Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dean formaður Demókrataflokksins Howard Dean, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, verður næsti formaður bandaríska Demókrataflokksins. Eini keppinautur hans dró framboð sitt til baka í gærkvöldi. 8.2.2005 00:01
Hubble-sjónaukinn brotlendir Geimsjónaukinn Hubble er á leiðinni til jarðar. Lendingin verður ekki mjúk því hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA telja menn Hubble úreltan og ætla að láta hann brotlenda til að koma í veg fyrir að hann verði að geimrusli á sporbraut um jörðu. Mikið slíkt rusl er á sveimi þar og veldur bæði skemmdum á gervihnöttum og öðrum búnaði. 8.2.2005 00:01
23 látnir í Írak Að minnsta kosti 23 hafa látið lífið í Írak í morgun. Tuttugu og einn lést og 27 slösuðust í sprengjuárás sem varð nærri ráðningarstöð hersins í Bagdad. Þá reyndu uppreisnarmenn að myrða stjórnmálamann í vesturhluta borgarinnar í morgun. Hann komst lífs af en tveir synir hans voru myrtir. 8.2.2005 00:01
Afsögn páfa hugsanleg Afsögn páfa er hugsanleg. Æðsti embættismaður Páfagarðs léði í gærkvöldi máls á því og olli með því töluverðu uppnámi. 8.2.2005 00:01
Tímamótaávarp frá Rice Allir viðmælendur Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á Ítalíu veiktust og afboðuðu fundi sína með henni í morgun. Búist er við tímamótaávarpi frá henni í París síðdegis. 8.2.2005 00:01
Saka hvor annan um hræðsluáróður Spennan magnast á kjördegi í Danmörku. Tveir stærstu flokkarnir saka hvor annan um hræðsluáróður í dagblaðaauglýsingum. Stjórnin heldur velli samkvæmt nýrri skoðanakönnun en bæði Venstre og jafnaðarmenn missa þingsæti. Sighvatur Jónsson er í Danmörku. 8.2.2005 00:01
Mannræningjarnir í sigtinu? Svo virðist sem sænska lögreglan sé á hælunum á ræningjunum sem rændu forstjóra verslunarkeðjunnar SiBa fyrir þremur vikum. Dómstóll í Gautaborg gaf í morgun út alþjóðlega handtökuskipun á hendur manni sem hún telur að dvelji utan Svíþjóðar. 8.2.2005 00:01
Friðaryfirlýsingar væntanlegar Sitthvor friðaryfirlýsingin er væntanleg í dag frá leiðtogum Palestínumanna og Ísraels en þeir hittust í morgun á friðarfundi í Egyptalandi. Samkvæmt því sem Raanan Gissin, talsmaður Ísraelsstjórnar, greindi frá í morgun munu Palestínumenn byrja á því að lýsa því yfir að ofbeldisverkum gegn Ísraelum verði hætt. 8.2.2005 00:01
Ítalska blaðakonan aflífuð? Hópur herskárra uppreisnarmanna í Írak segist hafa tekið ítölsku blaðakonuna, Giuliana Sgrena, af lífi. Hópurinn sendi tilkynningu frá sér í dag. Giuliönu var rænt á föstudag af öðrum hópi en nú segist hafa líflátið hana. 8.2.2005 00:01
Meirihlutinn sá sami Nýjustu skoðanakannanir Gallups benda til þess að þingmeirihluti hægri stjórnar Anders Fogh Rassmussens verði nákvæmlega sá sami eftir kosningar og hann er í dag, eða 98 sæti gegn 77 sætum stjórnarandstöðunnar. Engu að síður benda kannanir til þess að stærstu flokkar beggja blokka tapi fylgi en að minni flokkarnir bæti við sig. 8.2.2005 00:01
Vopnahlé í Miðausturlöndum Leiðtogar Ísraels og Palestínu lýstu yfir vopnahléi eftir fund þeirra í Egyptalandi í dag en þjóðirnar hafa átt í blóðugri styrjöld síðastliðin fjögur ár. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði að nú væri von á betri framtíð í Miðausturlöndum í fyrsta sinn í langan tíma og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, tók í sama streng. 8.2.2005 00:01
