Fleiri fréttir

Risaskjálfti í Perú

Skjálftinn átti upptök sín um 61 kílómetra norðuaustur af borginni Puquio.

Richard Attenborough allur

Attenborough er þekktastur fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum The Great Escape og Jurassic Park auk þess sem hann leikstýrði Gandhi.

Þrettán hæða bygging skotin niður á Gasa

Ísraelsher er enn með mikinn viðbúnað skammt frá landamærunum að Gasa þar sem skriðdrekar eru í viðbragðsstöðu ásamt farartækjum til að flytja hermenn yfir landamærin.

Sjö látnir í loftárásum á Gasa

Sjö hafa látist í loftárásum Ísraelshers á Gasa nú í morgun. Það sem af er degi hafa ísraelskar herþotur gert um 20 loftárásir á Gasa, en Ísraelsmenn segja að Hamas hafi skotið yfir 80 flugskeytum frá Gasa að Ísrael í gær.

Líta á ferð bílalestar sem innrás í Úkraínu

Ákvörðun Rússa um að senda meira en 100 vörubíla inn í austurhluta Úkraínu án leyfis úkraínskra yfirvalda hefur mætt hörðum viðbrögðum á Vesturlöndum. Úkraínumenn líta á ferð bílalestarinnar sem brot á fullveldi sínu og innrás inn í landið.

Hamas tekur 21 uppljóstrara af lífi

Hamas hefur á síðasta sólarhring tekið 21 mann af lífi sem grunaðir voru um uppljóstranir. Talið er að fólkið hafi útvegað upplýsingar sem auðvelduðu Ísraelsmönnum morðin á þremur háttsettum foringjum Hamas fyrr í vikunni.

Árásirnar á Gasa halda áfram

Þrír háttsettir yfirmenn hernaðararms Hamas-samtakanna létu lífið í loftárás ísraelska hersins á Gasa snemma í fyrrinótt.

Enn leitað í Japan

Meira en 2.500 manns leituðu í gær á hamfarasvæðunum í Japan, þar sem um 50 manns var enn saknað.

Þjóðvarðliðið dregið frá Ferguson

Ríkisstjóri Missouri-ríkis í Bandaríkjunum hefur fyrirskipað að þjóðvarðliðið verði dregið frá bænum Ferguson þar sem dregið hefur úr mótmælum í bænum í sem hófust í kjölfar þess að lögreglumenn skutu 18 ára pilt til bana.

Lögregla í St. Louis birtir myndband af skotárás

Lögreglan í St. Louis í Bandaríkjunum hefur birt myndband sem sýnir frá því þegar lögreglumenn skutu til bana hinn 25 ára Kajieme Powell fyrir utan verslun í borginni á þriðjudag.

Skilaboðin eru skýr

Samtökin Íslamskt ríki hóta að taka annan bandarískan blaðamann af lífi láti Bandaríkjamenn ekki af loftárásum sínum á Írak. Forsætisráðherra Breta segir nauðsynlegt að leita allra leiða til að stöðva samlanda sína í því að ganga til liðs við hin grimmilegu samtök.

Morðingjar Foleys kröfðust 132 milljóna dollara lausnargjalds

Vinnuveitandi bandaríska blaðamannsins James Foleys hefur upplýst að samtökin hafi krafist 132 milljóna dollara lausnargjalds fyrir Foley á síðasta ári. Fyrirtækið tók lausnargjaldskröfuna ekki alvarlega sökum þess hversu há hún var.

Lést af völdum appelsínuárásar

Lögregla í Suður-Afríku handtók á þriðjudag tvo menn vegna gruns um að þeir hafi drepið starfsmann á bóndabæ með appelsínum.

Bandarískur læknir laus við ebóluveiruna

Kent Brantly, sem smitaðist af ebóluveiru í Líberíu í síðasta mánuði, verður útskrifaður frá sjúkrahúsi í Atlanta síðar í dag. Hafði honum verið gefið tilraunalyfið ZMapp.

Á fjórða tug fórst í Japan

Lögreglumenn leita að fólki sem saknað er eftir að aurflóð lenti á íbúðahverfi í Hírósíma í vesturhluta Japans í gær.

Leit hafin að „Svarta bítlinum“

Maður sem var áður haldið í gíslingu í Sýrlandi segir böðulinn vera vel menntaðan Breta sem hafi gengið undir nafninu „John“.

Gerðu misheppnaða tilraun til að bjarga Foley

Bandarísk stjórnvöld hafa greint frá því að nýverið hafi verið skipulögð leynileg sendiför sérsveitamanna til Sýrlands til þess að freista þess að fresla bandaríska gísla sem eru í höndum íslamskra öfgamanna.

Luhansk að mestu endurheimt

átökin í austanverðri Úkraínu hafa kostað meira en tvö þúsund manns lífið. Um það bil 340 þúsund manns hafi flúið að heiman.

Bandaríkjaher reyndi að bjarga Foley

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, heimilaði í síðustu viku sérstakar aðgerðir til að frelsa bandaríska gísla í haldi samtakanna Íslamskt ríki í Írak, eftir að upplýsingar lágu fyrir um þeir væru í hættu. Aðgerðirnar mistókust þar sem ekki tókst að staðsetja gíslana

Öryggissveitir kallaðar út í Monróvíu

Fjórir létust þegar óttaslegnir íbúar West Point-hverfisins í Monróvíu, höfuðborg Líberíu þustu hundruðum saman út á götur og köstuðu grjóti að óeirðalögreglu. Hverfið hefur verið sett í sóttkví til að hindra útbreiðslu ebólu í borginni.

Obama fordæmir morðið á Foley

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir morðið á bandaríska blaðamanninum James Foley, sem var afhöfðaður af meðlimum samtakanna Íslamskt ríki, vera hræðilegan verknað, sem hafi slegið alla heimsbyggðina.

Sjá næstu 50 fréttir