Fleiri fréttir

„Sagði strax já og var klár í ævintýri“
„Það var þokkalega rólegt að gera í vinnunni þannig að ég gat hoppað út,“ segir píparinn Orri Freyr Gíslason sem allt í einu er orðinn handboltamaður á nýjan leik, og það í baráttunni um svissneska meistaratitilinn.

Mun gjósa á nýjan leik í Eyjum?
Annar leikur ÍBV og Hauka í úrslitakeppni Olís-deildar karla fer fram í kvöld og ef sagan hefur kennt okkur eitthvað þá verða læti í Eyjum í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV-Stjarnan 30-26 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í undanúrslitum
ÍBV er komið í undanúrslit í Olís-deild kvenna í handbolta eftir sigur á Stjörnunni í oddaleik í átta liða úrslitunum.

Magdeburg í undanúrslit Evrópudeildarinnar | Lærisveinar Aðalsteins úr leik
Íslendingaliðið Magdeburg er á leið í undanúrslit Evrópudeildarinnar í handbolta eftir tveggja marka sigur gegn Nantes í kvöld, 30-28. Á sama tíma fengu lærisveinar Aðalsteins Eyjólfssonar í Kadetten skell gegn Wisla Plock og eru úr leik.

Viktor Gísli og félagar úr leik eftir jafntefli á heimavelli
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í GOG eru úr leik í Evrópudeildinni í handbolta efit 37-37 jafntefli á heimavelli gegn króatíska liðinu Nexe í átta liða úrslitum í kvöld.

Ekkert lið byrjað undanúrslitin með slíkum yfirburðum
Valsmenn sýndu mátt sinn á móti Selfyssingum í gær þegar undanúrslitaeinvígi liðanna í Olís deild karla í handbolta hófst á Hlíðarenda.

Stefán Rafn fær að spila í Eyjum þrátt fyrir rautt í tveimur leikjum
Haukamenn fengu góðar fréttir frá fundi aganefndar HSÍ í gær en þar kom í ljós að hornamaðurinn öflugi Stefán Rafn Sigurmannsson verður ekki í banni í leiknum mikilvæga á móti ÍBV í Eyjum á morgun.

Hérna vill maður vera
Benedikt Gunnar Óskarsson, leikstjórnandi Vals, var frábær í kvöld í fyrsta leiknum í einvígi Vals gegn Selfossi í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Átta mörk úr átta skotum og sex stoðsendingar var dagsverkið hjá Benedikt Gunnari í ellefu marka sigri Vals, 36-25.

Með hókus pókus bendil þá hefðu þeir getað galdrað fram einhverjar kanínur
Selfoss tapaði í kvöld fyrsta leiknum í einvígi þeirra gegn Val í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Lauk leiknum með ellefu marka sigri Valsmanna eftir algjört hrun í leik Selfoss í síðari hálfleik. Lokatölur 36-25.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Selfoss 36-25 | Magnaðir Valsmenn stungu af í síðari hálfleik
Í kvöld hófst undanúrslitaeinvígi Vals og Selfoss í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta í Origo höllinni. Lauk fyrsta leik liðanna í þessari rimmu með ellefu marka stórsigri Vals og liðið því komið með yfirhöndina í einvíginu. Lokatölur 36-25.

Orri Freyr rífur skóna fram og klárar tímabilið með Kadetten
Orri Freyr Gíslason hefur samkvæmt heimildum íþróttadeildar rifið skóna fram af hillunni og mun nokkuð óvænt klára tímabilið með Kadetten í Svíss. Orri Freyr lagði skóna á hilluna vorið 2019.

Kristinn þjálfar stúlknalandslið Færeyja
Handknattleiksþjálfarinn Kristinn Guðmundsson hefur verið ráðinn til starfa hjá færeyska handknattleikssambandinu. Hann mun stýra stúlknalandsliði Færeyja sem skipað er leikmönnum fæddum 2006-2007.

Selfyssingar hafa ekki tapað á Hlíðarenda í 133 mánuði
Valur og Selfoss hefja í kvöld undanúrslitaeinvígi sitt í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta á Hlíðarenda en gestirnir frá Selfossi hafa fundið sig einstaklega vel undir Öskjuhlíðinni undanfarin áratug.

Sjáðu mark Gísla sem fór langt með að tryggja Magdeburg fyrsta titilinn í 21 ár
Magdeburg steig risastórt skref í átt að sínum fyrsta Þýskalandsmeistaratitli síðan 2001 með naumum sigri á Füchse Berlin, 28-27, í gær. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sigurmark Magdeburg.

Aldís Ásta gerði eins og Guðjón Valur um árið: Magnað mark beint úr aukakasti
Aldís Ásta Heimisdóttir tryggði KA/Þór sæti í undanúrslitum Olís deildar kvenna í handbolta með ótrúlegu marki beint úr aukakasti þegar leiktíminn var liðinn í öðrum leik KA/Þórs og Hauka.

Ætlaði að henda stuðningsmönnum ÍBV úr húsi
Gera þurfti hlé á leik Hauka og ÍBV á Ásvöllum í gær á meðan að formaður dómaranefndar HSÍ, Kristján Gaukur Kristjánsson, reyndi að hemja stuðningsmenn ÍBV. Það gekk lítið þar til að sáttasemjarinn Kári Kristján Kristjánsson kom til aðstoðar.

HK og ÍR leika til úrslita um sæti í Olís-deildinni
HK og ÍR munu mætast í úrslitaeinvígi um laust sæti í Olís-deild kvenna í handbolta, en bæði lið kláruðu undanúrslitaeinvígin í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - ÍBV 30-35 | Eyjamenn frábærir í síðari hálfleik
ÍBV byrjaði einvígið á móti Haukum af krafti en liðið vann fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta sannfærandi.

Viggó með átta mörk í mikilvægum sigri Stuttgart | Gummersbach nálgast efstu deild
Viggó Kristjánsson lék á alls oddi er Stuttgart vann Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni. Þá er nálgast lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach úrvalsdeildina óðfluga.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - KA/Þór 23-24 | Aldís Ásta skaut Íslandsmeisturunum í undanúrslit
KA/Þór er komið í undanúrslit í Olís-deild kvenna eftir að liðið hafði betur gegn Haukum í hádramatískum leik á Ásvöllum.

Gísli Þorgeir hetja Magdeburg í naumum sigri | Alls níu íslensk mörk
Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon spiluðu svo sannarlega sinn þátt í eins marks sigri Magdeburgar á Füchse Berlín í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, lokatölur 28-27.

Viktor Gísli stóð vaktina í öruggum sigri
Viktor Gísli Hallgrímsson var á milli stanganna er GOG heimsótti Skanderborg í dösnku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Gestirnir í GOG unnu öruggan fimm marka sigur, 29-24.

Kristján og félagar unnu mikilvægan sigur
Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í Aix unnu mikilvægan eins marks sigur er liðið heimsótti Nantes í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 26-25.

ÍR-ingar tóku forystuna í baráttunni um sæti í Olís-deildinni
ÍR-ingar unnu afar öruggan 12 marka sigur er liðið tók á móti Fjölni í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi í umspili um laust sæti í Olís-deild karla á næsta tímabili, 36-24.

Teitur skoraði sex í öruggum sigri | Fjórða tapið í röð hjá Bjarka og félögum
Teitur Örn Einarsson og Bjarki Már Elísson voru í eldlínunni með liðum sínum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Teitur skoraði sex mörk í öruggum sigri Flensburg gegn Hamburg, 33-23, en Bjarki Már og félagar í Lemgo hafa nú tapað fjórum deildarleikjum í röð eftir sex marka tap gegn Erlangen, 33-27.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍBV 24-33| ÍBV tryggði oddaleik í Eyjum
Það var alveg ljóst frá fyrstu mínútu að Eyjakonur höfðu engan áhuga á að ljúka tímabilinu í Garðabæ. ÍBV komst snemma fjórum mörkum yfir og hleypti Stjörnunni aldrei inn í leikinn. ÍBV vann á endanum níu marka sigur 24-33. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

HK og ÍR með yfirhöndina í umspili um sæti í Olís-deildinni
HK og ÍR eru núeinum sigri frá því að koma sér í úrslitaleik um laust sæti í Olís-deild kvenna í handbolta eftir sigra í leikjum kvöldsins.

Elvar og félagar nálgast fall | Sigurganga Kielce heldur áfram í Póllandi
Elvar Ásgeirsson og félagar hans þurfa nánast kraftaverk til að bjarga sér frá falli úr frönsku úrvalsdeildinni í handbolta eftirsex marka tap gegn Montpellier í kvöld, 33-27. Á sama tíma vann Íslendingalið Kielce enn einn sigurinn í pólsku deildinni.

Fengu óvænt framlag frá Færeyjum: „Hún átti leik lífs síns“
Haukar fengu framlag úr óvæntri átt í fyrsta leiknum gegn KA/Þór í átta liða úrslitum Olís-deildar kvenna í gær.

„FH heldur áfram og ætlar að halda áfram að keppa um allt“
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, segir að Hafnfirðingar gangi nokkuð sáttir frá tímabilinu þótt tapið fyrir Selfossi í oddaleik í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í gær svíði vissulega.

„Þið gátuð ekki notað mig. Sjáið þið!“
„Darija Zecevic, hún elskar að spila í Vestmannaeyjum,“ sagði Svava Kristín Gretarsdóttir í Seinni bylgjunni í gærkvöld þegar talið barst að hetju Stjörnunnar í sigrinum í Vestmannaeyjum í gærkvöld.

