Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Baugur sagður ætla að kaupa House of Fraser Breskir fjölmiðlar leiddu að því getum í dag að Baugur Group hefði gert eigendum bresku verslanakeðjunnar House of Fraser yfirtökutilboð. 1.5.2006 20:00
Samningaviðræðum haldið áfram Stríðandi fylkingar í Darfur-héraði í Súdan hafa fengið tveggja sólarhringa langan viðbótarfrest til að ná sáttum. Skorað var á bandarísk stjórnvöld að koma á friði í Darfur á fjölmennum útifundi í Washington í gær. 1.5.2006 19:30
Útlitið dökknar hjá Prescott og Clarke Tveir ráðherrar í bresku ríkisstjórninni berjast nú fyrir pólitísku lífi sínu en þrýstingur á að þeir segi af sér vegna hneykslismála fer vaxandi með degi hverjum. 1.5.2006 18:27
Skutu þrjá til bana Egypskir lögreglumenn skutu þrjá bedúína til bana á Sínaí-skaga í gær. Mennirnir lágu undir grun um að hafa átt aðild að hryðjuverkunum í Dahab í síðustu viku þar sem átján manns létu lífið. 1.5.2006 17:22
Langaði að sjá hvernig eitrið verkaði. Sautján ára gömul japönsk stúlka sem eitraði fyrir móður sinni og hélt dagbók á Netinu yfir versnandi ástand hennar verður ekki ákærð heldur send á heimavistarskóla. Móðirin féll í dá síðasta sumar eftir að hafa fengið eitrað te um nokkurt skeið frá dóttur sinni. 1.5.2006 15:53
Íslamskir öfgamenn myrtu 22 hindúa Íslamskir öfgamenn myrtu 22 hindúa og sært fimm til viðbótar í indverska hluta Kasmír í nótt. Vígamennirnir eru sagðir hafa farið inn á heimili hindúana og numið þá á brott og síðan tekið af lífi einn af öðrum. 1.5.2006 10:13
Semja um vopnahlé í Darfur-héraði Fresturinn sem stríðandi fylkingar í Darfur-héraði fengu til semja um vopnahlé hefur verið framlengdur um 48 klukkustundir. Fulltrúar Afríkubandalagsins hafa leitt viðræðurnar sem fram fara í Abúdja, höfuðborg Nígeríu. 1.5.2006 10:09
Enn fastir í gullnámu Ástralskar björgunarsveitir tóku í morgun að bora göng ofan í gullnámu á eynni Tasmaníu þar sem tveir verkamenn hafa setið fastir í sex daga . Lítill jarðskjálfti varð til þess að göngin niður í námuna hrundu á þriðjudagskvöldið og var næstu daga á eftir óljóst um afdrif mannanna. 1.5.2006 10:06
1. maí víða haldinn hátíðlegur í dag Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins, 1. maí, er víða haldinn hátíðlegur í dag. Tugþúsundir Moskvubúa voru til dæmis komnir út á götur borgarinnar í morgun til að fagna deginum en þar hefur hann ávallt haft ákveðna sérstöðu. 1.5.2006 10:02
Haglél á stærð við hafnarbolta Hávaðarok og haglél á stærð við hafnarbolta hafa dunið yfir Texas um helgina. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast í veðurofsanum, en miklar skemmdir hafa orðið á fjölmörgum húsum og vegum. 30.4.2006 19:00
Fráleitt að gera kjarnorkuárás á Íran Það er fráleitt að íhuga að gera kjarnorkuárásir á Íran segir Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Í sjónvarpsviðtali í gær sagðist Powell jafnframt hafa ráðlagt George Bush að senda fleiri hermenn til Íraks, en á það hafi ekki verið hlustað. 30.4.2006 19:00
Bandaríkjamanninum sleppt Bandarískum blaðamanni Edward Caraballo, var sleppt úr fangelsi í Afganistan í dag eftir að hafa setið inni meirihluta tveggja ára fangelsisdóms sem hann fékk fyrir að pynta Afgana í fangelsi í Kabúl. 30.4.2006 17:37
