Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enginn augljós sigurvegari í Úkraínu Kjörstöðum hefur verið lokað í Úkraínu í þriðju þingkosningum í landinu á þremur árum. Útgönguspár segja engan afdráttarlausan sigurvegara. Þær sýna að flokkur forsetans Viktor Yushchenko hafi nauman meirihluta yfir flokki forsætisráðherrans Viktor Yanukovych. Blásið var til kosninganna til að leysa pólitíska deilu á milli mannanna tveggja. 30.9.2007 21:50
Gyðingar æfir vegna Nazi rúmteppalínunnar Leiðtogar gyðingasamfélagsins á Indlandi hafa látið í ljós reiði vegna nýrrar rúmteppaalínu sem kölluð er Nazi Collection. Húsgagnafyrirtækið er staðsett í Mumbai og notar hakakrossa í kynningarskyni. Framleiðendurnir segja nafnið standa fyrir New Arrival Zone for India og sé ekki ætlað að láta í ljós gyðingahatur. Gyðingar eru æfir vegna þessa og segjast munu kæra fyrirtækið. 30.9.2007 20:49
Þrýst á Brown um kosningar Eftir innan við 100 daga í embætti gæti Gordon Brown forsætisráðherra Breta þurft að taka þá afdrifaríku ákvörðun hvort blása eigi til þingkosninga. Íhaldsmenn hvöttu forsætisráðherrann mjög til þess á flokksþingi sínu í Blackpool í dag. Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur Brown mikilla vinsælda og hefur töluvert forskot á David Cameron keppinaut sinn úr Íhaldsflokknum. 30.9.2007 17:25
Bresk hjón fengu 11 milljón króna símreikning Breskum hjónum brá heldur betur í brún þegar símreikningur upp á 11 milljónir íslenskra króna datt inn um lúguna hjá þeim. Dawn og Tyrone Chadwich búa í bænum Gronant skammt frá Liverpool. Þegar Dawn opnaði reikninginn kom í ljós að sjö mínútna símtal til Chester, sem er rúmlega fimmtíu kílómetra í burtu, kostaði níu og hálfa milljón, fyrir utan virðisaukaskatt. 30.9.2007 16:48
Búist við sigri Yanukovych í Úkraínu Búist er við að flokkur Viktors Yushchenkos forseta Úkraínu bíði afhroð í þingkosningunum sem fara fram í landinu í dag. Flokki forsætisráðherrans, Viktors Yanukovych, er hins vegar spáð stærstum hluta atkvæða í útgönguspám. 30.9.2007 14:54
13 létust í sprengjuárás í Tyrklandi Tala látinna eftir sprengjuárás í suðausturhluta Tyrklands í gærkvöldi er nú komin í 13 samkvæmt upplýsingum þarlendra embættismanna. Sjö öryggisverðir og fimm borgarar létur lífið og tveir slösuðust í árásinni. Lík sjö ára gamals drengs fannst svo við litla rútu sem uppreisnarmennirnir réðust að. Drengurinn var sonur annars fórnarlambs árásinnar. 30.9.2007 14:31
Amma fæddi eigin barnabörn Fimmtíu og eins árs gömul brasilísk kona fæddi tvíbura sem eru hennar eigin barnabörn. Rosinete Serrao var staðgöngumóðir fyrir dóttur sína Claudiu Michelle sem getur ekki átt börn. Tvíburarnir, Antonio Bento og Vitor Gabriel, fæddust heilbrigðir og þurftu enga sérstaka læknisaðstoð. Þetta er fyrsta tilfellið í heiminum þar sem kona gengur með tvíbura sem eru barnabörn hennar. 30.9.2007 13:57
Úkraína - Kosningar leysa ekki stjórnarkreppu Úkraínumenn gengu til þingkosninga í dag, en skoðanakannanir benda ekki til þess að þær verði til að leysa stjórnarkreppu sem hefur verið í landinu undanfarna mánuði. Forseti Úkraínu, Viktor Jústsénko, greiddi atkvæði með fjölskyldu sinni í morgun. Hann komst til valda í appelsínugulu byltingunni svokölluðu fyrir tæpum þremur árum. 30.9.2007 13:16
Drápu 12 friðargæsluliða í Darfur Tólf friðargæsluliðar á vegum Afríkubandalagsins í Darfur í Súdan létust í árás á herbúðir bandalagsins í dag. Tuttugu og fimm manns slösuðust. Þetta er mesta mannfall í röðum friðargæsluliða bandalagsins frá því þeir komu til landsins árið 2003. 30.9.2007 13:05
Segir þúsundir látna í Mjanmar Ofursti úr stjórnarhernum í Mjanmar segir að þúsundir manna hafi fallið í árásum hersins á stjórnarandstæðinga undanfarna daga. Norskur blaðamaður, sem er staddur í frumskóginum á landamærum Tælands og Mjanmars, segir að ofurstinn hafi neitað að ráðast á munka og sé nú flúinn með fjölskyldu sína. Hann sækist eftir hæli í Noregi. 30.9.2007 12:41
Rekin húshjálp grunuð um rán Madeleine Breska lögreglan leitar stúlku sem rekin var frá Mark Warner sumarhúsakeðjunni eftir allsérstaka ábendingu frá Karli Bretaprins. Nafnlaus tölvupóstur barst skrifstofu hans þar sem því er haldið fram að Madeleine hafi verið rænt af fyrrum húshjálp Mark Warner keðjunnar í Praia da Luz. Þar segir að stúlkan hafi rænt Madeleine í hefndarskyni fyrir fyrirtækið. 30.9.2007 11:21
Skjálftar í Kyrrahafi Snarpur jarðskjálfti varð í Kyrrahafi um 500 kílómetra suðvestur af Nýjasjálandi í morgun en engar fréttir hafa borist af neinum skaða og yfirvöld telja ólíklegt að hann hafi valdið flóðbylgju. Skjálftinn var 7,4 stig. 30.9.2007 10:34
Anand nýr heimsmeistari í skák Indverjinn Vishwanathan Anand er nýr heimsmeistari í skák. Hann varð efstur með níu stig á átta manna heimsmeistaramóti sem fram fór í Mexíkóborg. 30.9.2007 10:33
Gambari hitti Suu Kyi í morgun Sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Mjanmar, Ibrahim Gambari, hitti í morgun leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem er í stofufangelsi. Gambari kom til Yangon stærstu borgar Mjanmar í morgun. 30.9.2007 09:30
Baráttan á réttri braut Baráttan við alnæmi er komin á rétta braut í Suður-Afríku. Þetta segir formaður læknafélagsins þar í landi og bætir við að Íslendingar geti lagt margt að mörkum í því verkefni. 29.9.2007 19:00
Niðurrif hafið Niðurrif kjarnorkuvinnslustöðvarinnar í Sellafield á Englandi hófst í dag. Tveir 88 metra háir vatnskæliturnar voru felldir með töluverðu sprengiefni. 29.9.2007 18:45
Háttsettur al-Kaída liði felldur Bandarísk hermálayfirvöld segjast hafa fellt háttsettan liðsmann al-Kaída í Írak í vikunni. Írakar segja almenna borgara hafa falliði með honum - því neita Bandaríkjamenn. 29.9.2007 18:45
Sprengja fellir 27 hermenn í Kabúl Tuttugu og sjö afghanskir hermenn létust og 21 slasaðist þegar kröftug sjálfsmorðssprengja sprakk í strætisvagni í Kabúl höfuðborg Afghanistan í dag. Strætisvagninn fór í tvennt við sprenginguna og vitni lýstu því hvernig lík dreyfðust í kringum brakið. Talebanar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni, sem er næst mannskæðasta árás í landinu síðan 2001. 29.9.2007 16:38
12 slasast í sprengingu á Maldíveyjum Sprengja sprakk í Male höfuðborg Maldíveyja í Indlandshafi í dag með þeim afleiðingum að 12 ferðamenn slösuðust. Sprengingin varð nálægt mosku við almenningsgarðinn Sultan Park sem er vinsæll ferðamannastaður. 29.9.2007 16:13
Örstutt netsamband í Mjanmar í dag Internetsamband var sett aftur á í skamma stund í Mjanmar í dag. Netið hefur legið niðri síðan snemma í gær og er talið að herstjórnin hafi lokað fyrir aðgang almennings af ótta við að myndir af ofbeldi gegn mótmælendum næðu augum umheimsins. Í tvo klukkutíma í dag gátu tölvunotendur skoðað innlendar vefsíður og sent tölvupóst áður en lokað var fyrir sambandið aftur. 29.9.2007 14:41
Ríki heims staðfesti mannréttindi fatlaðra Hart er þrýst á ríki heims að skrifa undir og staðfesta alþjóðasamning um mannréttindi fatlaðra. Samkvæmt samningnum geta einstaklingar og hópar kært ríki til eftirlitsnefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna telji þeir á sér brotið. 29.9.2007 13:30
Fjármagna skóla fyrir flóttamenn í Jórdaníu Íslendingar ætla fjármagna byggingu skóla fyrir börn íraskra flóttamanna í Jórdaníu. Þannig ætlar ríkisstjórina að hjálpa til við að linna þjáningar írösku þjóðarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í gærkvöldi. Þar fjallaði hún meðal annars um nýlega heimsókn sína til Miðausturlanda. 29.9.2007 13:00
Sendifulltrúi SÞ í Mjanmar Sérlegur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna er kominn til Mjanmar til að ræða við herforingjastjórnina þar um ástandið í landinu. Mótmæli gegn herforingjunum héldu þar áfram í morgun. 29.9.2007 12:07
Vill að Ólympíuleikarnir verði notaðir gegn Kína Lönd Evrópusambandsins ættu að sniðganga ólympíuleikana í Peking árið 2008 ef Kína grípur ekki í taumana gegn ástandinu í Mjanmar. Þetta er álit Edward McMillan-Scott aðstoðarforstjóra Evrópuþingsins sem vill að Gordon Brown beiti sér í málinu. 29.9.2007 11:19
Þögult á götum Mjanmar Þögult var á götum Mjanmar í morgun. Þar hefur komið til blóðugra átaka síðustu daga vegna mótmæla gegn herforingjastjórn landsins. Her- og lögreglumenn hafa tekið hart á mótmælendum síðustu þrjá daga. Ekki er vitað með vissu hve margir hafa fallið í átökunum. 29.9.2007 10:03
Fyrirburi dafnar vel Kimberly Müeller fæddist 15 vikum fyrir tímann og vó þá rétt rúma mörk. Í dag - hálfu ári - síðar er hún komin heim og dafnar vel. Læknar segja að ekki komi nærri því strax í ljós hvort hún hafi hlotið varanlegan skaða. 28.9.2007 20:00
Blackwater í bobba Bandarísk þingnefnd gagnrýnir harðlega starfsemi vopnaðra verktaka í Írak, sem m.a. eru sakaðir um að hafa myrt ellefu óbreytta Íraka. Um hundrað þúsund vopnaðir verktakar eru í landinu. 28.9.2007 18:30
Kaupa ekki skýringar herforingja Talið er að tugir eða jafnvel um hundrað manns hafi verið felldir í mótmælum í Mjanmar síðustu daga. Japönsk yfirvöld ætla að senda fulltrúa til landsins til að rannsaka morð á japönskum fréttaljósmyndara í mótmælunum. 28.9.2007 17:59
Flugdólgur dæmdur í 12 mánaða fangelsi Farþegi í Boeing 757 þotu í eigu ferðaskrifstofunnar Thomas Cook hefur verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi eftir slagsmál við áhöfn þotunnar sem vildi ekki leyfa honum að reykja í 33 þúsund feta hæð. Stephen Robinson réðist á flugþjón í fullsetinni vélinni sem var á leið frá Antalya í Tyrklandi til Newcastle á Englandi. Áhöfnin greip til þess ráðs að handjárna manninn sem er fimmtíu og þriggja ára. 28.9.2007 16:44
Ásakanir um greftrun Madeleine 'fáránlegar' Talsmaður McCann hjónanna vísar algjörlega á bug ásökunum portúgalskra fjölmiðla um að hjónin hafi grafið lík Madeleine í ferð sem þau fóru til Spánar þremur mánuðum eftir að stúlkan hvarf. Fréttir segja að portúgalska lögreglan sé nú að rannsaka tvo klukkutíma í ferðinni þar sem ekki er vitað um ferðir hjónanna og þau hefðu getað losað sig við lík stúlkunnar. 28.9.2007 15:16
Reykingar ökumanna á válista Ökumenn sem reykja við akstur í Bretlandi gætu átt von á ákæru ef sannast að reykingarnar hafi haft áhrif á öryggan akstur þeirra. Nýtt ákvæði í umferðarlögum um þjóðvegi kveður á um að lögreglumenn geti handtekið ökumenn vegna þessa. Þetta er í fyrsta sinn sem reykingar komast á lista atvika sem trufla ökumenn. 28.9.2007 14:16
Vó aðeins 300 grömm Foreldrar þýsku telpunnar Kimberly eru himinlifandi með það að geta loksins tekið barn sitt með sér heim af sjúkrahúsinu. Kimberly fæddist fyrir hálfu ári - þá 15 vikum fyrir tímann. Hún vó þá aðeins 300 grömm, rétt rúma 1 mörk. 28.9.2007 13:15
Bréfasprengjumaðurinn er hryðjuverkamaður Umsjónamaður í breskum skóla var í dag fundinn sekur um að senda sjö bréfasprengjur og vera valdur að því að slasa átta manns. Miles Cooper 27 ára íbúi í Cambridge sendi bréfasprengjurnar á heimilisföng í Englandi og Wales fyrr á þessu ári. Fimm þeirra sprungu. Dómarinn sagði hann vera hryðjuverkamann. 28.9.2007 13:08
