Fleiri fréttir

Miami Heat NBA-meistari í fyrsta sinn

Miami Heat varð í nótt NBA-meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins þegar liðið skellti Dallas á útivelli 95-92 og vann þar með einvígið 4-2, eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum. Dwyane Wade bar höfuð og herðar yfir aðra leikmenn í einvíginu og var kjörinn verðmætasti leikmaður úrslitanna. Hann skoraði yfir 35 stig í fjórum síðustu leikjunum og var gjörsamlega óstöðvandi.

Miami getur unnið meistaratitilinn í fyrsta sinn í kvöld

Sjötti leikur Dallas Mavericks og Miami Heat fer fram í Dallas klukkan eitt eftir miðnætti í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Miami getur með sigri tryggt sér fyrsta NBA meistaratitil sinn í sögu félagsins, en Dallas mun eflaust verða þeim erfið hindrun á heimavelli sínum.

Verðum að verjast betur í næsta leik

Sven-Göran Eriksson var að vonum ekki sáttur við varnarleik sinna manna í kvöld, eftir að Englendingar fengu á sig tvö mörk eftir föst leikatriði. Hann segist þó ánægðastur með að hafa náð að vinna riðilinn.

Útlitið dökkt með Owen

Sven-Göran Eriksson segir að útlitið sé mjög dökkt hjá Michael Owen eftir að hann meiddist á hné á fyrstu mínútu leiksins gegn Svíum í kvöld. "Þetta leit mjög illa út og hann verður ef til vill ekki meira með í keppninni," sagði Eriksson, sem þurfti að skipta Peter Crouch inn á völlinn á fjórðu mínútu leiksins.

Paragvæ lauk keppni með sæmd

Paragvæ átti ekki möguleika á að komast í 16-liða úrslit HM fyrir leikinn gegn Trinidad og Tobago í kvöld. Suður-Ameríkumennirnir luku þó keppni með sóma og höfðu 2-0 sigur með sjálfsmarki Brent Sancho í fyrri hálfleik og Nelson Cuevas fimm mínútum fyrir leikslok.

Jafntefli hjá Svíum og Englendingum

Svíar og Englendingar skildu jafnir 2-2 í skemmtilegum lokaleik sínum í B-riðli HM í kvöld. Joe Cole kom enskum yfir með frábæru marki í fyrri hálfleik, en Marcus Allback jafnaði í upphafi þess síðari. Varamaðurinn Steven Gerrard kom Englendingum aftur yfir með skalla á 85. mínútu, en sænska liðið sýndi mikið harfylgi og jafnaði á þeirri 90. Þar var að verki markahrókurinn ótrúlegi, Henrik Larsson.

Klinsmann varar við of mikilli bjartsýni

Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þjóðverja, segir liðið hafa náð settu marki með því að vinna riðil sinn á HM, en varar menn við of mikilli bjartsýni í framhaldinu.

Svíar jafna

Svíar mæta ákveðnir til leiks í síðari hálfleiks í viðureign sinni gegn Englendingum í B-riðli og hafa jafnað leikinn strax á 51. mínútu. Þar var að verki framherjinn Marcus Allback, sem potaði boltanum í netið eftir hornspyrnu og vandræðagang í ensku vörninni. Þetta var 2000. markið í sögu HM og hafa Svíarnir verið stórhættulegir upp við mark Englendinganna í kjölfar marks Allback.

Englendingar yfir í hálfleik

Englendingar hafa yfir 1-0 gegn Svíum í uppgjöri liðanna um toppsætið í B-riðlinum á HM. Stórkostlegt mark Joe Cole á 34. mínútu skilur liðin að, en enskir hafa verið öllu sterkari það sem af er í þessum stórskemmtilega leik. Þá eru Paravæar yfir 1-0 gegn Trínídad, þar sem Brent Sancho skoraði mark Paragvæ.

Ótrúlegt mark Joe Cole

Englendingar hafa náð 1-0 forystu gegn Svíum á 34. mínútu með ótrúlegu marki frá Joe Cole, sem hefur verið besti maður enska liðsins í kvöld. Boltinn barst til Cole sem þrumaði honum að marki langt fyrir utan vítateig og Isaksson náði aðeins að slá knöttinn í stöngina og inn. Stórkostlegt mark.

