Fleiri fréttir

Sophia Loren heiðursborgari

Ítalska leikkonan Sophia Loren var kjörin heiðursborgari í strandbænum Pozzuoli í Suður-Ítalíu í gær. Leikkonan, sem er sjötug, brast í grát við athöfn sem bæjarbúar héldu henni til heiðurs.

Ísraelar hóta loftárásum

Ísraelar ætla að bregðast við af fullri hörku ef árásum linnir ekki meðan þeir yfirgefa Gaza-svæðið. Þeir segja loftárásir jafnvel koma til greina.

Fundað á Kóreuskaga

Nefnd háttsettra embættismanna frá Norður-Kóreu kom á fund suðurkóreskra embættismanna á þriðjudaginn í þessari viku. Suður-Kóreumenn þrýstu á Norður-Kóreu að taka á ný upp viðræður um kjarnorkuvopnamál.

Verkfalli aflýst

Á þriðjudagskvöld tókst að ná samkomulagi við norska olíuverkamenn og ekkert varð því úr verkfalli þeirra. Deilan snerist um vaktafyrirkomulag fremur en laun. Verð á hráolíu lækkaði lítillega í gærmorgun í kjölfar samkomulagsins og Dow Jones-vísitalan hækkaði um 0,2 prósent.

Manchester United tekið af markaði

Knattspyrnuliðið Manchester United var í gær afskráð af hlutabréfamarkaði í London. Liðið hafði verið á markaðnum í fjórtán ár, en nýr eigandi þess, Malcolm Glazer, hafði lýst því yfir að hann myndi taka það af markaðnum. Glazer sagðist þann 14. júní eiga 97,3 prósent allra hlutbréfa í félaginu.

Mistök ef ekki rætt við Tyrki

Það verða stór mistök ef Evrópusambandið fer ekki út í alvarlegar aðildarviðræður við Tyrki, segir forseti framkvæmdastjórnar ESB. Hann segir hugsanlega aðild Tyrkja að hluta til ástæðuna fyrir því að Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarskrá sambandsins.

Kommúnistaleiðtogi myrtur í Beirút

George Hawi, fyrrverandi leiðtogi Kommúnistaflokksins í Líbanon, var drepinn í Beirút í morgun. Sprengju virðist hafa verið komið fyrir í bíl Hawis og lést hann samstundis þegar hún sprakk. Hann var andsnúinn Sýrlendingum, líkt og Saab Hariri, sem sigraði í kosningunum í Líbanon um helgina. Aðeins þrjár vikur eru síðan dálkahöfundurinn Samir Kassir var drepinn á sama hátt, en hann var einnig þekktur fyrir andstöðu sína við Sýrlendinga.

Berjast gegn veiðum Japana

Andstæðingar hvalveiða berjast nú fyrir því að fá Japana til þess að láta af áformum um að tvöfalda hvalveiðar í vísindaskyni. Japanar tilkynntu á ráðstefnu Alþjóðahvalveiðiráðsins í gær að þeir hygðust auka árlegar veiðar á hvölum í vísindaskyni um helming frá og með næsta ár, og hafa þau áform vakið mikla úlfúð hjá andstæðingum hvalveiða.

Komust óhindrað inn í kjarnorkuver

Sextán útlendingar með fölsuð vegabréf komust nýlega inn í kjarnorkuver í Tennessee í Bandaríkjunum sökum lélegrar öryggisgæslu. Frá þessu greinir dagblaðið <em>Washington Post</em> og þykir um mikið hneyksli að ræða þar sem öryggisyfirvöld í Bandaríkjunum hafa ítrekað varað við því að kjarnorkuver kunni að verða næsta stóra skotmark hryðjuverkamanna.

Viss um að komast til valda á ný

Saddam Hussein saknar valdatíma Ronalds Reagan, segist ekki tengjast Osama bin Laden á nokkurn hátt og er handviss um að hann komist til valda í Írak á ný. Þetta kemur fram í viðtölum við fimm fangaverði sem hafa annast Saddam undanfarið ár og birtast í nýjasta hefti <em>GQ</em>.

Bolton hafnað í annað sinn

Demókratar á Bandaríkjaþingi hafa öðru sinni hafnað að samþykkja John Bolton sem sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Ráðning Boltons var samþykkt í öldungadeildinni með 54 atkvæðum gegn 38, sem er sex atkvæðum minna en þurfti til að knýja fram lokaatkvæðagreiðslu um ráðninguna.

