Fleiri fréttir

Stuðningsmenn West Ham oftast teknir fastir | Manchester-liðin þar á eftir
Ólæti fótboltaáhorfenda hafa verið mikið til umræðu á Englandi eftir að takmörkunum sökum kórónuveirufaraldursins var lyft. Bresk stjórnvöld í samstarfi við knattspyrnuyfirvöld stefna á aðgerðir til að takast á við vandamálið.

Stjórnandi hjá Chelsea rekinn: „Konur þurfa að þola daglega áreitni í þessum geira“
Chelsea hefur sagt upp viðskiptastjóra sínum eftir aðeins mánuð í starfi vegna óviðeigandi skilaboða hans til kvenkyns starfsmanns fyrirtækis sem vann með félaginu. Samtök kvenna í fótbolta í Bretlandi segja málið eitt af fjölmörgum, sem fæst hver eru tilkynnt.

Maguire telur De Gea eiga sök á slöku gengi Man Utd á síðustu leiktíð
Harry Maguire, miðvörður Manchester United og enska landsliðsins, hefur ekki átt sjö dagana sæla. Raunar hefur hann ekki átt síðustu 12 mánuði eða svo sæla og virðist sem hann kenni að einhverju leyti liðsfélögum sínum um.

Úr Juventus í flatbökubikarinn í Rochdale
Arthur Melo, nýjasti leikmaður Liverpool á Englandi, vinnur í því að komast í leikform eftir skipti hans frá Juventus til félagsins á lokadegi félagsskiptagluggans, þann 1. september.

Úrvalsdeildarfélögin leggja til að leikið verði til þrautar í FA-bikarnum
Ensku úrvalsdeildarfélögin vilja að leikið verði til þrautar í FA-bikarnum í stað þess að liðin þurfi að mætast á ný verði jafntefli niðurstaðan í leikjunum.

Segist ekki vera að spara sig fyrir HM
Virgil van Dijk, miðvörður Liverpool, hefur sætt gagnrýni fyrir slaka frammistöðu á fyrstu vikum tímabilsins. Hann hefur verið sakaður um að spara krafta sína fyrir komandi heimsmeistaramót í fótbolta, ásakanir sem hann vísar á bug.

Ten Hag fær ekki að versla leikmenn í janúar
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, fær ekki að kaupa fleiri leikmenn á þessu tímabili en fær þess í stað að eyða pening í næsta sumarglugga.

Segir það senda skýr skilaboð um stefnu félagsins að hafa notað yngsta leikmann sögunnar
Ethan Nwaneri verð í gær yngsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi þegar hann kom inn af varamannabekk Arsenal í öruggum 3-0 sigri á Brentford. Hann var aðeins 15 ára og 181 dags gamall í sínum fyrsta leik.

Brighton búið að finna eftirmann Potter
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton & Hove Albion hefur ráðið ítalska knattspyrnuþjálfarann Roberto de Zerbi til starfa.

Fyrrverandi leikmaður Liverpool segir Jamaíka hafa gert vel að fá Heimi
Stan Collymore, fyrrverandi leikmaður Liverpool og enska landsliðsins, hefur hrósað knattspyrnusambandi Jamaíka en á föstudaginn var Heimir Hallgrímsson kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Jamaíka.

Fyrirliðinn Dagný nældi í gult þegar West Ham byrjaði tímabilið á sigri
West Ham United vann 1-0 sigur á Everton í úrvalsdeild kvenna í fótbolta í dag. Dagný Brynjarsdóttir bar fyrirliðaband Hamranna og nældi sér í gult spjald í síðari hálfleik.

Bakvörðurinn sem er orðinn framherji tryggði Aston Villa sigur á Man City
Rachel Daly skoraði tvisvar í 4-3 sigri Aston Villa á Manchester City. Villa festi kaup á landsliðsbakverðinum Daly í sumar en í stað þess að spila henni sem bakverði vildi Villa prófa hana upp á topp, sú tilraun byrjar vel.

Ethan Nwaneri sá yngsti frá upphafi
Ethan Nwaneri varð í dag yngsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi þegar hann kom inn af varamannabekk Arsenal í öruggum 3-0 sigri á Brentford.

Skytturnar skutu sér á toppinn með sigri á Brentford
Arsenal er komið aftur á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 3-0 sigur á Brentford í dag.

Phillips frá vegna meiðsla og HM í hættu
Þegar Manchester City festi kaup á Kalvin Phillips í sumar var vonast til að hann myndi veita Rodri samkeppni sem aftasti miðjumaður liðsins. Phillips vildi fara í stærra lið sem væri að berjast um titla en að sama skapi spila til að tryggja sæti sitt í enska landsliðinu fyrir HM í Katar.

