Fleiri fréttir

Afsögn forsætisráðherra Líbanons

Omar Karami sagði af sér forsætisráðherraembætti í Líbanon í dag eftir að honum mistókst að mynda ríkisstjórn. Forseti landsins, Emile Lahoud, hefur samþykkt afsögnina fyrir sitt leyti og leitar nú að nýjum manni í starfið.

Skipulagði efnavopnaárás

Dómur féll í dag í einu umfangsmesta hryðjuverkamáli sem upp hefur komið í Bretlandi síðustu árin. Karlmaður frá Alsír var dæmdur í sautján ára fangelsi fyrir að skipuleggja efnavopnaárás með rísíni.

Banvæn veira send fyrir mistök

Algengt er að hættuleg veiruefni séu send á milli rannsóknarstofa, jafnvel heimshorna á milli. Stórhættuleg flensuveira, sem hægt væri að nota til að búa til banvæn sýklavopn, var þannig send frá Bandaríkjunum til alls átján landa. Nú vilja yfirvöld að þessari veiru verði eytt.

Blair kynnti kosningaloforðin

Kosningabaráttan í Bretlandi er komin á fullan skrið. Verkamannaflokkurinn kynnti kosningaloforð sín í dag við litla hrifningu íhaldsmanna. 

Réttað í van Gogh-máli

Mohammed Bouyeri, marokkósk-ættaði Hollendingurinn sem ákærður er fyrir morðið á hollenska kvikmyndagerðarmanninum Theo van Gogh, kom fyrir rétt í fyrsta sinn í Amsterdam í gær. Hann reyndi ekki að bera af sér sakir né skýra mál sitt.

Olía á eld milliríkjadeilu

Japönsk stjórnvöld greindu frá því í gær að þau hefðu tekið til afgreiðslu umsóknir japanskra fyrirtækja um tilraunaboranir eftir jarðgasi undir sjávarbotni á svæði í Kínahafi sem Kínverjar gera einnig tilkall til. Líklegt er að þessi ákvörðun verði sem olía á eldinn í milliríkjadeilu Japans og Kína.  

Evrópuþingið samþykkir stækkun ESB

Evrópuþingið samþykkti í gær fyrir sitt leyti að Rúmenía og Búlgaría fái aðild að sambandinu á árinu 2007. Samþykktin var þó gerð með þeim fyrirvara að í báðum löndum verði ýmsum umbótum hrint í framkvæmd áður en aðildarsamningarnir ganga í gildi.

Slæðubannið hefur reynst vel

"Slæðubannið" svokallaða, lög sem sett voru í Frakklandi fyrir einu ári sem banna áberandi trúartákn í ríkisskólum, er leið til lausnar á aðlögun múslima og annarra innflytjendahópa að þjóðfélagi þar sem gildi eins og einstaklingsfrelsi og jafnrétti allra borgara eru í hávegum höfð. Þetta segir stjórnmálaheimspekingurinn Blandine Kriegel.

Erfið byrjun nýja formannsins

Nýr formaður danska jafnaðarmannaflokksins mætir á fyrsta degi mótstöðu þingmanna flokksins vegna ummæla sinna um danska eftirlaunakerfið. Sameining er lykilorð nýja formannsins sem segir tímabært að ljúka harðri baráttu fylkinga innan flokksins.

Sautján drepnir í loftárásum

Sautján Írakar létust í loftárásum Bandaríkjamanna á þorpið al-Rummana í Írak í gær. Uppreisnarmenn í þorpinu gerðu nokkrar árásir á herlið Bandaríkjamanna sem svaraði með því að gera loftárásir á þorpið úr þyrlum. Fimmtán Írakar særðust í árásunum, en í þeim voru að minnsta kosti þrjú hús lögð alveg í rúst.

Flýðu heimili sín vegna eldgoss

Hundruð manna þurftu að yfirgefa heimili sín á eyjunni Súmötru á Indónesíu í morgun þegar eldfjall á svæðinu byrjaði að gjósa. Eldgosinu fylgdu nokkrir jarðskjálftar og mældist sá sterkasti 5,8 á Richter. Að sögn vitna greip mikil hræðsla um sig meðal íbúa í nágrenninu sem fengið hafa sinn skerf af náttúruhamförum undanfarið.