Sótt gegn herskáum Palestínumönnum

Ísraelskar öryggissveitir hafa síðasta sólarhringinn handtekið að minnsta kosti 50 Palestínumenn sem grunaðir eru um að tilheyra herskáum samtökum í kjölfar þess að átök hafa aftur blossað upp á milli Ísraela og Palestínumanna. Þetta er í fyrsta sinn í hálft ár sem öryggissveitirnar láta til sín taka fyrir alvöru, en síðustu tvo daga hafa tveir Ísraelar látist í árásum palestínskra uppreisnarmanna.

Lenti í þyrluslysi á afmælisdaginn

Sex manns, þar á meðal hundrað ára gamall maður, slösuðust þegar þyrla hrapaði nærri Sala norðvestur af Stokkhólmi í Svíþjóð í morgun. Verið var að sækja öldunginn á hjúkrunarheimili í bænum Heby og hugðist hann fagna afmæli sínu fjölskyldu sinni á eyju í grenndinni. Þegar þyrlan hóf sig á loft slógust þyrluspaðarnir í rafmagnsstaur með þeim afleiðingum að þyrlan fór á hliðina.

Sænskur gísl frelsaður í Írak

Sænskur gísl sem verið hefur í haldi mannræningja í Írak í rúma tvo mánuði hefur verið frelsaður. Frá þessu greindi utanríkisráðuneyti Svíþjóðar í dag. Ekki hafði verið greint frá því að manninum, hinum 63 ára Ulf Hjertström, hefði verið rænt en hann segist í samtali við <em>Aftonbladet</em> hafa verið í haldi frá því á föstudaginn langa.

Alvarlegt lestarslys í Ísrael

Að minnsta kosti fimm létust og hundrað særðust þegar farþegalest ók á vöruflutningabíl í Ísrael í dag. Lestin var að koma frá Tel Aviv í suðurhluta landsins og á leið til Beersheba þegar hún skall á flutningabílnum sem var að flytja alifugla. Ísraelskar útvarpsstöðvar greina frá því að svo virðist sem bíllinn hafi bilað á leið sinni yfir lestarteinana. Áreksturinn var svo harður að lestin fór út af teinunum og köstuðust farþegar út úr vögnum lestarinnar. Björgunarmenn reyna nú að ná fólki sem er fast í flaki vagna sem fóru út af sporinu en óttast er að tala látinna kunni að hækka.

Yfirbuguðu talibana í Kandahar

Afgönsk lögregla hefur aftur náð landsvæði í Suður-Afganistan á sitt vald sem talibanar lögðu undir sig í síðustu viku. Lögreglan lét til skrarar skríða gegn uppreisnarmönnum í morgun og með stuðningi bandarískra hersveita voru 32 menn drepnir og 15 teknir höndum.

Sakfelldur fyrir að myrða þrjá

Félagi í bandarísku samtökunum Ku Klux Klan var í dag sakfelldur fyrir að hafa drepið þrjá mannréttindaforkólfa árið 1964. Edgar Ray Killen, sem nú er áttræður, er sagður hafa verið leiðtogi samtakanna og látið drepa þá Michael Schwerner, Andrew Goodman og James Chaney, en þeir höfðu aðstoðað blökkumenn í Mississippi-ríki við að komast á kjörskrá.

Þjóðaratkvæði frestað í Póllandi

Pólverjar munu fresta fyrirhugaðri kosningu um stjórnarskrá Evrópusambandsins í óákveðinn tíma að því er Aleksander Kwasniewski, forseti landsins, greindi frá í dag. Til stóð að Pólverjar greiddu atkvæði um sáttmálann í október en vegna þeirrar óvissu sem ríkir um sáttmálann eftir að Frakkar og Hollendingar höfnuðu honum telja pólsk yfirvöld ekki ástæðu til að leggja hann í dóm þjóðarinnar.

Stirt andrúmsloft á leiðtogafundi

Ísraelar ætla að standa við sinn hluta vopnahléssamkomulagsins við Palestínumenn taki þeir síðarnefndu uppreisnarmenn fastari tökum. Þetta kom fram á leiðtogafundi Ariel Sharon og Mahmoud Abbas í gær.

Hlutleysið rannsakað

Danska ríkisstjórnin ætlar að verja rúmum fimmtíu milljónum íslenskra króna í að rannsaka hvort fréttastofur danska ríkisútvarpsins rísi undir ábyrgð sinni að flytja "fjölbreyttar, hlutlausar og óháðar fréttir."

Mamman í fangelsi

Emily Price, táningsstúlka frá Cheltenham á Englandi hefur heldur betur komið móður sinni í klandur með því að hlaða niður tónlist með vinsælum hljómsveitum á tölvu sína. Þar sem móðirin, Sylvia að nafni, er ábyrgðarmaður stúlkunnar hefur henni verið send sekt upp á hálfa milljón króna fyrir athæfi dótturinnar.

Ljónin björguðu lífi telpunnar

Þrjú ljón björguðu tólf ára gamalli eþíópískri telpu úr klóm mannræningja sem hugðust neyða hana í hjónaband.

Baðst afsökunar á liðhlaupi

Bandaríkjamaðurinn Charles Jenkins baðst afsökunar í gær á liðhlaupi sínu árið 1965 áður en hann fór frá Bandaríkjunum til Japan, þar sem hann býr nú.

Annað morðið í mánuðinum

Stjórnarandstæðingurinn George Hawi, leiðtogi líbanskra kommúnista, beið bana í bílsprengjuárás í gær.

Saddam saknar Reagan

Saddam Hussein segist enn vera forseti Íraks og bauð bandarísku hermönnunum sem gæta hans að heimsækja sig í Írak þegar hann hefði náð völdum þar á ný. Hann saknar gömlu góðu daganna þegar Ronald Reagan seldi honum vopn á tímum Íransstríðsins, þvær sér oft um hendurnar og kann vel að meta Doritos-flögur.

Bush hrósar Víetnömum

Phan Van Khai, forsætisráðherra Víetnams, hitti George Bush í Hvíta húsinu í gær. Leiðtogarnir ræddu um áhuga Víetnams á aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO, viðskipti og mannréttindamál.

Afganir ósáttir við Pakistana

Stjórnvöld í Afganistan þrýsta nú á Pakistana að herða aðgerðir gegn hryðjuverkamönnum í Pakistan. Afganar telja þá ekki leggja sig fram og segja að það verði aldrei friður í Afganistan nema ríkisstjórnir beggja landa taki höndum saman í baráttunni við hryðjuverkamenn.

Handsamaðir við Grikkland

Gríska landhelgisgæslan hefur síðustu daga handsamað yfir fimmtíu ólöglega innflytjendur á Eyjahafi. Talið er að átt hafi að smygla þeim frá Tyrklandi til Grikklands. Ekki liggur fyrir hvaðan þeir eru.

Bolton veldur enn vandræðum

Repúblikönum í bandarísku öldungadeildinni mistókst á mánudagskvöld að knýja í gegn samþykki tilnefningar John Bolton sem fastafulltrúa Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Demókratar hafa beitt málþófi til að hindra tilnefninguna.

Dæmdur 41 ári síðar

Bandaríkjamaðurinn Edgar Ray Killen, sem nú er áttatíu ára, var í gær dæmdur fyrir að hafa átt aðild að morði á þremur mönnum í Mississippi af hópi Klu Klux Klan-manna árið 1964.

Sagður haldinn hreinlætisáráttu

Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseti, er hinn viðkunnanlegasti, hefur dálæti á kartöfluflögum og er haldinn hreinlætisáráttu. Fimm fangaverðir, sem gættu Saddams um tíu mánaða skeið, sjá ástæðu til að koma þessum upplýsingum á framfæri og einnig því að Saddam telji sig enn vera forseta Íraks.

Fundu bát með flóttamönnum

Íslendingar í ævintýraleit lentu í öðruvísi ævintýrum en þeir áttu von á við strendur Kanaríeyja. Í stað þess að landa sverðfiskum fundu þeir bát með flóttamönnum frá Afríku.

Fundu lík af 2500 ára stúlku

Þýska lögreglan var kölluð til þegar líkamsleifar unglingsstúlku fundust í Neðra-Saxlandi. Lögreglan fól hins vegar fornleifafræðingum málið. Líkið var 2500 ára gamalt en ótrúlega vel varðveitt. Það er talið vera einn merkasti fornleifafundur Evrópu í áratugi.

Blóðugur morgunn í Írak

Að minnsta kosti 25 Írakar féllu í árásum uppreisnarmanna í nótt og í morgun. Um klukkan tvö sprakk bílsprengja utan við lögreglustöð í Bagdad og í kjölfarið upphófst skothríð. Þar létust fimm lögregluþjónar og meira en tuttugu særðust. Snemma í morgun var svo gerð sjálfsmorðsárás við ráðningarstöð írakska hersins í borginni Arbil í norðurhluta Íraks.

Náðu ekki yfirhöndinni á fundi

Hvalveiðisinnum mistókst í morgun að ná yfirhöndinni á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Suður-Kóreu. Veiðisinnar urðu undir í atkvæðagreiðslu um breytingar á starfsemi Alþjóðahvalveiðiráðsins en japanska sendinefndin lagði til að atkvæðagreiðslur um tillögur yrðu framvegis leynilegar. Aðeins þremur atkvæðum munaði.

Hyggjast innleiða reykingabann

Breska stjórnin mun í dag greina frá því að hún hyggist setja lög um algjört reykingabann á opinberum stöðum í Bretlandi. Upphaflega var talið að staðir sem ekki seldu mat yrðu undanskildir banninu en breska blaðið <em>Observer</em> hefur eftir heimildarmönnum innan Verkamannaflokksins að bannið muni ná til allra opinberra staða, líka hefðbundinna öldurhúsa.

Bandalag Hariris með meirihluta

Bandalag Saads Hariris virðist hafa náð hreinum meirihluta á þinginu í Líbanon eftir fjórða og síðasta hluta kosninga í landinu sem fram fór var í gær. Saad er sonur Rafiqs Hariris, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, sem var myrtur fyrr á þessu ári og flokkur hans er andsnúinn Sýrlendingum.

Hermaður drepinn í fyrirsát

Ísraelskur hermaður lést og tveir særðust þegar palestínskir uppreisnarmenn sátu fyrir þeim og gerðu á þá árás nærri landamærum Egyptalands í gær. Óþekktur hópur uppreisnarmanna segist hafa náð atburðinum á myndband en ekki hefur verið staðfest að myndirnar séu ósviknar. Einn árásarmannanna lést í átökunum.

Segjast vita hvar bin Laden er

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar segir að nokkurn veginn sé vitað hvar Osama bin Laden haldi sig en ekki verði látið til skarar skríða gegn honum strax. Þetta kemur fram í tímaritinu <em>Time</em>. Þar segir Porter Goss, yfirmaður CIA, að sökum ákveðinna veikleika, sem enn séu fyrir hendi í sameiginlegri baráttu gegn hryðjuverkum, þurfi að bíða með að ráðast til atlögu gegn bin Laden.

Endurtelja hluta atkvæða í Íran

Kjörstjórn í Íran hefur fyrirskipað að hluti atkvæða í forsetakosningunum í landinu á föstudag verði endurtalinn vegna ásakana umbótasinna um kosningasvik. Harðlínumaðurinn Mahmoud Ahmadinejad, borgarstjóri í Teheran, varð nokkuð óvænt í öðru sæti í kosningunum á eftir Akbar Rafsanjani, fyrrverandi forseta landsins, og verður að öllu óbreyttu kosið á milli þeirra í annarri umferð kosninganna á föstudaginn kemur.

Búist við átakafundi í Ulsan

Búist er við átökum á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem hófst í Ulsan í Suður-Kóreu í morgun. Hvalveiðisinnar gerðu sér vonir um að ná í gegn breytingum sem gerðu það að verkum að takmarkaðar hvalveiðar yrðu aftur leyfðar en slegið var á þær væntingar strax í upphafi fundar.

36 ár að greiða fyrir veitingar

Skuld kínverskra sveitarstjórnarmanna við veitingastað í Shaanxi-héraði er svo há að það tekur fjárvana sveitarfélagið 36 ár að greiða hana niður. Í <em>Beijing Evening News</em> kemur fram að síðustu fjögur ár hafi ráðamennirnir látið skrifa hjá sér veigar fyrir um eina og hálfa milljón íslenskra króna. Bæjarstjórnin hefur einungis heimild til að greiða brotabrot af skuldinni ár hvert og veitingastaðurinn er því gjaldþrota.

Kosið um stjórnarskrá í Lúxemborg

Yfirvöld í Lúxemborg ákváðu í dag að hverfa ekki frá þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá Evrópusambandsins þann 10. júlí næstkomandi þrátt fyrir þá óvissu sem ríkir um hana í kjölfar þess að Frakkar og Hollendingar felldu hana.

Kvenráðherra sver embættiseið

Fyrsti kvenráðherra Kúveits sór í dag embættiseið á kúveiska þinginu við hávær mótmæli íslamskra harðlínumanna. Massouma al-Moubarak, fyrrverandi háskólaprófessor og baráttukona fyrir réttindum kvenna, var í síðustu viku skipuð skipulags- og stjórnsýsluráðherra í Persaflóaríkinu og tekur sæti á kúveiska þinginu sem slík. Moubarak sagði við athöfnina að dagurinn í dag markaði þáttaskil fyrir kúveiskar konur sem lengi hefðu barist fyrir því að fá að taka þátt í stjórnmálum í landinu.

Sjá næstu 50 fréttir