Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leiðtogi talibana sagður látinn Hakimullah Mehsud, leiðtogi talibana í Pakistan, er sagður látinn. Fréttastofan CNN hefur þetta eftir pakistanska ríkisútvarpinu en Rehman Malik, innanríkisráðherra landsins, segist ekki geta staðfest hvort leiðtoginn sé látinn. Það sama segir talsmaður pakistanska hersins. 31.1.2010 16:54
Réttað yfir mótmælendum í Íran Réttarhöld yfir 16 Írönum sem tóku þátt í mótmælum í höfuðborg Íran gegn þarlendum stjórnvöldum milli jóla og nýárs hófust í dag. Fimm mótmælendur eru ákærðir fyrir að stríð gegn Guði. Verði þau fundin sek verða þau tekin af lífi. 31.1.2010 16:31
22 látnir eftir mikil flóð í Perú Yfirvöld í Perú segja að 22 hafi týnd lífi í flóðum í kjölfar mikillar rigningar í landinu undanfarna daga. 10 er saknað og þá hafa rúmlega 40 þúsund íbúar þurft að flýja heimil sín og leita skjóls í neyðarskýlum. Ástandið er einna verst í fjallahéraðinu Cuzco sem liggur í Andesfjöllum. 31.1.2010 14:14
Landsliðsfyrirliðinn barnaði kærustu samherja síns John Terry, fyrirliði enska landsliðsins og Chelsea, gerði Vanessu Perroncel kærustu Wayne Bridge, liðsfélaga síns í Chelsea og landsliðinu, ólétta. Greint er frá málinu á vef News of the World í dag en Terry reyndi að fá lögbann á birtingu fréttar um málið í breskum fjölmiðlum. Á þá beiðni féllust þarlendir dómstólar ekki. Talið er að málið eigi eftir að draga dilk á eftir sér fyrir landsliðsfyrirliðann. 31.1.2010 13:03
Bandaríkjamenn grunaðir um að smygla börnum frá Haítí Tíu Bandaríkjamenn, meðlimir trúfélags Babtista í Idaho, voru handteknir á Haítí í gær en þeir eru grunaðir um að hafa ætlað að smygla 33 börnum úr landi. Börnin eru á aldrinum tveggja mánaða til tólf ára. 31.1.2010 10:31
Þrír látnir eftir snjóbyl í Þýskalandi Snjóbylur hefur valdið miklum umferðartöfum í Þýskalandi yfir helgina. Hundruð umferðaróhappa hafa verið tilkynnt vegna þessa og vitað er um þrjú dauðsföll sem rekja má til veðursins en snjó hefur kyngdi niður í gær. 31.1.2010 07:15
Glæpakóngur stýrði klíku á Facebook úr fangelsi Breski glæpaforinginn Colin Gunn, sem stýrði öflugustu glæpaklíku Nottingham-borgar, situr af sér 35 ára fangelsisdóm fyrir morð. Það hefur þó ekki hindrað hann í að stýra glæpaveldi sínu og ógna andstæðingum. Hann hefur notað Facebook til þess og komist upp með þangað til á föstudaginn þegar lokað var fyrir netaðgang hans. 31.1.2010 06:00
Túlkur myrti bandaríska hermenn Afganskur túlkur skot tvo bandaríska hermenn til bana í varðstöð bandaríska hersins í austurhluta Afganistans í gær. Maðurinn er ekki talinn tilheyra samtökum öfgasinnaðra múslima. 30.1.2010 16:55
Seðlabankastjóri segir af sér Seðlabankastjóri Argentínu hefur sagt af sér eftir harðar deilur við forseta landsins. Deilan hófst í byrjun árs þegar Cristina Fernandez de Kirchner, forseti Argentínu, skipaði seðlabankastjóranum að láta af hendi 6,6 miljarða dollara af gjaldeyrisvaraforða bankans. Með því vildi forsetinn tryggja að skulir ríkissjóðs yrðu greiddar. 30.1.2010 14:09