Dollý-klónarar snúa sér að mönnum Vísindamennirnir sem klónuðu ána Dollý á sínum tíma hafa fengið leyfi til að klóna fósturvísa úr konum í því skyni að rannsaka sjúkdóma sem tengjast hreyfitaugakerfi mannsins. 8.2.2005 00:01
Hermenn sviptir orðum Ellefu bandarískir landgönguliðar hafa verið sviptir heiðursmerkjum sem þeir fengu eftir að þeir særðust í Írak. Þegar kom í ljós að hermennirnir höfðu særst í slysum en ekki bardögum voru þeir sviptir orðum sem þeir fengu að því er bandaríska dagblaðið Washington Post segir. 8.2.2005 00:01
Ný friðarvon vaknar Leiðtogar Ísraels og Palestínu stigu skref í átt til friðar þegar þeir lýstu í gær yfir vopnahléi eftir meira en fjögurra ára átök. Mikið verk er þó enn óunnið og verða margvísleg mál sem tengjast friðarferlinu rædd á næstu vikum og mánuðum. 8.2.2005 00:01
Verkamannaflokkurinn í sókn Breski Verkamannaflokkurinn ynni öruggan sigur á andstæðingum sínum ef bresku þingkosningarnar færu fram í dag samkvæmt nýrri skoðanakönnun Populus fyrir breska dagblaðið The Times. 8.2.2005 00:01
Handtökubeiðni vegna mannráns Sænska lögreglan hefur fyrirskipað handtöku manns sem grunaður er um að eiga þátt í ráninu á sænska forstjóranum Fabian Bengtsson. Maðurinn er lagður á flótta og farinn frá Svíþjóð. 8.2.2005 00:01
Horfum til framtíðar Það er tími til kominn að snúa sér frá ágreiningsefnum fortíðarinnar og horfa til framtíðar, sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í ávarpi hennar við stjórnmálaakademíu Parísar. Hún vísaði þar til ágreiningsins um innrásina í Írak. 8.2.2005 00:01
Vígamenn breyta aðferðum sínum Aðferðir vígamanna virðast hafa breyst eftir því sem öryggisgæsla hefur verið efld til að koma í veg fyrir bílsprengjuárásir. Undanfarna daga hefur verið mikið um sjálfsmorðsárásir gangandi vígamanna sem hafa hlaðið sig sprengiefnum. 27 manns hið minnsta létu lífið í nokkrum árásum í Írak í gær. 8.2.2005 00:01
Tannburstun grennandi? Þeir sem eiga sér þá ósk heitasta að grennast en nenna hvorki að breyta um mataræði eða fara í líkamsrækt geta glaðst yfir nýjum rannsóknum sem gerðar voru á 14 þúsund manns í Japan. Þær benda nefnilega til þess að þeir sem bursti tennurnar eftir hverja máltíð séu grennri en annað fólk. 8.2.2005 00:01
Stjórnin með rúmlega 50% Nú á sjöunda tímanum voru birtar fyrstu útgönguspár í dönsku þingkosningunum. Samkvæmt spá systurstöðvar Stöðvar 2, TV2 í Danmörku, hljóta stjórnarflokkarnir ríflega fimmtíu prósent atkvæða og jafnaðarmenn tapa töluverðu fylgi, eins og búist var við. 8.2.2005 00:01
Fljótust í kringum jörðina Hetja sneri heim til Bretlandseyja í dag þegar Ellen MacArthur kom til hafnar eftir 71 dags ferð umhverfis jörðina á tuttugu og þriggja metra löngum báti. Hún sló heimsmetið í siglingum af þessu tagi og var um sólarhring fljótari en sá sem síðast reyndi við metið. 8.2.2005 00:01
Lýtalækningar á dýrum bannaðar Borgarfulltrúar í Hollywood hafa lagt fram tillögu þess efnis að banna lýtalækningar á heimilisdýrum. Samkvæmt tillögunni verður eigendum dýra bannað að fara með dýrin sín til dýralæknis til þess að láta laga útlit þeirra. 8.2.2005 00:01
Myrti fjórtán ára dóttur sína Móðir á fimmtugsaldri hefur verið ákærð fyrir að myrða fjórtán ára dóttur sína á heimili þeirra í New Jersey. Málið hefur vakið mikinn óhug í Bandaríkjunum því móðirin myrti dóttur sína með því að lemja hana með hamri og skóflu þegar hún var sofandi. 8.2.2005 00:01
Nauðgaði konu sinni Hart er deilt um hegningarlög í Arizona í Bandaríkjunum eftir nauðgunarmál sem kom upp í borginni Flagstaff. Samkvæmt núgildandi lögum er einungis hægt að fara fram á eins og hálfs árs fangelsisdóm yfir nauðgun ef sá sem nauðgar er giftur fórnarlambinu. 8.2.2005 00:01
Harkan sex var kjörorðið Harkan sex var kjörorðið, síðasta dag kosningabaráttunnar í Danmörku. Flokkarnir birtu heilsíðuauglýsingar í dagblöðum þar sem hræðsluáróðri var beitt á óákveðna kjósendur. Kjörstöðum verður lokað klukkan sjö að íslenskum tíma en samkvæmt fyrstu útgönguspám heldur stjórnin velli. 8.2.2005 00:01
Evrópa vinur Bandaríkjanna „Það er tímabært að binda enda á deilur fortíðar,“ sagði Condoleeza Rice í París í dag og kvað engan vafa lengur leika á því í Bandaríkjastjórn að Evrópa væri vinur en ekki andstæðingur. 8.2.2005 00:01
Blair sama sinnis og Bush um Íran Íran styður hryðjuverkasamtök og stjórnvöld þar í landi verða að átta sig á því að það verður ekki liðið ef þau muni reyna að hindra friðarferlið í Mið-Austurlöndum. Þetta segir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. 8.2.2005 00:01
Stjórnin hélt velli Ríkisstjórn Anders Fogh Rasmussen hélt velli í þingkosningunum í Danmörku í gær. Fylgi Venstre, flokks Rasmussens, dalaði reyndar dálítið og missti hann fjögur þingsæti frá því í kosningunum 2001 og fékk 52 menn kjörna. 8.2.2005 00:01
36 létust, flestir lögreglumenn Að minnsta kosti þrjátíu og sex manns biðu bana suður af Bagdad, höfuðborg Íraks, í gærkvöldi þegar uppreisnarmenn gerðu árás á lögreglustöð. Að sögn Al-Jazeera fréttastofunnar sem greinir frá atburðinum voru tuttugu og tveir hinna látnu írakskir hermenn og lögreglumenn en fjórtán uppreisnarmenn létust einnig í árásinni. 7.2.2005 00:01
Gíslataka í Sviss Maður sem ekki er vitað deili á ruddist inn í spænskum ræðismannsskrifstofuna í Bern í Sviss í morgun og heldur þar einni eða tveimur manneskjum í gíslingu. Hann barði niður dyravörð áður en hann ruddist inn en dyravörðurinn er ekki alvarlega slasaður. Svissneska lögreglan hefur girt af svæði umhverfis ræðismannsskrifstofuna en þar eru sendiráð all margra ríkja. 7.2.2005 00:01
18 létust vegna gaseitrunar Átján manns fundust látnir á gistiheimili á austurhluta Spánar í gær. Gasleki kom upp á gistiheimilinu aðfararnótt sunnudags og er talið að hann hafi orðið fólkinu að aldurtila. Svo virðist sem gashitari sem kveikt var á hafi annað hvort lekið eða verið gallaður og gefið frá sér eitraðar gastegundir. 7.2.2005 00:01
Strandborgir færðar inn í land Ákveðið hefur verið að færa strandborgir á Indónesíu lengra inn á land til þess að koma í veg fyrir að harmleikurinn frá öðrum degi jóla endurtaki sig. Yfirmenn skipulagsmála á Indónesíu segja að komið verði upp hlutlausum svæðum á milli sjávar og byggðar til þess að koma í veg fyrir hugsanleg áhrif flóðbylgna. 7.2.2005 00:01
Hershöfðingi Saddams handtekinn Öryggissveitir í Írak hafa handsamað fyrrverandi hershöfðingja úr her Saddams Husseins sem sakaður er um að hafa fjármagnað starfsemi hryðjuverkamanna undanfarið. Hershöfðinginn var tekinn fastur í lok desember en ekki var tilkynnt um handtökuna fyrr en í gær. 7.2.2005 00:01
Reyna að halda í hermenn Bandaríkjamenn hafa gripið til margvíslegra aðgerða til þess að sporna við hugsanlegri manneklu í herliði sínu í kjölfar stríðsins í Írak. Stór hluti herliðsins í Írak hefur þegar lokið herskyldu sinni og hefur verið gripið til þess ráðs að bjóða hermönnum þúsund dollara skattfrjálsan kaupauka fyrir að framlengja veruna í Írak. 7.2.2005 00:01
