Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Orðrómurinn angrar Gylfa Þór ekki | útvarpsviðtal úr Boltanum á X-977 Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Swansea hefur leikið mjög vel eftir að hann kom til Englands að láni frá þýska liðinu Hoffenheim. Hann var í viðtali í dag í Boltanum á X-inu 977 þar sem Gylfi Þór þakkaði Brendan Rogers fyrir að hafa fengið sig til Swansea og tileinkaði einmitt stjóra sínum mörkin tvö gegn Wigan. 14.3.2012 13:30
Hvað er um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld? Meistaradeild Evrópu í fótbolta er aðalmálið á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld. Enska liðið Chelsea leikur í 16-liða úrslitum keppninnar gegn ítalska liðinu Napólí og stórlið Real Madrid frá Spáni fær CSKA frá Moskvu í heimsókn. Upphitun fyrir leiki kvöldsins hefst kl. 19.00 þar sem Þorsteinn J fer yfir málin með sérfræðingum Stöðvar 2 sport. Keppni í Formúlu 1 kappakstrinum hefst um helgina í Ástralínu og aðfaranótt fimmtudags verður sýnt frá æfingum á Stöð 2 sport. 14.3.2012 13:00
Valencia aftur orðinn leikfær - Anderson, Nani og Jones fara ekki til Spánar Antonio Valencia er búinn að ná sér að meiðslunum sem hann varð fyrir í sigrinum á Ajax á dögunum og verður með Manchester United í seinni leiknum á móti Athletic Bilbao í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. 14.3.2012 12:30
Meistaradeildin: Di Matteo gerir miklar kröfur | kemst Chelsea áfram? Roberto Di Matteo, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, krefst þess að leikmenn liðsins gefi allt sem þeir eiga í leikinn gegn ítalska liðinu Napólí í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Chelsea er í erfiðri stöðu eftir 3-1 tap á útivelli í fyrri leiknum í 16-liða úrslitum keppninnar. Það er því að duga eða drepast fyrir Chelsea sem er eina enska liðið sem er eftir í þessari keppni. 14.3.2012 11:00
Misstir þú af þrennunni hans Gerrard? | öll mörkin eru á Vísi Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, fór á kostum í 3-0 sigri á Liverpool á nágrönnum sínum í Everton í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Gerrard skoraði þrennu og er hægt að sjá öll mörkin á sjónvarpshluta Vísis. 14.3.2012 09:45
Gylfi Þór verður í viðtali í Boltanum á X-977 Valtýr Björn Valtýsson stýrir gangi mála í dag í íþróttaþættinum Boltanum á útvarpsstöðinni X977. Þátturinn er á dagskrá á hverjum virkum degi á milli 11-12. Í dag mun Valtýr ræða við Gylfa Þór Sigurðsson leikmann enska úrvalsdeildarliðsins Swansea. 14.3.2012 10:15
Samantekt úr Meistaramörkunum, markaregn í München Bayern München frá Þýskalandi og franska liðið Marseille tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Bayern München gjörsigraði Basel frá Sviss á heimavelli, 7-0, þar sem Mario Gomez skoraði fjögur mörk. Það gekk mikið á þegar Inter frá Mílanó vann Marseille 2-1 en það dugði ekki til. Þorsteinn J fór yfir gang mála með gestum sínum í Meistaramörkunum á Stöð 2 sport ásamt sérfræðingunum Pétri Marteinssyni og Reyni Leóssyni. 13.3.2012 23:59
Þrír í jörðina á tíu sekúndum - einn skapheitur í Úkraínu Derek Boateng, miðvörður Dnipro Dnipropetrovsk í Úkraínu, lét skapið heldur betur hlaupa með sér á dögunum og leikmenn Vorskla Poltava fengu að finna fyrir því. Derek Boateng fékk rauða spjaldið fyrir grófa tæklingu og tók því afar illa þegar mótherjarnir hópuðust að honum. 13.3.2012 23:15
Xavi: Spánverjar kunna ekki að meta Barcelona-liðið Xavi Hernández, miðjumaður Barcelona og spænska landsliðsins segir Barcelona ekki fá þá viðurkenningu á Spáni sem liðið á skilið. Ástæðuna telur hann vera ríginn á milli Real Madrid og Barcelona. 13.3.2012 22:45
Dalglish: Allir uppöldu Liverpool-strákarnir voru frábærir Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, var himinlifandi eftir 3-0 sigur á nágrönnunum í Everton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Liverpool var búið að tapa þremur leikjum í röð og átti á hættu að missa Everton upp fyrir sig í töflunni. 13.3.2012 22:42
Cardiff steinlá á heimavelli - lítið gengur hjá Aroni og félögum Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City eru að missa af lestinni í ensku b-deildinni og eru komnir niður í sjöunda sæti eftir 0-3 tap á heimavelli á móti Hull City í kvöld. 13.3.2012 22:26
Gerrard: Suarez færði mér tvö mörk á silfurfati Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, var að sjálfsögðu kátur eftir að hafa skorað þrennu í 3-0 sigri á nágrönnunum í Everton á Anfield í kvöld en liðin mættust þá í frestuðum leik í ensku úrvalsdeildinni. 13.3.2012 22:17
Gerrard skoraði þrennu í sigri Liverpool á Everton Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, fór á kostum í 3-0 sigri á Liverpool á nágrönnum sínum í Everton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en Everton gat komist upp fyrir Liverpool með sigri á Anfield í kvöld. 13.3.2012 19:45
Dramatík í lokin þegar Inter féll úr leik - Marseille áfram á útivallarmarki Franska liðið Marseille komst í kvöld í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar þrátt fyrir 2-1 tap fyrir Inter Milan á San Siro. Inter komst í 1-0 í leiknum en fékk á sig mark í uppbótartíma eins og í fyrri leiknum. Þessi mörk urðu ítalska stórliðinu að falli. 13.3.2012 19:30
Gomez með fernu í stórsigri Bayern Bayern München sýndi sannkallaða Barcelona-takta þegar liðið vann 7-0 stórsigur á Basel í kvöld og tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Úrslitaleikurinn fer fram á Allianz Arena í München í vor og ef marka má frammistöðu þýska liðsins í gær er allt eins líklegt að Bayern verði þar á heimavelli. 13.3.2012 19:15
Cristiano Ronaldo: Mourinho verður áfram hjá Real Madrid Cristiano Ronaldo, framherji Real Madrid, er sannfærður um að Jose Mourinho verði áfram þjálfari Real Madrid á næsta tímabili en það hafa verið sögusagnir í gangi um að portúgalski þjálfarinn sé á leiðinni frá Bernabeu. 13.3.2012 20:30
Meistaradeildin: Mourinho ber virðingu fyrir CSKA Moskvu Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur engar áhyggjur af því að hann muni missa starf sitt ef spænska liðið nær ekki að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Real Madrid tekur á móti CSKA frá Moskvu á morgun í 16-liða úrslitum keppninnar. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli í Rússlandi. 13.3.2012 18:30
Sunnudagsmessan: Varnarleikur Wolves er í tómu tjóni Wolves, liðið sem íslenski landsliðsmaðurinn Eggert Gunnþór Jónsson leikur með í ensku úrvalsdeildinni, er í tómu basli eftir afleitt gengi að undanförnu. Mick McCarthy knattspyrnustjóri liðsins var rekinn á dögunum og Terry Connor aðstoðarmaður hans tók við keflinu. 13.3.2012 17:45
Norðmenn greiða um 250 milljónir fyrir vináttuleik gegn Englandi Noregur og England eigast við í vináttulandsleik í fótbolta karla þann 26. maí og verður þetta einn dýrasti fótboltaleikur í sögu norska knattspyrnusambandsins. Samkvæmt frétt Dagbladet nemur kostnaðurinn við leikinn um 250 milljónir kr. og þar af fær enska knattspyrnusambandið um 220 milljónir kr. í sinn hlut. 13.3.2012 15:30
Lionel Messi kann að skutla sér | 50 marka maðurinn með tilþrif Argentínumaðurinn Lionel Messi hefur farið á kostum í framlínunni hjá Evrópu – og Spánarmeistaraliði Barcelona. Framherjinn hefur skorað 50 mörk nú þegar og þar af 30 í deildarkeppninni. Messi virðist vera með allt á hreinu í fótboltanum og hann miðað við myndina sem liðsfélagi hans hjá Barcelona, Carles Puyol, tók á æfingu liðsins þá er Messi góður í marki einnig. 13.3.2012 14:45
Sunnudagsmessan: QPR gengur betur með Heiðar í byrjunarliðinu Heiðar Helguson, íþróttamaður ársins 2011, hefur ekki leikið með QPR í ensku úrvalsdeildinni að undanförnu vegna meiðsla. Gengi QPR hefur alls ekki verið gott í undanförnum leikjum og í Sunnudagsmessunni var farið yfir stöðuna. 13.3.2012 13:30
Hvað er um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld? Meistaradeild Evrópu, 16-liða úrslit, og grannaslagur í Liverpool borg eru í aðalhlutverki á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld. Úrslitin í fyrstu tveimur viðureignunum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar ráðast í kvöld þar sem leikið verður til þrautar. Þorsteinn J og gestir hita upp fyrir stórleiki kvöldsins og málin verða gerð upp í Meistaradeildarmörkunum. Enska úrvalsdeildin er einnig áhugaverð í kvöld þar sem Liverpool og Everton eigast við á Anfield. 13.3.2012 13:00
Meistaradeildin: Reynir spáir Bayern München sigri gegn Basel Það er mikið í húfi í kvöld í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu. Úrslitin í tveimur viðureignum ráðast og þýska stórliðið Bayern München bíður stór verkefni gegn svissneska liðinu Basel sem er 1-0 yfir eftir fyrri leikinn. Ítalska liðið Inter er einnig undir eftir 1-0 tap á útivelli gegn Marseille. Reynir Leósson, einn af sérfræðingum Stöðvar 2 sport í Meistaradeildinni er á því að þýska stálið komist áfram í 8-liða úrslit keppninnar. 13.3.2012 12:15
Wenger gagnrýnir leikaraskapinn hjá Busquets Arsene Wenger, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal, vekur oft athygli fyrir ummæli sem hann lætur falla á fréttamannafundum. Wenger sendi Sergio Busquets, leikmanni Evrópumeistaraliðs Barcelona, tóninn og segir Wenger að Busquets sé ekki heiðarlegur í sínum leik. 13.3.2012 11:30
Sunnudagsmessan: Umræða um Liverpool | Er King Kenny á réttri leið? Liverpool tapaði 1-0 gegn Sunderland um helgina í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Farið var yfir ýmis atriði sem tengjast Liverpool í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 á sunnudaginn. Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason höfðu ýmislegt við gang mála að athuga hjá Liverpool og Arnar Gunnlaugsson, gestur þáttarins, er með sterkar skoðanir á leikmannakaupum liðsins undanfarin misseri. 13.3.2012 11:00
Meistaradeildin: Schweinsteiger fær mikið hrós frá þjálfaranum Þýski landsliðsmaðurinn Bastian Schweinsteiger fær mikið hrós frá þjálfara sínum, Jupp Heynckes, sem líkir Bayern München leikmanninum við Xavi og Andres Iniesta hjá Barcelona. Schweinsteiger hefur ekki leikið með þýska liðinu að undanförnu vegna meiðsla en hann gæti verið í byrjunarliðinu þegar Bayern München tekur á móti Basel í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. 13.3.2012 09:45
Bayern og Inter þurfa sigur Sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar halda áfram í kvöld og þar reynir á tvö stórlið. Bayern München og Internazionale töpuðu bæði fyrri leiknum 1-0 á útivelli þökk sé marki í blálokin. Basel skoraði sigurmarkið á móti Bayern á 85. mínútu en sigurmark Marseille á móti Inter kom á þriðju mínútu í uppbótartíma. Nú eru Bayern og Inter á heimavelli en leikirnir hefjast klukkan 19.45 og eru í beinni á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 3. 13.3.2012 07:00
Heimir Guðjónsson fer yfir Meistaradeildina í Boltanum á X-inu Meistaradeild Evrópu verður aðalumræðuefnið í útvarpsþættinum Boltanum á X-inu 977 í dag á milli 11-12. Heimir Guðjónsson verður gestur þáttarins en hann er einn ef sérfræðingum Stöðvar 2 sport í Meistaradeildarþáttunum sem Þorsteinn J stýrir. Valtýr Björn Valtýsson er stjórnandi Boltaþáttarins í dag og að venju verður komið víða við. 13.3.2012 10:30
Bróðir Lionel Messi með tattú af litla bróður á öxlinni Lionel Messi á eldri bróður sem heitir Matias og býr í Argentínu. Matias komst í fréttirnar í heimalandinu á dögunum þegar hann viðurkenndi í útvarpsviðtali að vera með húðflúr af litla bróður sínum á öxlinni. Matias segist líka vera mesti aðdáandi Lionel bróður síns. 12.3.2012 23:45
Emil og félagar felldu Torino af toppnum Emil Hallfreðsson og félagar í Hellas Verona unnu flottan 4-1 útisigur á toppliði Torino FC 1. í ítölsku b-deildinni í kvöld en Torino missti fyrir vikið toppsætið. 12.3.2012 23:15
Tækifæri fyrir Jóhann Berg - liðsfélagi hans hjá AZ fer til Aston Villa Jóhann Berg Guðmundsson ætti að fá fleiri tækifæri með hollenska liðinu AZ Alkmaar á næsta tímabili eftir að forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa tilkynntu í dag að ástralski vængmaðurinn Brett Holman færi til Villa í sumar. 12.3.2012 22:45
Wenger: Það þurfti eitthvað sérstakt til að vinna Newcastle Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur náð að snúa við gengi liðsins og hafa Arsenal-menn nú unnið fimm deildarleiki í röð. Thomas Vermaelen skoraði sigurmarkið á móti Newcastle í kvöld á fjórðu mínútu í uppbótartíma en Arsenal hefur verið að tryggja sér sigra í blálokin á síðustu deildarleikjum sínum. 12.3.2012 22:40
Walcott: Tottenham má passa sig núna Theo Walcott lagði upp bæði mörk Arsenal í 2-1 sigri liðsins á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og enski landsliðsmaðurinn var kátur í leikslok. Thomas Vermaelen skoraði sigurmarkið á fjórðu mínútu í uppbótartíma. 12.3.2012 22:26
Vermaelen: Sýndum hugarfar stríðsmanna Thomas Vermaelen, miðvörðurinn sterki í liði Arsenal, var hetja liðsins í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið á móti Newcastle á fjórðu mínútu í uppbótartíma. 12.3.2012 22:14
Van Persie búinn að bæta hollenska markametið í ensku úrvalsdeildinni Robin van Persie setti nýtt hollenskt markamet í ensku úrvalsdeildinni í 2-1 sigri á Newcastle í kvöld þegar hann skoraði sitt 26. deildarmark á leiktíðinni. Van Persie bætti þar með met Ruud Van Nistelrooy frá tímabilinu 2002-03. 12.3.2012 22:06
