Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lordi-torg í Rovaniemi Finnar ráða sér vart af kæti yfir árangri finnsku þungarokkshljómsveitarinnar Lordi í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva um helgina. Borgaryfirvöld í Rovaniemi, heimabæ hljómsveitarinnar, hafa ákveðið að nefna torg í miðri borginni í höfuðið á henni. Þetta er í fyrsta sinn sem Finnar vinna sigur í þessari keppni og hafa þeir oft hlotið fremur háðuglega útreið og jafnan rekið lestina. Það má því segja að Finnar hafi fengið uppreisn æru, og vel það, þegar skrímslarokkssveitin Lordi fór með sigur af hólmi í keppninni í Aþenu á laugardaginn, og það með fáheyrðum fjölda stiga sem voru nærri því þrjú hundruð. Finnar hafa fagnað árangrinum en voru margir hverjir með nokkrar áhyggjur af því hvað áhrif flutningur Lordanna á laginu Hard Rock Hallelujah myndi hafa á ímynd landsins. Bæði Tarja Halonen, forseti Finnlands, og Matti Vanhanen, forsætisráðherra, hafa óskað rokkurunum til hamingju með árangurinn. Borgarstjórinn í Rovaniemi í Lapplandi sagði í dag að borgaryfirvöld vildu heiðra þessa frægu syni sína með því að nefna torg í miðborginni eftir hljómsveitinni. Torgið verður hluti af nýrri borgarmynd sem er verið að skipuleggja en auk Lordanna státar Rovaniemi sig af raunverulegu heimili jólasveinsins. 22.5.2006 22:00
Sambandssinnar vilja endurtalningu Sambandssinnar í Svarfjallalandi krefjast þess að atkvæði verði talin að nýju í þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem Svartfellingar samþykktu með naumum meirihluta í gær að segja sig úr lögum við Serba. Kosningaeftirlitsmenn segja ekkert við framkvæmd kosninganna sem þeir geri athugasemd við. 22.5.2006 21:30
Fyrstu H5N1 tilfellin í Íran Fyrstu tilfelli H5N1 afbrigðis fuglaflensu hafa greinst í fólki í Íran. Um er að ræða mann um fertugt og systur hans á þrítugsaldri. 22.5.2006 21:15
Hróp og köll við réttarhöldin yfir Saddam Málflutningur hélt áfram í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, í dag. Sem fyrr minnti þar fátt á hefðbundið dómhald heldur settu hróp og köll svip sinn á samkomuna. 22.5.2006 20:47
Svartfellingar kusu sjálfstæði Svartfellingar samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær að segja sig úr lögum við Serba. Þarlendir stjórnmálaleiðtogar telja leiðina inn í Evrópusambandið nú greiða. Serbar sitja hins vegar eftir með sárt ennið. 22.5.2006 18:45
Íranar halda fast við kjarnorkuáætlun sína Íranar ætla að halda sig fast við kjarnorkuáætlun sína. Þeir segja kjarnorkurannsóknirnar eiga fullan rétt á sér og um þær verði ekki samið. 22.5.2006 13:30
Svartfjallaland sjálfstætt ríki Svartfellingar samþykktu sjálfstæði frá Serbíu með naumum meirihluta atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær. Serbía og Svartfjallaland eru ein eftir í ríkjasambandinu sem eftir er af fyrrverandi Júgóslavíu. 22.5.2006 13:15
Allt erlent herlið frá Írak árið 2010 Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, kom til Bagdad í morgun. Með heimsókn sinni hyggst Blair sýna stuðning sinn við nýja ríkisstjórn Íraka og ræða veru breska herliðsins í Írak. 22.5.2006 12:45
Industria opnar skrifstofu í Kína Íslenska fyrirtækið Industria ehf. hefur opnað skrifstofu í Kína, og verður landið þar með hið sjötta þar sem Industria hefur starfsemi. Industria selur alhliða breiðbandslausnir til fjárfestinga- og fjarskiptafyrirtækja, og á Asíumarkaði hefur orðið mikill vöxtur í þessum geira undanfarin misseri segir í tilkynningu frá félaginu. 22.5.2006 12:11
Glæsiveisla hjá Beckham hjónunum Hundruð aðdáenda sem söfnuðust saman við heimili Beckham hjónanna í Hertfordshire í Englandi í von um að berja átrúnaðargoð sín augum höfðu ekki erindi sem erfiði í gærkvöldi þegar til hjónanna flykktust um 350 gestir í HM partý fyrirliðans. Aðdáendurnir urðu margir hverjir fyrir vonbrigðum þegar gesti hjónanna bar að garði því flestir þeirra komu í eðalvögnum og bifreiðum með skyggðum rúðum og því lítið að sjá. 22.5.2006 11:30
Merkel í heimsókn í Kína Angela Merkel, kanslari Þýsklands, hitti í dag Wen Jiabao, forsætisráðherra Kínverja. Með Merkel í för er iðnaðarráðherra Þýsklands og er tilgangurinn að efla viðskipti milli landanna. 22.5.2006 10:00
Olmert í Washington Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, kom til Washington í gær þar sem hann mun hitta George Bush, forseta Bandaríkjanna. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem Olmert hittir Bush í ráðherratíð sinni. 22.5.2006 09:30
Blair í Bagdad Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, kom til Bagdad nú í morgun. Með heimsókn sinni hyggst Blair sýna stuðning sinn við nýja ríkisstjórn Íraka og ræða veru breskra herliða í Írak. 22.5.2006 09:15
Íbúar Svarfjallalands kusu aðskilnað frá Serbíu Milo Djukanovic, forsætisráðherra Svartfjallalands, lýsti í nótt yfir sigri aðskilnaðarsinna í kosningum sem fram fóru í gær um aðskilnað Svarfjallalands frá Serbíu. 22.5.2006 08:40
Marokkómenn deyja í rútuslysi á Spáni Alvarlegt rútuslys varð á Spáni í dag með þeim afleiðingum að sjö manns létu lífið og 26 slösuðust. 21.5.2006 18:58
Gengið gegn hungri Hundruð þúsunda manna um allan heim mótmæltu hungri í útigöngum í dag. Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna stóð fyrir mótmælunum undir slagorðinu "Berjumst gegn hungri - göngum um heiminn." 21.5.2006 17:34
Ísraelsher skaut palestínska konu Palestínsk kona lét lífið fyrir kúlum ísraelskra hermanna í nótt þegar Ísraelar réðust á íbúðasvæði í borginni Nablus á vesturbakkanum. Talsmaður Ísraelshers segir að hermenn hafi veri á svæðinu til að handtaka fólk, og að Palestínumenn hafi skotið á hermenn en þeir ekki skotið á móti. Palestínumenn segja hins vegar að konan sem féll hafi orðið fyrir byssukúlum Ísraela þar sem hún var að líta út um gluggan heima hjá sér. Útför hennar fór fram í morgun. Samkvæmt siðum múslima fer útför helst fram samdægurs andlátinu. 21.5.2006 12:29
Svartfellingar kjósa um aðskilnað frá Serbíu Svartfellingar kjósa í dag um aðskilnað frá Serbíu. Mjótt er á mununum, samkvæmt skoðanakönnunum. 21.5.2006 11:01
Grímuklæddir finnskir rokkarar unnu Evróvisjón Finnsku þungarokkararnir Lodi tóku Evróvision keppnina með áhlaupi í gærkvöldi. Mikill fögnuður var í Finnlandi, en þar í landi eru menn vanari því að fá ekkert stig heldur en tólf. 21.5.2006 10:55
Ný stjórn tekur við í sprengjuregni Forsætisráðherra Íraks, Nuri Al Maliki, hét í dag ítrustu valdbeitingu gegn hryðjuverkum. Ný stjórn hans tók við völdum í gær, og í morgun var henni fagnað með sprengjuárásum í Bagdad. 21.5.2006 10:19
Áttræðar konur grunaðar um að myrða heimilislausa Lögregla í Bandaríkjunum hefur handtekið tvær konur á áttræðisaldri sem eru grunaðar um að hafa myrt heimilislausa menn. Þær höfðu krafist þess að fá greiddar út milljónir bandaríkjadala vegna líftrygginga sem þær höfðu keypt fyrir þá. 20.5.2006 19:30
Sjálfsvígstilraun sett á svið Fangar í Guantanamo fangabúðunum settu á svið sjálfsvígstilraun til að auðveldara yrði fyrir þá að ráðast á fangaverði í búðunum fyrir helgi. Bandarískum hermönnum tókst að brjóta árásina á bak aftur á skömmum tíma. Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna lagði til í gær að búðunum yrði lokað en Bandaríkjamenn segja árásina sýna hve hættulegir fangarnir þar séu. 20.5.2006 18:45
Fulltrúi SÞ hittir Suu Kyi Háttsettur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna átti í morgun fund með Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnaranstöðunnar í Myanmar, en henni hefur verið haldið í stofufangelsi í þrjú ár. 20.5.2006 12:00
Hælisleitendur í mótmælasvelti Um 40 afganskir flóttamenn sem hafa óskað eftir hæli á Írlandi hóta því að svipta sig lífi ef lögregla reynir að reka þá úr kapellu í Dyflinni þar sem þeir hafa haldið til. Allt eru þetta karlmenn á aldrinum 17 til 45 ára og hafa þeir verið í mótmælasveldi í um viku. 20.5.2006 11:30
Ráðherraskipan í Írak samþykkt Íraska þingið samþykkti í morgun skipan nýrrar þjóðstjórnar í landinu. Vonir eru bundnar við að henni takist að lægja öldurnar þar. Ofbeldisverkum virðist heldur ekki ætla að fækka en minnst nítján féllu og fimmtíu og átta særðust í sprengjuárás í Bagdad í morgun. 20.5.2006 10:30
Átök milli fanga og fangavarða í Guantanamo-búðunum Til átaka kom milli fanga og fangavarða í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu í gær. Fram kemur á fréttavef BBC að fangaverðir voru að reyna að koma í veg fyrir að einn fanginn svipti sig lífi þegar aðrir fangar réðust á þá með vopnum útbúnum úr viftum og öðru tiltæku. 19.5.2006 17:17
Mikil spenna í Palenstínu Mikil spenna er í Palestínu eftir skotbardaga milli andstæðra fylkinga á Gaza landræmunni í morgun. Þetta er martröð flestra Palestínumanna á herteknu svæðunum. Skotbardagar milli andstæðra fylkinga, Fatah hreyfingarinnar og Hamas. Fatah hefur verið ráðandi meðal Palestínumanna alla tíð þangað til Hamas náði óvænt meirihluta á palestínska þinginu í kosningum fyrr á þessu ári. 19.5.2006 21:30
Ráðherralisti Íraks kynntur á morgun Leiðtogar fylkinga í Írak hafa komist að samkomulagi um nýja ríkisstjórn. Ráðherralistinn verður birtur á morgun.Þó leiðtogarnir hafi komist að samkomulagi um stjórnarmyndun í landinu hefur ekki tekist að manna stöðu innanríkis- og varnarmálaráðherra landsins. Verðandi forsætisráðherra Íraks, Nuri al Maliki, sagði í dag að hann muni halda áfram með að kynna og fá samþykki Íraksþings fyrir ríkisstjórn sína 19.5.2006 21:04
Átak gegn barnaníðingum á netinu Átak er hafið til að koma í veg fyrir að eldri menn nái í börn á netinu eins og algengt er. Microsoft á Íslandi hefur tekið höndum saman við félagið SAFT, Samfélag fjölskyldu og tækni, til að berjast gegn vandamálinu. 19.5.2006 19:30
Mannskætt umferðarslys í Tyrklandi Minnst fjörutíu létu lífið og sjö særðust þegar vöruflutningabíll sem var að flytja ólöglega innflytjendur frá Afganistan og Bangladess skall aftan á kyrrstæðan flutningabíl í bænum Osmaniye í Tyrklandi í dag. Svo virðist sem fólkið hafi kastast út úr bílnum og á götuna þegar áreksturinn varð með þessum hörmulegu afleiðingum. 19.5.2006 16:15
Hörð átök við öryggismúr Ísraela í Bilin Palestínskur mótmælandi slasaðist alvarlega þegar öryggismúr Ísraela á Vesturbakkanum var mótmælt í dag. Mótmælin fór fram í Bilin nálægt borginni Ramallah á Vesturbakkanum. Mótmælendur köstuðu grjóti að ísraelskum hermönnum sem svöruðu með táragasi og skutu gúmmíkúlum á mótmælendur til að stöðva aðgerðir þeirra 19.5.2006 16:00
Þýskir læknar krefjast betri kjara og vinnuaðstæðna Fjölmargir ævareiðir læknar lögðu niður vinnu víðsvegar um Þýskaland í dag, í þriðja sinn á fimm mánuðum til að krefjast betri launa og umbóta á vinnuaðstöðu sinni. 19.5.2006 15:00
Landamærastöð opnuð aftur eftir skotárás Landamærastöðin þar sem mexíkóska borgin Tijuana og San Diego í Bandaríkjunum liggja saman var opnuð aftur í dag eftir að landamæraverðir skutu til bana ökumann sem var á leið til Mexíkó síðdegis í gær. 19.5.2006 14:45
Háttsettur Hamas-liði gripinn með mikla fjármuni Háttsettur fulltrúi í Hamas-samtökunum, sem stýra heimastjórn Palestínumanna, var gripinn við landamærin inn í Rafah-borg á Gaza-ströndinni frá Egyptalandi, með um sex hundruð þúsund evrur í beinhörðum peningum á sér. 19.5.2006 13:15
Ætlar að vera áfram við fjallsrætur Merapi Á meðan mörg þúsund íbúar á indónesísku eyjunni Jövu flýja eldfjallið Merapi sem nú er að gjósa er einn áttræður maður sannfærður um að það sé óhætt að halda áfram til við fjallræturnar þar sem hann á heima. 19.5.2006 10:45
Guantanamofangelsi og leynifangelsum beri að loka Nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum segir Guantanamo-fangelsið á Kúbu brjóta gegn alþjóðalögum og því beri að loka. Einnig beri Bandaríkjastjórn að loka leynifangelsum annars staðar í heiminum. 19.5.2006 10:02
Fujimori látinn laus úr fangelsi Hæstiréttur í Chile lét í gær Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perús, lausan úr fangelsi gegn tryggingu. Hann á yfir höfði sér ákærur um spillingu og mannréttindabrot í heimalandinu og gera stjórnvöld þar þá kröfu að hann verði framseldur. Dómstólar í Chile eiga eftir að taka afstöðu til þess. 19.5.2006 09:15
Landamæragirðing gagnrýnd Sú ákvörðun Bandaríkjaþings, að reisa 600 km langa girðingu á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna til að stemma stigu við straumi ólöglegra innflytjenda til Bandaríkjanna, var gagnrýnd harðlega á fundi utanríkisráðherra landa í Mið-Ameríku í gærkvöld. 19.5.2006 09:00
23 létust í Kína af völdum fellibylsins Að minnsta kosti tuttugu og þrír létust þegar fellibylurinn Chanchu gekk yfir suðurhluta Kína í gær. Talið er að tala látinna eigi þó eftir að hækka nokkuð því fjölmargra er saknað, þar á meðal tæplega þrjátíu víetnamskra sjómanna sem voru á veiðum á kínverskum vötnum. 19.5.2006 08:30
Skotbardagar í Gaza-borg Skotbardagar brutust út í Gaza-borg í nótt á milli nýskipaðrar öryggissveitar Hamas-samtaka Palestínumanna og lögreglumanna hliðhollir Fatah-hreyfingunni. 19.5.2006 08:07
Stúdentaóeirðir í Chile Háskólastúdentar í Chile mótmæltu í dag háum fargjöldum í almenningsfarartæki í höfuðborginni Santiago. Lögregla sprautaði vatni til að dreifa mótmælendunum þegar sló í brýnu milli unga fólksins og lögreglumanna. Stúdentarnir hópuðust þó fljótt saman aftur og veittust aftur að lögreglu. 18.5.2006 22:23
Misjöfn viðbrögð við Da Vinci víða um heim Bækur voru brenndar í Moskvu í dag þegar kvikmyndin um um Da Vinci lykilinn var frumsýnd þar. Biskuparáðstefna kaþólsku kirkjunnar í Indlandi lagðist hins vegar gegn því að myndin yrði bönnuð. 18.5.2006 22:19
Bausch & Lomb innkallar linsuvökvann Framleiðendur Renu MoistureLoc, mest selda linsuvökva á Íslandi, og í heiminum öllum, hafa ákveðið að stöðva dreifingu hans og innkalla útistandandi birgðir. Óttast er að hann geti undir ákveðnum kringumstæðum valdið hornhimnubólgu sem aftur getur leitt til blindu. 18.5.2006 19:00
Fuglaflensa greinist í alifuglum í Danmörku Alifuglar hafa greinst með H5 afbrigði fuglaflensu í Danmörku. Sjúkdómurinn greindist í fuglum á búi í Hudslev rétt hjá Kerteminde á Fjóni. Fuglar á búinu hafa verið aflífaðir og lögregla er að setja upp eftirlit á tíu kílómetra svæði í kringum búið. 18.5.2006 14:36
Völd konungs skert Völd Gyanendra konungs í Nepal skerðast töluvert samkvæmt nýrri ályktun sem þing landsins samþykkti í morgun. 18.5.2006 13:30