Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Maguire: Fólk býr til sögur því ég er fyrirliði Manchester United Enska landsliðið í fótbolta er í töluverðum vandræðum í aðdraganda HM í Katar. Liðið tapaði 1-0 fyrir Ítalíu í gær og er nú í sama flokki og San Marínó, yfir mörk skoruð í opnum leik í þjóðardeildinni. Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, spilaði með enska landsliðinu í gær þrátt fyrir að vera ekki í náðinni hjá knattspyrnustjóra Manchester United. 24.9.2022 12:31
Stuðningsmenn Liverpool ætla í hart gegn UEFA Meira en 1.700 stuðningsmenn Liverpool, sem urðu fyrir skaða vegna þeirra ringulreiðar sem skapaðist á úrslitaleik Liverpool og Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í París á síðasta tímabili, ætla að ákæra UEFA vegna skipulagsleysis í kringum leikinn. 24.9.2022 11:44
Forsætisráðherra Bretlands eyddi hundruðum þúsunda af opinberu fé í Norwich City Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, mætir nú harðri gagnrýni heima fyrir eftir að upp komst að hún eyddi opinberu fé breska ríkisins til að versla varning í netverslun Norwich City, knattspyrnufélagsins sem Truss styður á Englandi. 24.9.2022 11:00
Æfði sex sinnum í viku, var í þyngingarvesti og tók mörg hundruð útspörk á dag Þó hin 19 ára gamla Ceciía Rán Rúnarsdóttir sé um þessar mundir á meiðslalistanum þá hefur hún náð ótrúlegum árangri á stuttum tíma. Fótboltavefurinn GOAL telur hana eina af efnilegri leikmönnum heims og fór nýverið yfir uppgang þessa öfluga markvarðar sem í dag er samningsbundin þýska stórveldinu Bayern München. 24.9.2022 09:00
Sean Dyche um Heiðar Helguson: Þegar á leikdag var komið vildir þú alltaf hafa Heiðar í liðinu þínu Sean Dyche, fyrrum þjálfari Burnley, var gestur í hlaðvarpi Ben Foster, markvarðarins fyrrverandi. Fór Dyche yfir víðan völl og á einum tímapunkti varð Heiðar Helguson að umræðuefni þáttarins. 24.9.2022 08:01
„Persónulega fannst mér frammistaðan vera skref í rétta átt“ „Það er erfitt fyrir að vera of gagnrýninn á frammistöðuna. Við vorum meira með boltann, áttum fleiri skot og fleiri skot á markið sjálft,“ sagði Gareth Southgate, landsliðseinvaldur Englands, eftir 1-0 tap Englands í Mílanó á Ítalíu. Tapið þýðir að England er fallið niður í B-deild Þjóðadeildarinnar. 23.9.2022 23:31
Segist hafa sóað fimm árum af sínum ferli en neitar að hafa verið glaumgosi Ousmane Dembélé, vængmaður spænska knattspyrnuliðsins, Barcelona var keyptur á fúlgur fjár árið 2017 en það var í raun ekki fyrr en á síðustu leiktíð sem hann fór virkilega að sýna hvað í sér býr. Leikmaðurinn viðurkennir að hann hafi sóað fimm árum af ferli sínum en þvertekur fyrir að vera glaumgosi. 23.9.2022 23:00
Ísak Snær við það að feta í fótspor Kristals Mána Það stefnir allt í að Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Breiðabliks, verði samherji Kristals Mána Ingasonar hjá norska liðinu Rosenborg fyrr heldur en síðar. 23.9.2022 22:00
England getur ekki skorað og er fallið úr A-deild Ítalía lagði England 1-0 í riðli þrjú í A-deild Þjóðadeildarinnar. Var þetta þriðja tap Englands í fimm leikjum og ljóst er að liðið er fallið niður í B-deild. Í leikjunum fimm hefur England aðeins skorað eitt mark. 23.9.2022 20:45