Haítíbúar flýja á flekum Fjölmargir Haítíbúar hafa reynt að flýja frá landinu til eyja í Karíbahafinu. Yfirvöld Turks- og Caicoseyjum hafa síðustu daga bjargað meira en hundrað manns, þar á meðal börnum, á flekum í grennd við eyjarnar sem eru í 145 kílómetra fjarlægð frá Haítí. Haítíbúarnir verða ekki sendir til baka eins og gjarnan er gert þegar um flóttamenn er að ræða. 30.1.2010 12:10
Búast má við fleiri aftökum „Ef við sýnum veikleika nú þá verður framtíðin verri,“ sagði Ahmed Jannati, einn af harðlínuklerkunum í Íran við föstudagsbænir í gær. „Það er ekkert rúm fyrir íslamska miskunnsemi.“ 30.1.2010 06:00
Þyrlur sendar að bjarga fólki af Machu Picchu Hátt í átta hundruð ferðamenn biðu þess í gær að vera bjargað frá Machu Picchu, hinum fornu borgarrústum Inka í Perú. 30.1.2010 06:00
Varði ákvörðun sína um að ráðast á Írak „Ég trúi því í einlægni að heimurinn sé öruggari nú,“ sagði Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, þegar hann bar vitni í gær fyrir breskri rannsóknarnefnd, sem er að fara ofan í saumana á aðdraganda Írakstríðsins. 30.1.2010 04:00
Vilja ekki sjá fanga frá Guantanamo Michael Bloomberg, borgarstjóra í New York, hefur snúist hugur og hvetur nú leiðtoga Demókrataflokksins til að sjá til þess að réttarhöld yfir föngum frá Guantanamo-búðunum á Kúbu verði ekki haldin í New York, eins og 30.1.2010 03:30
Aumingja Tiger Illa þenkjandi náungi hefur fundið leið til þess að græða á Tiger Woods í raunum hans. Það þarf sjálfsagt ekki að rekja í löngu máli af hverju Tiger er í hundahúsinu. 29.1.2010 13:15
Bin Laden gerist umhverfisverndarsinni Hryðjuverkaleiðtoginn Osama bin Laden hefur sent frá sér nýja hljóðupptöku þar sem hann fordæmir Bandaríkin og önnur iðnríki fyrir slælega frammistöðu í umhverfismálum og kennir þeim um hlýnun jarðar. Þarna kveður við nokkuð nýjan tón hjá Osama sem hingað til hefur beint athygli sinni að heimsvaldastefnu Bandaríkjanna og framferði þeirra í Mið-Austurlöndum. 29.1.2010 12:56
-Við erum á hausnum Hin nýja ríkisstjórn Suður-Ameríkuríkisins Honduras tók við völdum í gær og lét það verða sitt fyrsta verk að lýsa því yfir að landið væri gjaldþrota. 29.1.2010 10:05
Íslendingarnir skutu okkur í kaf Norska handboltaliðið er niðurdregið eftir tapið gegn Íslandi. Håvard Tvedten fyrirliði liðsins segir í viðtali við Aftenposten að þeir hafi aldrei átt neinn möguleika. 29.1.2010 09:53
Skutu tugi hunda til bana Lögreglan á Nýja Sjálandi hefur gert upptæk vopn tveggja manna sem skutu tugi hunda nágranna síns til bana. 29.1.2010 09:46
Stríðsglæpir Hamas Hamas samtökin frömdu stríðsglæpi með árásum á Ísraelskan almenning að mati samtakanna Mannréttindavaktin. 29.1.2010 08:04
Blair svarar fyrir innrásina í Írak Sérskipuð rannsóknarnefnd fjallar nú um aðdraganda íraksstríðsins og réttlætingu á því að Bretar skyldu taka þátt í því. 29.1.2010 08:01
Nauðgarar í hópum um Port au Prince Þegar jarðskjálftinn reið yfir Haítí sluppu yfir sjöþúsund glæpamenn úr fangelsum í höfuðborginni Port au Prince. 29.1.2010 07:55