Son: Þrjú heppnismörk og ég er mjög stoltur
Suður-kóreski knattspyrnumaðurinn Heung-Min Son komst loksins á blað í ensku úrvalsdeildinni er hann skoraði þrennu í 6-2 sigri Tottenham gegn Leicester í dag.

Son setti þrennu í stórsigri Tottenham
Kóreumaðurinn Heung-Min Son spilaði rétt rúman hálftíma er Tottenham tók á móti Leicester í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Eftir að hafa ekki skorað eitt einasta mark á tímabilinu hlóð Son í þrennu af bekknum og Tottenham vann öruggan 6-2 sigur.

Jóhann Berg lagði upp sigurmark Burnley
Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley unnu góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Bristol City í ensku B-deildinni í kanttspyrnu í dag. Jóhann Berg kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik og lagði upp sigurmark heimamanna.

Úlfarnir engin fyrirstaða og meistararnir komnir á toppinn
Manchester City vann einkar þægilegan 3-0 sigur á Wolves í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Sigurinn lyftir Englandsmeisturunum upp á topp deildarinnar.

Man United gekk frá Reading í fyrri hálfleik
Manchester United vann einkar þægilegan 4-0 sigur á Reading í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildar kvenna í fótbolta í dag.

Fulham vann þó Mitrović hafi ekki skorað
Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í kvöld. Nýliðar Fulham lögðu nýliða Nottingham Forest á útivelli á meðan Aston Villa vann Southampton á Villa Park.

Skytturnar byrja á stórsigri
Arsenal og Brighton & Hove Albion mættust í fyrsta leik ensku úrvalsdeildar kvenna í fótbolta í kvöld. Skytturnar unnu 4-0 stórsigur og byrja tímabilið af krafti.

Haaland sá fyrsti frá Noregi til að vera valinn
Erling Haaland var strax í fyrstu tilraun valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta enda hefur hann byrjað leiktíðina stórkostlega með Manchester City.

Jesse Marsch dæmdur í bann og sektaður um eina og hálfa milljón
Jesse Marsch, knattspyrnustjóri Leeds United, verður ekki á hliðarlínunni í næsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Marsch var dæmdur í eins leiks bann fyrir hegðun sína í 5-2 tapi liðsins gegn Brentford þann 3. september síðastliðinn.

Solskjær sagði Man United að festa kaup á Håland þegar hann var enn í Molde
Ole Gunnar Solskjær ráðlagði sínu fyrrum félagi Manchester United að kaupa framherjann Erling Braut Håland þegar hann var nýbúinn að brjótast fram á sjónvarsviðið með Molde í Noregi.

Foster leggur hanskana á hilluna
Markvörðurinn Ben Foster hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna. Hann staðfesti það í hlaðvarpi sínu nú fyrir stuttu. Ekki er langt síðan Newcastle United reyndi að falast eftir kröftum markvarðarins en hann ákvað að segja pass og hefur nú lagt hanskana á hilluna.

Toney í enska landsliðinu í fyrsta sinn
Ivan Toney, framherji Brentford, er eini nýliðinn í enska landsliðshópnum sem mætir Ítalíu og Þýskalandi í Þjóðadeild Evrópu síðar í mánuðinum.

„Bandarísk fjárfesting í enskum fótbolta er augljós áhætta“
Sparkspekingurinn Gary Neville kallar eftir breyttu regluverki á Englandi með því markmiði að stöðva innreið bandaríska fjárfesta inn í enskan fótbolta, sem hann telur ógna leiknum.

Haaland ekki meðal tíu bestu í tölvuleiknum
Einn leikmaður úr ensku úrvalsdeildinni er í hópi fjögurra bestu knattspyrnumannanna í nýjustu útgáfu af FIFA-tölvuleiknum sem kemur út í lok mánaðarins.

Klopp gerði grín að ummælum eiganda Chelsea um stjörnuleik: „Vill hann fá Harlem Globetrotters?“
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, henti gaman að ummælum Todds Boehly, eiganda Chelsea, um að hafa stjörnuleik með leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni.

Boehly stingur upp á Stjörnuleik að amerískri fyrirmynd
Todd Boehly, einn af nýjum eigendum enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, vill taka blaðsíðu úr bók amerískra íþrótta og setja á laggirnar Stjörnuleik í ensku úrvalsdeildinni til að afla fjár fyrir neðri deildir landsins.

