Fleiri fréttir

Tottenham tapaði fyrir Valencia í kvöld

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði fyrstu 80 mínúturnar þegar Tottenham tapaði 0-2 fyrir Valencia á Spáni í kvöld í síðasta undirbúningsleik sínum fyrir komandi tímabil.

Guðlaug búin að taka aftur fram skóna á 41. aldursári

Guðlaug Jónsdóttir, snéri aftur í úrvalsdeild kvenna í kvöld, þegar þessi fyrrum landsliðsmaður og margfaldur meistari með KR, kom inn á sem varamaður þegar KR vann 3-2 sigur á Fylki. Guðlaug hafði góð áhrif á Vesturbæjarliðið sem vann sinn fyrsta sigur í sumar.

Þór/KA gefur ekkert eftir og vann stórsigur á FH

Þór/KA-konur gefa ekkert eftir á toppi Pepsi-deildar kvenna en þær náðu sex stiga forskoti eftir 6-0 sigur á FH í fyrsta leik 13. umferðar á Akureyri í kvöld. Stjörnukonur geta minnkað forskotið aftur niður í þrjú stig seinna í kvöld.

Ásdís í 11. sæti í úrslitum spjótkast kvenna á ÓL

Ásdís Hjálmsdóttir endaði í 11. sæti í úrslitum spjótkastsins á Ólympíuleikunum í London í kvöld. Ásdís vantaði rúman einn og hálfan metra til á að komast í hóp þeirra átta sem fengu að kasta þrjú köst til viðbótar.

Liverpool örugglega áfram eftir 3-0 sigur

Liverpool átti ekki í miklum vandræðum með því að komast áfram í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld en liðið vann þá 3-0 sigur á Gomel frá Hvíta-Rússlandi. Liverpool fór áfram 4-0 samanlagt.

Hólmfríður og Kristín Ýr með fimm mörk saman í stórsigri

Íslensku landsliðskonurnar Hólmfríður Magnúsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir voru á skotskónum í 6-0 stórsigri Avaldsnes á Grand Bodö í norsku b-deildinni í kvöld. Hólmfríður skoraði þrennu og Kristín Ýr var með tvö mörk. Þær stöllur hafa raðað inn mörkunum með norska liðinu í sumar.

Heimsmet hjá Rudisha í úrslitum 800 metra hlaupi

Keníamaðurinn David Rudisha setti nýtt heimsmet þegar hann tryggði sér gullverðlaun í 800 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í London í kvöld. Rudisha hljóp metrana 800 á 1:40.91 mínútum og bætti sitt eigið heimsmet frá 2010. Þetta er fyrsta heimsmetið sem fellur í frjálsum á leikunum.

Pepsi-mörkin: Allur þátturinn um 14. umferð aðgengilegur á Vísi

Farið var yfir gang mála í öllum leikjunum í 14. umferð í Pepsideild karla í þættinum Pepsi-mörkin á Stöð 2 sport í gær. Þátturinn er aðgengilegur á Vísi í heild sinni. Í þættinum fóru þeir Hörður Magnússon, Reynir Leósson og Hjörvar Hafliðason yfir helstu atvikin í leikjunum sex og það var mikið fjör í leikjunum þar sem að 27 mörk voru skoruð og nokkur rauð spjöld fóru á loft.

Joe Allen: Ég vil fara til Liverpool

Sky Sports hefur heimildir fyrir því að Liverpool sé búið að samþykkja að hækka tilboð sitt í Joe Allen hjá Swansea og að leikmaðurinn sjálfur vilji fara til Liverpool.

Parker missir af fyrsta mánuði tímabilsins - Gylfi enn mikilvægari

Scott Parker, miðjumaður Tottenham og enska landsliðsins, verður ekkert með Tottenham-liðinu fyrsta mánuðinn á nýju tímabili sem hefst eftir rúma viku. Parker er enn að jafna sig eftir aðgerð á hægri hásin og Tottenham gaf það út á heimasíðu sinni í dag að hann myndi ekki spila fyrr en í september.

Þórður fékk áminningu og 25 þúsund króna sekt

Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA í Pepsi-deild karla, fékk í dag áminningu frá aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fyrir viðbrögð sín í fjölmiðlum eftir tap á móti KR á KR-vellinum á dögunum.

