Sport

Stefán: Veit að Ásdís getur kastað mun lengra

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
markmiðinu náð Ásdís hljóp í fang þjálfara síns eftir að hún tryggði sér sæti í úrslitunum.fréttablaðið/Valli
markmiðinu náð Ásdís hljóp í fang þjálfara síns eftir að hún tryggði sér sæti í úrslitunum.fréttablaðið/Valli
Ásdís Hjálmsdóttir verður í eldlínunni á Ólympíuleikvanginum í London í kvöld þegar hún keppir í úrslitum spjótkasts kvenna. Ásdís tryggði sér sæti í úrslitum með glæsibrag en hún þurfti bara eina tilraun til að komast áfram og setti um leið nýtt Íslandsmet – 62,77 m.

Stefán Jóhannsson, þjálfari hennar, sagði við Fréttablaðið í gær að Ásdís hefði verið fljót að ná sér aftur niður og að hún væri tilbúin fyrir keppni kvöldsins.

„Það er auðvitað nauðsynlegt að núllstilla sig og henni hefur gengið mjög vel að ná einbeitingu á nýjan leik," sagði Stefán en þau tóku létta æfingu í ólympíuþorpinu í gær.

Stefán segist hafa verið þess fullviss að Ásdís næði að kasta jafn vel og hún gerði. „Eins skrýtið og það kann að hljóma þá var ég handviss um það. Undirbúningurinn var mjög góður og svo var upphitunin hjá henni róleg og góð. Við vorum búin að leggja línurnar og það kom allt fram í kastinu."

Ásdís sagðist sjálf hafa verið róleg og yfirveguð í kastinu. Þess vegna segir Stefán að hún eigi meira inni.

„Ég tel hana geta kastað mun lengra. Hún náði mjög góðri stjórn á tækninni í gær [fyrradag] vegna þess að hún var á hraða sem hún réði vel við. Ef hún leggur meiri kraft í atrennuna og hittir á réttu tæknina á hún mun lengra kast inni."

Tólf komust í úrslitin og eftir fyrstu þrjú köstin verður fækkað um fjóra í hópnum. Átta efstu fá þá aðrar þrjár tilraunir og er það nú markmið Ásdísar að komast í þann hóp.

„Við verðum bara að sjá til hvernig það gengur. Henni gekk vel í undankeppninni en það segir svo lítið um framhaldið, enda getur allt gerst í úrslitum Ólympíuleika."

Úrslitin í spjótkastinu hefjast klukkan 20.00 í kvöld að íslenskum tíma en Ásdís er níunda í kaströðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×