Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Drónar mega fljúga og fjölmiðlar frjálsir á skjálftasvæðinu Banni við flugi dróna verður aflétt klukkan 19 í kvöld. Þá mega fjölmiðlar aftur vera á svæðinu án þess að vera í fylgd björgunarsveita. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. 4.3.2021 16:19
Myndu verja línuna með varnargörðum eða kælingu Ólíklegt er talið að eldgos á Reykjanesi myndi valda truflunum á raforkuflutningi Suðurnesjalínu á Reykjanesi miðað við nýtt áhættumat. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. Ef útlit sé fyrir að hraun muni ógna háspennulínum verði tími til að grípa til aðgerða og verja línuna með gerð varnargarða eða kælingu með öflugum dælum. 4.3.2021 15:34
Ísland langefst á lista Riot Games Forsvarsmenn fyrirtækisins Riot Games lögðu áherslu á að vel væri haldið á sóttvörnum í landinu þar sem eitt stærsta rafíþróttamót yrði hýst. Starfsmenn Riot litu einnig til netaðstöðu enda væri það gífurlega mikilvægt fyrir mót af þessu tagi. 4.3.2021 14:59
Óttaslegin í stóru blokkinni í Grindavík og vilja annað Kristín María Birgisdóttir, upplýsingafulltrúi og markaðsstjóri Grindavíkur, segist vita um pólska íbúa í stóru blokkinni í Grindavík sem vilja ekki búa þar lengur. Nú ríði á að upplýsa pólska samfélagið og von sé á sérfræðingum frá Veðurstofu til að svara spurningum sem brenni á þeim. Túlkur verði fenginn til að auðvelda fræðsluna. 4.3.2021 14:05
Stuðningsfólk Viðreisnar líklegast til að fara í frí til útlanda á þessu ári 58,7 prósent Íslendinga segja ólíklegt eða útilokað að þeir fari í frí til útlanda á þessu ári samkvæmt könnun Maskínu sem unnin var fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. 16,1 prósent svarenda telja mjög líklegt eða alveg öruggt að utanlandsferð sé í kortunum. 4.3.2021 13:01
Evrópusamstarfið þungamiðjan en samskipti við framleiðendur alltaf í gangi Evrópusamstarfið er þungamiðjan í bóluefnakaupum Íslendinga að sögn forsætisráðherra. Stjórnvöld eiga þó áfram í samskiptum við framleiðendur innan þess og utan til þess að tryggja að bólusetning gangi eins hratt og mögulegt getur hér á landi. 4.3.2021 12:47
Haraldur varaði við því að kvika frá Krýsuvík gæti gosið við Reykjavík Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur varaði við því fyrir sex árum að sprungukerfi frá Krýsuvíkureldstöðinni gæti leitt til eldgoss í jaðri Reykjavíkur. Hvatti hann þá til þess að betra áhættumat yrði gert fyrir Reykjavíkursvæðið. 4.3.2021 12:39
Árekstur á mótum Sæbrautar og Langholtsvegar Tveir bílar rákust saman á mótum Sæbrautar og Langholtsvegar skömmu eftir hádegi í dag. 4.3.2021 12:35
Rýmingaráætlun fyrir Vogana á lokametrunum Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum eru við öllu búnir og í startholunum ef til eldgoss kemur að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum, en rætt var við hann í beinni útsendingu í hádegisfréttum Bylgjunnar. 4.3.2021 12:34
Óþægilegt að finna skjálftana færast nær „Það er ekki því að neita að eftir því sem þetta færist nær að þá er þetta óþægilegra, og við finnum það betur á eigin skinni,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík. Ekkert lát er á jarðskjálftahrinunni á Reykjanesskaga en skjálftavirknin hefur verið að færast sunnar og nær Grindavík, sem þýðir að Grindvíkingar finna enn meira fyrir skjálftunum en áður. 4.3.2021 12:29
Áfram gert ráð fyrir að gos muni hefjast Áfram er mikil skjálftavirkni á Reykjanesskaganum þó eitthvað hafi dregið úr óróapúlsi í nótt. Þó er enn gert ráð fyrir að eldgos muni hefjast, að sögn Kristínar Jónsdóttur náttúruvársérfræðings. Stór skjálfti reið yfir í morgun en hann er sá stærsti í rúma tvo sólarhringa. 4.3.2021 11:50
Áætla að hefja bólusetningar 70 ára og eldri í næstu viku Til stendur að bólusetja 7.000 einstaklinga í þessari viku og sama fjölda í næstu viku, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Hann segir gert ráð fyrir að í næstu viku hefjist bólusetning einstaklinga á aldrinum 70 til 80 ára. 4.3.2021 11:39
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Staðan á Reykjanesi vegna jarðskjálfta og mögulegra eldsumbrota verður að sjálfsögðu tekin í hádegisfréttatíma Bylgjunnar klukkan tólf. 4.3.2021 11:30
Einn greinst með suður-afríska afbrigðið Einn hefur greinst með suður-afríska afbrigði SARS-CoV-2 hér landi, það var fyrir fjórum dögum. Um var að ræða smit á landamærunum. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi vegna Covid-19 rétt í þessu. 4.3.2021 11:14
Aftur greindist enginn innanlands Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, fimmta daginn í röð. Enginn greindist heldur á landamærunum. 4.3.2021 11:02
Svona var 166. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Fundirnir fara nú fram einu sinni í viku, á fimmtudögum, en faraldurinn er í lægð hér á landi og ekki greinst smit undanfarna daga. 4.3.2021 10:33
Ríkið viðurkennir brot á mannréttindum og greiðir milljónir í bætur Íslenska ríkið viðurkennir að fimm Íslendingar hafi ekki fengið réttláta málsmeðferð hér á landi varðandi dóma sem þeir fengu í kjölfar hrunsins. Ríkið greiðir bætur í málinu og hefur Mannréttindadómstóll Evrópu því fellt niður málin. 4.3.2021 10:04
Telur ekki rétt að rífa Fossvogsskóla en fólk með mygluóþol þoli ástandið illa Sveppafræðingur Náttúrufræðistofnunar Íslands sem greindi sýni í desember úr Fossvogsskóla segir að þó mygla hafi minnkað þar frá síðustu rannsókn hafi hlutfallslega mikið fundist af einni sveppategund. Tegundin sem kallast kúlustrýnebba getur valdið valdið fólki með sveppaóþol miklum óþægindum. Hún telur að ekki þurfi að rífa skólann en erfitt geti verið erfitt að finna upptök myglunnar. 4.3.2021 09:32
Snarpur skjálfti fannst vel á suðvesturhorninu Snarpur skjálfti varð rétt í þessu sem fannst vel á suðvesturhorninu. Skjálftinn var 4,5 að stærð samkvæmt töflu á vef Veðurstofu Íslands og mældist klukkan 08:54. 4.3.2021 08:57
Stjórnvöld skoða aðra kosti í öflun bóluefnis Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að vandi Evrópusambandsins við öflun bóluefna valdi sér áhyggjum og því skoði íslensk stjórnvöld nú alla kosti í þeim efnum. 4.3.2021 08:56
Meirihlutinn í borginni sækir í sig veðrið Allir flokkar sem eiga fulltrúa í meirihlutanum í borginni myndu bæta við sig fylgi frá síðustu kosningum ef gengið yrði til kosninga nú, ef marka má könnun sem Gallup gerði fyrir Samfylkinguna á dögunum og Fréttablaðiið greinir frá í dag. 4.3.2021 08:48
Fólk geti lent mjög óvænt í aðstæðum sem það kemst ekki úr ef það fer inn á svæðið Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, beinir því til almennings að vera ekki á ferðinni á því svæði á Reykjanesskaga þar sem óróinn og skjálftavirknin er hvað mest. 4.3.2021 08:33
Braut rúðu í lögreglubíl Maður braut rúðu í lögreglubíl í Hafnarfirði í gærkvöldi eftir að lögregla hafði stöðvað hann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. 4.3.2021 07:20
Sýknaður af ákæru fyrir árás á fyrrverandi maka Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði karlmann af ákæru um ofbeldi í nánu sambandi í síðustu viku. Karlmaðurinn var ákærður fyrir að ráðast á fyrrverandi maka sinn og barnsmóður, tekið hana hálstaki og hent henni út á stétt. 3.3.2021 22:52
Dagurinn í myndum: „Þetta eru mjög spennandi tímar“ Þetta eru spennandi tímar fyrir jarðvísindin og á hverjum degi sem líður í þeim jarðhræringum sem nú standa yfir á Reykjanesi læra vísindamenn eitthvað nýtt. Þetta segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Síðast varð eldgos á svæðinu á þrettándu öld og nú er útlit fyrir að fljótlega kunni aftur að gjósa, þótt margt sé óljóst ennþá. 3.3.2021 22:11
Koma fyrir mælitækjum vegna mögulegrar gasmengunar í Vogum Búnaður til að mæla styrk brennisteinsdíoxíðs hefur verið komið fyrir í Vogum vegna möguleikans á að gos hefjist í nágrenni Keilis á Reykjanesskaga. Umhverfisstofnun ætlar að setja upp mæla á fleiri stöðum á Reykjanesi eins fljótt og mögulegt er. 3.3.2021 21:54
Um sautján hundruð jarðskjálftar mælst frá miðnætti Óróamerki er einn vel greinanalegt á Reykjanesi suður af Keili við Litla Hrút og sést óróinn best á jarðskjálftastöðvum á Reykjanesskaga, þó það hafi heldur minkað eftir klukkan fimm í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruvársérfræðingum Veðurstofunnar nú fyrir stundu. 3.3.2021 20:51
Þetta sá Kristján Már úr þyrlunni skammt frá Keili „Við erum svolítið smeykir,“ sagði Kristján Már Unnarsson fréttamaður þegar hann lýsti því sem fyrir augu bar í beinni útsendingu úr þyrlu í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrr í kvöld. Kristján Már var staddur ásamt Arnari Halldórssyni tökumanni auk þyrluflugmanns skammt frá Keili á Reykjanesi, þar sem líklegt þykir að mögulegt eldgos komi til með að eiga upptök sín, ef til þess kemur. 3.3.2021 20:40
Heimstorg opnað fyrir fyrirtæki í þróunarsamvinnuverkefni Heimstorg Íslandsstofu var formlega opnað í dag en það er vettvangur fyrir fyrirtæki sem vilja koma að fjárfestingum og þróunarsamvinnuverkefnum í útlöndum. Utanríkisráðherra segir mikilvægt að atvinnulífið fái tækifæri til taka þátt í þróunarsamvinnu og fái aðstoð í samskiptum við stjónvöld annarra ríkja og fjölmarga sjóði sem fyrirtæki geti leitað í. 3.3.2021 20:00
Allt á suðupunkti í deilum um byggingar á Kirkjusandi 105 Miðborg í stýringu Íslandssjóða hefur ráðið nýjan verktaka til að ljúka framkvæmdum á kirkjusandsreitnum eftir að hafa rift samningi við Íslenska aðalverktaka um byggingu þriggja húsa upp á um tíu milljarða króna. 3.3.2021 19:31
Minnir á tíma Kröflueldanna Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir jarðhræringarnar á Reykjanesi minna nokkuð á Kröflueldana á áttunda og níunda áratugnum. Páll var gestur í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem hann greindi stöðuna. Hann segir það ennþá vera nokkuð á reiki hvað rétt sé að kalla atburðina sem nú eru í gangi. 3.3.2021 19:25
Voru að undirbúa drónaflug yfir skjálftasvæðið þegar þær þurftu að snúa við Vísindakonurnar Ásta Rut Hjartardóttir, jarðeðlisfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands og Ester Hlíðar Jenssen, landmótunarfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, voru staddar á jarðskjálftasvæðinu við Keili síðdegis í dag þegar þeim barst tilkynning um að vart hafi orðið við gosóróa á svæðinu. Þær voru að undirbúa drónaflug yfir svæðið þegar tilkynningin barst og þurftu þá að snúa við. 3.3.2021 18:34
