Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Háttsettir írakskir lögreglumenn grunaðir um aðild að hryðjuverkum Breskir og írakskir hermenn handtóku í dag fjórtán háttsetta lögreglumenn í borginni Basra. Þeir eru taldir eiga þátt í mikilli fjölgun hryðjuverka í borginni undanfarnar vikur. 24.1.2006 20:51
Fangar líklega fluttir til pyntinga með vitund stjórnvalda í Evrópu Rannsóknarnefnd Evrópuráðsins telur sig hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að Bandaríkjamenn hafi flutt fanga á milli landa til þess að láta pynta þá. Nefndin telur mjög líklegt að ríkisstjórnir í Evrópuríkjum hafi vitað af þessu. 24.1.2006 20:23
Ferðum SAS frá Kastrup aflýst fram á fimmtudag SAS í Danmörku tilkynnti fyrr í dag að félagið yrði að aflýsa öllum ferðum frá Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn í dag og á morgun vegna verkfallsaðgerða flugmanna. 24.1.2006 16:30
Alitalia aflýsir um 250 flugferðum Útlit er fyrir að ítalska flugfélagið Alitalia þurfi að aflýsa á þriðja hundrað flugferðum í dag vegna skyndiverkfalla starfsmanna. Aflýsa þurfti 250 flugferðum í gær. Síðan á fimmtudag hafa starfsmenn mótmælt fyrirhuguðum skipulagsbreytingum hjá félaginu. 24.1.2006 16:26
Bráðabirgðaskýrsla um fangaflug leyniþjónustu Bandaríkjanna kynnt Dick Marty, þingmaður frá Sviss, kynnti í morgun bráðabirgðaskýrslu sína fyrir Evrópuráðið um fangaflug leyniþjónustu Bandaríkjanna og ólöglega vistun meintra hryðjuverkamanna í leynilegum fangelsum í Evrópu. 24.1.2006 12:52
Ríkisstjórnin í Kanada fallin Þrettán ára stjórn Frjálslynda flokksins í Kanada er lokið en Íhaldsflokkurinn fór með sigur af hólmi í þingkosningum þar í landi í gær. 24.1.2006 12:19
Tímabært að refsa Írönum Það er löngu tímabært að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna refsi Írönum vegna kjarnorkuáætlana sinna. Þetta sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í gær. Hún sagði mikilvægt að þjóðir heims stæðu saman í þessu máli. 24.1.2006 12:16
Eldar geisa nú í fjórum fylkjum í Ástralíu. Tekist hefur að slökkva elda í Suður-Ástralíu, en þeir breiðast enn út um þurrt gróðurlendi í Victoriu, Vestur-Ástralíu og í eyríkinu Tasmaníu. 24.1.2006 12:12
Tugir flugmanna hjá SAS í Noregi tilkynntu um veikindi í morgun Tugir flugmanna hjá SAS í Noregi tilkynntu um veikindi í morgun og hefur yfir sjötíu brottförum frá Gardermoen-flugvelli verið frestað. Um 150 danskir flugmenn SAS efndu í gær til skyndiverkfalls vegna orðróms um uppsagnir og hugsanlegar kjaraskerðingar. 24.1.2006 12:10
Eiginkona og börn Pinochets sökuð um skattsvik Eiginkona Augostos Pinochets, fyrrverandi einræðisherra Chile, Lucia Hiriart, og fjögur börn þeirra voru handtekin í gær, sökuð um skattsvik. Er fjölskyldan öll sökuð um að telja ekki fram miljónir dollara. 24.1.2006 09:45
Ford fækkar störfum um 25-30.000 Fram til ársins 2012 ætlar Ford Motor, næst stærsti bílaframleiðandi Bandaríkjanna, að fækka störfum um 25-30.000 og hætta rekstri fjórtán verksmiðja. Er þetta liður í endurskipulagningu fyrirtækisins til að stemma stigu við milljarða dollara rekstrartapi í Norður-Ameríku. 24.1.2006 09:11
Hjúkrurnarkona dæmd fyrir að rífa neglur af sjúklingum Sumir naga neglurnar þegar þeir þjást af spennu eða streitu. Japönsk hjúkrunarkona gekk hins vegar aðeins lengra en hún var í gær dæmd til að dúsa í fangelsi í þrjú ár og átta mánuði fyrir að rífa neglur af fingrum og tám sjúklinga í sinni umsjá. 24.1.2006 09:09
Áætlunarflug SAS hefst líklega um hádegisbil Horfur eru á að áætlunarflug SAS-flugfélagsins hefjist af fullum krafti um hádegisbil eftir verkfallsaðgerðir flugmanna í gær sem ollu því að fjölmörg flug voru felld niður. 24.1.2006 08:34
Dauðadóms krafist yfir Ástrala vegna fíkniefnasmygls Dauðadóms er krafist yfir áströlskum manni sem kemur fyrir rétt í Indónesíu í dag en hann var handtekinn ásamt átta öðrum Áströlum á síðasta ári fyrir að ætla að smygla rúmlega átta kílóum af heróíni til heimalandsins. 24.1.2006 08:31
Nýr dómari skipaður í réttarhöldunum yfir Saddam Nýr dómari hefur verið skipaður í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samverkamönnnum hans. Dómarinn, Raouf Abdul Rahman að nafni, er sextíu og fjögurra ára gamall Kúrdi og hefur ekki komið áður að málinu. 24.1.2006 08:00
Maður fannst á lífi í rústunum Maður fannst á lífi, ósærður, í rústum húss sem hrundi til grunna í Nairóbí í Kenýa í gær. Að minnsta kosti sex manns hafa fundist látnir í rústunum og yfir sjötíu eru slasaðir. 24.1.2006 08:00
Palestínumaður veginn og tveir særðir Ísraelsher skaut Palestínumann til bana og særði tvo til viðbótar nærri bænum Ramallah á Vesturbakkanum í gærkvöld. Frá þessu greindu palestínskir læknar. Einn hinna særðu er í lífshættu en ekki er vitað hvers vegna hermennirnir skutu á mennina. 24.1.2006 07:38
Stephen Harper nýr forsætisráðherra Kanada Kanadíski Íhaldsflokkurinn fór með sigur af hólmi í þingkosningunum á mánudag en fékk þó ekki hreinan meirihluta á þingi. Stephen Harper verður því næsti forsætisráðherra landsins og tekur við af vinstri manninum Paul Martin. 24.1.2006 07:33
30 látast í lestarslysi í Svartfjallalandi Að minnsta kosti þrjátíu manns létust og yfir 150 slösuðust þegar farþegalest fór út af sporinu í Svartfjallalandi í gær. Talið er að lestin hafi farið út af sporinu þegar bremsur hennar biluðu og valt hún þrjátíu metra ofan í gil með fyrrgreindum afleiðingum. 24.1.2006 07:21
Kosningafundir á Vesturbakkanum og Gasaströndinni Mörg þúsund Palestínumenn tóku þátt í kosningafundum sem Fatah-samtök Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, Hamas-samtökin og samtökin Heilagt stríð boðuðu til á Vesturbakkanum og Gasaströndinni í kvöld. Nú er aðeins rúmur einn og hálfur sólahringur þar til Palestínumenn ganga að kjörborðinu og kjósa sér þing. 23.1.2006 22:46
Fimmtíu milljarða króna þarf til neyðaraðstoðar til handa konum og börnum árið 2006 Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna UNICEF, þarf um fimmtíu milljarða króna árið 2006 til að hjálpa börnum og konum í aðstæðum sem samtökin skilgreina sem neyðarástand. Fyrirhugað er að rúmur þriðjungur þeirrar upphæðar fari til hjálpar börnum í Súdan en alls segja samtökin neyðarástand ríkja á 29 svæðum í heiminum. 23.1.2006 22:45
Sprenging í þjóðminjasafninu í Helsinki Miklar skemmdir urðu þegar sprenging varð í finnska þjóðminjasafninu í Helsinki í dag. Engan sakaði. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvað olli sprengingunni. 23.1.2006 22:44
Jarðskjálfti upp á 6 á Richter í Kólumbíu Jarðskjálfti upp á sex Richter skók vesturströnd Kólumbíu í kvöld. Skjálftamiðjan var 255 kílómetra vest-norð-vestur af borginni Madellin á 26 kílómetra dýpi. 23.1.2006 22:43
Ferðaáætlun 20 þúsund farþega SAS-flugfélagsins í Danmörku og Noregi hefur raskast í dag þar sem flugmenn félagsins í báðum löndum hafa ýmist lagt niður vinnu eða tilkynnt sig veika. Flugmenn vilja með þessum aðgerðum mótmæla niðurskurði hjá félaginu. 23.1.2006 21:09
Stjórnarskipti í Kanada? Útlit er fyrir að 13 ára valdatíð Frjálslynda flokksins í Kanada sé á enda en þingkosningar standa nú yfir í landinu. 23.1.2006 21:06
Breskir njósnarar? Útvarpssendir í grjóthnullungi sem varpar rússneskum ríkisleyndarmálum til breskra sendiráðsstarfsmanna. Nei, þetta er ekki atriði úr kvikmynd um njósnara hennar hátignar heldur raunverulegar ásakanir rússneskra stjórnvalda á hendur Bretum. 23.1.2006 20:45
Tekist á um örlög fjögurra ára telpu Örlög fjögurra ára norskrar telpu sem liggur í dauðadái eru nú bitbein lækna og ástvina hennar. Málið hefur vakið mikla athygli í Noregi, ekki síst eftir að Björgvinjarbiskup skarst í leikinn. 23.1.2006 20:25
Hamas-samtökunum spáð góðu gengi í þingkosningum Utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir palestínsku þingkosningarnar lýkur í dag. Palestínumenn ganga síðan að kjörborðinu á miðvikudag. Skoðanakannanir benda til þess að Hamas-samtökin verði ráðandi afl í palestínskum stjórnmálum eftir kosningarnar og er þeim spáð 31% atkvæða. 23.1.2006 17:18
Um 280 manns urðu undir þegar bygging hrundi til grunna Að minnsta kosti tíu manns fórust og um fimmtíu manns voru fluttir á sjúkrahús þegar fimm hæða bygging hrundi til grunna í Nairóbí, höfuðborg Kenía í dag. Um 280 manns voru í húsinu þegar það hrundi en fjölmargir reyndu að koma fólkinu til bjargar og grafa það upp úr rústunum. 23.1.2006 13:30
Anibal Carvaco Silva næsti forseti Portúgals Hægrimaðurinn Anibal Carvaco Silva verður næsti forseti Portúgals en kosningar voru haldnar í landinu í gær. Engu mátti muna að til annarrar umferðar hefði komið. Cavaco Silva fékk 50,6% atkvæða í kosningunum í gær og munaði því aðeins hálfu prósentustigi að kjósa þyrfti aftur á milli hans og ljóðskáldsins Manuel Alegre, sem fékk rúman fimmtung atkvæða. 23.1.2006 12:30
Gasflutningar á milli Georgíu og Rússlands að komast í lag Gasflutningar á milli Georgíu og Rússlands eru óðum að komast í lag. Stór gasleiðsla í Norður-Ossetíu var hins vegar sprengd í loft upp í gær. Stjórnvöld í Moskvu kenna aðskilnaðarsinnum á svæðinu um spellvirkið en georgískir embættismenn telja fullvíst að Kremlverjar hafi sjálfir lagt á ráðin um það til að koma af stað orkukreppu í landinu. 23.1.2006 12:30
Meintir sjóræningjar handteknir Bandaríski sjóherinn handtók hóp meintra sjóræningja á skipi á Vestur-Indlandshafi í gær. Talið er að þeir hafi rænt ýmsum verðmætum af nokkrum flutningaskipum á hafsvæðinu undan ströndum Sómalíu undanfarna daga. 23.1.2006 11:31
Miklir skógareldar í Ástralíu Fjölmörg heimili og byggingar hafa eyðilagst í skógareldum í Ástralíu undanfarna daga. Tveir hafa látist en lögreglan rannsakar hvort dauðsföllin megi rekja til skógareldanna eða vegna annarra orsaka en fólkið fannst látið í bíl. 23.1.2006 11:22
Gassprengja sprakk í Aþenu Gassprengja sprakk fyrir utan skrifstofu íhaldsflokksins og pósthúss í Aþenu í morgun en enginn slasaðist. Líttþekktur hópur stjórnleysingjar hefur lýst ábyrgð á sprengjunni. Í síðustu viku var sprakk sprengja fyrir utan aðrar skrifstofu íhaldsflokksins og fyrir utan banka í Aþenu en enginn hefur lýst ábyrgð á því ódæði. 23.1.2006 09:25
Þrír hafa slasast alvarlega á nautahátíð í Kólumbíu Þrír hafa slasast alvarlega á Nautahátíðinni í Kólumbíu, sem haldin er árlega í fjölda bæja í norðurhluta landsins, eftir að hafa orðið fyrir barðinu á skepnunum sem hátíðin er kennd við. Níu til viðbótar hafa þurft að leita sér læknishjálpar vegna minniháttar áverka. 23.1.2006 08:08
Bændur ná háum aldri í Danmörku Bændur verða karla elstir í Danmörku, meðal þeirra stétta, þar sem fólk, vinnur sjálfstætt. Dánartíðnin er aftur á móti hæst meðal leigubílstjóra. Danska hagstofan kann enga örugga skýringu á þessu en getur sér þess til, að engin leggi út í búskap nema að vera fíl hraustur. 23.1.2006 08:06
Rússar saka breta um njósnir Rússnesk ríkissjónvarpsstöð segist hafi í höndum myndband sem sýni breska njósnara að störfum í Moskvu. Nýverið birti sjónvarpsstöðin viðtöl við rússneska njósnara sem töldu að breskir njósnarar hefðu komið fyrir sendi við götu í borginni og breskir sendiráðsstarfsmenn hefðu gengið framhjá sendinum til að hlaða niður upplýsingum. 23.1.2006 08:00
Sjóræningjar handsamaðir undan ströndum Sómalíu Bandaríski sjóherinn handtók hóp meintra sjóræningja á skipi á Vestur-Indlandshafi í gær. Talið er að þeir hafi rænt ýmsum verðmætum af nokkrum flutningaskipum á hafsvæðinu undan ströndum Sómalíu undanfarna daga. 23.1.2006 07:54
Flugdólgur reyndi að opna hurð á fljúgandi ferð 39 ára gömul bandarísk kona olli nokkurri hræðslu meðal farþega um borð í SAS flugvél þegar hún reyndi að opna hurð á flugvélinni sem var í 10 kílómetra hæð. Flugvélin var á leið frá Zurich til Kaupmannahafnar. Konan var mjög óróleg en flugáhöfnin kom í veg fyrir að henni tækist ætlunarverk sitt. Þegar vélin lenti á Kastrup flugvelli var lögreglan kölluð á staðinn sem flutti hana á geðdeild. Talið er að konan hafi ætlað að fremja sjálfsmorð. 23.1.2006 07:45
Sakar Rússa um óþokkaverk Mikhail Saakashvili forseti Georgíu sakaði Rússa í dag um að stöðva gasveitu til Georgíu um miðjan harðindavetur. Rússnesk leiðsla í Norður-Ossetíu sem flytur gas til Georgíu og Armeníu var sprengd upp í morgun. 22.1.2006 16:53
Heimsmet í fjölda lestafarþega Talið er að 37 milljónir manna hafi ferðast með kínverskum lestum síðasta sólarhringinn. Þetta er met því aldrei áður hafa jafnmargir ferðast með lestum sama daginn þrátt fyrir að aflýsa hafi þurft mörgum ferðum vegna snjókomu. 22.1.2006 14:00
Andarnefjan dauð Andarnefjan ógæfusama sem villtist upp ána Thames fyrir helgi er dauð þrátt fyrir umfangsmiklar björgunaraðgerðir í gær. Björgunarmenn hífðu hvalinn um borð í pramma í því skyni að sigla með hann út á haf og sleppa honum þar. En þegar hvalurinn var kominn upp á prammann tók hann krampakippi og gaf upp öndina. 22.1.2006 13:15
Vonskuveður víða í Evrópu Vonskuveður hefur geisað í Evrópu um helgina. Í Danmörku var Stórabeltisbrúnni lokað, í Noregi fuku hús um koll og í Úkraínu hefur tylft manna frosið í hel. 22.1.2006 12:45
Íhaldsmaður sigurstranglegastur Forsetakosningar fara fram í Portúgal í dag. Búist er við að íhaldsmaðurinn Anibal Cavaco Silva fái flest atkvæði, þó ekki svo mörg að hann hreppi forsetastólinn í fyrstu atrennu. 22.1.2006 10:45
Palestínumenn ráði nokkrum hverfum Jerúsalem Amir Peretz, leiðtogi ísraelska Verkamannaflokksins, segir að til greina komi að Palestínumenn fái yfirráð yfir þeim hverfum Jerúsalem þar sem þeir eru í meirihluta. 21.1.2006 13:45
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent