Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslensk stúlka var hætt komin í Indónesíu Óttast er að yfir þrjú þúsund manns hafi týnt lífi þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir indónesísku eyna Jövu í nótt. Íslensk stúlka á skjálftasvæðinu prísar sig sæla fyrir að vera heil á húfi. 27.5.2006 20:14
Stakk 28 manns Þýskur unglingur gekk berserksgang í miðborg Berlínar í gærkvöld og særði 28 manns með hnífi. 27.5.2006 15:15
Ennþá spenna á milli Fatah og Hamas Liðsmenn Hamas-samtakanna fylktu liði á Gaza-ströndinni í morgun og létu ófriðlega. 27.5.2006 15:00
Hart barist í Mogadishu Í það minnsta tuttugu hafa týnt lífi í bardögum í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í dag. 27.5.2006 14:13
Saklaust fólk drepið í hefndarskyni Flest bendir til að bandarískir landgönguliðar hafi í nóvember á síðasta ári myrt á þriðja tug íraskra borgara í hefndarskyni, þar á meðal mörg börn. Ódæðin eru sögð þau verstu sem bandaríska herliðið hefur gert sig sekt um í Írak frá því að ráðist var inn í landið. 27.5.2006 13:30
Yfir 2.700 taldir látnir Nú er talið að í það minnsta 2.700 manns hafi týnt lífi þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir indónesísku eyna Jövu í nótt. Miklar skemmdir hafa orðið á húsum á skjálftasvæðinu en engrar flóðbylgju hefur þó orðið vart. 27.5.2006 13:00
Aung San Suu Kyi áfram í stofufangelsi Herforingjastjórnin í Mjanmar hefur ákveðið að framlengja stofufangelsi Aung San Suu Kyi um óákveðinn tíma. 27.5.2006 13:00
Segir réttlætanlegt að myrða Blair Breski þingmaðurinn George Galloway á á hættu að verða sviptur embætti sínu vegna ummæla sem hann lét falla í viðtali við breska tímaritið GQ. 27.5.2006 10:45
Öflugur jarðskjálfti reið yfir indónesísku eynna Jövu Að minnsta kosti 1.700 manns eru taldir hafa týnt lífi þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir indónesísku eynna Jövu í nótt. Miklar skemmdir hafa orðið á húsum á skjálftasvæðinu en engrar flóðbylgju hefur þó orðið vart á svæðinu. 27.5.2006 09:17
Mótmælaganga vegna morða í Belgíu Þúsundir manna gengu um götur í Belgíu í dag til að sýna andstöðu sína við kynþáttahatur. Mótmælagangan er tilkomin vegna morðs á tveggja ára stúlku og barnfóstru hennar þar í landi á dögunum. 26.5.2006 22:00
Þrír palestínskir unglingspiltar létust á Gaza Þrír palestínskir unglingspiltar létust þegar þeir voru að fikta við sprengiefni á Gaza í dag. Þá særðust þrjár erlendar konur í átökum á Vesturbakkanum. 26.5.2006 21:26
Bush og Blair viðurkenna mistök George Bush og Tony Blair viðurkenna að ákvörðunin um innrásina í Írak hafi verið byggð á fölskum forsendum. Þeir segja að fjölmörg mistök hafi verið gerð við uppbyggingu landsins. 26.5.2006 20:45
Loftið er lævi blandið í Dili Á þriðja tug manna liggur í valnum á Austur-Tímor en þar hefur verið afar róstusamt undanfarna daga. 26.5.2006 20:00
Hraunið streymdi upp úr sjávarbotninum Japanskir vísindamenn birtu í dag einstæðar myndir af neðansjávareldgosi skammt norður af Kyrrahafseynni Gvam. 26.5.2006 19:15
Kulajeff fékk ævilangt fangelsi Dómstóll í Rússlandi dæmdi í morgun tsjetsjenskan hryðjuverkamann í ævilangt fangelsi fyrir aðild sína að gíslatökunni í barnaskólanum í Beslan í september 2004. 330 létust í þeim hildarleik, röskur helmingur þeirra börn. 26.5.2006 18:45
Vildi frekar sprengja skemmtistað en flugvöll Upptökur með samtölum manna sem skipulögðu sprengjutilræði á skemmtistaðnum Ministry of Sound í Lundúnum fyrir rúmum tveimur árum voru spiluð í réttarhöldunum yfir þeim í dag. Þar kemur meðal annars fram að forsprakki hópsins ætlaði að fá sér vinnu á staðnum til að auka líkurnar á tilræðið myndi heppnast, auk þess sem honum fannst æskilegra að spregja skemmtistað en flugvöll því öryggisgæslan væri minni. 26.5.2006 17:47
Þrjár erlendar konur særðust í átökum á Vesturbakkanum Átök brutust út þegar mótmæli fóru fram í dag gegn múrnum sem Ísraelsmenn hafa verið að reisa undanfarin misseri á Vesturbakkanum. Fjórir eru sagðir hafa særst í átökunum, einn ísraelskur hermaður og 26.5.2006 17:21
Engar fregnir af mannfalli í Washington Engar fregnir hafa borist af mannfalli eftir að skothvellir heyrðust í bílageymslu hinnar svokölluðu Rayburn-byggingar, í næsta nágrenni við þinghúsið í Washington í Bandaríkjunum, á þriðja tímanum að íslenskum tíma. 26.5.2006 16:02
Skothríð heyrðist í þinghúsinu í Washington Skothríð heyrðist í eða við þinghúsið í Washington í Bandaríkjunum fyrir stundu. Byggingunni hefur verið lokað og enginn fær að fara inn í eða út. Ekki liggja fyrir nánari fregnir af þessu á þessari stundu en við munum að sjálfsögðu greina frá þeim um leið og þær berast. 26.5.2006 15:03
Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir gíslatöku í Rússlandi Téténskur aðskilnaðarsinni, sem ásamt öðrum, hélt 1.000 börnum í gíslingu í skóla í Beslan í Rússlandi árið 2004, var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi. 330 manns létu lífið í gíslatökunni. 26.5.2006 11:51
Sprengt við markað í Bagdad Í það minnsta fjórir létust og 30 slösuðust þegar bílsprengja sprakk í Bagdad í morgun. Sprengjan sprakk rétt eftir að forsætisráðherra Íraks sagði það eitt allra mikilvægasta verkefni nýrrar stjórnar að berjast gegn ofbeldi í höfuðborginni. 26.5.2006 10:27
Frumvarp um ríkisborgararétt ólöglegra innflytjenda samþykkt Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær umdeilt frumvarp sem gefur milljónum ólöglegra innflytjenda rétt á að sækja um ríkisborgararétt í Bandaríkjunum. 62 voru fylgjandi frumvarpinu en 36 greiddu atkvæði gegn því. Frumvarpið kveður einnig á um stóraukið landamæraeftirlit á landamærunum við Mexíkó til að stemma stigu við straumi ólöglegra innflytjenda frá Suður-Ameríku. 26.5.2006 09:45
Friðargæslulið frá Ástralíu kom til Austur-Tímor í gær. Aukafriðargæslulið frá Ástralíu kom til Austur-Tímor í gær. Þessir 150 fyrstu munu tryggja öryggi flugvallarins í höfuðborginni Dili en alls hafa Ástralir sagst munu senda þrettán hundruð hermenn til þess að hjálpa til við að koma á friði í landinu unga. 26.5.2006 09:39
Bush og Blair óánægðir með árangur í Írak George W. Bush Bandaríkjaforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segja stríðið í Írak ekki hafa gengið eins vel og þeir hefðu vonast til. Bush sagði mörg mistök hafa verið gerð í tengslum við innrásina, þau alvarlegustu hafi verið pyntingarnar í Abu Graib fangelsinu. Blair er nú í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. 26.5.2006 09:30
Dæmt í Enron-málinu Forsvarsmenn orkufyrirtækisins Enron, Ken Lay og Jeffrey Skilling, voru í gær fundnir sekir um fjársvik og samsæri auk fleiri ákæruliða, í tengslum við gjaldþrot Enron árið 2001. Skilling getur átt von á allt að 185 ára fangelsi en Lay getur búist við allt að 65 ára fangelsi. 26.5.2006 09:00
Nálægt því að ná samkomulagi um aðstoð til Írans Fulltrúar sex stórvelda eru nálægt því að ná samkomulagi um endanlegt tilboð um aðstoð til Íransstjórnar, gegn því að auðgun úrans verði hætt. Ef tilboðinu verður ekki tekið á að grípa til refsiaðgerða. Þjóðirnar sex sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna hafa hingað til ekki náð að koma sér saman um hvernig eigi að tækla kjarnorkudeiluna við Írana. 25.5.2006 13:31
Ástralskir sérsveitarmenn til Austur-Tímor Ástralskir sérsveitamenn eru komnir til Austur-Tímor til að koma á röð og reglu eftir uppreisn hermanna undanfarna daga. 25.5.2006 10:15
Tvö stór kynferðsiafbrotamál í rannsókn í Nuuk Tvö alvarleg kynferðisabrotamál eru nú í rannsókn lögreglunnar í Nuuk á Grænlandi. Samkvæmt danska blaðinu Politiken er talið að hátt í fimmtíu börn hafi orðið fyrir misnotkun að hálfu tveggja manna. Upp komst um fyrra málið í mars á þessu ári og hitt í apríl en tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við málið. 24.5.2006 21:38
Rasmussen heimsækir Írak Forsætisráðherra Danmerkur heimsótti Írak í dag - en á meðan var ekkert lát á ofbeldi í landinu. Anders Fogh Rasmussen er annar þjóðarleiðtoginn sem heimsækir Írak eftir valdatöku nýs forsætisráðherra, Al Malikis. 24.5.2006 18:49
Árás á Ramallah Ísraelskir hermenn réðust inn í Ramallah, helstu borg Palestínumanna á vesturbakkanum, í dag, felldu fjóra menn og særðu um fimmtíu. Árásin var gerð daginn eftir að Bush Bandaríkjaforseti fagnaði áætlun Ísraelsstjórnar um landnám á vesturbakkanum. 24.5.2006 18:45
Eldhaf á flugvelli í Istanbúl Gífurlegur eldur geisar í byggingu á flugvellinum í Istanbúl. Eldurinn kviknaði í þeim hluta flugstöðvarinnar þar sem vöruflutningar fara fram en hann er í nokkurri fjarlægð frá farþegahluta stöðvarinnar. Þykkan, svartan reyk leggur upp úr byggingunni. 24.5.2006 13:19
Ferðamenn hvattir til að yfirgefa Austur-Tímor Skotbardagar geisa nú í Austur-Tímor annan daginn í röð. Erlendum ferðamönnum er nú ráðlagt að yfirgefa landið í skyndi vegna vaxandi ólgu í landinu. Forseti Austur-Tímor hét því í morgun að reyna að handsama þá sem stæðu fyrir ofbeldinu en skotbardagarnir nú hafa orðið tveimur að bana. 24.5.2006 11:24
Ræða viðbrögð við kjarnorkuáætlun Írans Löndin fimm sem hafa fastasetu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna funda í dag með fulltrúum Þýskalands til að ræða viðbrögð við fastheldni Írana við kjarnorkuáætlun sína. Íbúar í Teheran biðja um að hugsanlegar refsiaðgerðir bitni ekki á almennum borgurum. 24.5.2006 10:45
Margra saknað eftir hamfaraflóð í Taílandi Óttast er að yfir hundrað manns hafi farist í hamfaraflóðum í Norður-Taílandi í gær. 27 höfðu fundist látnir í gær og margra er saknað. Björgunarmenn á þyrlum og á jörðu reyndu í gær að bjarga fólki sem situr fast á heimilum sínum, í lestum og á víðavangi. 24.5.2006 09:46
Bandaríkjamenn myndu verja Ísrael Bush Bandaríkjaforseti sagði Bandaríkjamenn myndu koma til varnar Ísraelsríki ef landið yrði fyrir árás. Þetta sagði hann á fundi hans og Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, í Hvíta húsinu í gær. 24.5.2006 09:41
Breska lögreglan handtekur stuðningsmenn hryðjuverka Breska lögreglan handtók átta manns sem grunaðir eru um að styðja hryðjuverkasamtök. Handtakan er liður í viðamikilli aðgerð lögreglunnar þar í landi gegn hryðjuverkum sem um 500 lögreglumenn víðs vegar um Bretland taka þátt í. 24.5.2006 09:30
Athuga hvort fuglaflensa hafi smitast milli manna Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin rannsakar nú hvort átta manna fjölskylda í Indónesíu hafi smitað hvort annað af fuglaflensu. Ef rétt reynist er þetta fyrsta tilfelli þar sem fuglaflensuveiran berst frá manni til manns. Aldrei hafa svo margir á sama stað smitast af fuglaflensunni, en það sem veldur sérstökum áhyggjum starfsmanna alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, er að ekki er vitað til að fólkið hafi komist í snertingu við sýkta fugla eða dýr. 24.5.2006 08:30
Geta skilað inn hnífum án þess að greiða sekt Breska lögreglan stendur nú fyrir nokkurs konar gjaldfrjálsum dögum út júní. Fólk sem hefur ólöglega hnífa undir höndum getur nú skilað þeim á lögreglustöð án þess að þurfa að greiða sekt fyrir ólöglega vopnaeign. Átakið er til komið vegna vaxandi tíðni ofbeldis þar sem hnífar koma við sögu. Eftir gjaldfrjálsu dagana verður hins vegar tekið fastar en nokkru sinni á þeim sem eru teknir með ólöglega hnífa undir höndum. 24.5.2006 07:45
Óttast að yfir hundrað manns hafi farist Óttast er að yfir hundrað manns hafi farist í hamfaraflóðum í Norður-Tælandi í gær. 27 höfðu fundist látnir í gær og margra er saknað. Björgunarmenn á þyrlum og á jörðu reyndu í gær að bjarga fólki sem situr fast á heimilum sínum, í lestum og á víðavangi. Um þúsund manns hafa verið fluttir í burtu en reiknað er með að um 75 þúsund manns hafi orðið fyrir einhverju eignatjóni. 24.5.2006 07:30
Hafði ekkert með árásirnar 11. september að gera Zacarias Moussaoui hafði ekkert með hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 að gera. Þetta segir Osama bin Laden á hljóðupptöku sem birtist á vefsíðu í kvöld. Þar segist bin Laden hafa sjálfur valið alla þá nítján menn sem tóku þátt í árásunum sem kostuðu hátt í þrjú þúsund manns lífið í New York og Washington og því viti hann um hvað hann er að tala. 23.5.2006 22:00
Tvískinnungur rauði þráðurinn Árið 2005 var mótsagnakennt í mannréttindamálum í heiminum, því þótt margt hafi áunnist, grófu áhrifamiklar ríkisstjórnir undan væntingum um aukin mannréttindi. Þetta er í stuttu máli niðurstaða ársskýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International. 23.5.2006 18:22
Loftsteinn á leið til jarðar Loftsteinn fellur á jörðina nú á fimmtudaginn ef marka má kenningar sem nú ganga ljósum logum á netinu. 23.5.2006 17:40
Dönsku fjölmiðlarnir gefa út fríblað Fréttir hafa borist af því að Politiken og Jyllandsposten ætli að gefa út fríblað í Kaupmannahöfn líkt og Dagsbrúnarliðar. Blaðið mun bera nafnið Nyhederavisen, eða Fréttablaðið, upp á ástkæra ylhýra. Forstjóri 365 miðla í Danmörku segist ekki óttast samkeppnina. 23.5.2006 17:07
Auglýstu störf á Íslandi og í Svíþjóð sem ekki voru fyrir hendi Hátt í þrjátíu manns á Filippseyjum hafa höfðað mál á hendur fyrirtæki þar í landi fyrir að auglýsa störf á Íslandi og í Svíþjóð sem ekki voru fyrir hendi. Talið er að fyrirtækið hafi haft nærri níu milljónir króna af fólkinu með svikastarfsemi. Fyrirtækið sem um ræðir nefnist Cebu Manpower Corporation. 23.5.2006 12:21
Mörgæsir snúa til síns heima Nítján afrískættaðar mörgæsir fengu að snúa aftur til síns heima í New Orleans í gær. Mörgæsirnar voru á sædýrasafninu í New Orleans þegar fellibylurinn Katrína reið yfir á síðasta ári. Þeim var bjargað þaðan og hafa þær dvalið á sædýrasafni í Kaliforníu síðan í september á síðast ári. FedEx sá um flutninginn á mörgæsunum og lentu þær í New Orleans í gær og uppskáru hátíðlega athöfn. 23.5.2006 09:30