Sport

Pistorius og félagar komust í úrslit þrátt fyrir allt

Oscar Pistorius.
Oscar Pistorius. Nordic Photos / Getty Images
Oscar Pistorius og félagar hans sveit Suður-Afríku fá tækifæri til þess að hlaupa í úrslitum í 4 x 400 metra boðhlaupi á Ólympíuleikunum í London. Ofentse Mogawane, liðsfélagi hans, féll þegar hann var að hlaupa á öðrum spretti, en Suður-Afríkumenn sendu inn kæru þar sem þeir töldu að keppandi frá Kenýa hefði hlaupið í veg fyrir Mogawane.

Alþjóða frjálsíþróttasambandið tók þannig á málinu að Suður-Afríka fær að keppa til úrslita en sveitin endaði í öðru sæti á síðasta heimsmeistaramóti. Pistorius er með gervifætur og hefur hann vakið gríðarlega athygli á undanförnum árum fyrir árangur sinn. Hann keppti á ÓL í Peking fyrir fjórum árum og þar skrifaði hann nýjan kafla í íþróttasöguna sem fyrsti keppandinn með gervifætur. Þess má geta að það er íslenska fyrirtækið Össur sem hannar og smíðar gervifæturna á Pistorius.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×