Rumsfeld óvænt til Íraks

Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kom óvænt til Íraks í morgun og mun í dag funda með nýjum stjórnarherrum í landinu. Í morgun sagðist Rumsfeld ætla að leggja á það áherslu við bæði  Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra Íraks, og Jalal Talabani forseta að ekki mætti fresta því að koma nýrri stjórnarskrá í gagnið í Írak og eins yrði að halda kosningar í landinu í desember.

Samningamanni rænt í Bagdad

Uppreisnarmenn í Írak rændu í gær bandarískum samningamanni í Bagdad. Þar með eru að minnsta kostið sextán útlendingar í haldi uppreisnarmanna í Írak nú um stundir, meðal annars þrír rúmenskir blaðamenn sem rænt var fyrir skömmu. Alls hefur meira en tvö hundruð útlendingum verið rænt síðan ráðist var inn í Írak í mars árið 2003.

Heilaæxli fylgi ekki farsímanotkun

Notkun farsíma eykur ekki líkurnar á heilaæxli samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar frá Danmörku. Rannsóknin náði til rúmlega þúsund manna og leiddi í ljós að ekki er fylgni á milli notkunar farsíma og krabbameins í heila. Rannsakendur benda þó á að enn hafi ekki verið gerðar langtímarannsóknir á áhrifum farsíma þar sem tæknin hafi ekki verið nógu lengi við lýði.

Réðust gegn manni á Capitol-hæð

Lögreglumenn í Washington réðust í gær að grunsamlegum manni sem hafði staðið með tvær ferðatöskur utan við þinghúsið í Washington á Capitol-hæð um nokkra hríð og vildi fá að hitta George Bush forseta. Svæðið í kringum þinghúsið var rýmt um tíma um miðjan daginn í gær af ótta við að í ferðatöskunum væri sprengiefni.

Veiða timbur í Lofoten

Húsbyggjendur í Lofoten í Norður-Noregi þurfa ekki lengur að hafa fyrir því að róa til fiskjar, verka hann og koma honum í verð til að eiga fyrir timbri heldur veiða þeir timbrið beint. Þar er nú allt umflotið í úrvalstimbri og má hver hirða sem hann getur enda stafar bátum hætta af timbrinu sem marar í hálfu kafi um allan sjó.

Um 150 manns enn undir rústum

Björgunarsveitarmenn í Bangladess börðust í morgun við að reyna að bjarga allt að 150 manns sem eru enn fastir undir rústum verksmiðjubyggingar sem hrundi í gær. Að minnsta kosti 26 lík hafa þegar fundist í rústunum en í gær og nótt tókst að bjarga nærri eitt hundrað manns undan rústunum.

Frakkar andvígir stjórnarskrá ESB

Ellefu síðustu skoðanakannanir benda allar til þess að meirihluti almennings í Frakklandi ætli að hafna stjórnarskrá Evrópusambandsins. Fyrir aðeins um tveim mánuðum var stuðningur við stjórnarskrána um sextíu prósent í Frakklandi en hann hefur hríðfallið undanfarið. Kosið verður um stjórnarskrána þann 29. maí.

Lögsækir ekki Bandaríkjamenn

Bobby Fischer hefur fallið frá lögsókn á hendur bandarískum stjórnvöldum sem þingfest var fyrir hann í San Diego í Bandaríkjunum daginn sem hann var látinn laus í Japan og hélt til Íslands.

Pólverjar frá Írak fyrir árslok

Pólskar hersveitir í Írak verða kallaðar heim fyrir lok árs, að sögn varnarmálaráðherra Póllands. Pólverjar höfðu látið í það skína að von væri á þessum tíðindum en þau koma sér engu að síður illa fyrir hersetuveldin í Írak. Bandaríkjamenn hafa þó engu að síður í hyggju að fækka í liði sínu í landinu.

Hvatti til að landtöku yrði hætt

George Bush Bandaríkjaforseti snupraði Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, á fréttamannafundi í gær og olli undrun þegar hann hvatti til þess að landnámi á Vesturbakkanum yrði hætt.

Mannskæð veira í Angóla

Mannskæður og óhuggulegur vírus, svokallaður Marburg-vírus, veldur miklu mannfalli í Angóla. Fáum dögum eftir smit deyr fólk og engin lækning finnst.

Fjórum börnum haldið í gíslingu

Maður vopnaður hnífi heldur fjórum börnum í gíslingu í kjallara húss í bænum Ennepetal í vesturhluta Þýskalands. Hann mun hafa tekið þau í gíslingu í rútu rétt fyrir hádegi í dag og svo haldið í kjallarann þar sem hann er enn. Lögregla segir að maðurin sé á fimmtugsaldri og hugsanlega af írönsku bergi brotinn. Hann hafi farið fram að fjölskylda hans fengi að koma til hans í Þýskalandi.

Gripu fyrrverandi Baath-leiðtoga

Íröksk stjórnvöld greindu frá því í dag að öryggissveitir hefðu handsamað mann sem var áður háttsettur innan Baath-flokks Saddams Husseins. Maðurinn heitir Fadhil Ibrahim Mahmud Al-Mashadani og er talinn hafa skipulagt og fjármagnað fjölmargara árásir uppreisnarsveita í Írak.

Lofa Súdönum fé til uppbyggingar

Súdönum hefur verið heitið fjórum komma fimm milljörðum dollara, um 275 milljörðum króna, á næstu þremur árum til endurreisnar í landinu eftir tuttugu og eins árs borgarastyrjöld. Þetta kom fram í lok tveggja daga ráðstefnu um framtíð Súdans sem haldin var í Osló, en alls tóku 60 þjóðir þátt í henni.

Samþykktu fóstureyðingar á þingi

Íranska þingið hefur samþykkt að leyfa fóstureyðingar í landinu þegar líf móðurinnar er í hættu eða þegar ljóst þykir að barnið verði fatlað. Frá þessu greindi fréttastofan IRNA í dag. Deilt var um lögin á þinginu og bentu andstæðingar þeirra á að margir fatlaðir gengdu mikilvægu hlutverki í samfélaginu og einnig að hætta væri á að lögin yrðu misnotuð.

Frelsuðu fjórar stúlkur í gíslingu

Lögregla í Þýskalandi hefur yfirbugað fimmtugan Írana sem rændi fjórum stúlkum og hélt þeim í gíslingu í bænum Ennepetal í norðvesturhluta landsins í dag. Maðurinn tók stúlkurnar í gíslingu í rútu fullri af skólabörnum skömmu fyrir hádegi og fór með þær í kjallara húss þar í bæ. Óttast var um líf stúlknanna þar sem maðurinn var vopnaður hnífi.

Mælt með viðræðum við Serba

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur mælt með því að hafnar verði samingaviðræður við Serbíu og Svartfjallaland sem á endanum gætu leitt til inngöngu landins í bandalagið. Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að serbnesk stjórnvöld hafa sýnt Stríðsglæpadómstólnum í Haag aukinn samstarfsvilja og framselt 13 menn sem grunaðir eru um stríðsglæpi í styrjöldinni á Balkanskaga á tíunda áratugnum.

Líkamspartar í tösku

Sænska lögreglan telur að líkamspartarnir sem fundust í Stokkhólmi um helgina séu af sömu manneskju og þeir sem fundust í höfuðborginni í lok síðasta mánaðar. Í gær hvatti hún almenning til að aðstoða við rannsókn málsins.

Bush kominn með iPod

George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur eignast nýtt leikfang: stafræna vasadiskóið iPod. Þegar stund skapast á milli stríða notar Bush tækifærið og stundar líkamsrækt með dúndrandi dægurtónlist í eyrunum.

Pólverjar hugsa sér til hreyfings

Stjórnvöld í Póllandi áforma að draga herlið sitt frá Írak snemma næsta árs þegar ályktun Sameinuðu þjóðanna um hernaðaraðstoð við írösku ríkisstjórnina rennur úr gildi. 1.700 pólskir hermenn eru nú í Írak en stór hluti Pólverja er andsnúinn stríðsrekstrinum.

Mótmælendur loka skóla

Andstæðingar Ariels Sharon forsætisráðherra Ísraels lokuðu skólum í mótmælaskyni við áform um að leggja niður landnemabyggðir á Gaza-ströndinni. Sharon situr þó fastur við sinn keip um að stækka byggðir á Vesturbakkanum þrátt fyrir áminningu Bandaríkjaforseta.

Negroponte yfirheyrður

Bandaríkjaþing hóf í gær yfirheyrslur sínar yfir John Negroponte, sendiherra í Írak., en George W. Bush forseti hefur tilnefnt hann sem yfirmann yfir leyniþjónustustofnunum Bandaríkjanna.

Enn og aftur hamfarir á Súmötru

Eins og á það væri bætandi hófst í morgun eldgos á Súmötru, skammt frá þeim slóðum sem urðu illa úti í jarðskjálftum og flóðbylgjunni um jólin.

