Fleiri
Sinubruni hjá Ásvöllum Tilkynning barst um klukkan 18:30. 5.6.2020 18:51 Sjá næstu 50 fréttir
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kórónuveirufaraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif á starfsemi Vogs. Fækka þurfti plássum á sjúkrahúsinu um helming á meðan á samkomubanni stóð og vegna erfiðleika við fjármögnun verður starfsemin skert út árið. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 7.6.2020 18:16
Sigurður Ingi fékk Netflix til að skipta sér út fyrir Sigmund Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra Íslands, lagði Netflix í máli vegna myndbirtingar í kvikmyndinni Laundromat. 7.6.2020 17:43
Forsetinn og áskorandinn í Víglínunni Í fyrsta sinn í sögu forsetaembættisins fær sitjandi forseti mótframboð eftir fyrsta kjörtímabil sitt. Guðmundur Franklín Jónsson fyrrverandi verðbréfasali og hótelstjóri freistar þess að fella Guðna Th. Jóhannesson úr embætti. 7.6.2020 16:30
Segir vinnubrögð meirihlutans forkastanleg Reykjavíkurborg hefur sætt gagnrýni vegna nýs skipulags við Skerjafjörð, meðal annars vegna áforma sem myndu fela í sér að rífa þyrfti viðhaldsskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir vinnubrögð meirihlutans forkastanleg. 7.6.2020 15:41
Gætu þurft að beita hörðum aðgerðum gegn þeim sem hlýða ekki fyrirmælum vegna skimana á landamærum Vettvangsprófanir verða gerðar á næstu dögum í tengslum við undirbúning fyrir skimun fyrir COVID-19 á landamærum. Það væri lögreglumál og gæti þurft að beita hörðum aðgerðum gegn þeim sem neita að hlíta fyrirmælum yfirvalda og þeim reglum sem gilda þegar komið er til landsins. 7.6.2020 13:42
Segir aðferðirnar rangar og þær muni ekki standast lög Ekki verður hægt að treysta því að molta sem unnin er úr úrgangi í gas- og jarðgerðarstöð Sorpu verði nothæf vegna þeirra aðferða sem notaðar eru í stöðinni segir umhverfisstjórnunarfræðingur sem segir margt athugavert í því hvernig hugmyndin um gas- og jarðgerðarstöð hefur verið framkvæmd. 7.6.2020 13:21
Lítið um hátíðarhöld í dag Sjómannadagurinn fer fram með óhefðbundnum hætti í dag vegna kórónuveirunnar. Engin hátíðarhöld eru í Reykjavík en á landsbyggðinni eru hátíðarhöld víðast hvar minni en alla jafna. 7.6.2020 13:21
Eitt virkt smit í viðbót með uppfærðum tölum Þrjú virk kórónuveirusmit eru nú á landi og hefur eitt bæst við eftir að tölur landlæknis og almannavarna voru uppfærðar í dag. Nýtt smit greindist á föstudag sem kom ekki fram í tölum í gær sem bentu til þess að ekkert nýtt smit hefði greinst í heila viku. 7.6.2020 13:16
Syngja saman á sautján einbreiðum brúm Laugardaginn 13. júní 2020 verður merkilegur í starfi Kvennakórs Hornafjarðar en þá ætla konurnar í kórnum að syngja á sautján einbreiðum brúm í Austur Skaftafellssýslu, eða frá morgni til kvölds. 7.6.2020 12:11
Mótmælaalda í Bandaríkjunum og umdeild stöð Sorpu í Sprengisandi Útvarpsþátturinn Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar alla sunnudaga klukkan tíu. 7.6.2020 09:00
Fundargerð sýnir að borgin var ákveðin í að leggja veg í gegnum flugskýli Ernis Fundargerð sýnir að fulltrúar borgarstjóra kynntu breytingar á skipulagi með þeim hætti að vart gat skilist með öðrum hætti en svo að fyrir lægi sú stefnumörkun borgaryfirvalda að vegur yrði lagður í gegnum flugskýli Ernis og að það yrði rifið bótalaust. 7.6.2020 08:25
Mikið kvartað undan háværum samkvæmum og „mannabein“ reyndust úr hundi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust margar kvartanir um hávaða frá samkvæmum í og við heimahús í gærkvöldi og nótt. Í Hafnarfirði var tilkynnt um hugsanlegan funda á mannabeinum en þau reyndust líklega vera úr hundi. 7.6.2020 07:33
Hin fullkomna hringrás geti náðst með líforkuveri Hugmyndir eru uppi um að koma á fót sérstöku líforkuveri á Norðurlandi sem geti tekið á móti öllum lífrænum úrgangi á svæðinu og framleitt úr honum vörur. 7.6.2020 07:00
