Tugir ferðamanna deyja á Íslandi ár hvert Heimir Már Pétursson skrifar 6. nóvember 2014 13:31 Framkvæmdastjóri Útfararstofu kirkjugarðanna segir útlendingum sem deyja á Íslandi fjölga með auknum ferðamannastraum og eldri ferðamönnum.
Með fjölgun ferðamanna fjölgar einnig þeim útlendingum sem deyja á Íslandi en stærsta útfararstofa landsins reiknar með að sjá um fjörtíu til fimmtíu látna útlendinga í ár. Mun færri Íslendingar deyja í útlöndum en útlendingar hér á landi. Morgunblaðið greinir frá því í dag að það færist í vöxt að erlendir ferðamenn deyji á Íslandi enda hefur þeim fjölgað mikið á undanförnum árum. Elín Sigrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Útfararstofu kirkjugarðanna staðfestir þetta. „Ég reikna með því að á þessu ári verði þetta á bilinu 40 til 50 manns,“ segir Elín Sigrún. Þetta sé vissulega há tala. „Jú, hún er það og hefur farið mjög vaxandi. Þetta er auðvitað bara sú tala sem við hjá Útfararstofa kirkjugarðanna erum að annast. En ég á von á því að við séum með stærstan hluta þessa útflutnings en ég veit ekki hver heildartalan er,“ segir Elín Sigrún og nokkrar aðrar útfarartofur eru starfandi í landinu. Flestir þeirra sem látast á Íslandi séu Bandaríkjamenn, Þjóðverjar og Pólverjar, og oftast er um ferðamenn að ræða sem deyi hér og flytja þurfi til heimalandsins. „Bæði ferðamenn sem hafa komið sérstaklega hingað til landsins og svo ýmist ferðamenn sem hafa verið á flugi yfir landinu eða á skemmtiferðarskipum við nágrenni landsins og hafa verið fluttir veikir með þyrlum til landsins og látist hér,“ segir Elín Sigrún. Það færist í aukana að eldra fólk deyi hér á landi enda ferðist fleiri eldri borgarar til landsins en áður, sérstaklega frá Þýskalandi. Það sé áberandi fjölgun í dauðsföllum útlendinga en verið hefur á undanförnum árum. Meirihluti þeirra sem deyi á íslandi séu brenndir en aðrir fluttir til heimalandsins í kistum. Íslendingar deyja auðvitað líka á ferðalögum í útlöndum. „Já en það er nú töluvert færra, sem betur fer,“ segir Elín Sigrún. Sennilega innan við tíu á þessu ári.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira