Fleiri fréttir

Börn innflytjenda sein í danska skóla

Algengt er að börn innflytjenda í Danmörku skili sér seint og illa í skólann að afloknum sumarfríum. Í haust mættu 214 börn ekki fyrstu skóladagana af 13.500 sem sérstaklega var athugað með.

Barbie hvað?

Leikföng barna eru margvísleg. Og litast af umhverfinu. Þessi litla stúlka í Írak leikur sér með það sem hún kannski sér mest. Leikfangaútgáfu af hríðskotariffli.

La Coste tímabilið í Texas

Krókódílum til nokkurrar armæðu er nú veiðitímabil þeirra í Anahuac í Texas. Í þeim hluta ríkisins er veiðitímabilið aðeins tuttugu dagar.

Tveir fellibylir á leiðinni

Heitur sjór og lágur loftþrýstingur munu valda þrem hitabeltisstormum á Atlantshafi/Karíbahafi í þessum mánuði, að sögn fellibyljarannsóknarstöðvar Háskólans í Kólóradó í Bandaríkjunum.

Eftirlitsmenn komnir til Georgíu

Rússar eru tregir til þess að yfirgefa allar stöðvar sínar í Georgíu þrátt fyrir að hafa undirritað vopnahléssáttmála sem felur í sér að þeir eigi að flytja þaðan allt sitt herlið.

Fimmtán látnir eftir bruna í klámbíói

Að minnsta kosti 15 eru látnir og 10 slasaðir eftir eldsvoða í klámmyndabíói í japönsku borginni Osaka í nótt. Einn hefur verið handtekinn grunaður um að hafa borið eld að dagblöðum með þeim afleiðingum að kviknaði í húsinu.

Tók samviskuna fram yfir eigin hag

Atvinnulaus byggingaverkamaður í Þýskalandi hefur ratað á forsíður blaða þar í landi eftir að greint var frá því að hann hefði fundið mikið fé og afhent það yfirvöldum.

Forseti Mexíkó vill enda eiturlyfjaóöld

Forseti Mexíkó hefur lagt öryggisáætlun fyrir þing landsins með það fyrir augum að binda endi á þá óöld sem ríkt hefur í landinu vegna átaka fíkniefnahringja.

Enn deila fylkingarnar í Zimbabwe

Robert Mugabe og Morgan Tsvangirai funduðu í dag um skiptingu ráðuneyta í hinni nýju þjóðarstjórn og lauk fundinum án samkomulags.

Bush boðar nýja björgunaráætlun

Sérfræðingar á markaði vona að versta niðursveifla á mörkuðum í tuttugu ár hafi kennt Bandaríkjaþingi lexíu og það samþykki nýtt neyðarsjóðsfrumvarp fyrir lok vikunnar.

Höfrungar settir í megrun

Höfrungar í sædýrasafni í Tokyo eru að komast í form aftur eftir að hafa verið settir á megrunarkúr.

Sjóræningjar berjast innbyrðis

Þrír sómalskir sjóræningjar biðu bana í innbyrðis skotbardaga um borð í úkrainsku skipi sem þeir rændu í síðustu viku.

„Afsakaðu ég sagaði af mér handlegginn“

Breskur maður sem sagaði af sér handlegginn fyrir neðan olnboga bankaði í rólegheitum upp hjá næsta nágranna sínum og sagði; „Afsakaðu, ég sagaði af mér handlegginn, gætir þú hjálpað?"

Páfagarður verður vistvænni

Verið er að koma fyrir 2700 sólarrafhlöðum á þaki Páfagarðs í Róm. Með því sparar Páfagarður bæði peninga og verður vistvænni.

Nýr yfirmaður pakistönsku leyniþjónustunnar

Pakistanska leyniþjónustan hefur fengið nýjan yfirmann, hershöfðingjann Ahmed Shujaa Pasha sem áður var einn af æðstu stjórnendum hersins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá pakistanska hernum í gær.

180 tróðust undir á Indlandi

Að minnsta kosti 180 manns létu lífið þegar þeir tróðust undir þegar skelfing greip um sig við musteri hindúa í grennd við Jodhpur á Indlandi í dag.

