Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Canizares framlengir við Valencia Markvörðurinn Santiago Canizares hjá Valencia hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2009 og verður því kominn nær fertugu þegar hann rennur út. Canizares hefur verið mjög sigursæll með Valencia síðan hann gekk í raðir liðsins árið 1998 en hann lék áður með Real Madrid. 15.2.2007 18:49
Van der Vaart heldur tryggð við HSV Fyrirliði Hamburger Sportverein, Rafael van der Vaart, reiknar með því að halda áfram að spila með þýska liðinu enda þótt það falli úr þýsku Bundesligunni. Hann er samningsbundinn félaginu til 2010. 15.2.2007 18:44
Real Madrid hefði geta fengið Ronaldo Fyrrum unglingaliðsþjálfari Sporting Lissabon í Portúgal segir að Real Madrid hafi á sínum tíma hafnað tækifæri til að fá Cristiano Ronaldo til liðs við sig árið 2003. Madrid hefur verið orðað við Ronaldo í vetur í kjölfar einstakrar spilamennsku hans með Manchester United. 15.2.2007 17:53
Þórir Ólafsson fer frá Lubbecke Þýska félagið Lubbecke hefur tilkynnt að samningur Þóris Ólafssonar verði ekki framlengdur þegar hann rennur út í sumar. Þórir hefur verið í röðum þýska liðsins síðan 2005 en var áður hjá Haukum. Hann hefur skorað 90 mörk í 39 úrvalsdeildarleikjum fyrir liðið. 15.2.2007 17:43
Beyoncé prýðir forsíðu Sports Illustrated Poppgyðjan Beyoncé Knowles prýðir forsíðu hins gríðarlega vinsæla sundfataheftis tímaritsins Sports Illustrated sem út kemur árlega. Í blaðinu má sjá fjölda mynda af söngkonunni fögru þar sem hún spókar sig á ströndinni. 15.2.2007 17:06
Ég hata homma Fyrrum NBA leikmaðurinn Tim Hardaway fór hamförum í útvarpsviðtali sem tekið var við hann í spjallþætti á útvarpsstöð í Miami í gærkvöldi þegar hann var spurður út í það þegar fyrrum leikmaðurinn John Amaechi kom út úr skápnum á dögunum. 15.2.2007 15:49
Glasgow-liðin múta dómurum Vladimir Romanov, meirihlutaeigandi í skoska knattspyrnufélaginu Hearts í Edinborg, hefur nú enn á ný komið sér í fréttirnar með skrautlegum yfirlýsingum sínum. Romanov segir Glasgow risana Celtic og Rangers múta dómurum. 15.2.2007 15:42
Valente framlengir við Everton Portúgalski landsliðsmaðurinn Nuno Valente hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Everton til ársins 2008. Bakvörðurinn á að baki 27 landsleiki með Portúgal en hefur verið á meiðslalista hjá Everton síðan í byrjun janúar. Hann hefur spilað 43 leiki með Everton síðan hann gekk í raðir félagsins árið 2005. 15.2.2007 15:37
Englendingar skera niður æfingaleiki Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að skera niður æfingaleiki enska landsliðsins á næstu árum. Liðið mun því leika 18 æfingaleiki á næstu fjórum árum í stað 20. Þetta var málamiðlun milli þjálfaranna sem vildu færri leiki og knattspyrnusambandsins sem vildi fleiri leiki vegna tekjusöfnunar og sjónvarpsréttar. 15.2.2007 15:32
Larsson: Ég fer aftur til Svíþjóðar Sænski markahrókurinn Henrik Larsson hefur nú tekið af allan vafa um framtíð sína hjá Manchester United og segist harðákveðinn í að snúa aftur til Helsingborg þann 12. mars þegar lánssamningur hans rennur út. 15.2.2007 15:27
Mpenza á leið til City Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City er nú sagt við það að ganga frá samningi við belgíska framherjann Emil Mpenza sem leikið hefur í Katar undanfarið. Mpenza er mikill markahrókur og gerði garðinn frægan í Þýskalandi. Fréttir herma að Mpenza geri samning við City út leiktíðina með möguleika á framlengingu í sumar. 15.2.2007 15:22
Robinho: Tottenham er ekki nógu stór klúbbur fyrir mig Brasilíski framherjinn Robinho neitar því alfarið að hann sé á leið til Tottenham á Englandi. Orðrómur þess efnis fór af stað í morgun eftir að Robinho hafði lýst því yfir að hann væri óánægður hjá Real Madrid. "Ef ég fer frá Real verður það til að fara til annars stórs félags - og Tottenham er ekki stórt félag," sagði Robinho. 15.2.2007 15:18
Ársmiðahafar komast á leik Milan og Celtic Evrópska knattspyrnusambandið hefur ákvaðið að leyfa 37.000 handhöfum ársmiða hjá AC Milan að mæta á leik liðsins gegn Celtic í Meistaradeildinni þann 7. mars. Stuðningsmenn Celtic fá um 4.500 miða á leikinn. Þá hefur Inter fengið grænt ljós á að hleypa 36.000 áhofendum á viðureign sína gegn Valencia í næstu viku þar sem gestirnir fá um 1.800 miða. San Siro völlurinn tekur 85.000 manns í sæti. 15.2.2007 15:06
Birgir Leifur á pari Birgir Leifur Hafþórsson lék í nótt fyrsta hringinn á Indenesíumótinu á pari vallar eða 72 höggum. Birgir náði sér ekki á strik á fyrstu níu holunum, en lék síðari níu á tveimur undir pari. 15.2.2007 15:00
Langþráður sigur hjá Boston Þrettán leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og þar bar hæst að Boston Celtics náði loksins að vinna leik eftir 18 töp í röð. Liðið vann auðveldan sigur á Milwaukee 117-97 á heimavelli, en lið Milwaukee er ekki með mikið betri árangur og hefur tapað 17 af síðustu 20 leikjum sínum. 15.2.2007 13:46
Skiptir VÍK um nafn á aðalfundi í kvöld? Aðalfundur Vélhjólaíþróttaklúbbsins (VÍK) verður haldinn í dag, fimmtudaginn 15. febrúar í húsnæði ÍSÍ við Engjaveg kl. 20.30. Á dagskránni verða hefðbundin aðalfundarstörf s.s. skýrsla stjórnar og kosning stjórnar og nefnda. Fyrir liggur lagabreytingartillaga um að breyta nafni VÍK úr "Vélhjólaíþróttaklúbburinn" í "Vélhjólaíþróttafélagið VÍK" og munu fundarmenn kjósa um tillöguna. Fáist hún samþykkt mun nafni félagsins verða breytt í framhaldinu. 15.2.2007 12:45
Arsenal áfram eftir ótrúlegan leik Arsenal er komið í fimmtu umferð enska bikarsins eftir 3-1 sigur á Bolton í ótrúlegum leik í kvöld þar sem úrslitin réðust í framlengingu. Arsenal hafði virtist vera með unninn leik í höndunum eftir að Adebayor kom liðinu yfir, en Meite jafnaði fyrir Bolton í blálokin á venjulegum leiktíma. 14.2.2007 22:42
Fín byrjun hjá Jóni Arnóri Jón Arnór Stefánsson spilaði í kvöld sinn fyrsta leik fyrir ítalska liðið Lottomatica Roma þegar það vann góðan sigur á franska liðinu Pau Orthez í Evrópudeildinni 78-68. Jón skoraði 11 stig og stal tveimur boltum á aðeins 16 mínútum í leiknum og það er ekki amaleg byrjun hjá kappanum sem var varla búinn að taka upp úr töskunum eftir félagaskiptin frá Spáni. 14.2.2007 22:36
Öruggur sigur Bremen Nokkrir leikir voru á dagskrá í UEFA bikarnum í kvöld. Bremen vann sannfærandi 3-0 sigur á Ajax á heimavelli, AZ Alkmaar þurfti að sætta sig við 3-3 jafntefli við Fenerbahce í Tyrklandi eftir að hafa komist í 3-1, þar sem Grétar Rafn Steinsson spilaði 90 mínútur fyrir AZ. 14.2.2007 22:23
Hestasýningin Apassionata 2007 Stórsýningin Apassionata var haldin í Finnlandi helgina 2 – 4 febrúar síðastliðinn í stórri sýningarhöll í Helsinki. Í heild voru þetta 4 sýningar og á þær mættu 30.000 manns eða um 7500 manns á hverja sýningu sem segir allt um áhugann á svona sýningum erlendis. 14.2.2007 22:00
Leverkusen lagði Blackburn Þýska liðið Bayern Leverkusen lagði enska liðið Blackburn 3-2 í fjörugum leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Ramelöw, Callsen-Bracker og Schneider skoruðu mörk heimamanna en þeir Bentley og Nonda skoruðu fyrir enska liðið, sem er í ágætri stöðu fyrir síðari leikinn á Englandi. 14.2.2007 21:09
Joe Johnson í stjörnuleikinn Bakvörðurinn Joe Johnson hjá Atlanta Hawks var í kvöld tekinn inn í Austurstrandarliðið fyrir stjörnuleikinn í NBA sem fram fer í Las Vegas á sunnudagskvöldið. Johnson kemur inn í liðið í stað Jason Kidd hjá New Jersey sem tekur ekki þátt vegna meiðsla. Johnson skorar að meðaltali 25 stig í leik og spilar sinn fyrsta stjörnuleik á ferlinum um helgina. 14.2.2007 20:40
