Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Xi vill sanngjarnari heimsstjórn Xi Jinping, forseti Kína, kallaði í morgun eftir því málefnum heimsins yrðu stýrt á sanngjarnari máta og að ríki heimsins legðu ekki tálma á önnur. Hann kallaði eftir aukinni ráðfærslu milli ríkja á alþjóðasviðinu og sagði að aðskilnaður og útskúfun á heimsmarkaði væri ekki jákvæð. 20.4.2021 10:48
Grænlendingar afnema fjöldatakmarkanir Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi á Grænlandi í gær þar sem gripið er til töluverðra afléttinga. 20.4.2021 08:01
Smit á Nýja-Sjálandi en áfram opið fyrir ferðalög til Ástralíu Starfsmaður á flugvellinum í Auckland á Nýja Sjálandi hefur verið greindur með kórónuveiruna, aðeins einum sólahring eftir að opnað var fyrir ferðalög á milli Nýja Sjálands og Ástralíu. 20.4.2021 08:00
Walter Mondale fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna látinn Walter Mondale, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, er látinn. Hann var 93 ára. Mondale var varaforseti Jimmy Carter, sem sagði Mondale „besta varaforsetann í sögu landsins“. 20.4.2021 07:28
Heimsfaraldurinn hefur valdið mikilli aukningu í útblæstri Ein af afleiðingum alheimsfaraldurs kórónuveirunnar er mikil aukning í útblæstri koltvísýrings. Þetta segir talsmaður Alþjóða orkumálastofnunarinnar í samtali við breska blaðið The Guardian. 20.4.2021 07:04
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna staðfestir fyrirhugaða Íslandsheimsókn Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur staðfest komu sína til Íslands í maí hvar hann mun sækja fund aðildarríkja Norðurskautsráðsins. Þetta staðfesti Blinken í ræðu sem hann flutti í kvöld þar sem meginviðfangsefnið var um forystuhlutverk Bandaríkjanna í loftslagsmálum. 19.4.2021 22:46
Enginn undir stýri í Teslu sem hafnaði á tré með þeim afleiðingum að tveir létust Tvær bandarískar stofnanir fara með rannsókn vegna banaslyss sem varð í Texas um helgina þar sem grunur leikur á að enginn hafi verið undir stýri í sjálfkeyrandi Teslu sem hafnaði utan vegar með þeim afleiðingum að tveir létust. 19.4.2021 22:13
„Notið skynsemina“ Saksóknarinn Steve Schleicher biðlaði til kviðdómenda að treysta innsæinu og hlusta á sönnunargögnin áður en þeir tækju ákvörðun í máli gegn lögregluþjóninum Derek Chauvin, sem ákærður er fyrir að hafa banað George Floyd í Minneapolis í fyrra. Flutningur lokaræðna fer nú fram og munu kviðdómendur í kjölfarið gera upp hug sinn. 19.4.2021 21:08
Leggjast gegn bólusetningarvottorði til ferðalaga Sérfræðinganefnd Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) leggst gegn því að ríki gerir sönnun fyrir því að fólk hafi verið bólusett gegn kórónuveirunni að forsendu fyrir því að það fái að ferðast á milli landa. Slíkt fyrirkomulag er talið auka á ójöfnuð og skapa nýjan ójöfnuð í ferðafrelsi í fólks. 19.4.2021 16:46
Telja um 150.000 hermenn við landamæri Úkraínu Rússar hafa safnað saman um 150.000 hermönnum við landamæri Úkraínu og á Krímskaga, að sögn utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Hann telur hættuna á frekari stigmögnun átaka í Austur-Úkraínu augljósa. 19.4.2021 16:25
Fyrsti leiðtogi kúbverska Kommúnistaflokksins utan Castro-ættarinnar Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, verður næsti leiðtogi kommúnistaflokks landsins. Hann tekur við af Raúl Castro og verður þannig fyrsti leiðtogi flokksins sem ber ekki eftirnafnið Castro. 19.4.2021 15:40
Útgöngubann í Nýju-Delí framlengt um viku Milljónum íbúa Nýju-Delí á Indlandi er gert að halda sig heima við í viku til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar sem breiðist nú um landið eins og eldur í sinu. Allar verslanir og verksmiðjur þurfa jafnframt að hætta starfsemi fyrir utan þær sem veita nauðsynlega þjónustu eins og matvöruverslanir. 19.4.2021 13:52
Berjast við gróðureld á Borðfjalli Á þriðja hundrað slökkviliðsmanna frá Höfðaborg glíma nú við mikinn gróðureld sem brennur í hlíðum Borðfjalls í Suður-Afríku. Íbúar í hverfi í hlíðum fjallsins voru látnir yfirgefa heimili sín í varúðarskyni. Grunaður brennuvargur er í haldi lögreglu vegna eldsins sem kviknaði í gærmorgun. 19.4.2021 12:28
Litlu Marsþyrlunni tókst ætlunarverkið Fyrsta tilraunaflug þyrilvængjunnar Ingenuity á reikistjörnunni Mars gekk að óskum í morgun. Leiðangursstjórn bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA bárust fyrstu gögnin sem staðfestu að þyrlan hefði flogið og fyrstu myndirnar af tilrauninni. 19.4.2021 11:15
Navalní fluttur á sjúkradeild í öðru fangelsi Rússnesk yfirvöld segja að heilsa Alexei Navalní, eins helsta stjórnarandstæðings landsins, sé „ásættanleg“ eftir að hann var fluttur á fangelsissjúkrahús. Navalní er í hungurverkfalli vegna ófullnægjandi læknisaðstoðar og þjáist af miklum bak- og fótverkjum sem læknar telja ógna lífi hans. 19.4.2021 10:33
Baerbock kanslaraefni þýskra Græningja Græningjar í Þýskalandi hafa tilkynnt að Annalena Baerbock, þingkona og annar leiðtogi flokksins, verði kanslaraefni flokksins í þingkosningunum sem fara fram í Þýskalandi þann 26. september. 19.4.2021 09:57
Þyrlan á Mars: Fyrsta tilraunaflugferðin í morgun Þyrilvængjan Ingenuity átti að reyna að fljúga í fyrsta skipti á reikistjörnunni Mars nú í morgun. Búist er við að upplýsingar um hvernig til tókst berist til jarðar nú fyrir hádegið. Hægt verður að fylgjast með því í beinni útsendingu á Vísi. 19.4.2021 09:26
Helmingur fengið bóluefni en dregur úr aðsókn Bandarísk heilbrigðisyfirvöld greindu frá því um helgina að helmingur Bandaríkjamanna eldri en 18 ára hefði fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni gegn Covid-19. 19.4.2021 07:33
Mótmælaalda fyrir lokadag réttarhaldanna yfir Chauvin Mótmælafundir gegn lögregluofbeldi voru víða haldnir í Bandaríkjunum um helgina en í dag er síðasti dagur réttarhaldanna yfir lögreglumanninum sem drap George Floyd á síðasta ári. Dráp hans varð til þess að til mótmæla kom um gervöll Bandaríkin. 19.4.2021 06:56
Leiðtogi Sinn Féin biðst afsökunar á morðinu á Mountbatten lávarði Mary Lou McDonald, leiðtogi Sinn Féin, hefur beðist afsökunar á dauða Mountbatten lávarðs, frænda hertogans af Edinborg. Mountbatten var myrtur af Írska lýðveldishernum (IRA) árið 1979. 19.4.2021 06:47
Leita manns sem skaut þrjú til bana Lögregla í Texas leitar nú Stephen Nicholas Broderick, 41 árs gamals manns sem grunaður er um að hafa skotið þrjú til bana í borginni Austin í dag. Maðurinn, sem er fyrrverandi lögreglumaður, er talinn vopnaður og hættulegur. 18.4.2021 22:38
Fundu stúlkuna með móður sinni í Sviss Átta ára stúlka sem frönsk lögregluyfirvöld höfðu lýst eftir fannst ásamt móður sinni í Sviss. Stúlkunni var rænt af heimili ömmu sinnar á þriðjudag, en amma hennar hafði haft forræði yfir henni undanfarna mánuði. 18.4.2021 22:04
Ótrúleg slóð útsendara: Banatilræði, skemmdarverk og milliríkjadeilur Yfirvöld í Tékklandi hafa rakið stóra sprengingu í vopnageymslu í landinu árið 2014 til umdeildrar deildar rússneskrar leyniþjónustu sem hefur verið sökuð um banatilræði og skemmdarverk í Evrópu. Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að svara fyrir sig og reka erindreka Tékklands úr landi. 18.4.2021 22:00
Munu ekki leyfa Navalní að deyja í fangelsi Sendiherra Rússlands í Bretlandi fullyrðir að stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní muni fá nauðsynlega læknisaðstoð í fangelsi, en heilsu hans hefur hrakað til muna frá því að hann hóf hungurverkfall fyrir rúmum tveimur vikum. Hann muni ekki fá að deyja í fangelsi. 18.4.2021 20:59
Helmingur fullorðinna í Bandaríkjunum fengið fyrri skammt Yfirvöld í Bandaríkjunum tilkynntu í dag að helmingur allra yfir átján ára aldri í landinu hefðu nú fengið fyrri skammt af bóluefni gegn kórónuveirunni, eða tæplega 130 milljónir einstaklinga. 84 milljónir fullorðinna hafa verið bólusettar að fullu. 18.4.2021 18:39
Stefna á þyrluflug á Mars á morgun Vísindamenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna stefna á að fljúga litlu þyrlunni Ingenuity á Mars á morgun (mánudag). Tilraunafluginu hafði verið frestað fyrr á mánuðinum vegna tæknilegra vandræða sem komu upp. 18.4.2021 14:01
Tékkar lýsa eftir sömu Rússum sem sakaðir voru um Skripal-árásina vegna stórrar sprengingar 2014 Yfirvöld Tékklands vísuðu í gær átján rússneskum erindrekum úr landi og lýstu eftir tveimur rússneskum útsendurum vegna sprengingar í vopnageymslu árið 2014. Útsendararnir sem lýst var eftir eru þeir sömu og voru sakaðir um að eitra fyrir Sergei Skripal og dóttur hans með taugaeitrinu Novichok í Salisbury í Bretlandi árið 2018. 18.4.2021 07:37
Talibanar með pálmann í höndunum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, opinberaði í vikunni þá ákvörðun að kalla alla hermenn Bandaríkjanna heim frá Afganistan fyrir 11. september næstkomandi. Það ætlar hann að gera án þess að setja talibönum skilyrði. Ákvörðunin gæti reynst íbúum landsins afdrifarík. 17.4.2021 23:01
Fresta ákvörðun um endurkomu Trump á Facebook Eftirlitsnefnd Facebook hefur frestað ákvarðanatöku í máli er varðar samfélagsmiðla Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Aðgöngum forsetans fyrrverandi var lokað eftir árás stuðninsgmanna hans á bandaríska þingið í janúar. 17.4.2021 20:55
Fylgdist með útförinni heima Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, fylgdist með útför Filippusar prins á heimili hennar og Harry Bretaprins í Kaliforníu í dag. Hertogaynjan er ólétt af öðru barni þeirra hjóna og réðu læknar henni frá því að ferðast til Bretlands fyrir útförina. 17.4.2021 19:54
Sjónin versnar og aukin hætta á nýrnabilun Stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní hefur nú verið í hungurverkfalli í yfir tvær vikur og er það farið að hafa veruleg áhrif á heilsufar hans. Hann hefur krafist þess að fá læknisheimsókn í fangelsið þar sem hann þjáist af bakverkjum. 17.4.2021 18:04
Drottningin sat ein næst altarinu við jarðarförina Filippus prins, maki Elísabetar Bretadrottningar, var borinn til grafar í dag en athöfnin fór fram í kapellu St. Georgs við Windsorkastala. Fjöldi þeirra sem sóttu jarðarförina var takmarkaður við þrjátíu vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. 17.4.2021 16:06
Þrjár milljónir dánar vegna Covid-19 Rúmlega þrjár milljónir manna hafa nú dáið á heimsvísu vegna Covid-19. Heilt yfir hafa rúmlega 140 milljónir smitast, svo vitað sé. Mögulega er raunverulegur fjöldi látinna þá hærri og jafnvel töluvert hærri. 17.4.2021 14:31
Filippus prins borinn til grafar Filippus prins, maki Elísabetar Bretadrottningar, var borinn til grafar í dag. Fjöldi þeirra sem sóttu jarðarförina var takmarkaður við þrjátíu vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar en sýnt var frá athöfninni í beinni útsendingu. 17.4.2021 11:41
Til rannsóknar hvort fermingarbúðir 140 ungmenna standist sóttvarnareglur Norska lögreglan hefur til rannsóknar hvort sóttvarnareglur hafi verið brotnar þegar 140 fermingarbörn komu saman til fermingarfræðslu í Gjøvik síðustu helgi. Þátttakendur voru fermingarbörn úr fimm sveitarfélögum sem komu saman í Campus Arena í Gjøvik en viðburðurinn var liður í borgaralegri fermingarfræðslu á vegum samtakanna Human-Etisk. 17.4.2021 10:44
Ný ríkisstjórn Grænlands með nauman meirihluta Hinn 34 ára gamli Múte B. Egede, er yngsti forsætisráðherra Grænlands. Hann leiðir nýja ríkisstjórn landsins sem opinberuð var í gær. Egede er formaður Inuit Ataqatigiit (IA) en flokkurinn vann mikinn sigur í kosningunum sem haldnar voru á Grænlandi í byrjun mánaðarins. 17.4.2021 08:52
Saksóknarar vilja samtök Navalnís á sama stall og ISIS og al-Qaeda Ríkissaksóknarar í Moskvu fóru í gær fram á það við dómara að andspillingarsamtök Alexei Navalní verði sett á lista hryðjuverka- og öfgasamtaka. Slík skilgreining fæli í sér að hægt yrði að dæma aðgerðasinna og fólk sem tekur þátt í mótmælum samtakanna gegn ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta, til langra fangelsisdóma. 17.4.2021 07:59
Teikna beina línu frá framboði Trumps til Rússa Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, opinberaði í gær að samstarfsmaður starfsmanna framboðs Donalds Trump, fyrrverandi forseta, útvegaði rússneskum leyniþjónustum gögn úr framboðinu. 16.4.2021 23:34
Ráðleggja óléttum að fá bóluefni Pfizer eða Moderna Breskum barnshafandi konum er ráðlagt að fá bóluefni við kórónuveirunni frá annað hvort Pfizer eða Moderna þar sem fleiri rannsóknir liggi fyrir sem benda til þess að þau séu örugg. Þetta kemur fram í tilmælum ráðgjafanefndar um bólusetningar þar í landi. 16.4.2021 23:33
Fjöldi fólks fylgdist með komu fallbyssukerranna Fjöldi fólks fylgdist með því þegar þegar hin konunglega viðhafnarsveit breska hersins kom ríðandi með þrjár fallbyssukerrur í eftirdragi að Windsor-kastala í dag til undirbúnings útfarar Filippusar prins á morgun. 16.4.2021 22:12
Handteknir grunaðir um aðild að mannráni á átta ára stúlku Fjórir menn eru nú í haldi frönsku lögreglunnar vegna gruns um aðild að þaulskipulögðu mannráni á átta ára stúlku. Stúlkan heitir Mia og er talin vera með móður sinni, sem lögreglu grunar að hafi fyrirskipað mannránið. 16.4.2021 21:51
Merkel skorar á sambandsþingið að taka í neyðarhemilinn í Covid-aðgerðum Angela Merkel Þýskalandskanslari hvatti þýska sambandsþingið í dag til að samþykkja frumvarp sem heimilar landstjórninni að grípa til hertra sóttvarnaaðgerða í öllum sextán sambandsríkjum Þýskalands. Hún segir löngu tímabært að stíga fast á neyðarhemilinn í landinu öllu. 16.4.2021 21:03
Árásarmaðurinn karlmaður á tvítugsaldri Lögregla í Indianapolis í Bandaríkjunum hefur borið kennsl á mann sem talinn er hafa skotið átta manns til bana á starfsstöðvum FedEx. Maðurinn, sem framdi sjálfsvíg eftir árásina, hét Brandon Scott og var nítján ára gamall. 16.4.2021 19:31
Stefna að samfélagi án sígarettna Nýja-Sjáland hyggst útrýma tóbaksreykingum í landinu fyrir árið 2025. Aðstoðarheilbrigðisráðherra landsins segir brýnt að vernda komandi kynslóðir fyrir þeim hættum sem fylgja tóbaksreykingum, enda deyi hátt í fimm þúsund Nýsjálendingar ár hvert af völdum tóbaks. 16.4.2021 18:27
Helen McCrory látin Breska leikkonan Helen McCrory er látin 52 ára að aldri. Frá þessu greindi eiginmaður hennar Damian Lewis á Twitter-síðu sinni í dag. McCrory lést eftir baráttu við krabbamein. 16.4.2021 17:18