"Það þarf tvo til að semja“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. nóvember 2014 13:48 Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. vísir/pjetur
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að kjör lækna verði samkeppnishæf við erlenda markaði. Þó þurfi að hafa í huga að kröfur þeirra þurfi að hafa samhljóm meðal annarra stétta sem einnig gera kröfur til sama launagreiðanda, í þessu tilfelli ríkinu. „Það þarf tvo til að semja,“ sagði Kristján á Alþingi í dag. Ögmundur Jónasson, þingmaður og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, skoraði á deiluaðila að ná samningum hið allra fyrsta. „Ég skora á lækna og ríkisstjórnina að ná samningum hið allra fyrsta. Ég hef fært rök fyrir því hvers vegna ábyrgðin hvílir fremur á ríkisstjórninni og okkur sem höldum, og höfum haldið utan um fjárveitingavaldið hér á Íslandi til að leysa þessa deilu. Ég held að þjóðin vilji það,“ sagði Ögmundur.Ögmundur Jónasson. þingmaður og fyrrverandi heilbrigðisráðherra.vísir/pjeturMikill samhljómur var á meðal þeirra sem til máls tóku og bentu flestir á að kjör lækna þurfi að vera sambærileg við það sem gerist í nágrannalöndum til að tryggja góða heilbrigðisþjónustu hér á landi. Ögmundur benti á að hætta sé á flótta lækna úr opinbera heilbrigðiskerfinu yfir í einkarekstur í ljósi versnandi kjara. „Um síðustu áramót var samið við sjálfstætt starfandi lækna og kjör þeirra hækkuð um 20%. Þar með er verið að setja hvata inn í kerfið að fólk úr almennu stofnununum leiti í einkarekstur. Ég spyr hæstvirtan ráðherra hvort þetta sé gert með ráðnum hug,“ sagði Ögmundur. Kristján Þórs sagði það þó ekki rétt, kjör lækna hefðu hækkað um 3-4 prósent. „Þetta er alrangt og stafar örugglega að hluta til af því að við höfum ekki getað skýrt hvað þar var í gangi,“ sagði Kristján. Sérgreinalæknar hafi verið samningslausir frá árinu 2010 til 2013 og því hafi þeir búið til komugjald sem velt var yfir á sjúklinga til að halda í við kostnaðarhækkun þess tíma. Við samninginn sem gerður var við sérgreinalækna undir lok árs 2013 hafi þetta komugjald og þessi kostnaður sjúklinga verið felldur niður. Kostnaðarhlutdeild sjúklinga í sérlæknaskostnaði lækkaði því úr 42 prósentum í 30 prósent. „Það er, greiðslur sjúklinga í íslenska heilbrigðiskerfinu lækkuðu um hátt í milljarð við þennan samning. Við höfum ekki getað komið þessu fram. Mér er fullljóst að aðilar vinnumarkaðarins og sjúklingasamtökin hafa orðið vör við þessa breytingu, en hún er ekki rædd.“
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira