Fleiri fréttir

Vonast til að Rasmussen læri af Obama

Danir binda miklar vonir við að Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra dragi lærdóm af Barack Obama, nýkjörnum Bandaríkjaforseta, í efnahags-, öryggis- og umhverfismálum.

Réttarhöld vegna morðsins á Politkovskaju að hefjast

Réttarhöld vegna morðsins á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaju hefjast í Moskvu í dag þrátt fyrir að morðinginn sjálfur sé enn á flótta. Politkovskaja, sem var harður gagnrýndandi stjórnvalda í Rússlandi og fjallaði um grimmdarverk í stríðinu Tsjetsjeníu, var myrt við heimili sitt í Moskvu fyrir um tveimur árum og eru fjórir menn í haldi vegna morðsins.

Einn af æðstu yfirmönnum ETA handtekinn

Einn af æðstu mönnum aðskilnaðarsamtakanna ETA á Spáni var handtekinn í nótt í suðurhluta Frakklands. Frá þessu greindi franska innanríkisráðuneytið í morgun.

Steranotkun eykst í Danmörku

Notkun anabólískra stera til aukningar vöðvamassa hefur aukist í Danmörku ef marka má niðurstöður nýlegrar könnunar þar í landi.

Jarðskjálfti skekur Sulawesi eyju í Indónesíu

Yfirvöld á Indónesíu hafa afturkalla flóðbylgjuviðvörun vegna tveggja öflugra jarðskjálfta á norðurhluta Súlavesíu eyju síðdegis. Fyrri skjálftinn mældist 7,7 á Richter, sá síðari sex á Richter. Þegar hefur verið gefin út flóðbylgjuviðvörun vegna skjálftanna. Viðvörunarkerfið í Indónesíu hefur verið eflt eftir flóðbylgjuna miklu á öðrum degi jóla 2004 sem varð fjölmörgum að bana.

Sest að samningaborðinu í Austur-Kongó

Laurent Nkunda, leiðtogi skæruliða í Austur-Kongó samþykkti í morgun að setjast að samningaborðinu með stjórnaherrum í Kongó og taka þátt í friðarviðræðum. Nkunda átti fund með Obasanjó, forseta Nígeríu sem reynt hefur að miðla málum í blóðugum átökum stjórnarhers og uppreisnarmanna í austurhluta Kongó.

Bílsprengja í Írak

Bílsprengja sem sprakk í Diyala héraði í Írak í dag varð 15 mönnum að aldurtila og slasaði að minnsta kosti 20. Að sögn lögreglu sprakk sprengjan við varðstöð lögreglu enda létust sjö lögreglumenn í tilræðinu. Al Kaída samtökin hafa enn sterka stöðu í héraðinu sem er norðan við Bagdad.

Enn eitt sjóránið undan Sómalíuströndum

Sjóræningjar réðust í gær á Japanskt flutningaskip undan ströndum Sómalíu, að því er Suður-Kóresk stjórnvöld segja. 23 eru í áhöfn skipsins og eru þeir allir í haldi sjóræningjanna. Áhafnarmeðlimir eru frá Suður-Kóreu og Fillipseyjum en ekki er vitað um ástand þeirra og líðan að svo stöddu. Skipið er tuttugu þúsund tonn að stærð og var það að flytja efnavörur.

Skógareldar brenna enn í Kalíforníu

Slökkviliðsmenn í Kalíforníu berjast enn við skógarelda í Montecito sýsly í Los Angeles. Rúmlega tvö þúsund manns berjast við eldana sem loga á tveimur stöðum en hætta er talin á því að Los Angeles verði rafmagnlaus nái eldarnir að raforkuveri í nágrenninu. Mikill vindur er á svæðinu sem gerir slökkvistarf erfitt og nær ómögulegt er að beita flugvélum og þyrlum við slökkvistarfið.

Geimfarar drekka endurunnið þvag

Á verkefnalista geimfaranna sem lögðu af stað með geimferjunni Endeavour í gær áleiðis að alþjóðlegu geimstöðinni verður að koma fyrir nýju kerfi sem endurvinnur allt vatn um borð og gerir það drykkjarhæft. Þegar talað er um allt vatn um borð er einnig átt við þvagið úr geimförunum en þeir munu í framtíðinni drekka það.

Lítið að frétta frá Washington

Óvíst er að nokkur áþreifanleg niðurstaða fáist á leiðtogafundi um alheimskreppuna í Washington í dag. Leiðtogar nítján ríkja, forvígismenn Evrópusambandsins og fulltrúar alþjóðasamtaka sitja fundinn sem hófst í Washington í gærkvöldi.

Kona til æðstu metorða í Bandaríkjaher

Kona komst í fyrsta sinn í gær til æðstu metorða í bandaríska hernum. Ann Dunwoody varð þá fjögurra stjörnu hershöfðingi fyrst kvenna. Hún stjórnar birgðamálum fyrir herinn, hefur yfirumsjón með hergögnum hvers konar.

Tíu létust í bílsprengjuárás í Írak

Tíu manns létust og tugir eru slasaðir eftir að bílsprengja sprakk á bílasölu í norðurhluta landsins í bænum Tal Afar. Bærinn er í Nineveh héraði þar sem skæruliðar á vegum al Kaída hafa látið mikið til sín taka undanfarið.

Tamíltígrum stökkt á flótta

Stjórnarherinn á Srí Lanka segist hafa náð allri vesturströnd landsins á sitt vald og hrakið uppreisnarmenn Tamíltígra á flótta. Talið er að herinn geti innan tíðar sótt af fullri hörku úr þremur áttum að vígi tígranna í Kí-lí-nosjí.

Breskir íhaldsmenn óttast um pundið

Íhaldsmenn í Bretlandi óttast að dagar breska pundsins geti verið taldir vegna aðgerða ríkisstjórnar Verkamannaflokksins til bjargar bresku efnahagslífi. George Osborne, talsmaður Íhaldsflokksins í efnahagsmálum, segir í viðtali við breska blaðið Times í morgun að Gordon Brown, forsætisráðherra, sé of viljugur til að taka lán til að bjarga efnahag landsins.

Obama mun funda með McCain á mánudag

Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, mun hitta öldungadeildarþingmannin og fyrrverandi mótframbjóðanda sinn, John McCain, næstkomandi mánudag.

Upplýst um dulnefni Baracks Obama

Bandaríska leyniþjónustan hefur meðal annars það hlutverk að gæta öryggis forsetans, fjölskyldu hans og háttsettra embættismanna.

NASA birtir myndir af plánetum í öðru sólkerfi

NASA birtir í dag í fyrsta sinn myndir af plánetum utan okkar sólkerfis. Með allra nýjustu tækni í ljósmyndun með stjörnusjónauka hefur vísindamönnum NASA auðnast að ná myndum af fjórum plánetum sem nýlega voru uppgötvaðar utan okkar sólkerfis.

Hittir loksins Dalai Lama

Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti, mun funda með Dalai Lama, andlegum leiðtogi Tíbeta, í næsta mánuði í Póllandi.

Fritzl ákærður fyrir morð

Austurríkismaðurinn Josef Fritzl hefur verið ákærður fyrir morð á einu þeirra sjö barna sem hann eignaðist með dóttur sinni. Það lést skömmu eftir fæðingu, í kjallaranum þar sem Fritzl hélt dótturinni fanginni í 24 ár.

Talibanar vilja stöðva aftökur - annarra

Afganistan hóf aftökur á nýjan leik í þessari viku eftir árs hlé. Níu manns hafa verið teknir af lífi fyrir morð, nauðganir og mannrán. Þrír talibanar voru í þeim hópi.

Danskur hermaður dæmdur fyrir voðaskot

Dómstóll í Hilleröd í Danmörku dæmdi í dag danskan hermann í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa orðið félaga sínum í hernum að bana í búðum Dana í Afganistan fyrr á árinu.

Úrgangi fargað á laun á Ítalíu

Ítölsk heilbrigðisyfirvöld rak í rogastans þegar þau uppgötvuðu iðnaðarúrgang sem hafði verið grafinn niður með leynd í úthverfi Napólí.

Norskir innbrotsþjófar slá af kröfunum

Óprúttnir aðilar sjá sér víða leik á borði og Norðmenn horfa nú upp á öldu rána og þjófnaða sem enginn eðlilegur þjófur hefði látið standa sig að fyrir aðeins nokkrum vikum.

Hvalir áfram kvaldir

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að sjóherinn megi nota bergmálstæki á æfingum sínum undan suðurströnd Kaliforníu án takmarkana vegna hvala.

Ahmadinejad brýnir Obama

Allir sem vinna gegn írönsku þjóðinni verða kramdir, að sögn Mahmoud Ahmadinejad forseta Írans sem segist hafa meiri áhyggjur af stefnu bandarískra stjórnvalda gagnvart Íran heldur en hver fari með völd í Hvíta húsinu.

Sjá næstu 50 fréttir