Erlent

Rekin húshjálp grunuð um rán Madeleine

Madeleine hvarf 3. maí og hefur ekkert til hennar spurst.
Madeleine hvarf 3. maí og hefur ekkert til hennar spurst. MYND/AFP
Breska lögreglan leitar stúlku sem rekin var frá Mark Warner sumarhúsakeðjunni eftir allsérstaka ábendingu frá Karli Bretaprins. Nafnlaus tölvupóstur barst skrifstofu hans þar sem því er haldið fram að Madeleine hafi verið rænt af fyrrum húshjálp Mark Warner keðjunnar í Praia da Luz. Þar segir að stúlkan hafi rænt Madeleine í hefndarskyni fyrir fyrirtækið.

Breska lögreglan er nú í sambandi við kollega sína í Portúgal vegna þessarar óvæntu ábendingu 150 dögum eftir hvarf stúlkunnar. Í breska dagblaðinu News of the World segir að þrátt fyrir ábendinguna hafi lögreglan í Portúgal dregið úr rannsókninni. Í upphafi hafi eitt þúsund portúgalskir lögreglumenn unnið málinu. Nú séu þeir einungis 20.

Talið er að uppljóstrarinn hafi sent tölvupóstinn eftir að Karl og Camilla lýstu yfir stuðningi við Kate og Gerry McCann. Nú er verið að reyna að komast á snoðir um hver uppljóstrarinn er. Rannsóknarlögreglumenn hafa nú þegar komist að því að nafn fyrrum starfsstúlkunnar er rétt og aðrar upplýsingar í póstinum eru staðfestar.

Hundruð ábendinga hafa borist bresku lögreglunni vegna málsins, en hún segir að þessi sé frábrugðin. Smáatriði sem komi fram sem séu ótrúlega nákvæm.

Clarence Mitchell talsmaður McCann hjónanna segir að þau líti á hverja trúanlega ábendingu hjálpa til við að halda fókusnum á leitinni að Madeleine. Þau vonast til að ábendingin, sem og aðrar ábendingar haldi meiðandi ásökunum á hendur þeim í lágmarki.

Ekki er ljóst hversu langt portúgalska lögreglan er komin í rannsókninni á húshjálpinni sem sögð er portúgölsk. Þó er staðfest að hún var rekin og var mjög ósátt við yfirmenn sína þegar hún hætti. Í tölvupóstinum segir að hún hafi verið ótrúlega bitur og viljað hefna uppsagnarinnar.

Flestir þeirra sem vinna störf í tengslum við viðskiptavini Mark Warner eins og barnfóstrur, lífverðir, tenniskennarar og fólk í gestamóttöku eru ungir Bretar. Portúgalar vinna hins vegar við húshjálp, heinsun, þjónustu og öryggisgæslu.

Þeir sem vinna við húshjálp fá fá lykla að íbúðunum og þær eru þrifnar einu sinni í viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×