Sport

Usain Bolt bætti við öðru Ólympíugulli - þrefalt hjá Jamaíku

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Usain Bolt sést hér í úrslitahlaupinu í kvöld.
Usain Bolt sést hér í úrslitahlaupinu í kvöld. Mynd/AFP
Usain Bolt er Ólympíumeistari í 200 metra hlaupi eftir sannfærandi sigur í úrslitahlaupinu í London í kvöld. Jamaíkamenn urðu í þremur efstu sætunum í hlaupinu. Bolt kom í mark á 19,32 sekúndum.

Usain Bolt er fyrsti maðurinn til að vinna 200 metra hlaupið á tveimur Ólympíuleikum í röð en hann vann einnig örugglega í Peking fyrir fjórum árum. Bolt varði því Ólympíutitla sína í bæði 100 og 200 metra hlaupi.

Yohan Blake varð annar í hlaupinu á 19.44 sekúndum og í þriðja sætinu varð síðan Warren Weir frá Jamaíka sem kom í mark á 19,84 sekúndum. Allir voru þeir að hlaupa á sínum besta tíma á þessu ári.

Usain Bolt kom vissulega í mark á frábærum tíma en eins og oft áður hægði hann á sér í markinu og missti þá líklega af Ólympíumetinu og jafnvel heimsmetinu. Heimsmet hans er 19,19 sekúndur en Ólympíumetið er 19,30 sekúndur frá því í Peking.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×