin viðamikil dagsskrá í Þjóðmenningarhúsinu næstkomandi laugardag. Umsjónarmaður er Viðar Eggertsson, og þar sem hann vildi ekki að hátíðarhöldin "væru eins og líkkista" fékk hann Nýhilhópinn til að ljúka dagskránni, til að minna á framtíð íslenskrar ritlistar.

Valdamest í Hollywood

Julia Roberts er valdamesta konan í Hollywood samkvæmt nýrri úttekt Hollywood Reporter. Þessu áorkar hún þrátt fyrir að hún hafi verið utan sviðsljóssins í nokkurn tíma vegna barnauppeldis. Hún er jafnframt eina leikkonan í Hollywood sem getur krafist 20 milljóna dollara fyrir hverja mynd.

Kvöldsögur úr Stóra eplinu

Jólamyndin Noel segir sögu fjögurra ólíkra persóna í stórborginni New York um það leyti sem jólahátíðin er að ganga í garð. Þeir sem þekkja til segja stórborgina engu líka þegar hátíð ljóss og friðar er í hámarki. Bókaútgefandanum Rose gengur allt í haginn í vinnunni en einkalífið er í molum.

Fólkið í kjallaranum og Karitas tilnefndar

Bækurnar Fólkið í kjallaranum eftir Auði Jónsdóttur og Karítas eftir Kristínu Marju Baldursdóttur eru tilefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2006 sem framlag Íslands. Þær eru í hópi tólf norrænna bóka sem fulltrúar norrænu landanna hafa tilnefnt til verðlaunanna.

Sögin snýr aftur

Hryllingsmyndir hafa á undanförnum árum verið ryðja sér til rúms á ný eftir að hafa legið í dvala um nokkurt skeið. Kvikmyndaverin höfðu gleymt því að hryllingsmyndir verða að vera hráar, ódýrar og helst illa leiknar svo þær dragi að sér ákafa fylgismenn þessarar kvikmyndargerðar.

Kenna hvernig á að syngja ljóð

Þeir Kristinn Sigmundsson söngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari halda námskeið í túlkun sönglaga dagana 6. til 9. desember í Salnum í Kópavogi. Gert er ráð fyrir allt að tíu virkum þátttakendum sem fá að njóta leiðsagnar þeirra Kristins og Jónasar í túlkun íslenskra sönglaga og þýskra ljóðasöngva.

Sjá næstu 50 fréttir