Fleiri fréttir

Nýi Belginn hjá Chelsea: Öll fjölskyldan heldur með Liverpool

Chelsea keypti í gær Belgíumanninn Kevin De Bruyne frá Genk en þessi tuttugu ára miðjumaður var strax lánaður aftur til Genk þar sem að hann mun klára tímabilið. Chelsea borgaði sjö milljónir punda fyrir leikmanninn eða jafnmikið og félagið borgaði fyrir Gary Cahill.

TEAMtalk: Koma Gylfa til Swansea ein bestu viðskiptin í janúar

Fótboltavefmiðillinn TEAMtalk fékk í dag Nick Hext til að velja fjögur best heppnuðu félagsskiptin í janúarglugganum en glugginn lokaði eins og kunnugt er í gærkvöldi. Hext nefnir til fjögur félagsskipti og er koma okkar manns Gylfa Þórs Sigurðssonar til Swansea á þeim lista.

Leeds búið að reka stjórann sinn

Leeds rak í dag stjórann Simon Grayson og þjálfarateymi hans en hann hefur stýrt málunum á Elland Road undanfarin þrjú ár. Unglingaliðsþjálfari félagsins, Neil Redfearn, mun taka tímabundið við liðinu á meðan verður leitað verður að nýjum stjóra.

Réttarhöldin yfir Terry fara ekki fram fyrr en eftir EM í sumar

John Terry, fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins, þarf ekki að mæta í réttarsal fyrr en í júlí eftir að afgreiðslu málsins um kynþáttahatur hans var frestað í dag. Lögmaður Terry mætti fyrir dómara og lýsti yfir sakleysi umbjóðanda síns.

Mancini: Þetta tap var mér að kenna

Roberto Mancini, stjóri Manchester City, kennir sjálfum sér um tapið á móti Everton í gær en það þýddi að nágrannarnir í Manchester United náðu City að stigum á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

Allar breytingarnar hjá ensku liðunum í þessum glugga

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir breytingar hjá hverju liði í ensku úrvalsdeildinni í félagsskiptaglugganm sem lokaði í gærkvöldi. Lokadagurinn var ekkert í líkingu við þann á sama tíma í fyrra en fullt af leikmönnum breyttu þó um búning.

Pienaar kominn aftur til Everton

Suður-Afríkumaðurinn Steven Pienaar er kominn aftur til Everton en nú sem lánsmaður frá Tottenham til loka tímabilsins. Þetta var staðfest nú rétt fyrir miðnætti.

United ákvað að selja hinn stórefnilega Morrison

Ravel Morrison, átján ára miðvallarleikmaður, gekk í dag í raðir West Ham frá Manchester United. Því hefur verið haldið fram að hann sé einn efnilegasti leikmaður landsins en hann hefur þó átt í talsverðum erfiðleikum utan knattspyrnuvallarins undanfarin ár.

Mancini bætti miðjumanni í hópinn

David Pizarro hefur verið lánaður frá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Roma til Manchester City til loka leiktíðarinnar. Hann er 32 ára miðjumaður frá Síle sem hefur lítið fengið að spila á Ítalílu í vetur.

Félagaskipti Zamora til QPR staðfest

Bobby Zamora hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við QPR sem keypti hann í kvöld frá Fulham fyrir fjórar milljónir punda.

Saha samdi við Tottenham

Tottenham gekk í kvöld frá samningi við sóknarmanninnum franska Louis Saha sem hefur verið á mála hjá Everton síðustu árin.

Gibson: Fæ örugglega símtöl frá leikmönnum United

Darron Gibson var hógvær í viðtölum eftir að hann tryggði sínum mönnum í Everton 1-0 sigur á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Sjálfsagt voru stuðningsmenn Manchester United ekki síður ánægðir með hann en Everton-menn enda tókst United að jafna City að stigum á toppi deildarinnar.

Cardiff enn í þriðja sæti

Cardiff var ekki langt frá því að komast upp í annað sæti ensku B-deildarinnar í kvöld en liðið gerði þá jafntefli við Southampton í toppslag. Topplið West Ham steinlá fyrir Ipswich á útivelli.

Kyrgiakos kominn til Sunderland

Martin O'Neill, stjóri Sunderland, hefur verið iðinn við að styrkja vörn liðsins í dag en nú hefur félagið staðfest að félagið hafi keypt Grikkjann Sotirios Kyrgiakos, fyrrum leikmann Liverpool.

Nítján ára þýskur miðjumaður til Arsenal

Arsenal hefur tilkynnt að félagið hafi fest kaup á Thomas Eisfeld, nítján ára sóknarþenkjandi miðjumanni sem er uppalinn hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Borussia Dortmund.

Tevez ekki til AC Milan | Lokað fyrir félagaskipti á Ítalíu

Þó svo að félagaskipti verði enn heimil í Englandi til klukkan 23 í kvöld er búið að loka fyrir félagaskipti á Ítalíu. Það þýðir að Carlos Tevez, leikmaður Manchester City, fer ekki til AC Milan, eins og sögusagnir voru um.

Aron Einar um komu Hermanns til Coventry: Karakter sem liðið vantaði

Hermann Hreiðarsson mun spila sinn annan leik með Coventry í kvöld þegar liðið fer í heimsókn til Blackpool. Coventry vann 3-1 sigur á Middlesbrough í fyrsta leiknum eftir komu íslenska víkingsins og þarf fleiri slíka sigri á næstunni ætli félagið að halda sæti sínu í deildinni.

Agger heimtar þrjú stig á móti Úlfunum í kvöld

Liverpool hefur enn ekki unnið deildarleik á árinu 2012 þrátt fyrir frábæran mánuð í bikarkeppnunum þar sem liðið sló Manchester City út úr enska deildabikarnum og Manchester United út úr enska bikarnum.

Kaupir Tottenham Rodallega eftir leikinn við Wigan í kvöld?

Hugo Rodallega hefur verið orðaður við Tottenham í þessum félagsskiptaglugga og svo gæti farið að gengið verði frá kaupunum á framherjanum áður en glugginn lokar á miðnætti í kvöld. Hlutirnir gætu gerst hratt því Wigan mætir einmitt Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Zamora vill fá alltof há laun hjá QPR

Fulham er búið að samþykkja tilboð Queens Park Rangers í framherjann Bobby Zamora en það gengur ekki eins vel hjá Queens Park Rangers að ná samningum við leikmanninn sjálfan ef marka má frétt á Guardian. Zamora lék undir stjórn Mark Hughes, stjóra QPR, í fyrra.

AC Milan að reyna að næla í Tevez á síðustu klukkutímunum

Framtíð Carlos Tevez gæti ráðist áður en félagsskiptaglugginn lokar í kvöld því nýjustu fréttirnar frá Ítalíu benda til þess að AC Milan ætlar að gera eina lokatilraun að næla í argentínska framherjann á síðustu klukkutímunum.

Tvíburar sameinast á ný hjá Blackburn

Sænsku tvíburarnir Martin og Marcus Olsson eru orðnir liðsfélagar á nýjan leik eftir að enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn Rovers ákvað að semja við Marcus Olsson. Martin Olsson hefur spilað með Blackburn frá 2006.

Hughes: QPR gæti hjálpað City fengi liðið Tevez á láni

Mark Hughes, stjóri Heiðars Helgusonar hjá Queens Park Rangers, er viss um að það kæmi sér vel fyrir Manchester City að lána Argentínumanninn Carlos Tevez til annars liðs í ensku úrvalsdeildinni. QPR hefur eins og mörg önnur félög áhuga á því að fá Tevez á láni þar sem að það lítur út fyrir að City nái ekki að selja leikmanninn áður en félagsskiptaglugginn lokar í kvöld.

Wayne Bridge lánaður til Sunderland

Wayne Bridge er kominn norður til Sunderland þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun í dag. Bridge fær engin tækifæri hjá Roberto Mancini, stjóra Manchester City, en ítalska stjóranum ætlar engu að síður ekki að ná að selja enska bakvörðinn.

Van Persie sleppur við kæru

Robin van Persie, framherji Arsenal, er ekki á leiðinni í leikbann eftir olnbogaskot sitt í bikarleiknum á móti Aston Villa um helgina. Aganefnd enska knattspyrnusambandsins mun ekki taka málið upp.

Aron Einar: Maður elskar ekkert Liverpool

Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff eru komnir í úrslitaleik deildabikarsins á Wembley en fram undan eru aðrir mikilvægir leikir. Liðið mætir Southampton í kvöld og fer upp í annað sætið með sigri.

Liverpool baðst afsökunar á myndbandi

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur beðist afsökunar á birtingu myndbands á heimasíðu sinni sem sýndi stuðningsmann liðsins leika apa.

Van Persie ekki refsað | Cabaye kærður

Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að kæra Yohan Cabaye, leikmann Newcastle, fyrir ofbeldisfulla hegðun í leik liðsins gegn Brighton í ensku bikarkeppninni. Ekkert verður þó aðhafst í máli Robin van Persie, framherja Arsenal.

Milan segir ólíklegt að Tevez komi

Sagan langa um Carlos Tevez og Manchester City tekur líklega ekki enda á morgun. Forráðamenn AC Milan segja í það minnsta ólíklegt að Tevez komi til félagsins áður en lokað verður fyrir félagaskipti annað kvöld.

Cisse á leið í læknisskoðun hjá QPR

Frakkinn Djibril Cisse er sagður á leið í enska boltann á ný en samkvæmt enskum fjölmiðlum er hann á leiðinni til Lundúna þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá QPR.

Speed lést mögulega af slysförum

Það er mögulegt að Gary Speed, fyrrum landsliðsþjálfari Wales, hafi látist af slysförum en ekki fyrirfarið sér eins og hingað til hefur verið talið.

Tuttugu ára Belgi í læknisskoðun hjá Chelsea

Chelsea vonast til að ganga frá kaupum á belgíska miðjumanninum Kevin de Bruyne frá Genk sem fyrst en leikmaðurinn fer í læknisskoðun á Stamford Bridge í dag. De Bruyne heillaði Andre Villas-Boas, stjóra Chelsea, þegar enska liðið mætti Genk í Meistaradeildinni fyrr í vetur.

Sjá næstu 50 fréttir