Skelfing um borð þegar hreyfill bilaði

Skelfing greip um sig í Dash 400 flugvél norska flugfélagsins Wideröe þegar bilun varð í hreyfli á leiðinni frá Þrándheimi til Kaupmannahafnar.

Bilun í Hubble frestar leiðangri fram á 2009

Leiðangur geimfara að Hubble-sjónaukanum, sem skjóta átti af stað með geimferjunni Atlantis eftir hálfan mánuð, hefur verið settur á ís fram á næsta ár eftir að óvænt bilun kom upp í sjónaukanum um helgina.

Evrópusambandið ávítar Bandaríkin

Talsmaður Evrópusambandsins sagði í dag að Bandaríkin yrðu að axla þá sérstöku ábyrgð sem þau bæru á því að leysa efnahagskreppuna sem nú herjar á heimsbyggðina.

Palestínumenn bítast enn

Ekki er mikill sáttatónn í félögum Hamas og Fatah samtakanna þótt þau hafi lofað því að leita sameiningar á fundum sem haldnir verða í Kaíró á komandi vikum.

Mun gera allt til að bjarga breskum mörkuðum

Breski forsætisráðherrann Gordon Brown segist grípa til allra ráða sem þurfi til að halda breskum fjármálamörkuðum á réttum kili eftir að Bandaríkjaþing hafnaði björgunarsjóðnum.

Hvít jól á Mars?

Ekki er útilokað að hvít jól verði á Mars þótt sennilega verði ekki mörg vitni að þeim. Vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA hafa nú í fyrsta sinn orðið vitni að snjókomu á rauðu plánetunni

Hópslagsmál í Tromsø

Lögreglan í Tromsø í Noregi fékk tilkynningu um hópslagsmál í miðbænum þar um tvöleytið í nótt.

Bush vonsvikinn með fulltrúadeildina

George Bush Bandaríkjaforseti er afar vonsvikinn með að fulltrúadeild Bandaríkjaþings felldi fyrr í dag frumvarp um áætlun bandarískra stjórnvalda til bjargar fjármálakerfinu. Þetta hefur talsmaður Hvíta hússins eftir forsetanum.

Fundu tvö börn í frysti í Maryland

Lögregla í bænum Lusby í Maryland í Bandaríkjunum hefur handtekið 43 ára gamla konu eftir að lík af tveimur börnum fundust í frysti á heimili hennar.

Björgunaráætlunin felld

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings felldi fyrir stundu frumvarp um áætlun bandarískra stjórnvalda til bjargar fjármálakerfinu. Atkvæðagreiðslan hefur verið stöðvuð og standa samningaviðræður yfir um næstu skref.

88 prósent ofveiði úr stofnum ESB

Ráðherrar Evrópusambandsins hóf í dag umræður um hvernig megi endurbæta fiskveiðistefnu sambandsins frá og með árinu 2012.

Múslimar kveðja Ramadan

Milljónir pílagríma halda nú hátíðlega síðustu vikuna í hinum helga mánuði Ramadan.

Risa glerpíramídi reistur í París

Í næstum tuttugu ár hafa Parísarbúar muldrað gremjulega yfir litla glerpíramídanum sem reistur var fyrir framan Louvre safnið.

Fórnarlömb í Kauhajoki skotin allt að 20 sinnum

Allir þeir sem létust í fjöldamorðunum í iðnskólanum í Kauhajoki í Finnlandi í síðustu viku voru skotnir að stuttu færi. Sum fórnarlambanna reyndust hafa verið skotin allt að 20 sinnum.

Óvæntir nágrannar

Skyldi honum nokkuð hafa brugðið eiganda þessa pena litla húss þegar hann leit út um bakgluggann hjá sér og sá að þar var allt í einu komin risastór blokk.

Púsluðu sig inn í heimsmetabókina

Fimmtán þúsund púsláhugamenn hafa nú lokið við að púsla saman stærsta púsluspili heims sem vitaskuld er staðsett í Ravensburg í Þýskalandi, heimabyggð hins góðkunna púslframleiðanda Ravensburger AG.

Sjá næstu 50 fréttir