Reykingabann á Kúbu Eitt af höfuðvígjum reykingamanna er nú fallið. Frá og með deginum í dag er bannað að reykja á ýmsum opinberum stöðum á Kúbu auk þess sem lagt hefur verið blátt bann við sígarettusjálfsölum og sölu tóbaks til ungmenna. 7.2.2005 00:01
Sjúkrahúsdvöl páfa lengist Jóhannes Páll páfi II mun dveljast á sjúkrahúsi lengur en gert var ráð fyrir í upphafi að því er talsmaður Vatíkansins tilkynnti í morgun. Dvöl páfa verður framlengd um nokkra daga en upphaflega var sagt að hann þyrfti aðeins að vera undir eftirliti lækna í vikutíma. 7.2.2005 00:01
Gíslatökumaðurinn gafst upp Maður, sem ekki var vitað deili á og ruddist inn í spænsku ræðismannsskrifstofuna í Bern í Sviss í morgun þar sem hann tók starfsmenn í gíslingu, hefur gefist upp. Hann barði niður dyravörð áður en hann hélt inn í húsið en dyravörðurinn er ekki alvarlega slasaður. 7.2.2005 00:01
Aðgerðir harðna í Írak Aðgerðir uppreisnarmanna í Írak eru að harðna og árásum að fjölga á nýjan leik eftir þingkosningarnar í landinu. Tuttugu og fimm hið minnsta hafa beðið bana í árásum í morgun og á fjórða tug í gærkvöldi. Á sama tíma blasir mannekla við í Bandaríkjaher. 7.2.2005 00:01
Kippur kominn í kosningabaráttuna Fjörkippur er loksins hlaupinn í kosningabaráttuna í Danmörku en þar verður kosið til þings á morgun. Skoðanakannanir benda til þess að það dragi saman með stjórn og stjórnarandstöðu. Sighvatur Jónsson fylgist með kosningabaráttunni í Danmörku. 7.2.2005 00:01
Vilja semja við Írani Varnarmálaráðherra Ísraels sagði í dag að hann væri sammála Condoleezu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um að fara eigi samningaleiðina til að fá Íran til þess að hætta við kjarnorkuáætlun sína en ekki að beita hervaldi. 7.2.2005 00:01
Taka við eftir 18 mánuði Innanríkisráðherrann í bráðabirgðastjórn Íraks sagði í dag að hann telji að Írakar verði færir um að sjá um eigin öryggismál eftir eitt og hálft ár. Fala Al-Nakíb lét þessi orð falla á öryggisráðsternu sem nú stendur yfir í Sádi-Arabíu. 7.2.2005 00:01
Ruglingslegar fréttir af gíslatöku Þrír menn sem réðust inn á ræðismannsskrifstofu Spánar í Bern í Sviss og tóku þar gísla virðast hafa sloppið úr umsátri svissnesku lögreglunnar. Fréttir af þessari innrás hafa verið vægast sagt ruglingslegar. 7.2.2005 00:01
Ormar og humrar finna ekki til Norskir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að maðkar finni ekki til sársauka þegar þeir eru þræddir upp á öngla og að humrar finni ekki til sársauka þegar þeir eru soðnir lifandi. Vísindamennirnir segja að þessi dýr hafi mjög ófullkomið taugakerfi og engan heila til þess að lesa skilaboð um sársauka. 7.2.2005 00:01
Þúsundir hvöttu Abbas Þúsundir Palestínumanna fóru út á götur Gaza-borgar í dag til þess að hvetja Mahmoud Abbas forseta til þess að tengja friðarviðræður við Ísraela frelsun palestínskra fanga. Um 8000 Palestínumenn eru í ísraelskum fangelsum. 7.2.2005 00:01
Sanna að það sé ekki neyðarástand Bresk mannréttindasamtök hafa leitað til mannréttindadómstóls Sameinuðu þjóðanna til þess að sanna að ekkert neyðarástand vegna hættu á hryðjuverkum ríki í Bretlandi. Bretar lýstu einir Evrópuþjóða yfir neyðarástandi eftir hryðjuverkaárásina á Bandaríkin árið 2001. 7.2.2005 00:01