Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segolene Royal vill endurtalningu Segolene Royal hefur farið fram á að atkvæði í leiðtogakjöri franska Sósíalistaflokksina á föstudaginn verði talin aftur. Royal tapaði naumlega fyrir Martine Aubry, borgarstjóra í Lille, en aðeins munaði fjörutíu og tveimur atkvæðum. 23.11.2008 12:07
Segja sjórán í andstöðu við múslimatrú Vopnaðar sveitir uppreisnarmanna Íslamista í Sómalíu hótuðu í morgun að ráðast um borð í olíuflutningaskip sem sjóræningar rændu í síðustu viku og liggur nú fyrir akkeri undan strönd Sómalíu. Sirius Star er þrjú hundruð þúsund tonna olíuskip sem var að flytja olíu frá Sádí Arabíu til Bandaríkjanna. 23.11.2008 10:30
Valdaránstilraun í Gíneu-Bissá Tilraun til valdaráns var gerð í Vestur-Afríkuríkinu Gíneu-Bissá í morgun. Hermenn skutu á heimili forsetans, Jóaó Bernardo Vieira, og kom þá til skotbardaga sem stóð í nokkrar klukkustundir. Tveir lágu í valnum þegar bardaga var lokið. Forsetinn mun hafa sloppið ómeiddur. 23.11.2008 10:20
Hyggst bjarga og skapa 2,5 milljónir starfa á næstu tveimur árum Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, hyggst bjarga og búa til 2,5 milljónir starfa á næstum tveimur árum með því að ráðast í endurbætur á skólum og brúm ásamt því að styðja vel við þróun nýrra orkugjafa og umhverfisvænni bíla. Þessum áformum lýsti Obama í vikulegu útvarpsávarpi á vegum Demókrataflokksins í dag. 23.11.2008 01:01
Leiðtoga Talibana boðið hæli í Sádi-Arabíu Abdullah konungur í Sádi-Arabíu hefur boðið Mullah Mohammad Omar, leiðtoga Talibana í Afganistan, pólitískt hæli að þýska vikuritið Der Spiegel fullyrðir. Talsmaður utanríkisráðuneytis Sáda neitar alfarið að eitthvað sé til fréttinni. 22.11.2008 22:00
Obama heldur áfram að velja innanbúðarfólk Barack Obama tilvonandi Bandaríkjaforseti heldur áfram að velja fólk í lykilstöður. Hvort heldur í ríkisstjórn sína eða sem nánustu samstarfsmenn í Hvíta húsinu. 22.11.2008 20:45
Felldur grunaðan breskan hryðjuverkamann í Pakistan Breskur karlmaður, sem grunaður er um að vera höfuðpaurinn á bak við áform hryðjuverkamanna um að sprengja í loft upp flugvélar árið 2006, var felldur í gær í loftárás Bandaríkjamanna á stað í Norður-Waziristan í Pakistan. 22.11.2008 23:08
Snarpir jarðskjálftar í Indónesíu Jarðskjálfti sem mældist 6,7 á richter varð á eynni Súmötru í Indónesíu í dag. Skjálftans varð vart víða í suðurhluta landssins. Skömmu síðar reið annar sjálfti yfir og var hann að stærðinni 6,3 á richter. 22.11.2008 18:24
Danir fjölga hermönnum í Afganistan Per Stig Moller utanríkisráðherra Danmerkur sagði á fundi með blaðamönnum í dag að danska ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp á næstunni í þinginu þar sem leyfi fæst til að fjölga hermönnum í Afganistan. Nú þegar eru yfir 600 danskir hermenn staddir í landinu. 22.11.2008 14:59
Obama leggur lokahönd á tveggja ára björgunaráætlun Barack Obama, Bandaríkjaforseti, tilkynnti í morgun að hann væri að leggja lokahönd á umfangsmikla tveggja ára björgunaráætlun fyrir efnahag Bandaríkjanna. Henni verið hrundið í framkvæmd við valdaskiptin í janúar. 22.11.2008 12:30
Aubry nýr leiðtogi sósíalista í Frakklandi Martine Aubry, borgarstjóri í Lille, er nýr leiðtogi sósíalista í Frakklandi. Hún hafði betur í baráttu við Segolene Royal, fyrrverandi forsetaframbjóðanda. 22.11.2008 10:07
Carter og Annan ekki hleypt inn í Simbabve Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Kofi Annan, fyrrverandi aðalritara Sameinuðu þjóðanna, hefur verið tilkynnt að þeir fá ekki vegabréfsáritun og leyfi til að heimsækja Simbabve. 22.11.2008 08:31
Clinton þiggur stöðu utanríkisráðherra Hillary Clinton öldungardeildarþingmaður hefur fallist á að taka við stöðu utanríkisráðherra í stjórn Baracks Obama. Þetta hefur bandaríska dagblaðið New York Times eftir nánum samstarfsmönnum hennar. 21.11.2008 20:52
Karlabrjóstahaldarar rjúka út í Japan Japanskt undirfatafyrirtæki hefur sett í sölu línu af brjósthöldurum sérstaklega ætlaða klæðskiptingum. Frá því línan fór í sölu fyrir tveimur vikum er hún orðin ein vinsælasta vara fyrirtæksins. Ein stærsta netverslun Japans, Rakuten, hefur selt fleiri en þrjúhundruð karlabrjóstahaldara, sem kosta um 2800 yen hver, eða um 4200 krónur. 21.11.2008 21:18
Yfirmaður fjármálaeftirlits Kólumbíu segir af sér Yfirmaður fjármálaeftirlitsins í Kólumbíu hefur sagt af sér eftir að upp komst um pýramídasvindl sem hefur kostað fjölmarga Kólumbíumenn mörg hundruð milljónir bandaríkjadala. Forseti landsins hefur beðið þjóðina afsökunar á að ekki hafi verið gripið inn í málið fyrr. 21.11.2008 21:12
Blóðug átök í Mógadisjú Að minnsta kosti fimmtán hafa fallið í blóðugum átökum í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu í dag. Uppreisnarmenn réðust til inngöngu í borgina í dögun og kom þá til átaka þeirra við stjórnarhermenn. 21.11.2008 16:50
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna hné niður í varnarræðu fyrir Bush Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna var fluttur á sjúkrahús í gærkvöld eftir að hann hné niður þar sem hann var að halda ræðu á fundi í Washington. 21.11.2008 09:18
Hillary verður næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna Hillary Clinton verður næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir heimildarmanni innan Demókrataflokksins. 21.11.2008 08:39
Reyndi að nauðga átta konum á 90 mínútum Fimmtán ára Skoti hefur verið dæmdur til fjögurra ára vistar í ungmennafangelsi eftir að hafa ráðist á og reynt að nauðga átta konum á aðeins níutíu mínútum. 21.11.2008 08:34
Lifði án hjartans í 118 daga Fjórtán ára bandarísk stúlka komst af í 118 daga án líffæris sem margir telja meðal þeirra mikilvægari. Hún hafði ekkert hjarta í allan þennan tíma. 21.11.2008 08:31
Spá þverrandi áhrifum Bandaríkjanna Glæpir, hryðjuverk og átök um auðlindir, jafnvel mat og vatn, er meðal þess sem spáð er í kolsvartri skýrslu leyniþjónusturáðs Bandaríkjanna sem birt var í gær. 21.11.2008 08:27
Fyrsta aftaka á vegum Bandaríkjahers í hálfa öld Fyrsta aftakan á vegum Bandaríkjahers síðan 1961 er á dagskrá 10. desember næstkomandi. Þá verður hermaður líflátinn sem sakfelldur var fyrir nauðgun og tvö morð sem áttu sér stað árið 1986. 21.11.2008 08:25
Danir geta fræðst um náungann í nýjum gagnagrunni Danir munu innan skamms geta flett upp öllu sem þá fýsir að vita um náunga sinn í gagnagrunni sem gengur undir nafninu Geomatic. 21.11.2008 08:20
Bretar hvattir til minni garðyrkjustarfa til að bjarga þröstum Þröstum hefur fækkað um sjötíu prósent í borgum og bæjum í Bretlandi á síðustu þrjátíu árum. Bretar eru hvattir til þess að vera latir í garðinum til að bjarga þessu við. 20.11.2008 12:39
Reiknar raunaldur með aðstoð orma Vísindamenn í Kaliforníu segjast nú geta reiknað út raunverulegan líffræðilegan aldur fólks, óháð aldri þess í árum. 20.11.2008 08:40
Lést eftir árekstur við fljúgandi dádýr Dönsk kona á sextugsaldri beið bana í gær þegar hún lenti í árekstri við fljúgandi dádýr á þjóðvegi á Jótlandi. 20.11.2008 08:31
Grunuð um að myrða indverska nunnu Tveir kaþólskir prestar og ein nunna hafa verið handtekin á Indlandi, grunuð um að hafa myrt nunnu árið 1992. 20.11.2008 08:30
Rán á bensínstöð í Noregi Tvítugur maður sem rændi bensínstóð í norska bænum Moholt í Þrándheimi upp úr miðnætti í nótt fannst örskömmu síðar með hjálp leitarhunda. 20.11.2008 08:24
Norskir heróínfíklar hætta meðferð unnvörpum Norskir heróínfíklar sem komnir eru í meðferð hætta henni nú í stórum stíl og er ástandið orðið þannig að 50 prósent fleiri heróínfíklar detta nú út úr meðferðinni en fyrir fimm árum. 20.11.2008 08:20
Danir draga úr aðstoð við börn með sértæka örðugleika Færri börn með sértæka náms- eða hegðunarörðugleika munu njóta aðstoðar sérstakra stuðningsstofnana á borð við sérskóla í Kaupmannahöfn en verið hefur. 20.11.2008 08:18
Tom Daschle verður ráðherra í ríkisstjórn Obama Fjölmiðlar vestanhafs fullyrða að Tom Daschle fyrrum leiðtogi Demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings verði ráðherra í ríkisstjórn Baracks Obama sem sver embættiseið 21. janúar. 19.11.2008 20:23
Standa ráðþrota gagnvart sómölskum sjóræningjum Þrátt fyrir að ráða yfir fullkomnustu herskipum í heimi virðast Vesturlönd standa ráðþrota gagnvart sómölskum sjóræningjum. Þeir ræna hverju skipinu af öðru og hirða tugmilljónir dollara í lausnargjald 19.11.2008 18:56
Obama vill að Gates verði áfram varnarmálaráðherra Barack Obama, tilvonandi Bandaríkjaforseti, hefur beðið Robert Gates um að verða áfram varnarmálaráðherra eftir að sá fyrrnefndi tekur við stjórnartaumunum í Hvíta húsinu á næsta ári. 19.11.2008 18:06
Ræða við sjóræningja um lausnargjald fyrir risaolíuskip Eigendur risaolíuskipsins Sirius Star, sem sjóræningar hertóku úti fyrir ströndum Sómalíu, eiga nú í viðræðum um greiðslu lausnargjalds fyrir skipið. Frá þessu greindi utanríkisráðherra Sádi-Arabíu eftir hádegið. 19.11.2008 15:52
Zawahri segir Obama hafa snúið baki við íslömskum uppruna sínum Ayman al-Zawahri, næstæðsti maður al-Qaida samtakanna, hvatti múslíma til áframhaldandi árása á hin glæpsamlegu Bandaríki eins og hann orðaði það í ávarpi sem birt var í dag. 19.11.2008 14:14
Cheney og Gonzales ákærðir vegna misþyrminga í fangelsum Kviðdómur í Willacy-sýslu í suðurhluta Texas hefur gefið út ákæru á hendur Dick Cheney, varaforseta landsins, og Alberto Gonzales, fyrrverandi dómsmálaráðherra, vegna misþyrminga sem fangar sæta í einkareknum fangelsum. 19.11.2008 13:44
Námsmenn kveiktu Kaliforníuelda Námsmenn kveiktu eldana sem hafa brennt fleiri hundruð hús til kaldra kola í Kaliforníu undanfarna daga. 19.11.2008 13:00
Fjórum skipum rænt á fimm dögum Fjórum skipum hefur verið rænt undan ströndum Sómalíu síðan á laugardag. Þar á meðal er eitt af stærstu skipum heims. 19.11.2008 12:36
Réttarhöld vegna morðsins á Politkovskaju á bak við luktar dyr Réttarhöld yfir þremur mönnum sem ákærðir eru fyrir aðild að morði á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaju fara fram fyrir luktum dyrum. 19.11.2008 11:13
Sómalskir sjóræningjar taka grískt flutningaskip Sómalskir sjóræningjar hertóku í gær grískt flutningaskip á Aden-flóa undan strönd Sómalíu. Gerðist þetta þrátt fyrir herskipaflota sem er á svæðinu sjófarendum til verndar. 19.11.2008 09:49
Downing-stræti umsetið meindýrum Meindýraplága herjar á breska þingið, Downing-stræti og fleiri stjórnarbyggingar í Lundúnum. 19.11.2008 08:37
Glæparannsóknir sem mölur og ryð fá ei grandað Nýjustu kenningar í skordýrafræðum gera fastlega ráð fyrir því að viss tegund mölflugna geti orðið lykillinn að glæparannsóknum í framtíðinni. 19.11.2008 08:31
Löngu úrskurðaður látinn en birtist óvænt Maður frá Chile sem hvarf í hinu blóðuga valdaráni þar árið 1973 og var úrskurðaður látinn árið 1995 birtist í sínum gamla heimabæ í síðustu viku - sprelllifandi. 19.11.2008 08:26
Eldur í norsku elliheimili Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í elliheimili í Birkenes í Suður-Noregi á fimmta tímanum í morgun. Einn maður er alvarlega slasaður eftir brunann en átta öðrum var bjargað út úr húsinu. 19.11.2008 08:19
Handteknir eftir innbrot og morð Fimm Rúmenar eru nú í haldi lögreglu á Suðaustur-Jótlandi, grunaðir um að hafa myrt 76 ára gamlan mann þegar þeir brutust inn til hans í byrjun október. 19.11.2008 08:16