Sport

Blake hleypur með 60 milljóna kr. armbandsúr

Yohan Blake er með 60 millj. kr. armbandsúr á ÓL í London.
Yohan Blake er með 60 millj. kr. armbandsúr á ÓL í London. Nordic Photos / Getty Images
Úrslitin í 200 metra hlaupi karla fara fram í kvöld á Ólympíuleikunum í London. Flestir bíða eftir einvígi þeirra Usain Bolt og Yohan Blake en Jamaíkumennirnir eru taldir sigurstranglegastir. Bolt hefur titil að verja en Blake er einnig til alls líklegur. Blake hefur vakið athygli og umtal fyrir rándýrt armbandsúr sem hann var með í úrslitum 100 metra hlaupsins. Úrið, sem er sérhannað af Richard Mille, er metið á um 60 milljónir kr.

orsvarsmenn Alþjóðaólympíunefndarinnar eru ekkert sérstaklega glaðir yfir ákvörðun Blake að vera með úrið í keppni. Hann kom annar í mark í 100 metra hlaupinu á eftir Bolt og að sjálfsögðu er þetta allt saman gert til þess að auglýsa úrið.

Mjög strangar reglur gilda á Ólympíuleikunum hvað varðar auglýsingar hjá íþróttafólkinu og þeirra fylgdarliði. Keppendur mega aðeins vera í keppnisbúning með auglýsingum sem er frá Ólympíunefnd viðkomandi lands. Allar aðrar auglýsingar eru bannaðar og úrið hjá Blake er því á mjög gráu svæði, og svo gæti farið að Blake yrði sektaður fyrir uppátækið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×