Réttarhöld halda áfram í Angers

Réttarhöld fara nú fram í Angers í Frakklandi yfir 66 manns sem eru ákærð fyrir stórfellda kynferðislega misnotkun á 45 börnum. Dómarar heyrðu í gær vitnisburð þriggja fórnarlambanna.

Bush snupraði Sharon

Snuprur en ekki stuðningur var það sem Ariel Sharon fékk á fundi með Bush Bandaríkjaforseta í gær. Bush lagði hart að Sharon að fylgja friðarvegvísinum og leggja bann við landnámi á svæðum Palestínumanna.

Nýr formaður danskra jafnaðarmanna

Hin 38 ára gamla Helle Thorning-Schmidt sigraði í formannskjöri í danska Jafnaðarmannaflokknum sem leitt var til lykta í gær. Hún er fyrst kvenna til að gegna formennsku í flokknum í 134 ára sögu hans.

Segir Japana þurfa að vinna traust

Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, gaf í skyn í gær að Japanir verðskulduðu ekki að fá varanlegt sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Stjórnvöld í Japan ættu eftir að vinna traust grannþjóðanna áður en þau öxluðu nýja ábyrgð á alþjóðavettvangi.

Átök á Vesturbakkanum

Til átaka kom í borginni Nablus á Vesturbakkanum í morgun þegar ísraelskir hermenn gerðu áhlaup á nokkrar byggingar. Hermennirnir komu á tuttugu herbílum og þyrlu, umkringdu byggingarnar og skipuðu íbúum að fara út. Sögðust þeir leita palestínskra uppreisnarmanna.

Meirihluti Norðmanna hlynntur ESB

Meirihluti Norðmanna er nú hlynntur aðild að Evrópusambandinu samkvæmt nýrri skoðanakönnum sem gerð var fyrir norska ríkissjónvarpið og dagblaðið <em>Aftenposten</em>. 58 prósent Norðmanna vilja ganga í ESB og hefur stuðningur við það ekki mælst meiri síðan í maí í fyrra. Norðmenn hafa sem kunngt er tvisvar hafnað inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu, fyrst árið 1971 og svo aftur árið 1994.

Saddam kann að sleppa við dauðadóm

Saddam Hussein kann að sleppa við dauðarefsingu. Að sögn embættismanns innan ríkisstjórnar Íraks eru í gangi samningaviðræður við súnníta í Írak sem hafa farið þess á leit við stjórnvöld að Saddam verði dæmdur í lífstíðarfangelsi en fái að halda lífi. Á móti myndu þeir beita sér fyrir því að uppreisnarmenn létu af árásum sínum.

Hermönnum fækkað innan árs

Bandarískum hermönnum í Írak verður líklega fækkað verulega þegar í byrjun næsta árs. Dagblaðið <em>New York Time</em>s hefur þetta eftir háttsettum embættismönnum innan Pentagon, varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna. Þeir segja að árásum uppreisnarmanna hafi fækkað verulega undanfarna mánuði og þá hafi meira en 150 þúsund írakskir þjóðvarðliðar þegar hlotið næga þjálfun til þess að hefja störf.

Reykingar hafa áhrif á barnabörn

Barnabörn kvenna sem reykja á meðgöngu eru meira en helmingi líklegri til þess að fá asma heldur en önnur börn. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem vísindamenn við læknaháskóla í Kaliforníu gerðu. Svo virðist sem breytingar á erfðaefni kunni að eiga sér stað hjá afkomendum kvenna sem reykja á meðgöngu.

Snarpur skjálfti í Japan

Jarðskjálfti upp á 6,1 á Richter varð rétt utan við Tókýó snemma í morgun en ekki hafa borist neinar fregnir af slysum eða verulegu eignatjóni. Loka þurfti tveim flugbrautum á Narita-flugvelli um stund en þær voru fljótlega opnaðar aftur. Yfirvöld í Tókýó hafa varað við að snarpir eftirskjálftar kunni að fylgja í kjölfar skjálftans í morgun.

Hyggjast leyfa silíkon aftur

Er silíkon hættulegt eða skaðlaust? Enn á ný er um þetta deilt í Bandaríkjunum þar sem stjórnvöld hafa nú í hyggju að aflétta banni við flestum tegundum sílíkonaðgerða sem verið hefur í gildi síðan árið 1992. Hópur vísindamanna hefur þegar mótmælt þessum áformum stjórnvalda og enn stefnir í harðvítugar deilur um hugsanlegar hættur af völdum silíkons og silíkonaðgerða.

Sjá næstu 50 fréttir