Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn slatti af bóluefni eftir og opið inn í kvöldið Ennþá er opið í bólusetningu gegn Covid-19 og segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, að enn séu um 500 skammtar eftir í Laugardalshöllinni. Líklega verði opið þar til klukkan 20:00 að minnsta kosti. 23.6.2021 16:00
Taka fólk með Pfizer-strikamerki fram fyrir röðina Bólusetningum í Laugardalshöll í dag fer senn að ljúka og styttist í að þeir ríflega ellefu þúsund skammtar af bóluefni Pfizer sem til stóð að gefa í dag klárist. 23.6.2021 15:18
Baðkar fyrirliða KR kom við sögu í lekamáli Nokkrir íbúar í fjölbýlishúsi í Glaðheimum í Reykjavík hafa verið dæmdir til að greiða nágrannakonu sinni rúma milljón vegna tjóns á séreign konunnar. Líklegt er að lekinn hafi að hluta komið frá baðkari eins besta knattspyrnumanns landsins. 23.6.2021 14:52
Mælirinn fullur hjá eitt þúsund læknum „Mælirinn hjá öllum er fullur,“ sagði Steinunn Þórðardóttir öldrunarlæknir við fjölmiðla rétt áður en læknar afhentu fulltrúum heilbrigðisráðherra undirskriftalista 985 lækna í morgun. Fulltrúi lækna vonast til að skrið komist á málið eftir fund með aðstoðarmanni ráðherra. 23.6.2021 14:02
Til skoðunar að auka framboð náms fyrir fatlaða í HÍ Rektor Háskóla Íslands segir til skoðunar að auka námsframboð í skólanum fyrir fólk með fötlun. Einhverf kona segir ósanngjarnt að henni standi bara starfstengt diplómanám til boða. 23.6.2021 13:20
Telur orðróm um að ungt fólk svindli á bólusetningu hæpinn Framkvæmdastjóri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segist ekki hafa orðið var við það að ungt fólk mæti í bólusetningu í Laugardalshöll, láti skanna strikamerkið sitt og yfirgefi svo svæðið án þess að fá sprautu. Með því væri hægt að fá bólusetningarvottorð án þess að hljóta fulla bólusetningu. 23.6.2021 13:17
Vill endurskoða fyrirkomulag skólasunds vegna vanlíðanar barna Salvör Nordal, umboðsmaður barna hefur sent mennta- og menningarmálaráðuneyti bréf þar sem hún hvetur til þess að fyrirkomulag sundkennslu í grunnskólum verði endurskoðað. Hún telur ákveðinn hóp upplifa óöryggi og vanlíðan í sundtímum. 23.6.2021 12:09
Ísbjörninn sem reyndist líklega álft Ekki er útlit fyrir að ísbjörn hafi í raun komið á land á Hornströndum í nótt eftir að dýralæknir komst að þeirri niðurstöðu við skoðun á sýni að svæðinu að líklegast hafi verið um grasætu að ræða. 23.6.2021 12:00
Persónuvernd telur mögulega tilefni til að útvíkka athugun sína Persónuvernd hefur borist svar frá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu um það hvernig leitast er við að tryggja öryggi við auðkenningu leghálssýna sem send eru til Danmerkur og upplýsinga sem verða til við rannsóknir á þeim. 23.6.2021 11:57
Þeysist eftir Þjóðvegi 1 í hjólastól Handahjólreiðamaðurinn Arnar Helgi Lárusson er á fleygiferð í áttina að lokamarki sínu að hjóla 400 km fyrir lok dags. 23.6.2021 11:53
Skallaði barnsmóður sína í íþróttahúsi í viðurvist barna Karlmaður á Reykjanesi hefur verið dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi og til að greiða barnsmóður sinni 200 þúsund krónur í bætur fyrir að hafa skallað hana í íþróttahúsi í viðurvist ungs sonar þeirra og fleiri barna. Ósætti þeirra má rekja til langvarandi forsjárdeilu. 23.6.2021 11:35
Búið að ákveða bólusetningardaga fram að „sumarfríi“ Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út bólusetningardagatal fram að „sumarfríi“. Enn stendur til boða að skrá sig í bólusetningu með efninu frá Janssen, í gegnum netspjallið á heilsuvera.is. 23.6.2021 10:48
Bíll brann í Vestmannaeyjum Slökkviliðið í Vestmannaeyjum var ræst út upp úr klukkan níu í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um mikinn reyk sem lagði frá athafnasvæði sorpeyðingarstöðvarinnar í sveitarfélaginu. 23.6.2021 10:17
Sigmundur Davíð mætir til Drífu Snædal Drífa Snædal, forseti ASÍ, tekur á móti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, klukkan tíu í dag. 23.6.2021 09:46
Hraðpróf tekin í notkun hér á landi Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið í notkun hraðpróf til greiningar á kórónuveirunni. Prófin eru ekki notuð við einkennasýnatöku heldur eru þau einungis ætluð þeim sem þurfa að sýna fram á neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku á landamærum. 23.6.2021 09:40
Fólk geti enn veikst þótt stór hluti þjóðarinnar sé kominn með vörn Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir miður að fólk sé farið að haga sér líkt og faraldri kórónuveirunnar sé lokið. 23.6.2021 09:02
Pfizer-bólusetning í dag: Tólf þúsund skammtar til Bólusetningum verður fram haldið í Laugardalshöll í Reykjavík í dag, en bólusett verður með bóluefni Pfizer. Um er að ræða seinni bólusetningu og þá verður haldið áfram með aldurshópa sem dregnir voru af handahófi. 23.6.2021 08:36
Skipuðu tvo nýja oddvita Frjálslynda lýðræðisflokksins Uppstillingarnefnd Frjálslynda lýðræðisflokksins, sem stofnaður var af athafnamanninum, hagfræðingnum og fyrrverandi forsetaframbjóðandanum Guðmundi Franklín Jónssyni fyrir komandi Alþingiskosningar, hefur skipað tvo nýja oddvita. 23.6.2021 08:25
Tilkynningum vegna kynferðisbrota gegn börnum fjölgar mikið Tilkynningum til barnaverndanefnda vegna kynferðisbrota hefur fjölgað mikið milli ára, en fyrstu þrjá mánuði ársins voru þær alls 224 eða um 87 prósent fleiri, samanborið við sama tímabil í fyrra. 23.6.2021 06:19
Telja ekki um hvítabjörn að ræða Leit er hætt að ísbirni á Hornströndum en eftir „nánari eftirgrennslan og rannsóknir“ er ekki talið að ummerki sem gönguhópur fann í gær séu eftir hvítabjörn. 23.6.2021 06:08
Leita á Hornströndum vegna mögulegra ummerkja um ísbjörn Leit stendur nú yfir á Hornströndum eftir að gönguhópur tilkynnti lögreglu á Vestfjörðum um ummerki eftir mögulegan ísbjörn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu á Vestfjörðum á öðrum tímanum í nótt. 23.6.2021 02:26
Segir dóminn geta ýtt við hestamannafélögum og komið í veg fyrir slys Guðrún Rut Heiðarsdóttir knapi hafði betur í skaðabótamáli sínu gegn Vátryggingafélagi Íslands fyrr í mánuðinum eftir hestaslys sem hún lenti í fyrir rúmum fimm árum. Hún segir dóminn fordæmisgefandi og staðfesta það að hestamannafélög verði að passa betur upp á aðstæður og merkingar við skipulagðar æfingar. 22.6.2021 22:47
Einkafjármögnun og veggjald fylgja nýrri Hornafjarðarbrú Vegagerðin hefur boðið út smíði nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljót ásamt fjármögnun verksins. Þetta er fyrsta útboðið frá því sérstök lög voru samþykkt í fyrra sem heimila ríkinu að heimta vegtolla og semja við einkaaðila um fjármögnun samgönguframkvæmda. 22.6.2021 22:22
FÍFL er endurvakið félag lögregludeildar sem er ekki lengur til Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna (FÍFL) eru félagasamtök starfsstéttar sem er í raun ekki lengur til. Fíkniefnadeild lögreglunnar var lögð niður árið 2016 og heyrir fyrri starfsemi hennar nú undir svið miðlægrar rannsóknadeildar. Fjármagn sem FÍFL safnar hefur að mestu runnið til einkafyrirtækis með óljósu eignarhaldi. 22.6.2021 20:43
Færri eftirlegukindur skiluðu sér en vonir stóðu til Aðeins 8.500 af 14.000 skömmtum af bóluefni Janssen gegn Covid-19 gengu út í Reykjavík í dag. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslunni segir að búist hefði verið við fleiri eftirlegukindum í dag. Ungt fólk á aldrinum 24 til 33 ára mætir síst af öllum í bólusetningu hér á landi. 22.6.2021 19:10
Ábending um hryðjuverkaógn vakti sérstakan ótta lögreglu Um fimm marktækar ábendingar um hryðjuverkaógn berast ríkislögreglustjóra á hverju ári. Í byrjun árs vakti ein þeirra sérstakan ótta en reyndist svo tilhæfulaus. Aðstoðaryfirlögregluþjónn telur þó almennt litlar líkur á hryðjuverki á Íslandi. 22.6.2021 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Um fimm marktækar ábendingar um hryðjuverkaógn berast ríkislögreglustjóra á hverju ári. Í byrjun árs vakti ein þeirra sérstakan ótta sem svo reyndist tilhæfulaus. Aðstoðaryfirlögregluþjónn telur þó almennt litlar líkur á hryðjuverki á Íslandi. 22.6.2021 18:00
Svona gæti hraunið litið út í lok sumars Veðurstofan og Háskóli Íslands hafa gefið út nýtt hraunflæðilíkan, sem sýnir tvær mögulegar sviðsmyndir fyrir hraunflæði úr Nátthaga. Óvissa er uppi um hvenær hraun byrjar að flæða suður úr Nátthaga eftir að svæðið fyllist af hrauni. 22.6.2021 17:23
Alveg galin hugmynd að fara að banna Hopp um helgar vegna fyllerís Framkvæmdastjóri Hopp, stærsta rafskútufyrirtækis á landinu, telur „alveg galið“ að fara að banna rafskútur um helgar til þess að forðast slys vegna ölvunar. Sú hugmynd var sett fram í nýrri skýrslu um umferðaröryggi sem unnin var fyrir Reykjavíkurborg. 22.6.2021 16:46
Fjögurra ára fangelsi fyrir að brjóta gegn dóttur sinni Íslenskur karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn dóttur sinni og vörslu barnakláms. 22.6.2021 16:30
Vara fólk við „lífshættulegum fíflaskap“ Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu með yfirskriftinni „Lífshættulegur fíflaskapur – ekki hetjuskapur,“ þar sem því er beint til fólks sem leggur leið sína upp að gosstöðvunum í Geldingadölum að ganga ekki á nýstorknuðu hrauninu sem þar er að finna. 22.6.2021 15:03
Hundur seldur á uppboði hjá sýslumanni Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu verður í næstu viku með uppboð á Rjúpnabrekku Blakki, enskum setter-hundi, sem er settur á uppboð vegna slita á sameign tveggja aðila. 22.6.2021 14:59
Stúlkurnar voru í uppblásinni sundlaug á Þingvallavatni Stúlkurnar þrjár sem bjargað var úr Þingvallavatni að morgni föstudagsins 18. júní voru í uppblásinni sundlaug á vatninu. Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á Suðurlandi en áður hafði komið fram að um uppblásin bát væri að ræða. 22.6.2021 14:57
Hætt að bólusetja í dag Mæting í bólusetningu með bóluefni Janssen var heldur dræm í dag. Framkvæmdastjóri hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að dyrunum hafi verið lokað klukkan fjögur 22.6.2021 14:40
Segir kulnun og atgervisflótta í læknastéttinni „Læknar eru bara orðnir mjög þreyttir. Þeir geta ekki hlaupið hraðar og það er ákveðin kulnun og atgervisflótti í læknastéttinni.“ Þetta segir Theódór Skúli Sigurðarson svæfinga- og gjörgæslulæknir og forsvarsmaður undirskrifasöfnunar meðal lækna. 22.6.2021 14:30
Dóra Björt segir umdeilda fíkniefnaauglýsingu óboðlega Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata fordæmir auglýsingu sem Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna birtu í síðustu viku og telur afar vafaasamt að nafn Reykjavíkurborgar sé lagt við slíkan áróður. 22.6.2021 14:02
Bongóblíða í kortunum um helgina Það er sól í kortunum á svo til öllu landinu á laugardag, en veðurfræðingur sem fréttastofa ræddi við segir að ferðalangar sem hyggjast elta góða veðrið um næstkomandi helgi eigi mestan séns á því að detta í sólríkan lukkupottinn ef haldið er austur á land, þar sem hiti gæti farið yfir 20 gráður. 22.6.2021 13:55
Haraldur segist reka öðruvísi pólitík en Þórdís Kolbrún Haraldur Benediktsson er þungt hugsi þessa dagana yfir því hvort hann þiggi annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, en í því hafnaði hann í prófkjöri flokksins um helgina. 22.6.2021 13:00
Krefjast 12 milljóna króna af Seltjarnarnesbæ vegna vanrækslu barnaverndar Hin nítján ára gamla Margrét Þ. E. Einarsdóttir og faðir hennar Einar Björn Tómasson hafa stefnt Seltjarnarnesbæ vegna vanrækslu barnaverndar bæjarfélagsins í máli Margrétar. Margrét krefst þess að Seltjarnarnesbær greiði henni níu milljónir króna í miskabætur og Einar krefst þriggja milljóna króna í miskabætur. 22.6.2021 12:57
Útför Johns Snorra frá Vídalínskirkju Útför Johns Snorra Sigurjónssonar fjallgöngumanns verður frá Vídalínskirkju í Garðabæ klukkan 13 í dag. 22.6.2021 12:54
Fengu ómerktan vökva gegn Covid Lögregla rannsakar nú ábendingar sem Lyfjastofnun barst um að einstaklingum hafi verið afhentur vökvi í ómerktu glasi með fyrirmælum um að hann skyldi nota til meðferðar og forvarnar gegn Covid. 22.6.2021 12:15
Bein útsending: Framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til ráðstefnu klukkan 13 í dag um framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. 22.6.2021 12:15
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um skráningu Íslandsbanka í Kauphöllina en bankinn var hringdur inn í Kauphöllina í dag. Þar með er komin kona í forstjórahópinn. 22.6.2021 11:54
Öllum frjálst að mæta og fá Janssen meðan birgðir endast Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur ákveðið að allir sem vilja geti mætt í bólusetningu með bóluefni Janssen fyrir kórónuveirunni nú eftir hádegi í dag. Fólk sem hefur fengið staðfesta kórónuveirusýkingu er sérstaklega hvatt til þess að mæta. 22.6.2021 11:34
BÍ telur FÍFL hafa haft sig að fífli Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands telur Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna (FÍFL) hafa blekkt blaðamenn til þátttöku í umdeildri fíkniefnaauglýsingu. 22.6.2021 11:23