Gerrard: Hræðumst ekki Barcelona Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir sína menn ekki óttast að mæta Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku. Hann segir reynslu leikmanna og þjálfara Liverpool koma liðinu til góða í einvíginu. 14.2.2007 19:15
Queiroz: Ronaldo veit að United er besta félag í heimi Carlos Queiroz, aðstoðarmaður Alex Ferguson hjá Manchester United, hefur skorað á landa sinn Cristiano Ronaldo að fara ekki frá félaginu. Hann segir Ronaldo vel geta fullkomnað glæstan feril sinn hjá enska félaginu og segir að hann geti orðið einn besti leikmaður í sögu félagsins. 14.2.2007 17:30
Everton kaupir Tim Howard Everton festi í dag formlega kaup á bandaríska landsliðsmanninum Tim Howard frá Manchester United og hefur hann skrifað undir fimm ára samning við Everton. Howard hefur verið í láni hjá Everton í vetur og hefur á þeim tíma stimplað sig inn sem aðalmarkvörður liðsins. Kaupverðið var ekki gefið upp. 14.2.2007 17:25
Birgir Leifur hefur leik í kvöld Birgir Leifur Hafþórsson á teig klukkan 23:30 að íslenskum tíma í kvöld á Opna Indónesíumótinu. Hann er kominn með bloggsíðu og var rétt í þessu að skrifa blogg dagsins og segir meðal annars frá því að verið er að búa til þátt um hann á Europeantour weekly. 14.2.2007 17:19
Gangið í lið með mér eða látið lífið Claudio Ranieri byrjaði ekki glæsilega í þjálfarastarfi sínu hjá ítalska liðinu Parma, því í dag var hann látinn biðjast afsökunar á harkalegum yfirlýsingum sínum á blaðamannafundinum þegar hann tók við liðinu. 14.2.2007 16:10
Altintop segist vera á leið til Bayern Tyrkneski miðjumaðurinn Hamit Altintop hjá Schalke segist ætla ganga í raðir meistara Bayern Munchen í sumar. Altintop hefur ekki átt fast sæti í liði Schalke í vetur, en hann hefur þegar tilkynnt að hann ætli að fara frá félaginu í sumar þegar verður með lausa samninga. 14.2.2007 16:00
Catania fær þunga refsingu Ítalska liðið Catana þarf að spila síðustu heimaleiki sína í ár fyrir luktum dyrum á hlutlausum velli og þá hefur félagið verið sektað um rúmlega 33 þúsund evrur. Þetta var niðurstaða ítalska knattspyrnusambandsins í dag eftir að lögreglumaður lét lífið í óeirðum fyrir utan Massimo-völlinn í byrjun mánaðarins. 14.2.2007 15:51
Lilleström burstaði KR Norska liðið Lilleström var ekki í vandræðum með KR á æfingamótinu í La Manga á Spáni og sigraði 5-0 eftir að hafa verið yfir 2-0 í hálfleik. Áður hafði KR tapað 1-0 fyrir Valerenga í fyrsta leik sínum á mótinu. 14.2.2007 14:46
Bolton - Arsenal í beinni á Sýn í kvöld Leikur Bolton og Arsenal í enska bikarnum verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending 19:55. Arsene Wenger segir sína menn ekki óttast neitt þó liðið hafi tapað þremur síðustu leikjum sínum á útivelli gegn Bolton. 14.2.2007 14:24
Ítalar í toppsæti FIFA listans Ítalska landsliðið náði í dag toppsætinu á styrkleikalista FIFA í fyrsta skipti í 13 ár. Brasilíumenn eru nú í öðru sæti eftir að hafa verið á toppnum í nær 5 ár. Íslenska landsliðið er í 95. sæti og fellur um tvö sæti síðan listinn var síðast birtur. 14.2.2007 14:20
Ronaldinho og Eto´o féllust í faðma á æfingu Þeir Ronaldinho og Samuel Eto´o hjá Barcelona virðast hafa grafið stríðsöxina frá því í gær en þeir félagar féllust í faðma og slógu á létta strengi á æfingu í hádeginu. Eto´o gagnrýndi félaga sinn harðlega í gær en nú virðist hann amk hafa náð sáttum við Ronaldinho. 14.2.2007 14:08
Eiður Smári á hörðum aukaæfingum Spænska fréttasíðan Mundo Deportivo greinir frá því í dag að Eiður Smári Guðjohnsen æfi nú manna mest hjá liði Barcelona og sást hann æfa einn í gær og í morgun. Það er því greinilegt að landsliðsfyrirliðinn ætlar að vinna sér sæti í liðinu á ný og er Frank Rijkaard mjög ánægður með einbeitingu hans. 14.2.2007 13:44
