Ásdís í 11. sæti í úrslitum spjótkast kvenna á ÓL Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 9. ágúst 2012 19:09 Mynd/Valli
Ásdís Hjálmsdóttir endaði í 11. sæti í úrslitum spjótkastsins á Ólympíuleikunum í London í kvöld. Ásdís vantaði rúman einn og hálfan metra til á að komast í hóp þeirra átta sem fengu að kasta þrjú köst til viðbótar. Ásdís náði sínu besta kasti í fyrsta kastinu þegar hún kastaði spjótinu 59,08 metra. Ásdís kastaði 57.35 metra í öðru kasti sínu og þriðja kastið var síðan ógilt. Ásdís varð næstsíðust í úrslitunum en Elizabeth Gleadle frá Kanada rak lestina. Vísir var með beina lýsingu frá úrslitunum í spjótkastskeppni kvenna á Ólympíuleikunum í London þar sem Ásdís Hjálmsdóttir er á meðal keppenda. Það er hægt að sjá textalýsinguna hér fyrir neðan.Besta kast Ásdísar: 59,08 m (1. umferð) - 11. sæti eftir þriðju umferð.20.42: Martina Ratej frá Slóveníu var að færast fyrir ofan Ásdísi. Okkar stúlka endar í ellefta sæti sem er engu að síður glæsilegur árangur.20.41 - Þriðja kast Ásdísar: Hún stígur yfir línuna og gerir viljandi ógilt, enda ekki nógu langt. Því miður er þetta niðurstaðan. Ásdís kemst ekki ofar en í tíunda sæti. Hausinn var kominn niður áður en spjótið lenti.20.40: Ásdís er búin að ná sér í spjót. Koma svo, Ásdís!20.36: Eins og málin standa nú þarf Ásdís að kasta 59,47 m til að komast í gegnum niðurskurðinn.20.34: Heimsmeistarinn Abakumova er búin að vera í miklum vandræðum. Hún gerði ógilt í fyrsta, kastaði svo 59,34 m og nú var hún að kasta 58,70. Það þýðir bara eitt. Heimsmeistarinn er úr leik. Hún er í níunda sæti og kemst ekki í gegnum niðurskurðinn. Fyrst komst Evrópumeistarinn ekki í gegnum undankeppnina og nú þetta.20.31: Annarri umferð lokið og Ásdís er dottin niður í tíunda sætið. Hún þarf að bæta sig í næstu umferð til að fá þrjú köst til viðbótar. Aðeins átta efstu komast í gegnum niðurskurðinn.20.29 - Annað kast Ásdísar: Það var aðeins meiri kraftur í þessu kasti en það var ekki nógu gott. Ásdís var ekki alveg nógu sátt við þetta. 57,35 m í þetta skiptið.20.26: Þjálfari hinnar kínversku Huihui Lu er með gjallahorn til að koma skilaboðum til síns skjólstæðings. Það virðist hafa borið góðan árangur því hún var að kasta 63,28 m sem dugir henni í fjórða sætið.20.20: Spotakova kastaði spjótinu nánast sömu vegalengd í annarri tilraun. Þó örlítið styttra, 66,88 m.20.19: Að lokinni fyrstu umferð er Ásdís í sjöunda sæti. Aðeins fjórar fóru yfir 60 metra sem þær gerðu allar í undankeppninni.20.16 - fyrsta kast Ásdísar: Þetta var yfirvegað hjá Ásdísi og kastaði hún 59,08 í fyrstu tilraun. Hún gefur vonandi aðeins meiri kraft í næsta kast. Hún er sem stendur í sjötta sæti.20.14: Þá er komið að Ásdísi. Rudisha er að taka við verðlaununum sínum á sama tíma. Ásdís þarf að bíða á meðan verðlaunaafhendingin er kláruð.20.11: Bolt og félagar baða sig í sviðsljósinu á meðan að fyrstu köstin eiga sér stað í spjótkastinu. Styttist í Ásdísi.20.06: Heimsmeistarinn Spotakova á fyrsta kastið og gefur tóninn með því að kasta 66,90 m.20.03: Þá getur spjótkastskeppnin hafist og er nú verið að kynna keppendur til leiks.19.58: Þvílík skemmtun. Þvílík upplifun. Usain Bolt vann gull í 200 m hlaupi á 19,32 sek. Yohan Blake varð annar á 19,44 sek og Warren Weir þriðji á 19,84. Allir koma frá Jamaíku. Þvílíkir yfirburðir. Ég hélt í alvörunni að Bolt væri að fara að bæta heimsmetið.19.54: Magnað andrúmsloft á vellinum. Nú er verið að kynna til leiks keppendur í 200 m hlaupi karla.19.53: Christian Taylor frá Bandaríkjunum var að vinna gull í þrístökki karla. Hann stökk 17,81 m sem er lengsta stökk ársins í heiminum.19.52: Fyrr á þessu ári útskrifaðist Ásdís úr lyfjafræði frá Háskóla Íslands með hæstu einkunn (10) sem gefin hefur verið fyrir meistararitgerð í faginu. Hún stefnir á doktorsnám, vonandi samhliða íþróttaferlinum.19.50: Fjórar íslenskar frjálsíþróttakonur hafa komist í úrslit í sínum greinum á Ólympíuleikum. Þær eru Vala Flosadóttir og Guðrún Arnardóttir (báðar í Sydney árið 2000), Þórey Edda Elísdóttir (Aþenu, 2004) og nú Ásdís. Vala náði besta árangrinum, bronsverðlaunum, Þórey varð í fimmta sæti og Guðrún í því sjöunda.19.47: Nú var skyndilega fagnað á leikvanginum. Ástæðan? Usain Bolt og félagar hans sem keppa í úrslitum 200 m hlaupi karla voru að labba inn á völlinn.19.46: Íris Grönfeldt er fyrir utan Ásdísi eina íslenska konan sem keppt hefur í spjótkasti á Ólympíuleikum. Það gerði hún árið 1984 og 1988 en komst þó hvorugt skiptið í úrslit.19.40: Þess má geta að spjótin eru ferjuð til baka með litlum fjarstýrðum Mini Cooper-bílum. Við enda brautarinnar sitja þrír náungar í hvítum klappstólum með fjarstýringu í hönd. Þetta er örugglega ekki leiðinlegasta starf í heimi.19.38: Tólf konur keppa í úrslitunum í spjótkasti. Að loknum þremur umferðum verður skorið niður í hópnum og aðeins þær átta efstu fá önnur þrjú köst til að reyna að koma sér á verðlaunapall. Ásdís náði áttunda lengsta kastinu í undankeppninni.19.35: Eftir 20 mínútur fara fram úrslitin í 200 m hlaupi karla, sem beðið hefur verið með mikilli eftirvæntingu. Jamaíkumennirnir Usain Bolt og Yohan Blake verða þar í eldlínunni og verður forvitnilegt að fylgjast með baráttu þeirra, hvort sem er sín á milli eða um að bæta núverandi heimsmet Bolt - 19,19 sek.19.34: Tveggja daga gamalt Íslandsmet Ásdísar er 62,77 m og miðað við að hún hafi náð þeirri vegalengd í fyrstu tilraun í undankeppninni má ætla að hún eigi lengra kast inni. Ásdís var sú eina sem setti landsmet í undankeppninni.19.31: Keppendur í spjótkasti eru byrjaðir að hita upp. Ásdís er þar á meðal, vitaskuld. Hún var með hvíta derhúfu en er búin að taka hana af sér.19.29: Efsta kona heimlistans er Sunette Viljoen frá Suður-Afríku og því líkleg til árangurs í kvöld. Aðrar sem gætu blandað sér í toppbaráttuna eru Christina Obergföll og Linda Stahl, báðar frá Þýskalandi.19.26: Meðal þeirra sigurstranglegustu í spjótkastinu í kvöld eru Barbora Spotakova frá Tékklandi og hin rússneska Mariya Abakumova. Þær hafa oft mæst áður en Spotakova er núverandi Ólympíumeistari og heimsmethafi. Abakumova er hins vegar ríkjandi heimsmeistari.19.21: Alls ráðast úrslit í fjórum greinum til viðbótar í kvöld - þrístökki karla, tugþraut karla, 200 m hlaupi karla og vitanlega spjótkasti kvenna.19.19: Frjálsíþróttakeppni kvöldsins hófst fyrir tæpum tveimur klukkustundum síðan og því nóg um að vera. Nú rétt áðan var sett nýtt heimsmet í 800 m hlaupi karla þegar David Rudisha frá Keníu bætti sitt eigið met og varð um leið fyrsti maðurinn til að hlaupa vegalengdina undir einni mínútu og 41 sekúndu.19.15: Velkomin til leiks hér á Ólympíuleikvanginum í London. Hér er vitaskuld troðfullt, 80 þúsund manns og frábær stemning. Veðrið er gott, hlýtt og lygnt, og því allt eins og best verður á kosið.
Mest lesið Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Norsk handboltastjarna með krabbamein Handbolti Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Fótbolti Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Fótbolti Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Kraftaverkakona sem þekkir Ísland út og inn Fótbolti Fleiri fréttir Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Njarðvíkingar með montréttinn í Reykjanesbæ og toppsæti deildarinnar City vann riðilinn og sleppur líklega við Real Madrid Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Elísabet stýrði Belgum til sigurs í generalprufunni fyrir EM Markadrottning afgreiddi mótherja Íslands í síðasta leik fyrir EM „Við vorum að rústa Íslandsmetinu“ Mbappé aftur með PSG í réttarsalinn og nú vegna eineltis Norsk handboltastjarna með krabbamein Sigur og tap í generalprufum mótherja Íslands fyrir EM í Sviss Vrkić í Hauka Snorri Dagur aðeins fimm sekúndubrotum frá verðlaunasæti á EM Kraftaverkakona sem þekkir Ísland út og inn Snorri Dagur í úrslit á EM Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Bulls veðja á fyrrum lærisvein Baldurs Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Spila um Forsetabikarinn á HM Fyrirliði Brentford að ganga til liðs við Arsenal Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Sjáðu Íslandsmetin falla og fagnaðarlætin í lauginni Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Mikael mættur til Stokkhólms að semja við Djurgården Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Flagg fer til Dallas Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Sjá meira