Arnar með munnlegt samkomulag við annað lið Arnar Grétarsson lét af störfum sem þjálfari KA í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Hann hefur nú staðfest að hann sé þegar búinn að gera munnlegt samkomulag við annað félag. 23.9.2022 20:30
„Fengum á okkur tvö ódýr mörk og það skildi liðin að“ „Þetta var eiginlega bara stál í stál en þeir refsuðu okkur betur, tóku þau færi sem þeir fengu,“ sagði fyrirliðinn Brynjólfur Andersen Willumsson eftir súrt 2-1 tap Ú-21 árs landslið Íslands gegn Tékklandi í fyrri leik liðanna um sæti á Evrópumótinu sem fram fer á næsta ári. 23.9.2022 19:45
Arnar hættur hjá KA og Hallgrímur tekur við Arnar Grétarsson er hættur sem þjálfari KA í Bestu deild karla. Hallgrímur Jónasson, aðstoðarþjálfari liðsins verður aðalþjálfari liðsins en hann skrifaði undir þriggja ára samning í dag. 23.9.2022 19:30
Umfjöllun og myndir: Ísland - Tékkland 1-2 | Strákarnir í brekku fyrir seinni leikinn Íslenska landsliðið 21 árs og yngri mátti þola 2-1 tap gegn Tékklandi í umspili um sæti á Evrópumótinu á næsta ári. Ísland komst yfir en gestirnir svöruðu með tveimur mörkum og leiða með einu marki fyrir síðari leik einvígisins sem fram fer í Tékklandi á þriðjudaginn. 23.9.2022 19:00
Vill spila með FH þó að kærastinn sé hjá foreldrum hennar í Eyjum Helena Ólafsdóttir fékk að vanda góða gesti til að spá í spilin í upphitunarþætti Bestu markanna fyrir næstsíðustu umferðina í Bestu deild kvenna í fótbolta, sem leikin er um helgina. 23.9.2022 16:30
Ræður heilt teymi til að komast í form Brasilíumaðurinn Arthur Melo er staðráðinn í að standa sig hjá Liverpool og hefur ráðið heilt teymi til að hjálpa sér við það. 23.9.2022 16:01
Bjarni segir bless eftir frábært sumar Þjálfarinn þrautreyndi Bjarni Jóhannsson er hættur sem þjálfari karlaliðs Njarðvíkur í fótbolta. Hann skilur við liðið í næstefstu deild eftir að hafa stýrt því til sigurs í 2. deild í sumar. 23.9.2022 14:00
Eiður og Sigurvin velja gallana í kostulegri auglýsingu Eiður Smári Guðjohnsen og Sigurvin Ólafsson, sem tóku við þjálfun FH í sumar, virðast ætla að velja þægindi fram yfir annað þegar kemur að fatavalinu á úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fótbolta eftir rúma viku. 23.9.2022 12:30
„Mjög gott lið og þetta verður svakalegur leikur“ „Hér eru leikmenn framtíðarinnar að spila, úrslitaleik á heimavelli. Þetta eru efnilegir strákar sem að munu spila góða rullu fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni. Það er tími til að koma hingað [í dag] og horfa á tvö góð lið og flotta leikmenn spila fótbolta.“ 23.9.2022 12:01
Ferlinum væntanlega lokið en lífið að hefjast Mist Edvardsdóttir hefur líklega spilað sinn síðasta leik á ferlinum. Hennar bíður hins vegar spennandi verkefni í einkalífinu. 23.9.2022 11:30
Bróðir Pogbas líkir honum við R. Kelly, Harvey Weinstein og Benjamin Mendy Mathias Pogba, yngri bróðir Pauls, birti fjölda myndbanda og færslna á samfélagsmiðlum þar sem hann fór vægast sagt ófögrum orðum um bróður sinn. Hann líkti honum meðal annars við þekkta kynferðisafbrotamenn. 23.9.2022 11:01
Upplausn eftir tapið fyrir Víkingi: Þjálfarinn entist í tíu daga Levadia Tallinn, sem féll úr keppni fyrir Víkingi í Meistaradeild Evrópu fyrr í sumar, hefur rekið nýjan þjálfara sinn eftir aðeins einn leik. Félagið hefur farið í gegnum nokkra þjálfara frá tapinu í sumar. 23.9.2022 10:31
