Konungsvegur lagður með handafli hreystimenna Birta Björnsdóttir skrifar 6. nóvember 2014 18:59
Við fyrirhugaðar framkvæmdir við Flosagjá og Nikulásargjá á Þingvöllum á dögunum komu í ljós leifar af mannvirki sem á sér rúmlega hundrað ára sögu. Nú þarf að ákveða hvernig varðveita megi hinar nýfundnu minjar sem byggðar voru fyrir ferðalag Danakonungs. Sumarið 1907 stóð mikið til hér uppi á litla Íslandi. Von var á góðum gesti en Friðrik 8, Danakonungur, hugðist sækja Íslendinga heim. Talið var víst að hinn tigni gestur vildi sjá allar helstu náttúruperlur í nágrenni Reykjavíkur, svo sem Gullfoss og Geysi og Þingvelli og líklegt þótt að hann myndi vilja ferðast um í vagni. Aðeins einn hængur var þar á, samgönguæðar hér á landi einkenndust nær eingöngu af þröngum reiðstígum. Því var ráðist í byggingu nýs vegar. „Þeir komu hingað austur haustið 1906 til að undirbúa og voru hér fram að jólum. Svo komu þeir aftur hingað vorið 1907 og þá voru öll verkfærin ferjuð á sleðum hingað austur. Þeir luku svo við veginn rétt áður en konungurinn mætti á svæðið,” segir Einar Sæmundsen, fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á Þingvöllum. „Fyrir tíma vélvæðingar hér á landi var allt unnið með höndum og maður getur alveg klórað sér í hausnum yfir því þegar maður sér þessi björg sem nýtt voru í framkvæmdina hvers kyns heljarmenni þetta hafa verið.” Þegar allt kom til alls vildi konungur þó fara sjálfur ríðandi eftir konungsveginum svokallaða ásamt um 200 manna fylgdarliði sínu. Hestvagnarnir sem búið var að útvega konunginum með ærnum tilkostnaði komu þó að góðum notum við að ferja ýmsar vistir, sem og kamar fyrir hinn tigna gest. Nú þarf hinsvegar að ákveða hvað verður gert við leifar Konunsvegarins á þessum fjölfarna stað á Þingvöllum. „Við vonumst til að þetta verði tilbúið næsta vor og stefnum ótraruð að því. Við hjá þjóðgarðinum á Þingvöllum vinnum með landslagsarkitekt að þessu verkefni auk þess sem minjavörðurinn á Suðurlandi horfir yfir öxlina á okkur, sem er vel. Við viljum gera þetta í góðu samstarfi. Við munum leggja okkur fram um að skila þessu vel,” segir Einar.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira