Handbolti

Króatar síðastir inn í undanúrslitin á ÓL

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Króatar fagna í leikslok.
Króatar fagna í leikslok. Mynd/AFP
Króatar þurftu að hafa fyrir sigrinum á Túnis í átta liða úrslitum handboltakeppni Ólympíuleikanna í London en unnu að lokum tveggja marka sigur,, 25-23, þar sem Túnismenn unnu síðustu sex mínútur leiksins 4-1.

Túnismenn bitu frá sér í upphafi leiks, komust í 4-2, 5-3, 10-8 og voru að lokum 12-11 yfir í hálfleik. Króatar unnu fyrstu átta mínútur seinni hálfleiksins 5-1 og voru komnir þremur mörkum yfir 16-13.

Króatar náðu mest fimm marka forskot í hálfleiknum og voru að því virtist búnir að gera út um leikinn þegar sex mínútur voru eftir. Túnis minnkaði muninn í tvö mörk þegar tvær og hálf mínúta voru eftir en nær komust þeir ekki og Króatar lönduðu sigrinum.

Króatía mætir Frakklandi í undanúrslitunum á föstudaginn en í hinum leiknum mætast Svíar og Ungverjar.

Ivan Cupic skoraði átta mörk fyrir Króatíu og Domagoj Duvnjak var með 4 mörk og 4 stoðsendingar.Kamel Alouini og Wael Jallouz skoruðu báðir fjögur mörk fyrir Túnis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×