Smygluðu þremur tonnum af hassi til Finnlands Finnska lögreglan leysti í gær upp eiturlyfjahring sem mun hafa smyglað töluverðu af hassi og kókaíni til landsins árin 2000 til 2006. 28.9.2007 13:00
Musharraf má bjóða sig fram Hæstiréttur Pakistans úrskurðaði í morgun að Pervez Musharraf, forseta landsins, væri heimilt að bjóða sig aftur fram til embættisins þó hann væri enn yfirmaður pakistanska hersins. Andstæðingar forsetans kærðu framboð hans á þeim forsendum að honum væri óheimilt að gegna báðum embættum. 28.9.2007 12:55
Concorde hlutir boðnir upp Yfir 800 hlutir úr Concorde flugvélum verða boðnir upp í Toulouse í Frakklandi í dag. Þar á meðal eru hlutir út flugstjórnarklefa vélanna, súrefnisgrímur, lendingarhjól og farangurshurðar auk salernisskála. Uppbðið mun standa í fjóra daga og er til styrktar nýjum flugsafnisem byggt verður í borginni. 28.9.2007 12:40
Minnkandi atvinnuleysi í Þýskalandi Atvinnuleysi í Þýskalandi er minna nú en það hefur verið síðastliðinn tólf ár samkvæmt tölum frá þýsku vinnumálastofnuninni. Alls voru 3,5 milljónir Þjóðverja án atvinnu í septembermánuði. 28.9.2007 11:50
Skjóta aftur að mótmælendum í Mjanmar Hermenn skutu aftur að nokkur hundruð syngjandi mótmælendum í miðborg Yangon í Mjanmar í dag. Fólkið forðaði sér í skjól en engir munkar voru meðal mótmælenda. Öryggissveitir hafa lokað götum og fimm klaustrum með vegriðum og gaddavír. Þannig virðist þeim hafa tekist að halda munkunum frá. Almenningi tekst þó að koma saman í stuttan tíma áður en öryggislögreglan leysir mótmælin upp. 28.9.2007 11:12
Of hávær í bólinu Kona ein í Þýskalandi var rekin af heimili sínu þar sem nágrannar hennar þóttu unaðsstunur hennar vera of háværar. Konan segist sjálf lifa heilbrigðu kynlífi og talar um ofsóknir. 28.9.2007 11:10
Fannst á lífi eftir átta daga í bílflaki Kona sem saknað hafði verið í átta daga fannst á lífi í bíl á botni gils í Bandaríkjunum - á sama tíma og eiginmaður hennar var að taka lygapróf vegna hvarfsins. Lögregla fann bíl konunnar á botni gils við hraðbraut nálægt Seattle í Washington. Tanya Rider var á leið heim úr vinnu þegar hún fór út af veginum og hrapaði sjö metra niður gilið. 28.9.2007 10:28
Átta ára golfari með holu í höggi Átta ára gamall enskur golfari gerði sér lítið fyrir og sló holu í höggi á golfmóti í Suffolk á Englandi í gær. Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi nema að þetta er í þriðja skiptið sem hinn ungi gólfari nær holu í höggi. 28.9.2007 10:03
Loka fyrir internet í Mjanmar Herstjórnin í Mjanmar hefur lokað fyrir aðgang almennings að interneti til að forðast að myndbrot af blóðugum aðgerðum öryggissveita gegn mótmælendum berist um heiminn. Internet kaffihúsum í höfuðborginni Rangoon og öðrum borgum landsins hefur verið lokað. Bloggarar sem nota internetið til að fá meira en fréttir ritstýrðra fréttastöðva í landinu segjast vera í vandræðum með að koma efni á bloggin. 28.9.2007 09:42
Féllu ofan í eiturefnalaug Níu létust í gær þegar gólfflötur í yfirgefnu húsi í miðhluta Kína lét undan með þeim afleiðingum að fólkið féll ofan í holu sem var full af blásýru. Fólkið var samankomið í húsinu til að ræða útför ungs pilts sem hafði fundist látinn í húsinu sama dag. 28.9.2007 09:34
Veirusýking greinist á búgarði á Englandi Breska landbúnaðarráðuneytið upplýsti í gær að greinst hefði hin svokallaða "Bluetongue" veirusýking á búgarði í Suffolk í austurhluta Englands. Er þetta fimmta tilfellið á afar stuttum tíma sem veiran greinist á Englandi. 28.9.2007 08:03
Leigðu þyrlu undir köttinn Ítölsk hjón leigðu þyrlu fyrir um milljón kr. svo hægt væri að flytja heimilisköttinn frá Róm til eyjarinnar Sardínu. Þetta gerðui þau að sögn þar sem kötturinn, Fufi, er bæði flug- og sjóhræddur. 27.9.2007 20:52