Einkaþota sækir dýrmæt blóðkorn úr Íslendingum Einkaþota lenti á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan átta í kvöld í þeim eina tilgangi að sækja einn pappakassa. Innihald kassans gæti hins vegar reynst einhver dýrmætasta fraktsending sögunnar frá Íslandi. 6.6.2020 22:16
Tveir fá 35 milljónir Tveir voru með allar tölur réttar í lottói kvöldsins og fá vinningshafarnir rétt tæplega 35 milljónir hvor í sinn hlut. 6.6.2020 21:04
Ætla að þvera Vatnajökul á tíu dögum Það óraði aldrei fyrir Sirrý Ágústsdóttur að fimm árum eftir að hún greindist með krabbamein í annað sinn væri hún á leið í tíu daga ferðalag yfir Vatnajökul. 6.6.2020 21:00
Búið að opna Hvalfjarðargöng eftir árekstur Búið er að opna Hvalfjarðargöng á nýjan leik eftir þriggja bíla árekstur á sjötta tímanum í dag. 6.6.2020 20:52
Stærsti jöklabíll heims til sýnis Trukkurinn Sleipnir var sýndur fyrir framan Hörpu í dag og verður aftur á morgun. Sleipnir er stærsti jöklabíll í heimi. 6.6.2020 20:50
Vill sjá aukið eftirlit með kaupum ungmenna á orkudrykkjum Dósent við Vestur Virginíuháskóla vill sjá aukið eftirlit með kaupum ungmenna á orkudrykkjum. Mikil röskun er á svefni ungmenna og gríðarleg aukning á notkun svefnlyfja meðal barna. 6.6.2020 20:00
„Þetta verður bylting fyrir Selfoss“ Framkvæmdir við byggingu nýs miðbæjar á Selfossi ganga vel en þar verða 35 hús á sex hektara svæði. 6.6.2020 19:23
Segir heilbrigðisráðuneytið ítrekað fresta því að hefja skimun fyrir ristilkrabbameini Heilbrigðisráðunetið hefur ítrekað frestað því að hefja skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi að sögn framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins sem hefur einnig áhyggjur af því að brjóstaskimun falli niður tímabundið um áramótin. 6.6.2020 18:43
Vel gekk að aðstoða þau sem lentu í sjálfheldu Vel gekk að koma tveimur stúlkum og föður þeirra til bjargar eftir að stúlkurnar höfðu lent í sjálfheldu í klettum í Kjósaskarði í dag. 6.6.2020 18:25
Harður árekstur í Hvalfjarðargöngunum Hvalfjarðargöng eru lokuð eftir harðan árekstur í göngunum á sjötta tímanum í kvöld. Ekki urðu mikil slys á fólki í árekstrinum. 6.6.2020 18:15
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Heilbrigðisráðuneytið hefur ítrekað frestað því að hefja skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi að sögn framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins sem hefur einnig áhyggjur af því að brjóstaskimun falli niður tímabundið um áramótin. 6.6.2020 18:07
Ætla að tryggja að skimanir falli ekki niður Tryggt verður að krabbameinsskimanir falli ekki niður þegar Landspítala verður falin ábyrgð á skimun fyrir brjóstakrabbameini í samstarfi við Sjúkrahúsið á Akureyri í lok árs 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu. 6.6.2020 16:06
Unglingar í sjálfheldu í Kjósarskarði Björgunarsveitir aðstoða nú tvær ungar stúlkur sem eru í sjálfheldu í klettabelti í Kjósarskarði. 6.6.2020 15:10
Dæmdur í 238 milljóna sekt fyrir skatt- og skilasvik Landsréttur staðfesti tveggja ára skilorðsbundinn fangelsisdóm og 238 milljóna króna sekt yfir Ágústi Alfreð Snæbjörnssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra lithásks verktakafyrirtækis, fyrir skatt- og skilavik í gær. Fyrri stjórnandi annars verktakafélags sem Ágúst Alfreð stýrði var sýknaður af ákæru um hlutdeild í brotum. 6.6.2020 14:42
Börðu menn og rændu veski Tveir karlmenn voru handteknir eftir að þeir réðust á tvo menn og rændu veski í vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöldi. Þá var kona flutt á bráðamóttöku sem tilkynnt var um að hefði dottið og hlotið höfuðmeiðsli. 6.6.2020 14:00
Smitlaus vika en áfram bætist við í sóttkví Vika er nú liðin frá því að síðast greindist nýtt smit kórónuveiru á Íslandi. Þeim sem eru í sóttkví hefur hins vegar fjölgað um á annað hundrað undanfarna daga samkvæmt tölum landlæknis og almannavarna. 6.6.2020 13:47
Greina ekki sýni á nóttunni Ekki verður hægt að greina sýni úr farþegum sem koma með flugi til landsins seint á kvöldin eða á nóttunni fyrr en daginn eftir að sögn sóttvarnalæknis. Hann segir undirbúningi fyrir skimun á landamærum miða vel áfram. 6.6.2020 13:32
Ákærð fyrir fíkniefnaframleiðslu og umhverfisspjöll í Hvalfjarðargangamálinu Sex hafa verið ákærð fyrir framleiðslu amfetamíns og fyrir að hafa valdið mengunarhættu í Hvalfjarðargangamálinu svokallaða sem komst í fréttir með handtöku fólksins í og við Hvalfjarðargöng í lok febrúar. 6.6.2020 13:28
Gagnrýnin „óþarfa upphlaup“ að mati borgarstjóra Borgarstjóri segir gagnrýni sem borgin sætir vegna áforma um niðurrif flugskýlis í Skerjafirði vera óþarfa upphlaup. Hann segir að nýtt skipulag í Skerjafirði eigi ekki og muni ekki trufla rekstur innanlandsflugs. 6.6.2020 12:45
Brjóstaskimanir gætu fallið niður í fjóra mánuði Krabbameinsfélag Íslands varar við því að skimun fyrir brjóstakrabbameini gæti fallið niður tímabundið í að minnsta kosti fjóra mánuði frá næstu áramótum vegna ákvörðun ráðherra um að færa skimunina til Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri. 6.6.2020 12:23
Gríðarleg aukning á notkun svefnlyfja meðal barna Gríðarleg aukning hefur orðið á notkun svefnlyfja á meðal barna og eru dæmi um að fjögurra ára börn neyti lyfjanna. Sérfræðingur í svefnrannsóknum segir ekki gripið til nægilega markvissra aðgerða til að bæta svefn ungmenna. 6.6.2020 12:15
Skjálftavirkni við Hveragerði Mælar Veðurstofunnar hafa numið fjóra jarðskjálfta með upptök skammt norð-austur af Hveragerði það sem af er degi. 6.6.2020 12:13
Vísa deilu fjögurra BHM-félaga til sáttasemjara Fjögur aðilarfélög Bandalags háskólamanna (BHM) hafa vísað kjaradeildu sinni við Samband íslenskra sveitarfélaga til ríkissáttasemjara. Viðræðurnar hafa staðið yfir í tæpt ár án árangurs. 6.6.2020 11:53
Þunglyndiseinkenni tvöfalt tíðari í heimahjúkrun en á öldrunarheimilum Tíðni þunglyndiseinkenna hjá öldruðum er nær tvöfalt hærri á meðal þeirra sem fá heimahjúkrun en á öldrunarheimilum. Tíðni þunglyndislyfja á öldrunarheimilum er aftur á móti 55% samanborið við 32,% prósent í heimahjúkrun. Þetta leiðir ný rannsókn í ljós. 6.6.2020 11:45
Um 700 jarðskjálftar við Þorbjörn frá því í síðustu viku Vísindaráð almannavarna ætla að funda til að meta stöðuna eftir að vísbendingar komu fram um að landris sé hafið á ný við fjallið Þorbjörn við Grindavík. Um 700 jarðskjálftar hafa í nágrenni bæjarins undanfarna viku, flestir þeirra smáskjálftar. 6.6.2020 09:40
Bændur á Suðurlandi eru byrjaðir að slá Sláttur er hafin hjá bændum á Suðurlandi og lítur vel út með grasspretti og heyfeng í sumar. 5.6.2020 23:34
Segir flugskýlið sem borgin vill rífa með merkustu flugminjum Íslands Höfundur bókarinnar um Flugsögu Íslands hefur óskað eftir því að Minjastofnun grípi til skyndifriðunar til að koma í veg fyrir að borgin rífi flugskýli í Skerjafirði. Hann segir skýlið einhverjar merkustu minjar um upphaf atvinnuflugs á Íslandi. 5.6.2020 21:34
Tripical-deilan komin á borð lögmanna Eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical er ósammála um að henni beri skylda að endurgreiða nemendum Menntaskólans á Akureyri útskriftarferð þeirra. Málið er komið í hendur lögmanna og foreldri skoðar að höfða dómsmál. 5.6.2020 21:00
Nágrannar hjálpuðu við að slökkva sinueldinn Mikill gróðureldur geisar nú við Ásvelli í Hafnarfirði. Allt tiltækt slökkvilið og aðrir viðbragðsaðilar eru nú á staðnum að reyna að ráða niðurlögum brunans. 5.6.2020 20:28
Þrisvar sinnum fleiri Íslendingar taldir hafa fengið veiruna en greindust með hana Niðurstöður úr Covid-mótefnamælingum Íslenskrar erfðagreiningar benda til þess að þrisvar sinnum fleiri Íslendingar hafi fengið veiruna en greindust með hana. 5.6.2020 19:53
Óttast að fíkniefnabangsarnir finnist víða Hlaupbangsar sem innihalda fíkniefni eru í umferð á Norðurlandi vestra. Óttast er að bangsarnir séu víðar á landinu. Ekki hefur fundist bein tenging við hlaupbangsamálið á Suðurnesjum. 5.6.2020 19:16