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Eldgos gæti hafist á Reykjanesi á næstu klukkustundum eða dögum. Klukkan tuttugu mínútur yfir tvö í dag hófst óróapúls, sem mælist í aðdraganda eldgosa, á flestum jarðskjálftamælum. Fjallað verður ítarlega um stöðu mála í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30. 3.3.2021 18:18
Þurftu að vísa frá fólki á níræðisaldri í bólusetningu Um fimmtíu manns á níræðisaldri sem voru boðaðir í bólusetningu gegn kórónuveirunni í Laugardalshöll þurftu frá að hverfa þegar bóluefnið kláraðist í dag. 3.3.2021 18:11
Kortleggja minjar sem gætu farið undir hraun Friðaðar og friðlýstar minjar, þar á meðal bæjarstæði, hús og kirkjur, gætu farið undir hraun ef gos hæfist á Reykjanesi. Minjastofnun hefur kortlagt hvaða menningarminjar sem hún hefur á skrá séu í hættu út frá nýjasta spálíkani eldfjallafræði- og náttúruváhóps Háskóla Íslands. 3.3.2021 17:31
Stórum hluta Álfhólsskóla lokað vegna myglu Einni álmu í Álfhólsskóla í Kópavogi verður lokað vegna myglu sem fundist hefur í þaki byggingarinnar. Lokunin tekur gildi frá og með morgundeginum og er gerð í varúðarskyni til að vernda nemendur og starfsmenn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. 3.3.2021 17:21
Ólíklegt að hætta stafi af gasmengun ef til goss kæmi Litlar líkur eru á því íbúum muni stafa hætta af gasmengun ef til goss kæmi. Gert er ráð fyrir því að gasmengun geti lagt yfir höfuðborgarsvæðið en Veðurstofan mun birta spá um gasmengun samfara veðurfréttum ef af gosi verður. 3.3.2021 17:10
Þrír í lengra gæsluvarðhald vegna morðsins Þrír voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna vegna rannsóknar hennar á morði í Rauðagerði í Reykjavík í síðasta mánuði. 3.3.2021 16:39
Kristján Már flaug yfir Reykjanesið í þyrlu Arnar Halldórsson kvikmyndatökumaður og Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, eru nú í þyrlu Helicopter.is á sveimi yfir Reykjanesinu þar sem óróapúls hófst um klukkan 14:20 í dag. 3.3.2021 16:31
„Það er ekkert að sjá í augnablikinu og það eru engar hamfarir að gerast“ Engin merki eru um að gos sé hafið á Reykjanesi og eru núverandi hreyfingar í samræmi við fyrirliggjandi sviðsmyndir. Óróapúls mældist fyrst á þriðja tímanum í dag suður af Keili við Litla-Hrút en slík merki mælast gjarnan í aðdraganda eldgosa. 3.3.2021 16:25
Lögregla vaktar veginn við Keili Lögregla stendur nú vaktina á Reykjanesbrautinni við afleggjarann að fjallinu Keili. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði á upplýsingafundinum í dag að vísindafólk og almannavarnir þyrftu vinnufrið á svæðinu. Ekkert væri að sjá í augnablikinu, gos væri ekki hafið. 3.3.2021 16:18
Líklegast að hraun renni til suðurs Líklegast er að hraun frá eldgosi sem er mögulega að hefjast sunnan af Keili á Reykjanesi renni til suðurs. Þetta sýna útreikningar eldfjalla- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. 3.3.2021 15:58
Biðla til fólks að halda sig heima Björgunarsveitir á Reykjanesskaga voru kallaðar út á þriðja tímanum og eru nú í viðbragðsstöðu eftir að Veðurstofa Íslands gaf út að óróapúls hafi mælst suður af Keili við Litla-Hrút. Slík merki mælast gjarnan í aðdraganda eldgosa en ekki hefur verið staðfest að eldgos sé hafið. 3.3.2021 15:47
Heyra hvorki drunur né finna skjálfta Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum segir í samtali við Vísi að hann hafi ekki fundið fyrir neinum óróa. Engar drunur heyrist og jörð hafi varla skolfið frá því um hádegi í gær. 3.3.2021 15:46
Svona var upplýsingafundurinn vegna gosóróans Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Veðurstofa Íslands boða til blaðamannafundar klukkan 16 vegna mögulegs goss á Reykjanesi. 3.3.2021 15:36