Fleiri fréttir

Kveðja bankann með blómum og krönsum

Eina bankaútibúi Bolungarvíkur verður lokað á fimmtudag í hagræðingaraðgerðum Landsbankans. Bankinn verður kvaddur á táknrænan máta með blómum og krönsum. Tugir starfa hafa tapast á árinu.

Sigmundur vill heimild til eignarnáms

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hyggst leggja fram frumvarp til laga á yfirstandandi þingi um breytingar á menningarminjum.

Vegavinnumenn á Hellisheiði hætta lífi sínu á hverjum degi

Vegavinnumenn á Hellisheiði segjast hætta lífi sínu á hverjum degi á svæðinu, þar sem hraðatakmarkanir og merkingar séu ekki virtar. Ökumaðurinn, sem keyrði á verkamann á Hellisheiði um helgina og ók svo í burtu, er enn ófundinn.

Heyrnarlaus börn fylgi jafnöldrum sínum

Grunnskólakennari, sem kennir heyrnarlausum börnum, segir að það muni auka möguleika barnanna til menntunar töluvert að láta þau hafa námsefni á táknmáli, en til stendur að vinna við það hefjist á næsta ári. Heyrnarlaus börn komi þá til með að fylgja frekar námsframvindu jafnaldra sinna.

Furðar sig á yfirlýsingu forsætisráðherra

Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata furðar sig á yfirlýsingu forsætisráðherra um að ekki sé heppilegt að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárbreytingar samhliða forsetakosningum á næsta ári. Hún óttast að með þessu sé verið að koma í veg fyrir að þjóðin fái að fella sinn dóm í málinu.

„Að taka Dag á þetta“

Stjórnarsinnar skemmta sér konunglega vegna vandræða Dags B. Eggertssonar og sjá pólitísk sóknarfæri í erfiðleikum í borginni.

Maðurinn sem lést var frá Ísrael

Ferðamaðurinn sem lést þegar hann féll fram af klettum við vestanverðan Svínafellsjökull á öðrum tímanum í gær var 65 ára gamall Ísraelsmaður.

Engin sniðganga í Reykjavíkurborg

Dagur B. Eggertsson þiggur ráð frá borgarstjóra Kaupmannahafnar um sniðgöngu. Frekari skref verða ekki tekin fyrr en eftir samráð.

Vitað um börn og ungmenni sem eru flutt til landsins á fölskum forsendum

Þess eru dæmi að börn eru flutt til landsins á fölsuðum gögnum. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal eru íslensk stjórnvöld gagnrýnd vegna þess að hér á landi er engin sérhæfð þjónusta fyrir börn sem grunur leikur á að séu fórnarlömb mansals.

Einn stærsti heiti pottur í heimi

Risavaxinn pottur í Holuhrauni dregur að sér ferðamenn sem vilja baða sig í heitu jökulvatninu sem rennur undan hraunjaðrinum. Þeir þurfa þó að varast hitasveiflur í vatninu sem hefur farið upp í 50 gráður.

Indverskar áhrifakonur líta til Íslands

"Þær eru að koma hingað til að efla sín viðskiptatengsl fyrst og fremst, læra og skoða markaði, framþróun og skiptast á upplýsingum við íslenskar konur í atvinnurekstri,“ segir Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, um hóp áhrifamikilla indverskra kvenna, FICCI-FLO, sem væntanlegur er til landsins þann 29. september næstkomandi.

Aukin harka hlaupin í kjaradeilu sjúkraliða og ríksins

Sjúkraliðar stefna á verkfall í október og hefja atkvæðagreiðslu um boðun verkfallsins eftir helgina. Á meðan funda lögreglumenn á nóttunni um sín kjaramál en þeir hafa áhyggjur af stöðu kjaraviðræðnanna.

„Skaðinn er skeður“

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ferðaþjónustufyrirtæki hafa fundið fyrir miklum viðbrögðum vegna Ísraelsmálsins og meðal annars fengið haturspósta.

Sjá næstu 50 fréttir