Fleiri fréttir

Hálka og hvassviðri

Búast má við erfiðum akstursskilyrðum um norðanvert landið í dag og einnig um vestanvert landið.

Framkvæmdir við hótel verði stöðvaðar

lEigendur í Þórunnartúni 2 og Borgartúni 8 til 16 krefjast stöðvunar framkvæmda við Þórunnartún 4 og að ógilt verði ákvörðun borgaryfirvalda um að leyfa þar viðbyggingu og 93 herbergja hótel.

Höfuðborgarsvæðið sakað um yfirgang

Bæjarstjórn Grindavíkur er afar ósátt við að fá ekki að vera með í ráðum við endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu. Vinna ætti verkið í nánu samstarfi við Grindavík.

Deilt um hreppaflutninga á austfirskum skólabörnum

Íbúasamtök Eskifjarðar hafa ályktað gegn því að elstu grunnskólabörnin verði send til Reyðarfjarðar í skóla. Bæjarstjórn hefur fallið frá því að börn á Stöðvarfirði verði send til Fáskrúðsfjarðar. Stoppa þarf í um 70 milljóna króna gat á næsta ári.

Ávísað oftar á sterku verkjalyfin

Ávísunum á sterk verkjalyf fjölgaði um fimm prósent milli áranna 2012 og 2013, að því er segir á vef Landlæknisembættisins. Ávísunum lyfja sem innihalda Oxycodon fjölgaði. Árið 2013 kom á markað samheitalyf verkjalyfsins OxiContin sem bæst hefur í flokk sterkra ávanabindandi lyfja á ólöglega vímuefnamarkaðnum hér á landi.

Samstaða mest í Garðabæ og Álftanesi

Íbúar í Garðabæ, á Álftanesi, í Grafarvogi og Grafarholti eru virkastir í því að standa vörð um nágranna sína gegn innbrotum. Íbúar í Hlíðunum eru hins vegar óvirkastir í því að standa vörð um nágrannana.

Miðað við tvær flugbrautir fer nýtingarhlutfallið í 95%

Fulltrúar Isavia og Hjartans í Vatnsmýri svöruðu spurningum þingmanna á opnum nefndafundi á Alþingi í gær. Þeir sem standa vilja vörð um völlinn áréttuðu áhyggjur sínar af öryggi sjúkraflugs verði flugbrautum lokað.

„Námsmatsstofnun myndi allavega ekki fá A frá mér"

„Mér finnst þetta skjal nokkuð pínlegt,“ segir Hulda D. Proppé, kennari í Sæmundarskóla, sem birti í dag færslu á Fésbókarsíðu sinni þar sem hún bendir á málfarsvillur í skjali sem birt var á síðu Námsmatsstofnunnar.

Stefna að stofnanasamningum við lækna

Kjarafundur lækna og ríkisins í morgun skilaði engu segir formaður samninganefndar lækna. Samninganefnd ríkisins mun hins vegar leggja til að stofnanasamningar verði gerðir samhliða kjarasamningum, samkvæmt upplýsingum úr Fjármálaráðuneytinu. Ljóst er að slíkir samningar eru mjög undeildir meðal lækna.

Konungsvegur lagður með handafli hreystimenna

Við fyrirhugaðar framkvæmdir við Flosagjá og Nikulásargjá á Þingvöllum á dögunum komu í ljós leifar af mannvirki sem á sér rúmlega hundrað ára sögu. Nú þarf að ákveða hvernig varðveita megi hinar nýfundnu minjar sem byggðar voru fyrir ferðalag Danakonungs.

Ísland verður með Evrópumeisturum í bókaskattheimtu

Framlag ritlistar til landsframleiðslunnar jafngildir 27 milljörðum króna árlega. Ísland mun skipa sér á bekk með Evrópumeisturum í bókaskattheimtu ef áform um hækkun virðisaukaskatts á bækur ná fram að ganga.

Styður uppbyggingu en ekki deiliskipulagið

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi segir að nýjar upplýsingar hafi orðið til þess að hann styðji ekki deiliskipulag sem gerir byggð á Hlíðarenda mögulega en hann hefur áður lýst stuðningi við byggðina.

Dæmi um að asbest sé losað í venjulega ruslagáma

Fólk getur þurft að greiða hátt í hundrað þúsund krónur fyrir förgun á asbesti. Efnið er baneitrað en hætt er við að farið sé á svig við reglur um förgun vegna hás kostnaðar eða vanþekkingar.

Óttast að missa af því að spila með Sinfó

Ekkert miðar í viðræðum tónlistarskólakennara við sveitarfélögin. Krakka í Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts gætu misst af tækifæri til að spila á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar.

Vill aukna samkeppni á sorpendurvinnslumarkaði

Samkeppniseftirlitið telur að nýlegar breytingar á verklagi tiltekinna sveitarfélaga við söfnun á pappír og pappa í Blátunnur hindri samkeppni til tjóns fyrir heimili og íbúa.

"Það þarf tvo til að semja“

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að kjör lækna verði samkeppnishæfari við erlenda markaði.

Forseti Alþingis til Þýskalands

Einar K. Guðfinnsson og Halldór Ásgrímsson eru meðal ræðumanna á fjölþjóðlegri ráðstefnu í Berlín í tilefni af 25 ára afmælis falls Berlínarmúrsins.

Dagur segir fundarboðið stórfurðulegt

Borgarstjóri vísar því á bug að hugleysi og undanbrögð hafi ráðið því að hann afboðaði sig á þingnefndafund um flugvöllinn í Vatnsmýrinni í morgun.

„Aldrei haldið því fram að þetta væru heildarlaunin“

Læknir sem á dögunum birti launaseðil sinn á Facebook birti einungis hluta hans. Launaseðillinn er í tvennu lagi og skipt upp í dagvinnu og yfirvinnu. Þá var heldur ekki tekin í myndina 1,5 milljón króna launagreiðsla frá Heilsugæslunni á Egilsstöðum.

Sjá næstu 50 fréttir