Fleiri fréttir

Ágreiningsmálin rædd í Minsk

Litlar vonir voru bundnar við að fundur Porosjenkós Úkraínuforseta og Pútíns Rússlandsforseta í gær myndi valda straumhvörfum í deilum þjóðanna og átökunum í austanverðri Úkraínu.

Stjáni Blái gengur laus á ný

Þekktasti morðingi Kólombíu, John Velasquez, sem gengur undir nafninu Stjáni Blái, hefur verið látinn laus úr fangelsi. Hann var helsti leigumorðingi eiturlyfjabarónsins Pablo Escobars á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og játaði hann á sig 300 morð þegar hann var ákærður fyrir rúmum tveimur áratugum.

Ræðst gegn rafsígarettum

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að banna eigi notkun rafsígaretta innanhúss og að hætta eigi að selja þær börnum.

Örlög Evrópu og alls heimsins eru undir

Forsetar Úkraínu og Rússlands hittust í dag í fyrsta sinn í á þriðja mánuð í von um að sættir náist milli stríðandi fylkinga í austurhluta Úkraínu.

Boris Johnson staðfestir þingframboð

Borgarstjóri Lundúna hefur skilað inn framboðsgögnum og mun bjóða sig fram til þings í kjördæminu Uxbridge og South Ruislip í vesturhluta Lundúna.

Hávaxnasti maður heims látinn

„Ég hef alltaf þráð að fá að vera eins og aðrir. Ég veit að ég er hávaxnasti maður heims, en mér finnst ég samt bjargarlaus. Þetta líf er fyrir lágvaxið fólk,“ sagði Leonid Stadnyk á sínum tíma, en hann lést í gær.

Hart deilt um framtíð Skotlands

Skoðanakannanir benda til að Alex Salmond hafi haft betur gegn Alistair Darling í sjónvarpskappræðum sem fram fóru í gærkvöldi.

Lést þrátt fyrir ebóla-lyf

Líberískur læknir, sem var á meðal þriggja Afríkubúa sem fengu tilraunalyf við ebóla-veirunni, er látinn.

Fórust í sjálfsmorðssprengingu

Að minnsta kosti tólf fórust og 26 særðust þegar sjálfsmorðssprengjuárás var gerð á mosku sjíta-múslima í austurhluta Bagdad, höfuðborgar Íraks, í gær.

Prayuth tekur við embætti

Hershöfðinginn Prayuth Chan-ocha, sem hrifsaði til sín völdin í Taílandi fyrir þremur mánuðum, hefur formlega tekið við embætti forsætisráðherra í landinu eftir að hafa fengið stuðning frá konunginum, Bhumibol Adulyadej.

Þúsundir fylgdu Brown til grafar

Fjölskylda Michaels Brown segir hann hafa verið ljúfling hinn mesta. Hann hafi verið metnaðargjarn og látið þau orð falla að nafn sitt yrði einhvern tímann á allra vörum.

Obama heimilar könnunarflug yfir Sýrlandi

Obama Bandaríkjaforseti hefur heimilað flughernum að fara í könnunarflug yfir Sýrland til þess að fylgjast með aðgerðum vígamannanna í hinu Íslamska ríki.

Pútín og Pórósjenkó ræðast við í Minsk

Petro Pórósjenkó forseti Úkraínu hittir í dag kollega sinn Vladimír Pútín Rússlandsforseta á leiðtogafundi í Minsk í Hvíta-Rússlandi. Búist er við hitafundi en samskipti ríkjanna hafa verið afar slæm síðustu misserin og sérstaklega síðustu vikurnar.

Pórósjenkó boðar til kosninga

Petró Pórósjenkó, forseti Úkraínu, ákvað í kvöld að leysa þingið frá og boðaði hann til kosninga þann 26. október.

Sá stærsti í aldarfjórðung

Mikið hreinsunarstarf bíður íbúa Kalaforníuríkis í Bandaríkjunum eftir að jarðskjálfti af stærðinni sex, reið þar yfir í gær. Tugir manna slösuðust í skjálftanum, sem átti upptök sín í vínræktarhéraðinu í Napa-dal.

Sjá næstu 50 fréttir