Sport

Kínverjar með algjöra yfirburði í badminton - og borðtennis

Lin Dan fagnar sigrinum í einliðaleik karla.
Lin Dan fagnar sigrinum í einliðaleik karla. AP
Kínverjar sópuðu til sín verðlaunum í borðtennis – og badminton í karla – og kvennaflokki á Ólympíuleikunum í London. Kínverjar unnu til gullverðlauna í öllum flokkum í báðum greinum sem er merkilegur árangur.

Karlalið Kína í borðtennis landaði gullverðlaunum í liðakeppninni í gær með sigri gegn Suður-Kóreu í úrslitum. Kínverjar höfðu titil að verja í öllum fjórum keppnisflokkunum eftir glæsilega sigurgöngu á ÓL í Peking fyrir fjórum árum.

Auk fjögurra gullverðlauna fengu Kínverjar tvenn silfurverðlaun, Japan fékk ein silfurverðlaun í borðtenniskeppninni, Kórea náði einum silfurverðlaunum, Þýskaland og Singapúr fengu tvenn bronsverðlaun.

Í badmintonkeppninni fengu Kínverjar fimm gullverðlaun, þar sem Lin Dan varði Ólympíutitil sinn í einliðaleik karla. Kínverjar hafa sigrað þrívegis í þau sex skipti sem keppt hefur verið í badminton á ÓL.

Li Xuerui sigraði í einliðaleik kvenna en það var í fjórða sinn sem Kínverjar landa gullverðlaunum í einliðaleik kvenna. Og í annað sinn í röð voru tveir leikmenn frá Kína í úrslitum.

Í tvíliðaleik sigraði Kína á fimmtu leikunum í röð í kvennaflokki en þetta eru fyrstu gullverðlaun Kínverja í karlaflokki í tvíliðaleik. Yfiriburðir Kína í tvenndarleik eru einnig gríðarlegir því Kína hefur fengið gullverðlaun á fimm síðustu ÓL leikum frá því að keppt var fyrst í badminton árið 1992 í Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×