Klopp hló að spurningu blaðamanns: „Sástu síðasta leik hjá okkur?“
Liverpool steinlá 4-1 þegar lærisveinar Jürgen Klopp heimsóttu Napoli í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Klopp telur það vera verstu frammistöðu liðsins undir sinni stjórn.

Búið að fresta hjá Man United og Liverpool um næstu helgi
Þremur leikjum sem fram áttu að fara í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um komandi helgi hefur verið frestað. Þar á meðal er stórleikur Chelsea og Liverpool sem og leikur erkifjendanna Manchester United og Leeds United.

Breskt landsliðsfólk þarf að læra annan texta
Fráfall Elísabetar Bretlandsdrottningar hefur haft sín áhrif á íþróttalífið í Bretlandi og ein breyting verður áberandi fyrir landsleiki og aðra viðburði þar sem Bretar kyrja þjóðsöng sinn.

Kanté gæti farið frítt frá Chelsea
Þó að franski landsliðsmiðjumaðurinn N‘Golo Kanté hafi verið lykilmaður hjá Chelsea um árabil þá hafa meiðsli sett strik í reikninginn síðustu ár. Hann gæti yfirgefið félagið frítt næsta sumar.

Kveðst eyðilagður yfir brottrekstrinum
Þýski knattspyrnustjórinn Thomas Tuchel hefur tjáð sig í fyrsta sinn eftir brottreksturinn frá enska úrvalsdeildarliðinu Chelsea en hann sendi frá sér tilfinningaríka yfirlýsingu í kvöld.

Telur Mourinho hafa haft af sér heimsmeistaratitil
Sóknarmaðurinn umdeildi, Anthony Martial, fór í áhugavert viðtal á dögunum þar sem hann skýtur föstum skotum á fyrrum knattspyrnustjóra sína hjá Manchester United.

Ósammála frestunum á Englandi
Sparkspekingarnir Gary Neville, Peter Crouch og Piers Morgan eru ekki sammála þeirri ákvörðun ensku úrvalsdeildarinnar að fresta öllum leikjum helgarinnar en leikjunum var frestað vegna andláts Elísabetar Bretlandsdrottningar.

Boehly vildi að Tuchel spilaði leikkerfið 4-4-3
Í ítarlegri grein The Athletic um brottrekstur Thomas Tuchel og hvað leiddi til hans er farið djúpt ofan í það sem hefur gengið á hjá enska knattspyrnufélaginu Chelsea undanfarna mánuði. Þar kemur fram að Todd Boehly, bandarískur eigandi félagsins, hafi stungið upp á að Tuchel myndi spila leikkerfið 4-4-3.

Koma Aurier þýðir að Forest hefur sótt tvö byrjunarlið af nýjum leikmönnum í sumar
Það hefur verið mikið rætt og ritað um Nottingham Forest undanfarnar vikur en félagið komst loks upp í ensku úrvalsdeildina eftir meira en tveggja áratuga fjarveru. Til að auka möguleika sína á að halda sæti sínu hefur félagið sótt hvern leikmanninn á fætur öðrum, 22 alls. Það eru tvö heil byrjunarlið.

Man Utd vildi ekki Potter þar sem hann hafði ekki þjálfað í Meistaradeildinni
Graham Potter er nýr þjálfari enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea. Hann hefði getað fengið tækifæri til að stýra öðru toppfélagi á Englandi en tvívegis kom nafn hans upp er Manchester United var að leita að nýjum þjálfara. Skortur á reynslu í Meistaradeild Evrópu stöðvaði hins vegar Man United í að fara lengra með áhuga sinn.

Settur til hliðar vegna ummæla um drottninguna
Fyrrum knattspyrnumaðurinn Trevor Sinclair hefur verið sendur í leyfi vegna ummæla sinna á samfélagsmiðlinum Twitter. Þar sagði hann að fólk dökkt að hörund ætti ekki að syrgja drottninguna.

Segir að Liverpool hefði frekar átt að kaupa Toney
Liverpool hefði frekar átt að kaupa Ivan Toney en Darwin Nunez. Þetta segir stjórnarformaður Peterborough United, Darragh MacAnthony.

Ekkert spilað á Englandi um helgina
Öllum fyrirhuguðum íþróttaviðburðum á Englandi um helgina hefur verið frestað. Því verða engir leikir í enska boltanum.

Úkraínski Neymar mígur utan í Arsenal
Úkraínski kantmaðurinn Mykhaylo Mudryk, sem sló í gegn í sigri Shakhtar Donetsk á RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn, hefur gefið Arsenal hressilega undir fótinn.