Selfyssingar ekki tapað útileik í úrslitakeppni í fjögur ár
Selfyssingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta með því að vinna framlengdan oddaleik á móti FH í Kaplakrika í gær.

FH-ingar klúðruðu tveimur sóknum sem hefðu fært þeim sigur: Sjáðu lokakaflann
Oddaleikur FH og Selfoss í átta liða úrslitum Olís deildar karla í handbolta bauð upp á mikla spennu og mikla dramatík.

Vissi strax að meiðslin væru alvarleg þegar hann heyrði brak í öxlinni
Elvar Örn Jónsson, leikmaður íslenska handboltalandsliðsins og Melsungen, verður frá keppni næsta hálfa árið eða svo vegna axlarmeiðsla. Hann er staðráðinn í að koma sterkari til baka og er handviss um að hann verði kominn í toppform fyrir HM í janúar á næsta ári.

Saga Sif á von á barni og leikur ekki með Valskonum í úrslitakeppninni
Saga Sif Gísladóttir, markvörður Vals í Olís-deild kvenna í handbolta, mun ekki leika með liðinu í úrslitakeppninni sem nú er nýhafin þar sem hún er ófrísk.

„Tek hatt minn ofan fyrir drengjunum mínum“
Halldóri Sigfússyni, þjálfara Selfoss, var eðlilega létt eftir sigurinn á FH, 33-38, í oddaleik í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Selfoss 33-38 | Epík í Krikanum
Eftir miklar sveiflur, tvær framlengingar, gríðarlega dramatík og áttatíu mínútur af hágæða handbolta er Selfoss komið í undanúrslit Olís-deildar karla eftir sigur á FH, 33-38, í oddaleik í Kaplakrika í kvöld. Allir leikirnir í einvíginu unnust á útivelli.

Umfjöllun og viðtal: ÍBV - Stjarnan 22-28 | Stjörnukonur gerðu út um leikinn á lokametrunum
ÍBV tók á móti Stjörnunni í fyrsta leik liðanna í 6-liða úrslitum Olís deildar kvenna. Garðbæingar gerðu sér lítið fyrir og unnu góðan sex marka sigur og eru í góðri stöðu fyrir leikinn um næstu helgi.

Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - Haukar 30-27 | Meistararnir byrja á sigri
KA/Þór og Haukar áttust við á Akureyri í kvöld í fyrsta leik í umspili fyrir undanúrslit Olís-deildarinnar. KA/Þór endaði í þriðja sæti deildarinnar en Haukar í því sjötta. Það lið sem fyrr sigrar tvo leiki tryggir sér sæti í undanúrslitum. KA/Þór hafði 30-27 sigur eftir æsispennandi leik.

Andri: Áttum ekki glansleik
KA/Þór sigraði Hauka 30-27 í fyrsta leik liðanna í 6-liða úrslitum Olís deildar kvenna norðan heiða í kvöld. Leikurinn var spennandi allt til loka.

Bjarni og félagar tóku forystuna eftir sigur í vítakastkeppni
Bjarni Ófeigur Valdimarsson og félagar hans í Skövde unnu vægast sagt nauman sigur er liðið tók á móti Kristianstad í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitarimmu sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Grípa þurfti til vítakastkeppni til að skera úr um sigurvegara.

Arnór og félagar unnu stórsigur í Íslendingaslag
Það voru Íslendingar í eldlínunni í fjórum af þeim fimm leikjum sem fram fóru í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Arnór Þór Gunnarsson og félagar hans í Bergischer unnu öruggan átta marka sigur er liðið tók á móti Daníel Þór Ingasyni og félögum hans í HBW Balingen-Weilstetten, 29-21.

Lærisveinar Aðalsteins í góðum málum eftir stórsigur
Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten Schaffhausen eru nú aðeins einum sigri frá því að tryggja sér sæti í undanúrslitum svissnesku úrslitakeppninnar í handbolta eftir öruggan 12 marka sigur gegn Bern í dag, 40-28.

Leyfði mönnum að jafna sig með ástvinum fyrir kvöldið
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfoss, býst við mikilli baráttu, látum og miklum fjölda fólks í Kaplakrika í kvöld þegar hann mætir á sinn gamla heimavöll í oddaleik.

Veislan hefst í kvöld en Valur og Fram bíða eftir að vita nöfn mótherjanna
Úrslitakeppnin í Olís-deild kvenna í handbolta hefst í kvöld, á sitt hvorum enda landsins. Á Akureyri taka Íslandsmeistarar KA/Þórs á móti Haukum en í Vestmannaeyjum mætast ÍBV og Stjarnan.