Sunnudagsmessan: Steingrímur Jóhannesson | minning Knattspyrnumaðurinn Steingrímur Jóhannesson úr Vestmannaeyjum var jarðsunginn í dag og fór útförin fram í Bústaðakirkju í Reykjavík. Steingrímur var aðeins 38 ára gamall þegar hann lést þann 1. mars en hann hafði síðustu mánuði háð harða baráttu við krabbamein. Steingríms var minnst í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gær þar sem þetta myndband var frumsýnt. 12.3.2012 21:30
Vermaelen tryggði Arsenal sigur í uppbótartíma Sigurganga Arsenal í ensku úrvalsdeildinni hélt áfram í kvöld þegar liðið vann 2-1 sigur á Newcastle í einvígi liðanna í fjórða og sjötta sæti deildarinnar. Það stefndi allt í jafntefli þegar belgíski miðvörðurinn Thomas Vermaelen skoraði sigurmarkið í uppbótartíma en þetta var fimmti deildarsigur Arsenal í röð. 12.3.2012 19:45
Messi: Guardiola er mikilvægari en ég Lionel Messi hefur skorað 50 mörk í 43 leikjum fyrir Barcelona á tímabilinu þar á meðal 30 í spænsku úrvalsdeildinni og tólf í Meistaradeildinni. Argentínumaðurinn er þó ekki á því að hann sé mikilvægasti maðurinn í Barcelona-liðinu. 12.3.2012 22:15
Redknapp er í vafa um hvort landsliðsþjálfarastarfið sé það rétta Harry Redknapp, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham, segir að hann sé í vafa um hvort það væri rétt skref að taka að sér starf sem þjálfari enska landsliðsins. Redknapp er gríðarlega vinsæll á meðal stuðningsmanna enska landsliðsins og frá því að Fabio Capello sagði upp störfum hefur nafn Redknapp verið ofarlega á blaði hjá Englendingum. 12.3.2012 19:30
Rosicky framlengir við Arsenal: Ég elska félagið Tékkinn Tomas Rosicky hefur framlengt samning sinn við Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fyrri samningur kappans hefði runnið út í vor. 12.3.2012 18:30
Heiðarslaust lið QPR í frjálsu falli og útlitið svart Lið QPR í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu beið enn einn ósigurinn er liðið sótti Bolton heim um helgina. Eftir tapið skaust Bolton upp úr fallsæti á kostnað QPR. Útlitið er svo sannarlega svart á Loftus Road í Lundúnum. 12.3.2012 17:30
Blikar eiga sex stráka í 17 ára landsliðinu Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari 17 ára landsliðs karla, hefur valið hópinn sem leikur í milliriðli EM sem fram fer í Skotlandi 20. til 25. mars næstkomandi. Mótherjar Íslendinga í riðlinum eru auk heimamanna, Danir og Litháar en sigurvegari riðilsins tryggir sér sæti í úrslitakeppninni sem leikin verður í Slóveníu. 12.3.2012 16:30
Lambert bestur í Championship | Poyet besti stjórinn Rickie Lambert, framherji Southampton, var valinn besti leikmaður neðri deilda ensku knattspyrnunnar um helgina. Þá hlaut Gustavo Poyet, stjóri Brighton Hove & Albion, viðurkenningu fyrir góðan árangur í starfi. 12.3.2012 15:15
Kolbeinn æfði með Ajax í dag | Góð tilfinning Kolbeinn Sigþórsson mætti á sína fyrstu æfingu hjá Ajax Amsterdam í fimm mánuði í morgun. Landsliðsmaðurinn meiddist á ökkla í október og hefur verið í endurhæfingu síðan. 12.3.2012 14:13
Balotelli reifst við Yaya Toure | Barry ósáttur við skiptinguna Liðsfélagarnir Mario Balotelli og Yaya Toure rifust harkalega á leið sinni til búningsklefa í hálfleik í gær þegar Manchester City lék gegn Swansea á útivelli í ensku knattspyrnunni. Swansea sigraði 1-0 og mótlætið fór virkilega í taugarnar á leikmönnum Man City. 12.3.2012 13:45