Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hnefaleikakappinn Teofilo Stevenson er látinn Kúbverski hnefaleikakappinn Teofilo Stevenson er látinn 60 ára að aldri. Banamein hans var hjartaáfall. 12.6.2012 06:58
Chavez býður sig fram til forseta í þriðja sinn Hugo Chavez hefur tilkynnt að hann muni bjóða sig fram til forsetaembættisins í Venesúela í þriðja sinn. 12.6.2012 06:53
Nóbelsverðlaunin lækkuð um 20% Forráðamenn Nóbelsverðlaunanna hafa ákveðið að lækka peningagreiðsluna sem fylgir Nóbelsverðlaununum um 20% eða niður í 8 milljónir sænskra kr. 12.6.2012 06:50
Krafa um að samningur við Kristjaníubúa verði endurskoðaður Stjórnarandstaðan í Danmörku hefur krafist þess að samningur hins opinbera við íbúa Kristjaníu sem taka á gildi þann 1. júlí n.k. verði endurskoðaður. 12.6.2012 06:43
Höfn í Japan fylltist af dauðum og rotnandi sardínum Vísindamenn í Japan hafa ekki fundið neinar skýringar á því afhverju hátt í 200 tonnum af dauðum og rotnandi sardínum rak á land í höfnina í bænum Isumi fyrir síðustu helgi. 12.6.2012 06:41
Lækkun á mörkuðum í lok dags Neyðarlán Spánverja frá Evrópusambandinu hefur veitt bæði Spáni og evrusvæðinu öllu aukinn tíma til að takast á við vandamálin sem steðja að. Þetta sögðu spænskir fjölmiðlar í gær, en jafnframt sögðu þeir flestir að neyðarlánið væri aðeins fyrsta skrefið í endurbyggingu hagkerfisins í landinu. 12.6.2012 04:00
Karadzic vill frávísun í Haag Radovan Karadzic, sem var leiðtogi Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, krefst þess að máli á hendur honum verði vísað frá. Hann er ákærður fyrir þjóðarmorð og ýmsa aðra stríðsglæpi fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag. 12.6.2012 02:00
Stuðningur við evruna eykst Svíum sem vilja taka upp evruna hefur fjölgað frá því í nóvember, samkvæmt nýrri könnun Statistiska centralbyrån. Nær átta af hverjum tíu Svíum myndu greiða atkvæði gegn evrunni ef þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram í dag. 14 prósent myndu segja já. 12.6.2012 01:30
Alvarlegar áhyggjur af ástandi í Sýrlandi Að minnsta kosti 52 eru sagðir hafa látist í árásum í Sýrlandi í gær. Kofi Annan, sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins vegna Sýrlands, segist hafa alvarlegar áhyggjur af nýjustu ofbeldisöldunni í landinu. 12.6.2012 00:30
SÞ kalla heim frá Mjanmar Starfsfólk Sameinuðu þjóðanna í Rakhine-héraði í Mjanmar, sem einnig er þekkt sem Búrma, hefur verið kallað heim. Átök hafa blossað upp á milli búddatrúarmanna og múslíma á svæðinu. 12.6.2012 00:00
Vinstrimenn sigruðu í frönsku þingkosningunum Vinstrimenn í Frakklandi unnu sigur í fyrri umferð þingkosninganna þar í landi sem haldnar voru um helgina. 11.6.2012 06:20
Rúmlega 80% Breta vilja þjóðaratkvæði um ESB aðild Rúmlega 80% Breta vilja halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildina að Evrópusambandinu í náinni framtíð. Þar af vilja 49% að slík atkvæðagreiðsla verði haldin strax í dag. 11.6.2012 08:05
Stjórn Richard Nixon var mun verri en áður var talið Blaðamennirnir sem urðu þess valdandi að Richard Nixon varð að segja af sér embætti sem forseti Bandaríkjanna telja í dag að stjórn Nixon hafi verið mun verri en þeir skrifuðu um á sínum tíma. 11.6.2012 07:20
Berjast við mikla skógarelda í Colorado Yfir 250 slökkviliðsmenn berjast nú við mikla skógarelda í ríkinu Colorado í Bandaríkjunum. 11.6.2012 06:35
Bréf frá Napoleon Bonaparte slegið fyrir metfé Bréf sem Napoleon Bonaparte skrifaði á ensku var slegið á uppboði í París fyrir metfé eða um 50 milljónir króna. Þetta er fimmfalt það verið sem talið var að fengist fyrir bréfið. 11.6.2012 06:31
Öl er mun hollara en áður var talið Ný rannsókn sýnir að öl er mun hollara en áður var talið. Fjallað er um málið í Daily Mail en þar kemur fram að vítamín sem aðeins finnst í humlum og þar með öli og einstöku öðrum matvælum eins og mjólk, styrkir vöðva líkamans og kemur í veg fyrir fitumyndun. 11.6.2012 06:27
Óperutónlist er hjartastyrkjandi Vísindamenn í Tókýó í Japan hafa komist að því að óperutónlist getur verið hjartastyrkjandi, allavega hjá músum. 11.6.2012 06:23
Útiloka ekki hernaðaríhlutun William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, sagðist ekki geta útilokað hernaðar-íhlutun í Sýrlandi. Hann sagði jafnframt að ástandið þar væri farið að líkjast því sem var í Bosníu á níunda áratugnum. Hague sagði tíma alþjóðlegrar sendinefndar Kofi Annan vera að renna út. Sendinefndin reynir að semja um vopnahlé í Sýrlandi. 11.6.2012 04:00
Flokkur Hollandes stærstur Búist er við því að Sósíalistaflokkur Francois Hollande, forseta Frakklands, nái meirihluta í þingkosningum sem þar fara fram þessa dagana. Fyrri umferð kosninganna var í dag og benda útgönguspár til þess að Sósíalistaflokkurinn og UMP flokkurinn séu jafnir með 35% atkvæða. Með stuðningi Græningja er Sósíalistaflokkurinn hins vegar með 40% fylgi. Önnur umferð fer fram eftir viku. 10.6.2012 23:34
Enn er barist vegna Pinochet Til átaka kom í Chile í dag vegna heimildamyndar um Pinochet. Lögregla notaði táragas til að leysa upp mótmæli sem fram fóru vegna sýningar myndarinnar. 10.6.2012 20:57
Enn ekki nákvæmar upplýsingar um skotárásina Skotárás varð við stúdentaíbúðir í Auburn í Alabama í Bandaríkjunum síðustu nótt. Fréttastofur af svæðinu hafa sagt að þrír hafi látið lífið og tveir aðrir slasast alvarlega. Það hefur ekki fengist staðfest með ótvíræðum hætti og lögregla hefur ekki gefið út yfirlýsingu vegna málsins. 10.6.2012 19:21
Sósíalistar og samherjar efstir Útgönguspár frá Frakklandi benda til þess að Sósíalistaflokkur Francois Hollande fái svipað mikið fylgi og hægri flokkurinn UMP. Flokkarnir mælast nú með 35% hvor. 10.6.2012 18:52
Siðspilltar mörgæsir hneyksluðu líffræðing Undarleg ástaratlot mörgæsa á Suðurpólnum gengu svoleiðis fram af líffræðingnum Dr. George Murray Levick að hann ákvað að birta ekki frásagnir af þeim opinberlega. 10.6.2012 15:52
Neyðarástand í Búrma Forseti Búrma lýsti yfir neyðarástandi í vesturhluta landsins í dag. Yfirlýsingin kemur eftir árásir öfgahópa í landinu síðustu vikuna. Óeirðir blossuðu upp í síðasta mánuði í Búrma eftir að Búddatrúar kona var drepin. Síðan hafa 17 múslimar týnt lífinu og hundruðir bygginga eyðilagst. Frá þessu er greint á vefmiðli BBC. 10.6.2012 15:07
Górillur fá líka hláturskast - myndband Með því að kitla apa hafa vísindamenn komist að þeirri niðurstöðu að hlátur mannfólksins hafi byrjað að þróast fyrir 10 til 16 milljón árum. 10.6.2012 12:47
Rússneskar fótboltabullur til rannsóknar UEFA mun beita agavaldi sínu vegna óviðeigandi hegðunar rússneskra stuðningsmanna á fótboltaleik landsliðsins gegn Tékkum síðasta föstudag. Fjórir starfsmenn á vellinum urðu fyrir árás stuðningsmannanna og voru sendir á spítala. Sömuleiðis voru þeir sakaðir um kynþáttafordóma sem beindust gegn tékkneska varnarmanninum Theodor Gebre Selassie, sem er svartur. Málið verður tekið til meðferðar næsta miðvikudag. 10.6.2012 11:30
Obama móðgaður vegna ásakana um leka Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir það móðgandi að gefa í skyn að Hvíta húsið sé á bak við leka um árásir mannlausra fjarstýrðra loftfara á bækistöðvar grunaðra hryðjuverkamanna í Mið-Austurlöndum en fréttir af þessum árásum að undanförnu hafa gert ríkisstjórn Obama berskjaldaða fyrir harðri gagnrýni frá bæði hægri og vinstri væng stjórnmálanna um leynd þessara aðgerða, sem þykja mjög umdeildar. Eric Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skipað tvo lögmenn sem eiga að stýra rannsókn á því hvort leynilegum trúnaðargögnum stjórnvalda um þessar árásir hafi verið lekið til fjölmiðla, að því er fram kemur í Financial Times. 10.6.2012 11:15
Frakkar að kjörborðinu Frakkar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa neðri deild þingsins. Niðurstöður úr kosningunum munu ráða því hve hratt hinn nýkjörni formaður Francois Hollande mun koma umbótaáætlunum sínum í framkvæmd og hve umfangsmiklar þær verða. 10.6.2012 11:00
Mubarak þungt haldinn Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, liggur þungt haldinn á fangelsissjúkrahúsi í Kaíró. Heilsu hans hefur hrakað mikið frá því hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir um viku og segja egypskt yfirvöld hann nú einungis geta neytt matar í vökvaformi. Eiginkona Mubaraks og tvær tengdadætur heimsóttu hann í morgun eftir að orðrómur um andlát fyrrum forsetans fór á kreik. 10.6.2012 10:45
Skotárás við stúdentaíbúðir í Alabama Nokkrir særðust í skotárás við stúdentaíbúðir í borginni Auburn í Alabamafylki í Bandaríkjunum. Skotárásin varð í nótt. Ekki er enn vitað um líðan fórnarlambanna né hve mörg þau voru, en lögregla hefur sagt að þau hafi verið fleiri en eitt. 10.6.2012 10:26
Ráðherra lést í þyrluslysi George Saitoti, öryggismálaráðherra Kenía, lést ásamt sex öðrum þegar þyrla brotlenti í skógi skammt frá höfuðborginni Nairobi. Kenísk yfirvöld greindu frá þessu í morgun. Ekki er vitað hvað olli slysinu að svo stöddu. Saitoti hugðist bjóða sig fram til forseta en næstu forsetakosningar í Kenía fara fram í mars á næsta ári. 10.6.2012 10:02
Vill hernaðaríhlutun í Sýrlandi Shaul Mofaz, forsætisráðherra Ísraels, sakaði sýrlensk yfirvöld um þjóðarmorð í útvarpsviðtali í morgun og hvatti alþjóðarsamfélagið til að grípa til hernaðaraðgerða í því skyni að stöðva blóðbaðið þar í landi. Hann gagnrýndi jafnframt helstu þjóðarleiðtoga heims fyrir aðgerðarleysi og var afar harðorður í garð Rússa fyrir að útvega Sýrlendingum vopn. Utanríkisráðherra Rússlands, ítrekaði í gær að hann væri mótfallið tilraunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um hernaðaríhlutun í Sýrlandi en kallaði eftir fundi með helstu leiðtogum heims til að ræða friðaráætlun Kofis Annans. 10.6.2012 10:00
Bjargað naumlega undan flóðum Um 150 manns var bjargað naumlega í dag þegar mikil flóð gengu yfir bæi og sumarleyfisstaði á vesturströnd Wales snemma í morgun. Þyrlur voru sendar á svæðið í björgunaraðgerðum nálægt bænum Aberystwyth eftir að tæplega 13 sentímetrar af regni féllu síðastliðinn sólarhring. Enginn slasaðist í flóðunum í morgun en þónokkurt tjón varð eins og myndirnar bera með sér. 9.6.2012 19:12
Anonymous mótmælir í Indlandi Hakkarar í hópnum Anonymous mótmæltu í dag ritskoðun á internetinu í Indlandi. Mótmælin fóru fram í 16 borgum. 9.6.2012 20:07
Talíbanar drepa franska hermenn Fjórir franskir hermenn létu lífið í sjálfsmorðstilræði í Afganistan í dag. Herskáir talíbanar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni sem átti sér stað á Kapisa-svæðinu í austurhluta landsins. Nú eru tæplega 3.300 franskir hermenn í Afganistan en stefnan er að franskar hersveitir hafi yfirgefið landið í lok þessa árs. 9.6.2012 11:45
Börnum bjargað úr ánauð níðinga Átján börnum hefur verið bjargað úr ánauð níðinga í umfangsmikilli aðgerð bandarískra yfirvalda gegn barnaklámi. Hundrað og níutíu manns voru handteknir, flestir í Bandaríkjunum en handtökur áttu sér einnig stað á Spáni, Filippseyjum, Bretlandi, í Argentínu, Svíþjóð, Serbíu og Hollandi. 9.6.2012 11:30
Kínverjar út í geim Kínverjar hafa ákveðið að senda mannað geimfar út í geim í þessum mánuði. Það yrði í fjórða sinn sem Kínverjar skjóta upp mönnuðu geimfari síðan árið 2008. 9.6.2012 10:45
Sprenging og átök í Sýrlandi Sautján óbreyttir borgarar, þar á meðal tíu konur, féllu í sprengingu í suðurhluta sýrlensku borgarinnar Deraa í nótt. Átök brutust út á milli uppreisnarmanna og stjórnarherliða í kjölfarið og var aðalvegi frá Damascus höfuðborg landsins lokað með logandi dekkjum. Að minnsta kosti fjörutíu og fjórir sýrlenskir borgarar létust í gær og tuttugu og fimm hermenn. 9.6.2012 10:14
Vill endurræsa tvo kjarnaofna Yoshihiko Noda, forsætisráðherra Japans, segir nauðsynlegt að endurræsa tvo af 50 kjarnorkuofnum landsins til þess að efnahagur landsins og landsmanna fari ekki á hliðina. 9.6.2012 05:00
Níðþunga bryggju rak á land Íbúar í bænum Newport í Oregon á vesturströnd Bandaríkjanna ráku upp stór augu í vikunni þegar risastór flotbryggja úr stáli og steinsteypu var komin upp í fjöru. 9.6.2012 01:15
Flúði nakinn frá Kristjaníu Blaðamaður varð fyrir líkamsárás í Kristjaníu í Kaupmannahöfn í fyrradag. Blaðamaðurinn var að taka ljósmyndir en slíkt er illa séð af sölumönnum í fríríkinu. Maðurinn var barinn, afklæddur og myndavélin tekin af honum. Hann náði að forða sér allsnakinn. 9.6.2012 00:00
Samkynhneigðir fá að ganga í hjónaband Danska þingið samþykkti með miklum meirihluta í gær frumvarp sem heimilar hjónabönd samkynhneigðra. Hingað til hafa samkynhneigðir í Danmörku ekki getað gengið í hjónaband, heldur aðeins haft möguleika á að skrá sig í sambúð. 8.6.2012 20:45
Emma Watson kemur hugsanlega til Íslands með Russel Crowe Viðræður standa yfir við Emmu Watson um að hún taki að sér hlutverk í mynd Darren Aronofskys um Örkina hans Nóa. Myndin verður að hluta til tekin upp hér á Íslandi. Nú þegar hefur verið samið við Russel Crowe um að taka að sér hlutverk Nóa. Enn hefur ekki verið ráðið í hlutverk skúrksins né heldur í hlutverk eiginkonu Nóa. Búist er við því að Jennifer Connelly muni hampa hlutverki eiginkonunnar. Emma Watson er þekktust fyrir hlutverk sitt í myndunum um galdrastrákinn Harry Potter. 8.6.2012 14:33
Grænlendingum ráðlagt að nota pottlok gegn hvítabjörnum Grænlensk stjórnvöld freista þess nú með öllum ráðum að koma í veg fyrir að ísbirnir séu skotnir að óþörfu. Umgengnisreglur hafa verið settar sem banna mönnum að fæða ísbirni og íbúar eru eindregið varaðir við því að elta þá uppi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sjávarútvegs-, veiði- og landbúnaðarráðuneytis Grænlands í tilefni af því að hvítabjörn var skotinn við Nuuk síðastliðinn sunnudag. 8.6.2012 11:15
Engisprettufaraldur ógnar lífi íbúa í Malí og Niger Engisprettufaraldur ógnar nú lífi íbúa í Afríkulöndunum Malí og Niger. Bæði þessi lönd glíma við hörmungar fyrir þar sem borgarastríð geisar í Malí og hungursneyð er í uppsiglingu í Niger. Samtökin Amnesty International segja að ástandið í Malí hafi ekki verið verra í fimmtíu ár. 8.6.2012 07:05