Erlendur her áratug í viðbót Leiðtogar sjötíu ríkja komu saman í London í gær til að ræða framtíð Afganistans. Þar var samþykkt að alþjóðlegu hersveitirnar í Afganistan muni byrja að afhenda heimamönnum umsjón með öryggismálum í friðsamari héruðum landsins öðru hvoru megin við næstu áramót. 29.1.2010 04:00
Heitir því að stokka upp fjármálakerfið „Stjórn okkar hefur beðið nokkra pólitíska ósigra þetta ár, og suma þeirra voru verðskuldaðir,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti í stefnuræðu sinni, sem hann flutti í fyrrinótt, þeirri fyrstu sem hann flytur á forsetaferli sínum. 29.1.2010 03:00
Tveir teknir af lífi í Íran Tveir mótmælendur voru teknir af lífi í Íran í gær. Þeir voru dæmdir fyrir að reyna að steypa klerkastjórninni í mótmælum í júní fyrra. Þeir kváðu vera fyrstu mótmælendurnir sem teknir hafa verið af lífi frá því að mótmælin voru kveðin niður. 29.1.2010 01:00
Clinton í Davos: Kallar eftir aukinni hjálp á Haítí Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna Bill Clinton er nú staddur í Davos í Sviss þar sem áhrifamestu menn heimsins hittast á árlegum fundi. Í ræðu sem Clinton hélt í dag varaði hann menn við að gleyma neyðinni á Haítí og brýndi fyrir fólki að enn væri mikil þörg á aukinni aðstoð í landinu sem nú jafnar sig á afleiðingum jarðskjálftans sem reið yfir fyrir um hálfum mánuði. 28.1.2010 21:09
Höfundur Bjargvættarins í grasinu er látinn Bandaríski rithöfundurinn JD Salinger lést í dag, 91 árs að aldri. Salinger er frægastur fyrir bók sína The Catcher In The Rye, sem hét Bjargvætturinn í grasinu í þýðingu Flosa Ólafssonar. Salinger forðaðist sviðsljósið eins og heitan eldinn og lést hann á heimili sínu í New Hampshire af eðlilegum orsökum, að sögn sonar hans. 28.1.2010 20:00
Forsetinn útskýrir kreppuna fyrir Aröbum Arabíska sjónvarpsstöðin Al Jazeera ætlar að taka á móti Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á mánudaginn til að ræða efnahagskreppuna og ákvörðun sína um að synja Icesave lögunum staðfestingar. 28.1.2010 15:29
Saudar reka uppreisnarmenn af höndum sér Saudi-Arabar segja að þeir hafi hrakið uppreisnarmenn í Yemen frá landamærum ríkjanna eftir þriggja mánaða harða bardaga. 133 saudi-arabiskir hermenn féllu í átökunum. 28.1.2010 12:32
Hinn síðasti Bonanza feðganna látinn Sjónvarpsþættirnir um Cartwright kúreka-feðgana á búgarðinum Ponderosa nutu mikilla vinsælda á sjötta áratug síðustu aldar. 28.1.2010 10:23
Rekinn fyrir góðverk Breski póstburðarmaðurinn átti að baki tíu ára flekklausan feril. Hann þekkti orðið persónulega margt af því fólki sem bjó í því hverfinu þar sem hann bar út póstinn. 28.1.2010 09:23
Fimmtán daga í húsarústum Sextán ára stúlku var í gær bjargað úr húsarústum á Haítí eftir að hafa legið þar grafin í fimmtán daga. 28.1.2010 09:17
Vilja kaupa frið af talibönum Ætlunin er að kaupa talibana til friðar með því að bjóða þeim ræktarland og peninga til þess að koma undir sig fótunum. 28.1.2010 07:58
Töldu innrásina lögbrot Peter Goldsmith, sem var helsti lögfræðiráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar þegar tekin var ákvörðun um að ráðast á Írak, segist hafa skipt um skoðun á síðustu metrunum. 28.1.2010 06:00
Segist vinna að breyttum starfsháttum Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, flutti í nótt sína fyrstu stefnuræðu síðan hann tók við forsetaembætti. 28.1.2010 04:00
Svínshöfuð sett í tvær moskur Gestir tveggja moskna í Kúala Lúmpúr í Malasíu gengu fram á afskorin svínshöfuð þegar þeir gengu til bæna í gær. Atburðurinn kemur í kjölfar árása á kirkjur og deilur um notkun kristinna á orðinu „Allah“ fyrir guð, hefur fréttastofa AP eftir staðaryfirvöldum. 28.1.2010 03:30
Sáttatillögunni dræmt tekið Forsætisráðherrar Bretlands og Írlands, þeir Gordon Brown og Brian Cowen, fengu lítinn hljómgrunn meðal bæði kaþólskra og mótmælenda á Norður-Írlandi þegar þeir kynntu málamiðlunartillögu sína í gær. 28.1.2010 03:00
Ósiðlegt að fjárfesta í tóbaki Eftirlaunasjóður norska ríkisins, Olíusjóðurinn svokallaði, ætlar að selja hlutabréf sín í sautján tóbaksframleiðslufyrirtækjum fyrir alls 1,8 milljarða evra og lýsir því jafnframt yfir að hann muni ekki fjárfesta framvegis í tóbaksframleiðslu. Frá þessu er greint á vef Landssamtaka lífeyrissjóða. 28.1.2010 03:00
Börnin eru í mestri hættu Þúsundir barna, sem lifðu af jarðskjálftann á Haítí, eru munaðarlaus og eftirlitslaus á vergangi í rústum höfuðborgarinnar Port-au-Prince. 28.1.2010 02:00
Nýr iPad lítur dagsins ljós Steve Jobs, forstjóri tæknifyrirtækisins Apple, svipti hulunni af nýrri tölvu á tækniráðstefnu í San Fransisco í Bandaríkjunum í gær ásamt því að kynna netbókaverslunina iBooks. 28.1.2010 01:00
Flugslys: Flugritarnir fundnir Svarti kassinn svokallaði, eða flugritar farþegaflugvélarinnar sem fórst undan ströndum Líbanons eru fundnir. Vélin, sem var frá Ethiopian Airlines fórst fyrir tveimur dögum síðan og fórust allir 90 farþegar vélarinnar í slysinu. Flugritarnir eru á rúmlega kílómeters dýpi um 10 kílómetrum frá höfuðborginni Beirút. Unnið er að því að reyna að ná flugritunum af hafsbotni. 27.1.2010 22:40
Dýr ostasneið Afgreiðslustúlka hjá McDonalds í Hollandi hefur unnið mál gegn fyrirtækinu. Hún var rekin fyrir að setja ostasneið á hamborgara sem samstarfsmaður keypti, án þess að rukka sérstaklega fyrir hana. 27.1.2010 11:38
Bandaríkin senda drápssveitir til Yemens Yemen er að verða eitt af helstu víghreiðrum al-Kaida utan Afganistans og Pakistans. Hryðjuverkasamtökin reka þar þjálfunarbúðir. 27.1.2010 11:24
Myndband af Eþíópíu vélinni springa á flugi Níutíu manns fórust með Boeing 737 þotu Ethiopian Airlines. Mikið þrumuveður og rigning var í Beirut þegar vélin hóf sig til flugs og hafa verið vangaveltur um að það hafi verið orsök slyssins. 27.1.2010 07:54
Pör geta borgað fyrir svefnrými Flugfélagið Air New Zealand hefur tilkynnt að í apríl muni pörum gefast kostur á að borga fyrir svefnpláss á ódýrasta farrými í nýjum Boeing 777-300 þotum félagsins, að því er fram kemur í frétt á vef BBC. 27.1.2010 03:00