„Erum með íslensku þjóðina á bakvið okkur hérna“ „Við erum með mjög gott lið og höfum fulla trú á okkur sjálfum. Við vitum hvað við getum gert sem lið, keyrum á þá og gerum okkar allra besta til að ná í úrslit,“ segir framherjinn ungi Orri Óskarsson fyrir einvígið við Tékkland sem hefst í dag. 23.9.2022 09:32
Uppreisn á Spáni: Vilja þjálfarann burt og sambandið hótar bönnum 15 leikmenn spænska kvennalandsliðsins í fótbolta hafa hafnað því að vera í landsliðshópnum fyrir komandi verkefni. Þær vilja ekki spila fyrir þjálfarann Jorge Vilda. 23.9.2022 09:00
Stuðningsmenn West Ham oftast teknir fastir | Manchester-liðin þar á eftir Ólæti fótboltaáhorfenda hafa verið mikið til umræðu á Englandi eftir að takmörkunum sökum kórónuveirufaraldursins var lyft. Bresk stjórnvöld í samstarfi við knattspyrnuyfirvöld stefna á aðgerðir til að takast á við vandamálið. 23.9.2022 08:30
Mourinho slær í gegn í nýju lagi Stormzy José Mourinho, þjálfari Roma á Ítalíu, er í nýju lagi breska tónlistarmannsins Stormzy og á hlutverk í myndbandinu við lagið að auki. 23.9.2022 07:30
Segir ekki rétt að þau hafi einfaldlega látið af störfum: „Við vorum rekin!“ Rakel Logadóttir og Jón Steindór Þorsteinsson tóku við kvennaliði Fylkis í október á seinasta ári. Þau voru látin fara frá félaginu fyrr í dag, en Rakel segir það ekki rétt að þau hafi einfaldlega „látið af störfum.“ 22.9.2022 23:30
„Kemur mikill talandi og reynsla með tilkomu Arons í hjarta varnarinnar“ Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, var sáttur við varnarleik lærisveina sinna þegar liðið vann 1-0 sigur gegn Venesúela í vináttualandsleik í Vínarborg í dag. 22.9.2022 22:47
Skiptist á við kærustuna að keyra og er klár gegn Tékkum KA-maðurinn Sveinn Margeir Hauksson var kallaður inn í U21-landsliðið vegna meiðsla Kristals Mána Ingasonar, fyrir umspilið mikilvæga við Tékkland um sæti á EM. 22.9.2022 22:16
Lék sinn fyrsta landsleik 38 ára og hélt hreinu Hollendingar héldu sæti sínu á toppi riðils fjögur í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta er liðið vann 0-2 útisigur gegn Pólverjum í kvöld. Hinn 38 ára gamli Remko Pasveer stóð vaktina í marki Hollendinga, en hann var að leika sinn fyrsta landsleik á ferlinum. 22.9.2022 21:32
„Staðráðinn í því að gera vel eftir að ég kom inná“ Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði sigurmark Íslands úr vítaspyrnu þegar liðið lagði Venesúela að velli í vináttulandsleik í Vín í dag. Ísak Bergmann sagði kærkomið að landa sigri þar sem sigurleikirnir hefðu ekki verið mjög margir á þessu ári. 22.9.2022 19:00
Guðlaugur Victor: Alltaf gott að spila með Aroni Guðlaugur Victor Pálsson lék sinn fyrsta landsleik fyrir Íslands hönd í langan tíma er liðið vann 1-0 sigur gegn Venesúela í vináttulandsleik í kvöld. 22.9.2022 18:40
„Ég var fullur tilhlökkunar fyrir þennan leik, ég get alveg viðurkennt það“ Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, snéri aftir í íslenska landsliðið eftir rúmlega árs fjarveru er liðið vann 1-0 sigur gegn Venesúela í vináttulandsleik í Austurríki í dag. Hann segir það góða tilfinningu að leika fyrir Íslands hönd á ný. 22.9.2022 18:23
Umfjöllun: Venesúela-Ísland 0-1 | Ísak tryggði íslenska liðinu sigur af vítapunktinum Ísland bar sigur úr býtum með einu marki gegn engu þegar liðið mætti Venesúela í vináttulandsleik í fótbolta karla í úthverfi Vínarborgar í Austurríki í dag. 22.9.2022 17:57
Klikkaðist á karnivali á Kanarí Spánverjinn David Silva, leikmaður Real Sociedad og fyrrum leikmaður Manchester City á Englandi, þarf að greiða sekt og bætur eftir að hafa játað sök í ofbeldismáli fyrir spænskum dómstólum. 22.9.2022 16:00
Fangelsisdómurinn yfir Escobar staðfestur Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir kólumbíska fótboltamanninum Andrés „Manga“ Escobar. 22.9.2022 15:52
Aron Einar og Alfreð í byrjunarliðinu Aron Einar Gunnarsson er í byrjunarliði Íslands sem mætir Venesúela í vináttulandsleik í Austurríki í dag. 22.9.2022 14:52
Svona var hópurinn fyrir HM-umspilið kynntur Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, tilkynnti í dag leikmannahóp Íslands fyrir komandi umspil um sæti á heimsmeistaramótinu sem fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári. 22.9.2022 13:40
Enginn vafi um Söru Björk en algjör óvissa um Karólínu Fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir er klár í slaginn með Íslandi í umspilinu um sæti á HM sem fram fer næsta sumar. Algjör óvissa ríkir hins vegar um bataferlið hjá Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur. 22.9.2022 13:37
Þetta eru stelpurnar sem eiga að koma Íslandi á HM í fyrsta sinn Nú er orðið ljóst hvaða leikmenn eru í landsliðshópi kvennalandsliðs Íslands fyrir leikinn gegn Portúgal eða Belgíu 11. október, sem ræður því hvort Ísland kemst á HM í fyrsta sinn. 22.9.2022 13:09
Stelpurnar okkar æfa í Portúgal en gætu þurft að fara til Belgíu Kvennalandslið Íslands í fótbolta mun æfa í Algarve í Portúgal fyrir leikinn sem ræður úrslitum um það hvort liðið verður með á HM í Eyjaálfu næsta sumar. 22.9.2022 12:41
„Eigum stóran séns á að gera vel“ Kristian Nökkvi Hlynsson segir að leikmenn íslenska U-21 árs landsliðsins í fótbolta mæti brattir til leiks gegn Tékkum í umspili um sæti á EM á næsta ári. Hann unir hag sínum hjá Ajax vel. 22.9.2022 12:01
Heimir: Launin eru nær því sem var hjá KSÍ en í Katar Knattspyrnuþjálfarinn Heimir Hallgrímsson kom eflaust mörgum á óvart er hann ákvað að taka við landsliði Jamaíka. Skemmtilegt verkefni og nokkuð ævintýri. 22.9.2022 11:30
Markvörður inn fyrir meiddan varnarmann Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21-landsliðs karla í fótbolta, hefur neyðst til að gera tvær breytingar á sínum hópi nú þegar rúmur sólarhringur er í leikinn mikilvæga við Tékkland á Víkingsvelli. 22.9.2022 10:45
Þykist vita að hún hafi slitið krossband í fjórða sinn Mist Edvardsdóttur grunar sterklega að hún hafi slitið krossband í hné í leik Vals og Slavia Prag í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær. Mist ætti að þekkja einkennin enda slitið krossband í þrígang. 22.9.2022 10:35
Í það minnsta átta þjóðir munu spila með regnbogaarmbönd í Katar Fjölmargir hafa lýst yfir áhyggjum yfir réttindum hinsegin fólks í Katar í aðdraganda heimsmeistaramóts karla í fótbolta sem fer þar fram í vetur. Í það minnsta átta þátttökuþjóðir munu sýna réttindabaráttu hópanna samstöðu á mótinu. 22.9.2022 08:32