Blair óvinsæll Sextíu og sex prósent Breta finnst að Tony Blair standi sig illa sem forsætisráðherra. Þá segir helmingur þeirra spillingarmál þjaka ríkisstjórn Verkamannaflokksins. Þetta kemur fram í könnun sem Sunday Times birtir í dag. Blair hefur lýst yfir því að hann láti af embætti áður en kjörtímabilinu lýkur. Búist er við því að Gordon Brown fjármálaráðherra taki við af honum. 30.4.2006 15:22
Vilja framlengja neyðarlög gegn hryðjuverkum Egypska lögreglan skaut mann til bana og handsamaði fjóra aðra snemma í morgun í aðgerðum vegna hryðjuverkanna í Dahab. Ríkisstjórn landsins hefur krafist þess að neyðarlög vegna hryðjuverka verði framlengd. 30.4.2006 12:30
90.000 manns hafa flúið heimili sín 90.000 manns hafa neyðst til þess að yfirgefa heimili sín í Írak undanfarið vegna átaka á milli Sjía og Súnnía. Bandarískar hersveitir hafa drepið og handsamað nærri eitt hundrað árásarmenn undanfarnar vikur. 30.4.2006 12:15
Súkkulaðihátíð í Belgíu Súkkulaðifíklar ættu að reyna að ná næstu vél til Belgíu. Nú stendur yfir hin fullkomna súkkulaðihátíð í hinni sögufrægu borg Brugge. Þar gefur að líta allt það helsta frá frægustu súkkulaðigerðarmönnum og -fyrirtækjum heimsins í dag. 30.4.2006 11:00
Segir Íransforseta minna á Hitler Forseti Írans er siðblindingi sem minnir á Adolf Hitler. Þetta segir Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels, sem biður til guðs að Íranar komi sér ekki upp kjarnorkuvopnum. 30.4.2006 10:15
Sjötíu hafa fallið í apríl Bandaríkjamenn verða að búa sig undir frekari fórnir og erfiðleika í Írak sagði George Bush Bandaríkjaforseti í útvarpsávarpi í gær. Meira en sjötíu bandarískir hermenn hafa fallið í Írak í apríl og hafa ekki fleiri hermenn fallið í einum mánuði á þessu ári. 30.4.2006 09:58
Súkkúlaðihátíð í Belgíu Súkkúlaðifíklar ættu að reyna að ná næstu vél til Belgíu. Nú stendur yfir hin fullkomna súkkúlaðihátíð í hinni sögufrægu borg Brugge. Þar gefur að líta allt það helsta frá frægustu súkkulaðigerðarmönnum og -fyrirtækjum heimsins í dag. 29.4.2006 21:00
Sex ára í háskólakennslu Sex ára undrabarn frá Mexíkó heldur fyrirlestra um beinþynningu fyrir læknisfræðinema á háskólastigi. Sjálfur neitar drengurinn því að hann sé snillingur og segist bara venjulegur strákur sem hafi gaman af að læra. 29.4.2006 20:00
Ætla ekki að hætta auðgun úrans Íranar ætla ekki að hætta auðgun úrans sama hvað tautar og raular. Þeir eru hins vegar tilbúnir að hleypa eftirlitsmönnum Sameinuðu Þjóðanna aftur inn í landið ef öryggisráðið hættir að fjalla um kjarnorkuþróun landsins. Þrjár þjóðir í öryggisráðinu vilja refsa Írönum þegar í stað. 29.4.2006 16:19
Mannfall, hörmungar og ógæfa Bandaríkjamenn hafa ekkert uppskorið nema mannfall, hörmungar og ógæfu af innrásinni í Írak. Þetta segir Ayman al-Zawari, næstráðandi al-Kæda í landinu. Fyrrverandi yfirmaður við Abu Ghraib fangelsið hefur verið ákærður vegna pyntinga og annarra mannréttindabrota við fangelsið. 29.4.2006 12:31
Ákærður vegna pyntinga Fyrrverandi yfirmaður við Abu Ghraib fangelsið hefur verið ákærður vegna pyntinga og annarra mannréttindabrota við fangelsið. Steve Jordan, sem lengi vel fór fyrir yfirheyrslum við fangelsið, er æðsti embættismaðurinn sem hefur verið ákærður vegna mannréttindabrotanna. Tíu fyrrverandi undirmenn hans hafa auk þess verið ákærðir fyrir illa meðferð á föngum við Abu Ghraib. 29.4.2006 10:47
Tilbúnir að hleypa þeim inn Íranar segjast reiðubúnir að hleypa eftirlitsmönnum Sameinuðu Þjóðanna aftur inn í landið, gegn því að kjarnorkumál landsins verði tekin af borði öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna. Aðstoðar kjarnorkumála ráðherra landsins segir hins vegar að það komi ekki til greina að hætta auðgun úrans. Það er það sem vestræn ríki, með Bandaríkjamenn í broddi fylkingar, hafa lagt ofuráherslu á og því ekkert útlit fyrir annað en að deilan haldi áfram. 29.4.2006 10:43
Chavez hótar stjórnvöldum í Perú Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótar því að hætta öllum samskiptum við Perú ef Alan Garcia verði kjörinn forseti landsins. Chavez lét hafa þetta eftir sér í kjölfar þess að Garcia gagnrýndi hann opinberlega. Chavez hefur styður andstæðing Garcia í annarri umferð kosninganna. 28.4.2006 22:30
Háttsettur hermaður ákærður fyrir meðferð á föngum í Abu Ghraib Bandaríkjaher hefur ákært yfirmann í hernum fyrir illa meðferð á íröskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Bagdad. Enginn hermaður með jafn háa tign hefur áður verið ákærður í málinu. 28.4.2006 22:00
Íraksstríðið dýrara en stríðið í Víetnam Allt stefnir í að kostnaður Bandaríkjamanna vegna stríðsrekstrarins í Írak verði meiri en við Víetnamstríðið. Samanlögð útgjöld vegna hernáms Afganistans og Íraks nema um 60 þúsund milljörðum króna. 28.4.2006 19:45
Íranar halda sínu striki Deilan um kjarnorkuáætlun Írana harðnaði enn í dag þegar í ljós kom að þeir hafa hundsað áskoranir alþjóðasamfélagsins um að láta af auðgun úrans. Stjórnvöld í Teheran eru sögð hafa fest kaup á meðaldrægum norðurkóreskum eldflaugum sem geta náð til Evrópulanda. 28.4.2006 18:45
Íranar virtu kröfur Öryggisráðs SÞ að vettugi Alþjóða kjarnorkumálastofnunin kynnti Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir stundu nýja skýrslu um stöðu mála í kjarnorkudeilunni við Írana. Þar segir að stjórnvöld í Teheran hafi virt kröfur ráðsins að vettugi. Bandaríkjaforseti segist vona að hægt verði að semja um lausn deilunnar. 28.4.2006 17:30
Frakkar vilja tryggja Palestínumönnum fjárstyrk Frakkar ætla að nota áhrif sín á alþjóðavettvangi til að reyna að fá ríki og stofnanir til að veita Palestínumönnum fjárstyrk á ný. Þetta sagði Jacques Chirac, Frakklandsforseti, fyrir fund sinn með Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, í París í dag. 28.4.2006 15:30
Þing Nepals koma saman í fyrsta sinn í 4 ár Þing Nepals kom saman til fundar í dag í fyrsta sinn í 4 ár. Þingmenn lögðu þá til að samið yrði um varanlegt vopnahlé við uppreisnarmenn Maóista og að boðað yrði til þingkosninga hið fyrsta. 28.4.2006 15:00
Bandaríkjamenn fjölga herstöðvum í A-Evrópu Á sama tíma og Bandaríkjamenn draga úr varnarviðbúnaði sínum í Vestur-Evrópu fjölga þeir herstöðvum austar í álfunni. Bandaríkin og Búlgaría undirrituðu í dag samning um herstöð þar í landi. 28.4.2006 13:00
Systir fyrrverandi forseta Kólumbíu ráðin af dögum Systir fyrrverandi forseta Kólumbíu, Cesar Gaviria, var í gær drepin af óþekktum glæpamönnum. Atvikið átti sér stað í um 180 kílómetra fjarlægð frá Bogota höfuðborg landsins. Liliana Gaviria, sem var 52 ára fasteignasali, var á ferð með tveimur lífvörðum sínum þegar ráðist var á þau en annar lífvörður hennar féll einnig í árásinni. 28.4.2006 10:30
Bandaríkjastjórn bindi enda á þjóðarmorð Bandarískir kvikmyndaleikarinn George Clooney krafðist þess á blaðamannafundi í gær að ríkisstjórn Bandaríkjanna gerði allt sem hún gæti til að binda endi á þjóðarmorðin í Darfur-héraði í Súdan. Þá sagði Clooney almenning einnig geta lagt sitt af mörkum. 28.4.2006 09:30
Öryggisráð verði að vera tilbúið til aðgerða Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Búlgaríu í gær að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði að vera reiðubúið að grípa til aðgerða gegn Íran ef stjórnvöld í Teheran yrðu ekki við kröfum aðþjóðasamfélagsins í tengslum við kjarnorkuáætlanir sínar. 28.4.2006 09:00
Lögreglumaður skotinn í Cleveland Maður var skotinn til bana á flugvelli í Cleveland í Bandaríkjunum í gær. Maðurinn náði byssu eins lögreglumanns þegar til átaka koma á milli hans og tveggja lögregluþjóna og skaut annan þeirra tvisvar sinnum í brjóstið. Þá kom þriðji lögreglumaðurinn og skaut manninn til bana. 28.4.2006 08:30
Ákærð fyrir að hafa orðið nýfæddum börnum sínum að bana Réttarhöld hófust í Frankfurt í Þýskalandi í dag yfir konu sem er grunuð um að hafa orðið átta nýfæddum börnum sínum að bana. Líkamsleifar ungbarnanna fundust síðasta sumar. Málið hefur vakið mikinn óhug í Þýskalandi og er þess krafist að barnaverndarlög verði hert. 27.4.2006 23:00
Öryggisráðið þarf að grípa til aðgerða Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir ólíklegt að Íranar hætti auðgun úrans. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þurfi því að grípa til aðgerða til að viðhalda trúverðugleika sínum. 27.4.2006 22:29
Maóistar lýsa yfir vopnahléi Skæruliðar maóista í Nepal lýstu í dag yfir vopnahléi í baráttu sinni við stjórnarherinn. 27.4.2006 19:45
Stjórnarsáttmáli í höfn Ný ríkisstjórn í Ísrael er handan við hornið eftir að Kadima-flokkurinn og Verkamannaflokkurinn náðu samkomulagi um stjórnarsamstarf. Flokkarnir hafa ekki hreinan meirihluta og þurfa því að reiða sig á stuðning nokkurra smáflokka. 27.4.2006 19:15
Ráðherrar í ólgusjó Framhjáhöld og embættisafglöp eru á meðal þess sem þrír ráðherrar í ríkisstjórn Tony Blairs þurfa að svara fyrir þessa dagana. Hneykslið kemur sér verulega illa fyrir Verkamannaflokkinn, því sveitarstjórnakosningar eru á næsta leyti í Bretlandi. 27.4.2006 18:45
Íranar svara af fullum krafti, verði ráðist á landið Íranar munu svara af fullum krafti, verði ráðist á landið. Þetta sagði æðsti klerkur landsins í gær. Utanríkisráðherra Bretlands, segir ekki koma til greina að ráðast á Írana vegna kjarnorkuáætlana þeirra en Bush Bandaríkjaforseti útilokar þó ekkert í þeim efnum. . 27.4.2006 10:40
Samkomulag um nýja ríkisstjórn í Ísrael Kadima-flokkurinn og Verkamannaflokkurinn hafa náð samkomulagi um myndun ríkisstjórnar í Ísrael en þingkosningar voru haldnar í landinu 28. mars síðastliðinn. Stjórnarsáttmálinn verður undirritaður síðar í dag. Ehud Olmert verður að líkindum forsætisráðherra nýju stjórnarinnar. 27.4.2006 10:37
Skráðu fingraför nemenda Persónuvernd í Noregi hefur krafið framhaldsskóla í Osló skýringa á því að skólinn hafi sett upp fingrafaralesara þar sem nemendur þurftu að skrá sig inn og út úr skólanum. Skólayfirvöld segja það hafa aukið ábyrgðartilfinningu nemenda að fylgst væri með viðveru þeirra í skólanum með þessum hætti. 27.4.2006 10:15
Jack Straw segir ekki koma til greina að ráðast á Íran Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, segir ekki koma til greina að ráðast á Íran vegna kjarnorkuáætlana þeirra. Utanríkisráðherrann sagði Íran ekki vera Írak og að aldrei hefði komið til greina að ráðast á landið. 27.4.2006 10:00