Pistorius og félagar komust í úrslit þrátt fyrir allt

Oscar Pistorius og félagar hans sveit Suður-Afríku fá tækifæri til þess að hlaupa í úrslitum í 4 x 400 metra boðhlaupi á Ólympíuleikunum í London. Ofentse Mogawane, liðsfélagi hans, féll þegar hann var að hlaupa á öðrum spretti, en Suður-Afríkumenn sendu inn kæru þar sem þeir töldu að keppandi frá Kenýa hefði hlaupið í veg fyrir Mogawane.

Freyr leikjahæstur hjá FH-sló met Harðar í gær

Freyr Bjarnason varð í gærkvöld leikjahæsti leikmaður FH í efstu deild frá upphafi. Freyr lék sinn 175. leik fyrir FH í úrvalsdeildinni í gærkvöld þegar liðið burstaði Selfoss, 5-2. Metið átti markaskorarinn, Hörður Magnússon en hann lék á sínum tíma 174 leiki fyrir FH í efstu deild.

Baldock verður í herbúðum ÍBV út ágústmánuð

George Baldock, sem hefur leikið með ÍBV í Pepsi-deild karla að undanförnu mun leika með liðinu út ágústmánuð. Talið var að enski miðjumaðurinn færi af landi brott í þessari viku en Eyjamenn fá að njóta krafta hans í nokkrar vikur til viðbótar. Eyjafréttir greina frá.

Conte telur að 60% íþróttamanna á ÓL noti ólögleg lyf

Victor Conte, sem á sínum tíma var sakfelldur fyrir að aðstoða íþróttamenn við að nota ólögleg lyf, segir í viðtali við breska dagblaðið The Times að allt að 60% af keppendum á ÓL noti ólögleg lyf til þess að bæta árangur sinn. Conte er eigandi lyfjafyrirtækisins Balco, en hann tengist lyfjamisnotkun íþróttamanna á borð við Dwain Chambers sem var úrskurðaður í tveggja ára keppnisbann árið 2003 vegna notkunar á THG hormóninu.

Jamaíka náði ekki að ljúka keppni | Bolt á ekki möguleika á fjórða gullinu

Karlasveit Jamaíku náði ekki að ljúka keppni í undanrásum í 4x400 metra boðhlaupinu á Ólympíuleikunum í London í morgun. Jermaine Gonzales, sem hljóp þriðja sprettinn fyrir Jamaíku, meiddist og varð að hætta keppni. Þar með er ljóst að Usain Bolt mun ekki hafa möguleika á að landa fjórum gullverðlaunum á ÓL, en hann hafði gefið það í skyn að hann gæti tekið einn sprett fyrir Jamaíku í úrslitahlaupinu.

Veiðitölur LV: Rangárnar með 843; allar hinar með 907!

"Mest árið 2010, en þá hafði verið landað 26.342 löxum. Minnst árið 2007, en þá var veiðin 12.473 laxar á þessum tíma. Þannig að talan þetta sumarið, 12.840 fiskar, er ekki sú lægsta sem við höfum heimildir um."

Blake hleypur með 60 milljóna kr. armbandsúr

Úrslitin í 200 metra hlaupi karla fara fram í kvöld á Ólympíuleikunum í London. Flestir bíða eftir einvígi þeirra Usain Bolt og Yohan Blake en Jamaíkumennirnir eru taldir sigurstranglegastir. Bolt hefur titil að verja en Blake er einnig til alls líklegur. Blake hefur vakið athygli og umtal fyrir rándýrt armbandsúr sem hann var með í úrslitum 100 metra hlaupsins. Úrið, sem er sérhannað af Richard Mille, er metið á um 60 milljónir kr.

Mourinho ætlar ekki að selja Kaka á útsöluverði

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Real Madrid, segir að Kaka geti yfirgefið liðið ef rétt verð fæst fyrir Brasilíumanninn. Kaka fór á kostum með Spánarmeistaraliðinu í vináttuleik gegn AC Milan þar sem að Real Madrid hafði betur 5-1 en Kaka hefur verið orðaður við sitt gamla lið, AC Milan.

Ferguson vonast til þess að landa Robin van Persie

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir í vitðali á heimasíðu félagsins að liðið hafi gert formlegt kauptilboð í hollenska framherjann Robin van Persie. Man Utd náði ekki að kaupa Brasilíumanninn Lucas Moura sem er á leið til PSG í Frakklandi og Ferguson vonast til þess að kaupin á Robin van Persie gangi upp.

Pepsi-mörkin: Ellismellurinn | Ólafur Þórðarson

Ólafur Þórðarson, fyrrum landsliðsmaður í fótbolta, og núverandi þjálfari Víkings í 1. deild karla, var í aðalhlutverki í ellismellinum í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport í gærkvöld. Þar var birt bútur úr viðtali sem tekið var við Ólaf árið 1996 þegar hann hætti að leika með íslenska landsliðinu.

Pepsi-mörkin: Markaregnið úr 14. umferð

Það var mikið skorað af mörkum í gærkvöld þegar 14. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta fór fram, alls 27 mörk. Að venju var farið yfir gang mála í öllum leikjunum í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport. Öll mörkin má sjá með því að smella á örina hér fyrir ofan.

Stefán: Veit að Ásdís getur kastað mun lengra

Ásdís Hjálmsdóttir verður í eldlínunni á Ólympíuleikvanginum í London í kvöld þegar hún keppir í úrslitum spjótkasts kvenna. Ásdís tryggði sér sæti í úrslitum með glæsibrag en hún þurfti bara eina tilraun til að komast áfram og setti um leið nýtt Íslandsmet – 62,77 m.

Guðmundur: Mín ákvörðun að láta Snorra taka vítið

Snorri Steinn Guðjónsson spilaði aðeins nokkrar mínútur í leik Íslands og Ungverjalands á Ólympíuleikunum í gær en kom samt inn á þegar lítið var eftir af venjulegum leiktíma til að taka víti sem Ísland fékk. Það var varið og Ungverjar náðu að tryggja sér framlengingu með marki á lokasekúndunni.

Engin orð til að lýsa vonbrigðunum

Handboltalandsliðið féll úr leik á Ólympíuleikunum í London í gær eftir sárgrætilegt tap fyrir Ungverjum í tvíframlengdum leik. Guðmundur Guðmundsson kvaddi landsliðið og Ólafur Stefánsson mögulega einnig.

LeBron með þrefalda tvennu í öruggum sigri Bandaríkjanna

Bandaríkjamenn eru fáum að óvörum komnir í undanúrslit í körfuboltakeppni Ólympíuleikanna eftir 33 stiga sigur á Ástralíu, 119-86, í átta liða úrslitunum í kvöld. Bandaríkjamenn mæta Argentínu í undanúrslitunum en í hinum leiknum spila Rússar og Spánverjar.

Króatar síðastir inn í undanúrslitin á ÓL

Króatar þurftu að hafa fyrir sigrinum á Túnis í átta liða úrslitum handboltakeppni Ólympíuleikanna í London en unnu að lokum tveggja marka sigur,, 25-23, þar sem Túnismenn unnu síðustu sex mínútur leiksins 4-1.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: FH - Selfoss 5-2 | Atli Guðna með þrennu

FH-ingar eru komnir á toppinn í Pepsi-deild karla eftir 5-2 sigur á Selfossi á Kaplakrikavellinum í kvöld en auk þess að vera með tveggja stiga forystu á KR-inga þá á FH-liðið einnig leik inni. Atli Guðnason skoraði þrennu í leiknum og bakvörðurinn Guðjón Árni Antoníusson var með tvö mörk.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - Fram 2-2

Grindavík náði mikilvægu 2-2 jafntefli gegn Fram á heimavelli í kvöld. Kristinn Ingi Halldórsson kom Fram tvisvar yfir í leiknum en Iain James Williamson og Hafþór Ægir Vilhljálmsson jöfnuðu jafn oft. Hafþór jafnaði þegar þrjár mínútur voru eftir en allt benti til þess að Fram myndi innbyrða sanngjarnan sigur. Enn munar því sex stigum á liðunum í fallbaráttunni.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - Breiðablik 3-4

Blikar sýndu ótrúlegan karakter í 4-3 sigri á Val í leik liðanna í í 14. umferð Pepsi-deildar karla á Vodafonevellinum í kvöld. Blikar skoruðu fjögur mörk á síðustu tuttugu mínútum leiksins en þeir misstu markvörð sinn Ingvar Þór Kale að velli með rautt spjald á 66. mínútu.

Sjá næstu 50 fréttir