Owen líklega úr leik

Englendingar hafa orðið fyrir áfalli strax í upphafi leiks gegn Svíum, en framherjinn Michael Owen hné niður meiddur á vellinum eftir um tvær mínútur. Owen virtist snúa upp á hnéð á sér og var borinn af velli. Peter Crouch tók stöðu hans í liðinu og nú standa Englendingar væntanlega á öndinni á meðan þeir bíða fregna af Owen, en ekki er hægt að segja að útlitið sé gott fyrir hann.

England - Svíþjóð að hefjast

Stórleikur Englendinga og Svía um efsta sætið í B-riðli er nú að hefjast og er í beinni á Sýn. Leikur Trínídad og Paragvæ er í beinni á Sýn Extra. Marcus Allback kemur inn í framlínu Svía í stað Zlatan Ibrahimovic og Wayne Rooney tekur stöðu Peter Crouch í enska liðinu. Byrjunarliðin eru hér fyrir neðan.

Leikur Englendinga og Svía að hefjast

Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Englendinga og Svía fyrir uppgjör liðanna um efsta sætið í B-riðlinum á HM. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefst nú klukkan 19. Eins og búist var við kemur Wayne Rooney inn í byrjunarlið enskra í stað Michael Owen og Marcus Allback byrjar í framlínu Svía í stað hins meidda Zlatan Ibrahimovic. Þá er leikur Trinidad og Paragvæ einnig að hefjast og verður í beinni á Sýn Extra.

Tíu gul spjöld í leik Kosta Ríka og Pólverja

Dómarinn Samsul Maidin frá Singapúr var óspar á gulu spjöldin í leik Kosta Ríka og Pólverja í dag. Hann veifaði gula spjaldinu alls tíu sinnum í leiknum og aðeins þrisvar hefur spjaldinu verið veifað oftar í leik í sögu HM.

Óttast snilli Wayne Rooney

Lars Lagerback viðurkennir að hann sé mjög smeykur við framherjann Wayne Rooney fyrir leik Svía og Englendinga um efsta sætið í B-riðli í kvöld klukkan 19. Rooney verður væntanlega í byrjunarliði Englendinga í kvöld í fyrsta skipti síðan hann meiddist fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan.

Langt á milli sigra hjá Sádum og Túnisum

Túnisar og Sádí Arabar hafa ekki verið sérlega sigursælir í sögu HM og eru báðar þjóðir nú að þokast upp listann yfir flesta leiki spilaða í röð á HM án sigurs. Túnisar hafa spilað 10 leiki í röð án sigurs og Sádar 9 leiki.

Kristján Örn lenti í slagsmálum á æfingu

Kristján Örn Sigurðsson og félagar í norska liðinu Brann mættu á sína fyrstu æfingu eftir sumarfrí í dag og ekki vildi betur til en svo að Kristján Örn lenti í áflogum við framherjann Robbie Winters eftir að þeir lentu í samstuði. Leikmennirnir sættust eftir uppákomuna, en greinilegt er að ekkert verður gefið eftir í baráttunni í herbúðum Brann á komandi leiktíð.

Sannfærandi sigur Þjóðverja

Þjóðverjar tryggðu sér toppsætið í A-riðlinum á HM í dag með öruggum 3-0 sigri á Ekvador. Miroslav Klose skoraði tvö mörk fyrir þýska liðið og Lukas Podolski eitt og var sigur heimamanna aldrei í hættu í Berlín í dag. Pólverjar luku keppni með sæmd og lögðu Kosta Ríka 2-1, þar sem Boratosz Bosacki skoraði tvívegis.

Geta slegið met Ítala á fimmtudag

Brasilíska landsliðið hefur alla tíð verið þekktast fyrir frábæran sóknarleik, en fari svo að liðið haldi hreinu í lokaleik sínum í riðlakeppninni á fimmtudag, getur það slegið met ítalska landsliðsins síðan árið 1990.

Klose í stuði

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum tveimur sem standa yfir í A-riðli. Gestgjafarnir Þjóðverjar eru í essinu sínu gegn Ekvador og hafa yfir 2-0. Miroslav Klose er orðinn markahæsti leikmaður HM til þessa eftir að hann skoraði bæði mörk Þjóðverja á 4. og 42. mínútu og er nú kominn með 4 mörk á mótinu. Staðan í leik Kosta Ríka og Póllands er jöfn 1-1. Ronald Gomez kom Kosta Ríka yfir á 24. mínútu en Boratozs Bosacki jafnaði metin skömmu síðar.

Zlatan verður með á æfingu í dag

Framherjinn Zlatan Ibrahimovic hjá sænska landsliðinu mun taka þátt í lokaæfingu liðsins í dag, en hann hefur verið meiddur síðan fyrir helgi. Svíar mæta Englendingum klukkan 19 í kvöld þar sem efsta sætið í B-riðli verður í húfi, en fastlega er þó reiknað með því að Zlatan verði hvíldur og Marcus Allback verði í framlínunni í hans stað.

Við höfum efni á Nistelrooy

Forráðamenn Þýskalandsmeistara Bayern Munchen eru enn að gera hosur sínar grænar fyrir hollenska framherjanum Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United og í dag fullyrti yfirmaður knattspyrnumála hjá Bayern að félagið hefði vel efni á að kaupa Nistelrooy.

Síðustu leikirnir í A-riðli að hefjast

Nú eftir skamma stund hefjast síðustu leikirnir tveir í A-riðli á HM í Þýskalandi. Þetta er leikur Þýskalands og Ekvador annars vegar og leikur Póllands og Kosta Ríka hins vegar. Báðir leikirnir hefjast klukkan 14:00, svo ekki sé hægt að hagræða úrslitunum í riðlinum. Þjóverjar og Evadorar berjast um sigurinn í riðlinum en Póllverjar og Kosta Ríkamenn halda heim að leik loknum.

Barthez sannfærður um góðan árangur

Fabian Barthez, markvörður franska landsliðsins er sannfærður um að franska liðinu eigi eftir að vegna vel á HM. Liðið hefur aðeins fengið tvö stig úr tveimur leikjum og verða þeir að vinna síðasta leikinn sem er geng Tógo til að komast áfram.

Kewell verður með

Harry Kewell, leikmaður Ástralíu fer ekki í leikbann og verður með liði sínu er það mætir Króötum á sunnudaginn. Útlit var fyrir að leikmaðurinn færi í bann þar sem hann sendi dómara leiksins í 2-0 tapi gegn Brasilíu tóninn. Skýrsla dómarans þótti óskýr og ákvað FIFA að aðhæfast ekkert í málinu.

Rooney mun hræða andstæðingana

Sven Göran Erikson segir að með því að stilla Wayne Rooney upp í byrjunarliðið í næstu leikjum Englands á HM muni vekja ótta í hjörtum andstæðinganna.

Michel ekki ánægður með framgöngu Drogba

Henri Michel, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar er mjög ósáttur við frammistöðu Didier Drogba á heimsmeistaramótinu. Fílabeinströndin sem margir höfðu fyrirfram spáð góðu gengi er dottið út og segir Michel að Drogba hafi ekki verið nógu vel undir þetta mót búinn.

Basten tekur enga áhættu

Marco van Basten landsliðsþjálfari Hollands ætlar að hvíla nokkra af lykilmönnum liðsins í leiknum gegn Argentínu á miðvikudaginn.

HM kirkjan í Köln

Kaflaskil, næst í HM messunni þriðja umferð í riðlunum, næstu fjórir dagar ákvarða sextán liða úrslitin. Ég verð alltaf svolítið sorgmæddur þegar hér er komið í keppninni, nú eru það sigurvegararnir sem halda áfram, hinir fara heim.

Spánn lagði Túnis

Spánverjar sigruðu Túins 3-1 í hörkuspennandi leik liðanna á HM í Þýskalandi. Það var Joahar Mnari sem skoraði mark fyrir Túnis á 8. mínútu fyrri hálfleiks. Á 70. mínútu jafnaði varamaðurinn Raúl metin fyrir spánverja og aðeins fimm mínútum síðar skoraði Fernando Torres mark og kom spánverjum yfir 2-1.

Leikur Spánar og Túnis að hefjast

Raul er aftur á bekknum eftir góða frammistöðu þeirra David Villa og Fernando Torres í sókninni í síðasta leik. Framherjinn knái Francileudo dos Santos leikmaður Túnis er á bekknum þrátt fyrir að hafa verið meiddur.

Úkraína burstaði Sádí-Arabíu

Nú var að ljúka leik Úkraínu og Sádí-Arabíu á HM í Þýskalandi. Leiknum lauk með 4-0 sigri Úkraínumanna en það er sami munur og þeir töpuðu með fyrir Spánverjum. Það var Andriy Rusol sem skoraði á 4. mínútu og Serhiy Rebrov bætti öðru við á 36. mínútu. Sjálfur Andriy Shevchenko skoraði á 46. mínútu og Maxim Kalinichenko á þeirri 84. eftir laglega sendingu frá Shevchenko.

Henry telur Frakka geta spjarað sig án Zidane

Thierry Henry leikmaður Arsenal og franska landsliðsins telur að Frakkar muni vinna þrátt fyrir að Zinidine Zidane verði í leikbanni í seinasta leik þeirra á móti Tógó á föstudag.

Neville enn meiddur

Gary Neville er enn meiddur og verður því ekki í byrjunarliðinu gegn Svíum á morgun. Wayne Rooney og Owen Hargreaves koma inn í byrjunarliðið í fyrsta sinn á mótinu og verða þar í staðinn fyrir Peter Crouch og Steven Gerrard sem eru báðir einu gulu spjaldi frá því að fara í leikbann.

2-0 fyrir Úkraínu í hálfleik gegn Sádí-Arabíu

staðan í hálfleik í leik Úkraínumanna og Sádí-Araba er 2-0 fyrir Úkraínu. Það var Andriy Rusol sem skoraði á 4. mínútu og Serhiy Rebrov bætti öðru við á 36. mínútu. Úkraínumenn eru búnir að vera miklu mun betri í leiknum.

Leikur Sádí-Arabíu og Úkraínu að hefjast

Sádarnir hafa fengið fyrirliða sinn og markaskorara Sami Al Jaber góðan af meiðslum sínum og reikna má með að hann byrji inn á. Þeir geta því teflt fram sínu sterkasta liði á móti Úkraínu.

Svisslendingar í góðum málum

Svisslendingar voru rétt í þessu að leggja Tógómenn að velli 2-0 á HM í Þýskalandi. Það var Alexander Frei sem skoraði fyrra markið á 17. mínútu og Tranquillo Barnetta bætti seinna markinu við á 89. mínútu. Svisslendingar léku vel skipulagða knattspyrnu og sprækir Tógómenn fundu ekki leiðina í gegnum þétta vörn þeirra.

1-0 fyrir Sviss í hálfleik gegn Tógó

Staðan í hálfleik í leik Svisslendinga og Tógómanna er 1-0 fyrir Sviss. Það var Alexander Frei sem skoraði markið á 17. mínútu eftir góða fyrirgjöf. Leikurinn er fjörugur og Emmanuel Adebayor er mjög sprækur í framlínu Tógó.

Ætluðu ekki að spila gegn Svisslendingum

FIFA þurfti að hafa afskipti af leikmönnum Tógó sem ætluðu sér ekki að mæta í leikinn gegn Sviss í G-riðli HM í dag. Leikmenn liðsins eiga í deilum við knattspyrnusamband landsins vegna greiðslu fyrir að spila á mótinu og á meðan deilan stendur gátu þeir ekki hugsað sér að spila. "Þeir vildu ekki spila leikinn," sagði talsmaður FIFA sem talaði leikmenn Tógó til í gær.

Tiger Woods olli miklum vonbrigðum

Tiger Woods olli mestum vonbrigðum á Opna bandaríska meistaramótinu sem fram fór um helgina. Woods var mjög ryðgaður og féll úr leik eftir tvo keppnisdaga en honum til varnar er þetta fyrsta mótið sem hann keppti á í níu vikur, og einnig það fyrsta eftir að Earl faðir hans lést þann 3. maí síðastliðinn.

Sænskur handbolti á tímamótum í annað sinn á tveimur árum

Svekkelsi Svía leyndi sér ekki í Laugardalshöllinni á laugardag enda er þetta í fyrsta sinn síðan 1938 sem þessi mikla handboltaþjóð missir af heimsmeistarakeppni. Sænskur handbolti stendur á tímamótum um þessar mundir þar sem Svíar taka ekki þátt á HM, eiga litla von um sæti á ÓL 2008 og nokkrir lykilmenn liðsins eru á síðasta snúningi.

Birmingham hyggst kæra Wigan

Forrráðamenn Birmingham, hafa í hyggju að kæra Wigan til FA fyrir að beita ekki réttum aðferðum við að reyna að fá Emile Heskey til sín. Wigan hefur undanfarið lýst yfir áhuga að fá kappann. Forráðamenn Birmingham eru ósáttir við vinnubrögð Wigan manna.

Sjá næstu 50 fréttir