Dirk Nowitzki fór hamförum í sigri Dallas Þjóðverjinn Dirk Nowitzki var sannarlega betri en enginn í nótt þegar Dallas lagði Milwaukee á útivelli 99-93. Dallas var um tíma 16 stigum undir í síðari hálfleik, en vann lokaleikhlutann 28-11. Nowitzki skoraði 38 stig, hirti 11 fráköst og gaf 8 stoðsendingar fyrir Dallas en Andrew Bogut skoraði 16 stig og hirti 17 fráköst fyrir Milwaukee. Dallas er langefst í deildinni með 43 sigra og aðeins 9 töp. 14.2.2007 13:17
Okur og Allen í stjörnuleikinn Í nótt var tilkynnt að þeir Mehmet Okur frá Utah Jazz og Ray Allen frá Seattle yrðu varamenn fyrir þá Allen Iverson og Steve Nash í liði Vesturstrandarinnar í stjörnuleiknum í NBA um næstu helgi. 14.2.2007 02:36
Middlesbrough marði sigur Úrvalsdeildarliðið Middlesbrough er komið í fimmtu umferð enska bikarsins eftir sigur á Bristol City í vítaspyrnukeppni í kvöld. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 2-2 en Yakubu hjá Boro afrekaði það að skora mark í leiknum en brenna svo af víti bæði í framlengingu og vítakeppninni. 13.2.2007 23:20
Kiel lagði Lemgo Kiel varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum þýska bikarsins í handbolta með nokkuð öruggum útisigri á Íslendingaliði Lemgo 35-32. Kiel hafði yfir í hálfleik 17-15. Leikurinn var sýndur beint á Sýn. 13.2.2007 20:43
New Jersey - San Antonio í beinni í kvöld Leikur New Jersey Nets og San Antonio Spurs verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf eitt í nótt. New Jersey verður án leikstjórnandans Jason Kidd sem á við bakmeiðsli að stríða og gæti misst af stjörnuleiknum um helgina fyrir vikið. San Antonio þarf nauðsynlega á sigri að halda eftir að hafa aðeins unnið tvo af fyrstu sex leikjum sínum á átta leikja keppnisferðalagi. 13.2.2007 20:02
Iverson missir af stjörnuleiknum Allen Iverson hjá Denver Nuggets varð í kvöld nýjasta nafnið á sjúkralistanum fyrir stjörnuleikinn í NBA deildinni sem fram fer í Las Vegas á sunnudaginn. Vesturstrandarliðið er því án leikstjórnanda í augnablikinu og því þykir víst að annað hvort Deron Williams frá Utah eða Chris Paul frá New Orleans taki stöðu Iverson í hópnum. 13.2.2007 19:57
Birgir Leifur: Besta Sushi sem ég hef smakkað Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er nú kominn til Indónesíu þar sem hann mun taka þátt í sínu fyrsta móti á árinu á Evrópumótaröðinni. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá lokadegi mótsins á sunnudagsmorguninn. 13.2.2007 19:06
Kiel - Lemgo í beinni Stórleikur Kiel og Lemgo í þýska bikarnum í handbolta verður sýndur beint á Sýn klukkan 19:10 í kvöld. Þar gefst áhorfendum Sýnar tækifæri til að sjá landsliðsmennina Loga Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson í eldlínunni. 13.2.2007 18:43
Stuðningsmenn West Ham ósáttir við Curbisley Vandamálin hrannast upp hjá Alan Curbishley knattspyrnustjóra West Ham. Leikmenn liðsins eru sagðir óánægðir með stjórnarstíl hans og rúmlega helmingur stuðningsmanna liðsins vill láta reka hann. Þá gæti West Ham misst stig í úrvalsdeildinni vegna félagaskipta Carlosar Tevez og Javiers Masherano. 13.2.2007 18:03
Dregið í riðla á EM Í dag var dregið í riðla fyrir Evrópumót undir 21 árs landsliða karla í knattspyrnu en úrslitakeppnin verður í Svíþjóð eftir tvö ár. Ísland var í þriðja styrkleikaflokki og lenti í sjöunda riðli með Belgíu, Slóvakíu, Austurríki og Kýpur. Riðlarnir eru tíu og sigurvegarar hvers riðils komast áfram ásamt fjóru bestu þjóðunum í öðru sæti riðlanna. 13.2.2007 18:00
Newell sektaður fyrir karlrembu Mike Newell, knattspyrnustjóri Luton Town, var í dag sektaður um 6,500 pund fyrir að ausa fúkyrðum yfir kvenkyns aðstoðardómara eftir leik í nóvember sl. Newell sagði að konur ættu ekki heima í fótbolta og sagði þessa ráðstöfun vera aumkunarverða tilraun til að jafna bilið milli kynjanna. 13.2.2007 17:53
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti